Morgunblaðið - 23.03.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
5
. 1 \\ 1 Íiiíá
1 '1 ■ 4
11111 líj
Hluti söngglaða hópsins sem leggur land undir fót um helgina.
Hamrahlíðarkórinn í söngför um Borgarfjörð
„ÞAÐ ER gífurlegt fyrirtæki að fá
þetta allt til að passa saman og
erfitt fyrir Borgnesinga að taka á
móti okkur, því krakkarnir veröa
allir hýstir á einkahcimilum,"
sagði Þorgerður Ingólfsdóttir
stjórnandi Hamrahlíðarkórsins er
blaðamaður hafði samband við
hana og innti hana eftir söngfor-
inni sem kórinn mun taka sér fyrir
hendur um helgina og mánudag-
inn. Með í förinni verða einnig
hljóðfæraleikarar sem eru meðlim-
ir í kórnum.
Tvennir tónleikar verða
haldnir á vegum Tónlistarfélags-
ins í Borgarfirði. í Borgarnes-
kirkju kl. 16 á laugardag og í
Logalandi kl. 16 á sunnudag.
Inn í þessa ferð fléttast aðrir
tónleikar. Sungið verður við
messu á sunnudagsmorguninn í
Borgarneskirkju og svo
skemmtilega hittist á að sóknar-
presturinn þar, séra Hlynur
Árnason, er fyrrverandi kór-
meðlimur í menntaskólakórnum.
Á sunnudagskvöldið verður
sungið á kvöldvöku ásamt öðrum
kórum í Borgarnesi
Á mánudeginum heldur kór-
inn þrenna tónleika, þá fyrstu í
grunnskólanum í Borgarnesi og
strax á eftir í dvalarheimili aldr-
aðra. Síðustu tónleikarnir fara
fram síðdegis á mánudag í fé-
lagsheimilinu að Varmalandi.
Að þeim tónleikum standa stóru
skólarnir í Borgarfirði en
Hamrahlíðarkórinn er eini kór-
inn sem kemur fram.
Efnisskráin er samansett af
fjölbreyttum innlendum og er-
lendum verkum, allt frá tónlist
eftir Bach til dagsins í dag þann-
ig að allir fá vonandi eitthvað
við sitt hæfi.
Lóðum úthlutað í Kópavogi:
12 aðilar fengu lóðir
KÓPAVOGSBÆR hefur úthlutað
lóðum í þremur hverfum í bænum;
Sæbólshverfi, Auðbrekkuhverfi og í
Brúnum. Þar á meðal eru tvær ein-
býlishúsalóðir og sex lóðir undir rað-
hús með iðnaðaraðstöðu.
Alis eru um fimm götur í bænum
að ræða, og fengu eftirtaldir aðilar
úthlutað lóðum:
Við Laufabrekku:
Nr. 10 Hilmar ólafsson, Blesugróf
18
Við Álfatún:
Nr. 10 Guðný Eiríksdóttir, Furu-
grund 73
nr. 18 Hjörtur Hjartarson, Birki-
grund 18
Við Grænatún 4:
Hannes Björnsson, Furugrund 24
og Óskar Valdimarsson, Hamra-
borg 16
Við Helgubraut:
Nr. 21 Björk Níelsdóttir, Holta-
gerði 59
Við Sæbólsbraut:
Nr. 10 Steindór Daníelsson, Digra-
nesvegi 87
nr. 35 Jón Sigurðsson, Engihjalla
19
nr. 47 Ingibjörg M. Þorvaldsdóttir,
Silfurteig 3
Sverrir Hermannsson iönaðarráðherra:
„Þá virkja ég
bara í Fljótsdal“
„ÉG kannast ekki nógu vel við
þetta. En ef farið verður að
trufla virkjunarframkvæmdir
með einhverjum slíkum asna-
strikum og lögsóknum þá fer ég
bara austur í Fljótsdal og virkja
þar,“ sagði Sverrir Hermanns-
son iðnaðarráðherra í gær.
Iðnaðarráðherra var spurð-
ur, hvað hann vildi segja um
stöðu mála vegna vatnsrétt-
indasamninga við bændur á
Blönduvirkjunarsvæðinu, sem
ekki hefur verið gengið frá.
Sverrir sagðist ekki vilja tjá
sig frekar um málið á þessu
stigi, en það væri til athugun-
ar.
Ritstjóraskipti hjá
Frjálsu framtaki
NÝR ritstjóri, Sighvatur Blöndahl,
hefur tekið við ritstjórn þriggja
blaða Frjáls framtaks hf., Sjávar-
frétta, Frjálsrar verslunar og Bflsins.
Jafnframt hefur Ólafur Jóhannsson
tekið við stöðu ritstjórnarfulltrúa hjá
Frjálsu framtaki. Þeir Sighvatur og
Ólafur voru um árabil blaðamenn
hjá Morgunblaðinu.
Þá hefur verið ákveðin breyting
á útgáfutíðni tveggja tímarita
fyrirtækisins, Frjálsrar verslunar
og Bílsins, en Bíllinn hét áður
Öku-Þór og var gefið út í sam-
vinnu við Félag íslenskra bifreiða-
eigenda. Framvegis munu koma út
sex tölublöð Bílsins árlega í stað
fjögurra og Frjáls verslun kemur
framvegis út átta sinnum á ári í
stað sex. Sjávarfréttir koma út sex
sinnum á ári eins og hingað til.
Sighvatur Blöndahl,
ritstjóri.
Ólafur Jóhannsson,
ritstjórnarfulltrúi.
Nr. 12 Agnar Már Sigurðsson
Lundabrekku 8
nr. 14 Svanur H. Hauksson,
Kambaseli 51
nr. 16 Sigurjón Einarsson, Hjalla-
brekku 6
„Iðnaðar-
ráðherra
hefur minn
stuðning“
segir Albert Guð-
mundsson um niðurfell-
ingu verðjöfnunargjalds
á raforku
„ÉG VONA að iðnaðarráðherra finni
leiðir til að létta af sem flestum
gjöldum, án þess að það setji ríkis-
sjóð í meiri vanda en hann er í nú,“
sagði Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra, er Mbl. leitaði álits
hans á hugmyndum um að fella
niður verðjöfnunargjald á raforku,
sem Sverrir Ilermannsson iðnaðar-
ráðherra hefur lýst sig fylgjandi.
„Iðnaðarráðherra hefur minn
stuðning og hann hefur stuðning
ríkisstjórnarinnar í því að létta
öllum þeim gjöldum af fólki al-
mennt sem hægt er,“ sagði fjár-
málaráðherra. „Tekjur af verð-
jöfnunargjaldinu ganga til ákveð-
inna aðila og ef að það sýnir sig að
þeir þola tekjumissinn og geta
verið án þessa gjalds þá fagna ég
því,“ sagði Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra.