Morgunblaðið - 18.03.1984, Side 48

Morgunblaðið - 18.03.1984, Side 48
SUNNUDAGUR 18. MARZ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Landeigendur við Blöndu: Krefja Landsvirkjun um bætur fyrir vatnsréttinn LANDEIGENDUR í jörðum við Blöndu hafa óskað eftir viðræðum við Landsvirkjun um bætur fyrir afnot vatnsréttar til fyrirhugaðrar Blöndu- virkjunar. Hafa þeir falið Jónasi A. Aðalsteinssyni, hrl., að gæta réttar síns vegna virkjunarinnar. Af hálfu Landsvirkjunar eru talin nokkur tormerki á því að semja um bætur vegna þessa, einkum vegna þess að fordæmi um bætur fyrir virkjunarrétt eru mjög fá hér á landi. Hin leiðin væri þá sú að láta kveðja til matsmenn til að skera úr um bæturnar, hversu miklar og hverjir eigi að fá þær, að sögn Hjartar Torfasonar, hrl., lögmanns Landsvirkjunar. Talsverðar umræður um þetta mál urðu sl. haust og er þess að vænta, að þær verði leiddar til lykta á næstunni. „Hjá Landsvirkjun hef- ur ekki verið tekin endanleg afstaða Höfða almennt eign- ardómsmál til að fá staðfestan eignar- rétt á afréttinum til samningaviðræðna en ég á von á að fljótlega verði tekin ákvörðun um það hvor leiðin verður farin, samn- ingar um bætur eða mat,“ sagði Hjörtur Torfason. Ekki hefur áður reynt á bótarétt landeigenda vegna vatnsréttinda, við þær stærri virkjanir, sem byggð- ar hafa verið á seinni árum. Þegar byggðar voru virkjanirnar við Búr- fell, í Sigöldu og við Hrauneyjafoss átti ríkið öll vatnsréttindi í Þjórsá og Tungnaá, hafði keypt þau af Titan-félagi Einars Benediktssonar skálds og fleiri um 1950. Fyrir liggur, að 7—8 eignarjarðir neðan heiðanna eigi vatnsréttindi í Blöndu, alls um 45% vatnsréttar miðað við fallhæð. Því þarf að greiða eigendum þeirra jarða fyrir virkjunarréttinn. Umdeilanlegt er, að sögn Hjartar Torfasonar, hvort virkjunarréttur fylgir afréttarlönd- um á heiðunum, en um 55% fall- hæðar er fyrir þeim löndum. Hrepp- arnir þrír, sem eiga afrétt á Eyvind- arstaðaheiði, telja sig hafa keypt það land um 1920 en fyrir því hafa þeir þó ekki afsal og eru ekki þing- lýstir eigendur landsins. Þeir hyggj- ast því höfða almennt eignar- dómsmál og fá viðurkenndan eign- arrétt sinn á landinu. Hafa þeir fal- ið Guðmundi Péturssyni hrl., að undirbúa málshöfðunina. Vinni þeir málið munu þeir gera kröfu um bæt- ur fyrir virkjunarréttindin. Hátt í eitt þúsund manns fylgdust af lífi og sál með íslandsmeistaramóti unglinga í diskódansi, frjálsri aðferð. Eins og sjá má sýndu keppendur mikil tilþrif við fagnaðarlæti áhorfenda. MorgunbUðM/júiíiu. Góð loðnuveiði suður af Malarrifi: „Fylltu sig all- ir sem ekki rifu“ „ÞAÐ voru um 10 bátar hér suður af Malarrifinu í nótt og þeir fylltu sig allir, sem ckki rifu. Þetta voru stórar loðnutorfur, nýkomnar úr hafi og erf- itt að kasta á þær vegna stærðarinn- ar. Okkur virðist að hún eigi um viku til hrygningar. Þá virðist einnig vera einhver vestanganga á Breiðafirðin- um svo við erum vongóðir um að minnsta kosti viku viðbót á vertíð- inni,“ sagði Viðar Karlsson, skip- stjóri á nótaskipinu Víkingi AK 100, í saratali við Morgunblaðið í gær, en hann var þá á leið til hafnar með um 1.100 lestir af loðnu. Veiðin á föstudag nam alls tæp- um 10.000 lestum af 18 bátum og fyrir hádegið í gær höfðu 9 bátar tilkynnt um afla. Til viðbótar þeim skipum, sem getið var f Morgun- blaðinu í gær, tilkynntu eftirtalin skip um afla á föstudag: Erling KE, 400, Kap II VE, 600, Sighvatur Bjarnason VE, 610, Guðmundur RE, 850, Húnaröst ÁR, 600, Helga II RE, 520, Heimaey VE, 270, Berg- ur VE, 250, Magnús NK, 500, Gullberg VE, 450, Hilmir SU, 1.300, Þórshamar GK, 350 og Örn KE 300 lestir. Skömmu fyrir há- degið í gær höfðu eftirtalin skip tilkynnt um afla: Keflvíkingur KE, 480, Bjarni Ólafsson AK, 950, Al- bert GK, 550, Hákon ÞH, 770, Dagfari ÞH, 270, Rauðsey AK, 520, Víkurberg GK 520, Súlan EA, 780 og Pétur Jónsson RE 810 lestir. Lézt af völdum umferðarslyss ÞRÍTUGUR Reykvfkingur beið bana í umferðarslysi