Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 12

Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Námur á höfuðborgar- svæðinu kortlagðar — undirstaða þess að hægt sé að nýta námurnar skipu- lega, segir Sverrir Scheving Thorsteinsson jarðfræðingur JARÐSETA og bergnámur á höfuðborgarsvæðinu hafa nú verið kortlagðar og hafa Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Skipulagsstofa höfuðborgarsvæðisins unnið að gerð kortsins und- anfarin misseri. Nú eru uppi áform hjá Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins um að skrá allar námur á landinu í tölvu. Alls eru 118 bergnámur skráðar á námukortið, en þetta er í fyrsta sinn sem ráðist er í að skrásetja og kortleggja námur á höfuð- borgarsvæðinu. Hið nýja námukort var kynnt á fundi sem boðað var til hjá Skipulagi ríkisins nú fyrir skömmu. í skýrslu Sverris Scheving Thorsteinsson jarð- fræðings, þar sem greint er frá undirbúningi og vinnslu námu- kortsins, segir meðal annars frá því að námur hér séu mjög dreifðar þó þær fylgi aðalsam- gönguleiðum, óunnið efnismagn virðist meira en menn höfðu talið og að gömlu námurnar í Reykjavík séu fróðlegri en talið var í fyrstu og gætu þær gefið áhugaverðar upplýsingar vegna steypuskemmda á mannvirkj- um. 1 skýrslunni kemur enn- fremur fram, að fullnýttar námur á höfuðborgarsvæðinu eru tíu talsins, tuttugu námur eru nýttar daglega og alls eru 22 námur óbeint friðaðar. „Ég lít á kortið sem undir- stöðu þess að hægt verði að nýta námur á höfuðborgar- svæðinu skipulega og einnig að fullt tillit sé tekið til umhverf- is- og nátturuverndarsjónar- rniða," sagði Sverrir Sch. Thorsteinsson í spjalli við blm. Mbl. eftir fundinn hjá Skipu- lagi ríkisins. „Það er augljóst að staðgóð þekking á námum og efnisgæð- um er nauðsynleg forsenda þess að allir efnisflutningar verði sem hagkvæmastir, það er að segja að rétt efni sé sótt á rétt- an stað á réttum tíma. Árleg jarðefnavinnsla á Stór-Reykjavíkursvæðinu er áætluð um ein milljón rúm- metra og af því er hlutur steinsteypunnar áætlaður um 200.000 rúmmetrar. Ef stytta má flutningsleið um einn kíló- metra, sparast um 20.000 krón- ur á hverja 1000 rúmmetra. Þannig erum við að tala um allt að 20 milljón króna sparnað á ári hér á höfuðborgarsvæðinu, ef stytta mætti fjarlægð milli náma og mannvirkja um aðeins 500 metra. Þessar tölur miða ég við taxta efnisflutningabíla, sem í mars er 10 krónur fyrir hvert tonn sem ekið er einn kílómetra. Eitt af þeim verkefnum sem nú liggja fyrir hjá þeim aðilum sem unnu að gerð kortsins, auk Náttúruverndarráðs, er að meta námurnar með tilliti til náttúruverndar og gefa þeim einhvers konar einkunn meðal annars með tilliti til jarðsögu- legs gildis, fræðslugildis, þjóð- minjagildis og landslagsgildis. Heppilegt væri að hver landshluti hefði einhverskonar vitneskjubanka eða miðstöð, þar sem allar upplýsingar um námur, lagnir ofan jarðar eða neðan, landamörk og fleira væru aðgengilegar. Einnig væri mögulegt að sama stofnun eða miðstöð gæfi leyfi til nýtingar á námunum gegn hóflegu gjaldi, sem nægði til rannsókna á námunum og eftirliti með þeim,“ sagði Sverrir Scheving Thorsteinsson að lokum. SKIPUI.AG RÍKISINS KMGARTt'N J. REYKJAVHL SlMI IW 1 NÁMURÁ HÖFUÐBORGAR- SVÆOINU ‘ ■—* *—«' *—? r* Mælikvaröi 1:100 000 Markaðsverð á rækju lækkar enn: Horfur heldur ískyggilegar — segir Ottar Yngvason, framkvæmdastjóri íslensku útflutningsmiðstöðvarinnar MARKAÐSVERÐ á rækju fer enn lækkandi