Morgunblaðið - 18.03.1984, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984
—
47
Nýtt útvarpshús rís af grunni, vel við vöxt að sögn, þrátt fyrir samdrátt þjóðartekna. Þær spurningar vóru
hinsvegar bornar fram á Alþingi í vikunni sem leið, hvort útvarpið gengi — í þjónustu við þegnana — í takt
við nútímann; ítem, hvort ekki væri tímabært að koma margvíslegu efni, sem sjónvarpið á handbært, á
almennan markað og til afnota í skólum í formi myndsnældna. Þar eru Ijón á vegi: höfundarréttur og að því
er virðist viljaleysi í stofnuninni, ef marka má orð Eiðs Guðnasonar, alþingisraanns og fyrrverandi starfs-
manns RÚV.
ingi þingsályktunartillagna, sem
fela ríkisstjórn að kanna eða
framkvæma eitt og annað; 2) með
fyrirspurnum til ráðherra; og 3)
með umræðum utan dagskrár.
Ennfremur að fyrirferð tveggja
síðast töldu þáttanna, fyrirspurna
og umræðna utan dagskrár, hafi
vaxið svo á síðari árum, að
þrengdi að meginverkefni þings-
ins, löggjafarstarfinu.
Eiður Guðnason, formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, hefur
sent bréfritara ábendingu, þar
sem segir m.a.:
„Að því er þingmenn Alþýðu-
flokks varðar þá er þessi fullyrð-
ing ritara „þingbréfs" Morgun-
blaðsins (innskot: Um æ minna
frumvæði þingmanna við flutning
frumvarpa til laga) alls ekki rétt.
Því til staðfestingar aflaði ég eft-
irgreindra upplýsinga frá skjala-
safni Alþingis um þingmál, sem
flutt hafa verið á þessu þingi. Eru
eingöngu talin mál, sem þingmenn
hafa flutt, en stjórnarfrumvörp-
um sleppt. Mál skiptast þannig:
• Alþýðuflokkur: 20 frumvörp og
15 þingsályktunartillögur.
• Alþýðubandalag: 10 frumvörp
og 18 þingsályktunartillögur.
• Bandalag jafnaðarmanna: 5
frumvörp og 8 þingsályktun-
artillögur.
• Framsóknarflokkur: 1 frum-
varp og 12 þingsályktunartillögur.
• Samtök um kvennalista: 1
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
frumvarp og 3 þingsályktunartil-
lögur.
• Sjálfstæðisflokkur: 12 frum-
vörp og 11 þingsályktunartillögur.
Af þessari töflu sést, að a.m.k.
þingmenn Alþýðuflokksins hafa
verið iðnari við að flytja frumvörp
en þingsályktunartillögur. Hins
vegar er sjálfsagt að viðurkenna
það, að þegar um mjög flókin mál
er að ræða eiga þingmenn oft
óhægt um vik og hafa hreinlega
ekki aðstöðu til að semja flókin og
ítarleg lagafrumvörp vegna þess,
að þeir hafa ekki þá sérfræðiað-
stoð, sem nauðsynleg er til slíkra
hluta. Þrátt fyrir það flytja þing-
menn þó allmikið af laga-
frumvörpum, mjög misjafnt þó
eftir flokkum, samanber ofan-
greinda töflu.
Það er svo hinsvegar áreiðan-
lega rétt hjá bréfritara, að fyrir-
spurnum hefur fjölgað nokkuð í
vetur. Það held ég eigi sér einkum
þær skýringar, hversu ötull forseti
Sameinaðs þings, Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson, hefur verið við
afgreiðslu fyrirspurna. Þau ár
sem ég hef setið á þingi eru að vísu
ekki mörg, eða síðan 1978, en ég
minnist þess ekki að jafn greið-
lega hafi gengið að afgreiða fyrir-
spurnir og fá þeim svarað eins nú
á þessu þingi, og fyrir það á for-
seti Sameinað þings þakkir og
heiður skilið. Þessu vildi ég koma
á framfæri í „þingbréfi“.“
Þetta tilskrif skal þakkað. Það
er rétt að þingflokkur Alþýðu-
flokksins hefur verið öðrum
stjórnarandstöðuflokkum iðnaðri
við flutning lagafrumvarpa; hefur
raunar þrjú frumvörp í vinning
umfram hina stjórnarandstöðu-
flokkana fjóra samtals. Þingflokk-
ar, sem að ríkisstjórn standa,
flytja hinsvegar mál bæði sem
stjórnarfrumvörp (en þeim er
sleppt í samanburðartölum Eiðs)
og í formi þingmannafrumvarpa.