á Reykjanes- braut, skammt frá Sólvangi, ofan Hafnarfjarðar, aðfaranótt laugar- dags. Tildrög slyssins voru þau að fólksbifreið á suðurleið var ekið fram úr annarri bifreið. Við fram- úraksturinn rákust bifreiðirnar lít- illega saman. Sá, sem framúr ók, missti við það stjórn á bifreið sinni og rásaði bíllinn á veginum áður en hann fór útaf hægra megin. Þar lenti bifreiðin á ljósastaur og gjör- eyðilagðist. ökumaðurinn, sem var einn í bifreið sinni, klemmdist í flakinu og tók um hálfa klukku- stund að ná honum úr flakinu. Lézt hann síðan á sjúkrahúsi í gær- morgun, þremur stundum eftir slysið. Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannafélags Reykjavíkur: Nýjar matsreglur skerða tekjur sjómanna um 49% „OKKIJR var kunnugt um að við ferskfiskmat nú ætti að hafa til hlíð- sjónar og tilrauna nýjar matsreglur, sem ekki hafa enn verið samþykktar. Þess vegna kemur okkur mjög á óvart, að nú skuli fiskurinn metinn í Reykja- vík og víðar eftir hinum nýju reglum. Það hefur í för með sér verulegt tekju- tap fyrir sjómenn, þar sem verðlagning fisksins er byggð á öðrum reglum, en nú virðist farið eftir. Sjómenn munu ekki sætta sig við þetta og aðgerðir vegna þessa verða ákveðnar síðar,“ sagði Guðmundur Hallvarðsson, for- maður sjómannafélags Reykjavíkur. Guðmundur sagði, að hann hefði talað við fiskmatsmenn vegna þessa Ekki nýjar reglur heldur ný vinnubrögð til samræmingar, segir Jónas Bjarnason, forstöðu- maður Framleiðslueftirlits sjávarafurða og þeir hefðu staðfest, að metið væri eftir því kerfi, sem taka hefði átt upp við síðustu verðlagningu en ver- ið hafnað af fulltrúum kaupenda. Hann hefði dæmi um það hvernig þessi breyting kæmi út og það væri ljótt. Samkvæmt því væri tekju- skerðing viðkomandi sjómanna tæp 49% borið saman við gildandi reglur, þar sem verðlagning væri grundvöll- uð á þeim. Hér væri um að ræða einnar lestar afla af netabát frá Reykjavík. Samkvæmt gildandi kerfi hefðu 250 kíló átt að fara í annan flokk og 750 kíló í þriðja. Það mat hefði gefið þeim 5.795 krónur, en nú hefði matið verið þannig, að 250 kíló hefðu farið í fyrsta flokk og 750 í úrkast. Afraksturinn væri því aðeins 2.959 krónur eða um 49% minna en ella. Þegar mati væri lokið og verð- lagningu á grundvelli þess, væri því alls ekki fylgt eftir hvort fiskurinn færi í vinnslu samsvarandi gæða- flokkuninni. Jónas Bjarnason, forstöðumaður Framleiðslueftirlits sjávarafurða, sagði í samtali við Morgunblaðið, að farið væri að meta fisk eftir nýjum vinnubrögðum, reglum hefði ekki verið breytt. Þessi vinnubrögð gerðu kleift samræmi í mati um allt land og kerfið væri þannig, að ákveðnir þættir væru metnir sérstaklega og þeim gefnar einkunnir. Leitast væri við að stilla þessu þannig, að sem minnstar breytingar yrðu á matinu yfir landið í heild. Reglugerð hefði ekki verið breytt heldur teldi hann að nú væri farið betur eftir gildandi reglum en áður. Bíldudalur: Muggshús brann til grunna SVOKALLAD Muggshús brann til grunna í nótt. Húsið var notað sem umbúðageymsla fyrir Fisk- vinnsluna en það mun hafa verið reist fyrir aldamót. Mikill eldur var I húsinu og stafaði nokkur hætta af þvf vegna nálægðar olíu- geyma. Henni tókst að afstýra þó geymarnir hitnuðu talsvert og eng- in slys urðu á mönnum. Það var um klukkan 1 aðfara- nótt laugardagsins sem eldsins varð vart og voru heimamenn þegar kallaðir út og slökkvilið- inu á Patreksfirði gert viðvart. Ekki tókst að bjarga húsinu en hins vegar tókst að verja nær- liggjandi hús og olíugeyma. Ein- hver eldur mun þó hafa komizt i þak húss Fiskvinnslunnar, en greiðlega gekk að ráða niðurlög- um hans. Það var Pétur Thorsteinsson útgerðarmaður, sem reisti húsið skömmu fyrir aldamót og var það notað sem geymsla og vinnuaöstaða vegna útgerðar skipsins Muggs og hlaut það nafn af því. Aldrei hefur verið búið í húsinu, en það hefur aðal- lega verið notað sem geymsla og til beitingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.