Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
3
Kristján Ragnarsson:
Kvótinn dreifir
litlu magni yfir
langan tíma
Þess vegna geta menn ekki búizt við aukakvóta fyrir
byggðarlag sitt þegar þeir hafa fyllt eigin kvóta
„KVÓTINN er til þess ætlaður,
meðal annars, að dreifa litlu magni
yHr langan tíma til að jafna sam-
drátt í atvinnu. Að mínu mati getur
það því ekki gerst að vertíðarbátar
að norðan og austan, sem taka
kvóta sinn sunnanlands og vestan
á vertiðinni, geti þrýst á það að fá
aukið kvóta sinn þegar heim kem-
ur með þeim rökum að í heima-
byggð þeirra þurfi að halda uppi
atvinnu," sagði Kristján Ragnars-
Verðjöfnun drykkjarvara:
Svali hækkar,
gosdrykkir lækka
VERÐ Á SVALA hækkar, en gos-
drvkkir lækka samkvæmt fyrirhug-
aðri jöfnun gjalda á drykkjarvörum.
Verðjöfnun þessi var heimiluð á
ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag og
er málið til umfjöllunar í fjár-
málaráðuneytinu. Er Mbl. ræddi
við embættismann í ráðuneytinu í
gær, sagði hann að það eina sem
sér væri kunnugt um niðurstöðu
málsins væri, að drykkurinn Svali
myndi hækka í verði, en gosdrykk-
ir lækka.
son, framkvæmdastjóri LÍÚ, er
Morgunblaðið innti hann álits á
þessum möguleika.
„Ég treysti því, að undan slik-
um sjónarmiðum verði ekki látið.
Kvótakerfið er tilraun, sem við
ætlum okkur að standa við og við
ætlumst til þess, að menn virði
kerfið með kostum þess og göll-
um þetta ár. Það fylgja þessu
kerfi ýmsir kostir, sem ég sé ekki
ástæðu til að tíunda frekar en ég
hef gert. Það er ekki kvótanum
að kenna, að ákveðið er að veiða
minna og atvinna dregst saman,
því verða menn að átta sig á og
haga sér í samræmi við það.
Menn geta því ekki búist við
aukakvóta fyrir byggðarlag sitt
þegar þeir hafa fyllt eigin kvóta,"
sagði Kristján Ragnarsson.
INNLENT
Valtýr Pétursson festir upp eina mynd sína. Morgunbiaðið/KÖE.
Listmunahúsið:
Valtýr Pétursson sýn-
ir 66 gamlar myndir
SÝNING á 66 gouache-myndum
Valtýs Péturssonar frá árunum
1951—1957 verður opnuð í List-
munahúsinu, Lækjargötu 2, á
morgun, laugardaginn 24. mars,
klukkan 14.00. Valtýr heldur þessa
sýningu í tilefni af 65 ára afmæli
sínu.
Öll verk sýningarinnar eru
unnin í anda óhlutbundinnar
listar og eru flest frá sýningu
Valtýs i Listvinasalnum (Ás-
mundarsal) sem haldin var í
nóvember 1952. Á þeim árum
keyptu listunnendur varla abstr-
aktlist eða „compositionir" og
því á listamaðurinn flest þessara
verka enn í fórum sínum.
Sýningin er sölusýning og er
opin virka daga frá klukkan
10.00 til 18.00, en laugardaga og
sunnudaga frá klukkan 14.00 til
18.00. Lokað er á mánudögum.
Sýningunni lýkur 8. apríl.
Margeir og
Wedberg:
Jafntefli
MARGEIR Pétursson og Tom Wed-
berg frá Svíþjóð sömdu um jafntefli
í biðskák sinni úr 3. umferð alþjóð-
lega skákmótsins, sem fram fer í
Neskaupstað. Margeir hafði peði
meir í endatafli en það dugði honum
ekki til sigurs.
Wedberg vann Benóný Bene-
diktsson í biðskák þeirra úr 1. um-
ferð. Helgi Ólafsson er því einn
efstur að loknum 3 umferðum með
2‘/fe vinning. Þá koma Jóhann Hja-
rtarson, Margeir Pétursson, Ha-
rry Schussler og Tom Wedberg
með 2 vinninga. Róbert Harðar-
son, Lombardy, Guðmundur
Sigurjónsson, Knezevid og
McCambridge hafa hlotið 1 '/2
vinning. Lestina reka Benóný og
Dan Hansson — þeir hafa engan
vinning hlotið.
Lifnar yfir
loðnuveiðum
EITTHVAÐ er nú að lifna yfir
loðnuveiðinni enda var þrálát bræla
að ganga niður í gær. Þó hafði ekk-
ert skip tilkynnt um afla síðdegis, en
á miðvikudag varð heildaraflinn
7.170 lestir af 14 skipum.
Til viðbótar þeim skipum, sem
getið var í Morgunblaðinu í gær,
tilkynntu eftirtalin skip um afla á
miðvikudag: Jón Finnsson RE 500,
Sjávarborg GK 600, Guðmundur
Ólafur ÓF 520, Grindvíkingur GK
900, Sighvatur Bjarnason VE 300,
Hilmir II SU 450, Helga II RE 350,
Svanur RE 670, Harpa RE 330,
Gígja RE 650 og Heimaey VE 130
lestir.
Þaö er ekki auðvelt að rata um tölvuheiminn og því miður
hafa allt of margir lent inní blindgötu þegar þeir hafa ætlað að
stytta sér leið eða spara sér tíma og fé.
Wang PC tölvan er tvímælalaust einn besti valkostur þeirra
fyrirtækja, sem eru að hefja tölvuvæðingu.
Wang PC býður í senn fullkomið ritvinnslu- og bókhaldskerfi
og örugga möguleika til stækkunar og aukningar með
tengslum við stærri tölvueiningar.
Heimilistæki hafa selt og þjónustað Wang tölvur í 7 ár með
. árangri sem fjöldi ánægðra viðskiptavina staðfestir.
Þú lendir ekki í blindgötu með Wang!
(WANG)
Við verðum hérna líka á morgun!
ö
SS MwB * f
Heimilistæki hf
TÖLVUDEILD-S/ETÚNI8-SÍMI27500
•...V...W % wAsWAWW ...