Eftir sem áður stendur sú stað-
hæfing bréfritara að umræður
utan dagskrár, sem og fyrirspurn-
ir til ráðherra, hafa vaxið svo að
umfangi á síðari árum, að þrengf
hefur að meginverkefni þingsins.
Máli sínu til stuðnings minnir
hann á, að formaður Alþýðu-
flokksins, Kjartan Jóhannsson, sá
ástæðu til að flytja á þessu þingi
(35. mál 106. löggjafarþings)
frumvarp til breytinga á þing-
sköpum Alþingis. Frumvarp þetta
spannar m.a.:
• Nýjar og að sumu leyti þrengri
reglur um fyrirspurnir, þ.e. að að-
eins fyrirspyrjandi og ráðherra,
sem svarar, fái að taka til máls,
sem myndi stytta þann tíma sem
hver fyrirspurn tekur mjög mikið.
• Nýjar og að sumu leyti þrengri
reglur um þingsályktanir, þ.e. að
þeim verði skipt í tvo flokka, eftir
efni, og fái annar flokkurinn að-
eins eina umræðu í stað tveggja;
ennfremur að ræðutími þing-
manna verði takmarkaður.
• Að ákvæði verði sett í þingsköp
um umræður utan dagskrár (sem
ekki eru þar fyrir); þær fari aðeins
fram í Sameinuðu þingi (en ekki
þingdeildum) og að settar verði
hömlur á ræðutíma, „svo að slíkar
umræður fari ekki úr böndum og
ryðji öðrum þingstörfum frá“, svo
vitnað sé í greinargerð flokks-
formannsins.
Þetta frumvarp var sannarlega
ekki flutt án tilefnis. — Tilefnið á
rætur í öllum flokkum, „mjög mis-
jafnt þó eftir flokkum", svo það
orðalag sé endurnotað.
Hljómsveitin Sú Ellen.
Egilsstaðir:
Hljómsveitin Dúkkulísurnar.
Dúndrandi rokktónleikar í Valaskjálf
KgilsstiMium, 4. mars.
MENNINGARVIKU Menntaskól-
ans á Egilsstöðum lauk í gær með
aimennum dansleik í Valaskjálf þar
sem hljómsveitirnar Aþena, Sú Ell-
en, Fásinna og hinar landsfrægu
Dúkkulísur léku fyrir dansi — en
fyrr um daginn voru rokktónleikar í
Valaskjálf þar sem áðurnefndar
hljómsvcitir komu fram.
Það er orðinn árlegur viðburð-
ur og föst venja í skólahaldi ME
að víkja út af hefðbundnu skóla-
starfi um vikuskeið ár hvert og
efna til svonefndrar menningar-
viku.
Að þessu sinni hófst menning-
arvika menntskælinga með helg-
arferð á Snæfell — en síðan hóf-
ust störf í margvíslegum hópum
eða klúbbum auk þess sem hver
menningarviðburðurinn rak ^nn-
an.
Hátindur menningarvikunnar
var líklega sýning hinnar nýju
kvikmyndar Hrafns Gunnlaugs-
sonar „Hrafninn flýgur" á föstu-
dag og rokktónleikarnir í gær.
Rokktónleikarnir sem báru yf-
irskriftina „Rokk 1“ eru líklega
fyrstu rokktónleikarnir hér um
slóðir sem rísa undir nafni.
Að sögn forvígismanna mennt-
skælinga vaknaði hugmyndin að
„Rokk 1“ fyrir u.þ.b. hálfu ári og
hefur undirbúningur staðið nær
síðan en einkum þó síðasta mán-
uðinn. Höfuðmarkmið rokktón-
leikanna skyldi vera að kynna
austfirskar rokkhljómsveitir og
stuðla að auknu tónlistarlífi hér
austanlands. Ekki var annað að
heyra á þeim menntskælingum í
gær en þeir væru vongóðir um að
markmiðinu yrði náð. Tónleik-
arnir voru mjög vel sóttir og
teknir upp á mynd- og hljóðband.
Kynnir á rokktónleikunum var
Valgeir „Stuðmaður" Guðjóns-
son.
- Ólafur.
' >
Verslið í Cheltenham —
Gloucestershire
Komið og skoðið England, verslið í Cheltenham og gist-
ið hjá Hönnu. Þægilegar feröir beint frá Heathrow-
flugvelli.
Hanna Gunnars Byfield
Stanbrook House
Pittville Circus
Cheltenham, Gloucestershire
England, sími 90-44-242-511628.