og hefur það lækkað um allt að 30% miðað við um árs tímabil. í janúarmánuði var lækkunin orðin um 20% og að sögn Óttars Yngvasonar, framkvæmdastjóra íslenzku útflutnings- miðstöðvarinnar, gæti þessi staða varað út þetta ár. Horfur með tilliti til fyrirhugaðrar aukningar á veiðum og vinnslu rækju væru því heldur ískyggi- legar. óttar sagði, að vegna sölutregðu í kjölfar verðlækkunarinnar hefðu víða safnazt miklar birgðir hjá framleiðendum hér heima. Þegar verð væri lágt væru kaupendur erlendis tregir til kaupa og keyptu jafnan til skemmri tíma en ella. Skýringar þessa væru meðal ann- ars mikil aukning á rækjuveiðum Norðmanna á síðasta ári og útlits á svipuðum veiðum þeirra nú svo og „rækjuslysið" í Hollandi í janú- ar. Á síðasta ári hefðu Norðmenn veitt 76.000 lestir af rækju, en 54.000 árið áður. Þá hefði enn- fremur orðið aukning á veiðum okkar eða úr 9.150 lestum 1982 í um 13.000 á síðasta ári. Áður fyrr hefði hrun rækjuveiða við Banda- ríkin komið okkur til góða í auk- inni eftirspurn og fremur háu markaðsverði, en hin gífurlega aukning á veiðum Norðmanna hefði hins vegar orðið til að metta markaðinn að miklu leyti. Óttar sagðist telja ólíklegt að verðið færi miklu neðar, því þá yrðu Norðmenn sennilega að draga úr framleiðslu sinni og framboð minnkaði og verð hætti að öllum líkindum að lækka. Markaðurinn leitaði alltaf jafn- vægis. Sér sýndist hins vegar, að miðað við markaðsverðið á rækj- unni nú, yrði árið ákaflega erfitt fyrir rækjuvinnsluna hér. Líklega gæfi það henni varla nema rétt fyrir breytilegum vinnslukostnaði og þá væri eftir að taka inn í dæmið stofnkostnað nýrra vinnslufyrirtækja. Morgunblaðið/KÖE. Anton Örn Kærnested (t.v.) og Kristján Jóhannsson, forstjóri AB, blaða í eintaki af norsku bindi mannkynssögunnar. Aimenna bókafélagið undirbýr útgáfii á 4000 síðna mannkynssögu ALMENNA bókafélagið á íslandi hefur keypt útgáfuréttinn að norrænum hókaflokki um mannkynssögu: „Aschehougs verdenshistorie", sem Asche- houg-forlagið í Noregi hóf útgáfu á árið 1982. Bókaflokkurinn er ritaður af sérfræðingum frá Norðurlöndunum og hefur notið mikilla vinsælda í Noregi. Ritverkið telur yfir 4000 síður, sem skipt er niður í 15 bindi. Um 6000 myndir og teikningar prýða verkið, þar af margar litmyndir. Þá er í hverju bindi ítarleg nafna- og staðaskrá. AB hyggst gefa út öll 15 bindin á tímabilinu frá nóvember nk. til júní á árinu 1989. Riðið verður á vaðið með því að gefa út bindi númer 13 í röðinni, sem fjallar um millistríðsárin, tímabilið frá 1918 til 1939. Gunnar Stefánsson, bókmenntafræðingur, annast þýð- ingu á því bindi. Því næst verður 14. bindið gefið út, í mars 1985, en það bindi spannar tímann frá stríðslokum til ársins 1965. Lýður Björnsson, sagnfræðingur, þýðir það verk. „Við látum prenta ritverkið í Hollandi hjá Royal Smeets- prentsmiðjunni og erum í því efni samskipa Finnum, sem einnig eru að hefja útgáfu mannkynssögunn- ar um þessar mundir," sagði Ant- on Örn Kærnested, forsvarsmaður bókaklúbbs AB, í samtali við blm. Mbl. „Það munar miklu að gera þetta í sameiningu með Finnun- um, því við það lækkar prentun- arkostnaðurinn verulega. Það er hæpið að við hefðum getað farið út í þetta annars,“ sagði Anton örn. Anton Örn sagði að bókunum yrði einvörðungu dreift í gegnum bókaklúbb AB og yrðu ekki seldar í bókaverslunum. Það eru því að- eins félagsmenn klúbsins sem eiga kost á að kaupa bækurnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.