Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 14

Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 Spennuleikrit án spennu? Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Tálgað w I rekavið Myndlist Valtýr Pétursson Á austurgangi Kjarvalsstaða sýnir Sæmundur Valdimarsson verk, sem hann hefur tálgað í rekavið seinustu tíu árin eða svo. Hann er ekki lærður listamaður og er að nokkru leyti naivisti og svo eitthvað þar til viðbótar og því erfitt að flokka hann undir hug- tök, sem oft eru notuð um slíka listamenn. Þarna eru 18 verk, sem hann hefur valið til sýningar, og eru þau i fáum orðum sagt hin eftirtektarverðustu. Sæmundur Valdimarsson hefur næma tilfinningu fyrir hinu plast- íska eðli höggmynda og fer með það á sérlega persónulegan hátt. Hann virðir efnið og vinnur það í samræmi við upprunalega lögun þess rekadrumbs, sem hann fæst við hverju sinni. Það er skýr merking í sumum þessara mynda og líkiegast saga að baki þeim, sem ráðið hefur táknmáli því, er Sæmundur beitir. Hann notfærir sér á skemmtilegan hátt maðk- smoginn viðinn og skýlir nekt kvenna með ýsuroði og þara, ef honum býður svo við að horfa. í þessari aðferð kemur efniskennd Sæmundar vel í ljós, og raunar má segja hið sama um önnur viðhorf hans gagnvart viði og öðru því efni, sem hann vinnur í. Sæmund- ur hefur næmt auga fyrir mögu- leikum þeim er fyrirfinnast i hverjum rekadrumb, og honum tekst að gæða þessar styttur furðu sannfærandi lífi. Þarna er á ferð ólærður völundur í höndum, sem hefur ágæta tækni og notar hana í samræmi við þann skilning og hugarfar, sem hann leggur í hugmyndir sínar. Handbragðið sjálft minnti mig á stundum á sjálfan Sigurjón heitinn Ólafsson, og er þá mikið sagt. Það kæmi mér ekki á óvart að Sæmundur Valdi- marsson ætti eftir að vekja veru- lega eftirtekt með þessari litlu sýningu. En eitt atriði er ekki til eftir- breytni á þessari sýningu Sæ- mundar. Svo herfilega er verkum hans komið fyrir í ganginum, að engu er líkt. Verkunum er hrúgað í eina bendu á miðju gólfi og þann- ig stillt upp, að alger ógerningur er að njóta. Hver hlutur veður inn í þann næsta og úr verður eins og hilla í skranbúð. Ekkert ljós fær að myndast í hinni ríku áferð verkanna, og form þeirra bókstaf- lega hverfur í þann glundroða, sem þarna hefur verið skapaður af vanþekkingu eða blindu. Þessi verk Sæmundar Valdimarssonar krefjast þess, að þau séu skoðuð frá fleiru en einu sjónarhorni, og þau þurfa einnig það mikið rými, að Ijós og skuggar fái gefið þeim líf. Allt þetta hefur verið snið- gengið, og öllu hrúgað í eina kös. Þessi verk eiga annað og betra skilið en þá meðferð. Leikfélag Hveragerðis sýnir: Tíu litlir negrastrákar eftir Agöthu Christie Þýðing: Hildur Kalman Leikstjóri og leikmynd: Eyvindur Erlendsson Búningar: Sigrún Bjarnadóttir Ljós: Gunnar Jónsson Tíu litlir negrastráka er lfk- lega ein frægasta saga Agöthu sálugu Christie, og ekki að ósekju, því að í þessari sögu tekst henni óvenju vel. Magnar upp andrúmsloft þrungið spennu, tortryggni og hryllingi. Ellefu manneskjur eru saman- komnar á eyju, þangað hefur þeim verið boðið undir margvís- legu yfirskini af Nikodemusi Norman nokkrum. Fljótlega eft- ir að fólkið hefur safnast til eyj- arinnar heyrist rödd hins dul- arfulla gestgjafa þar sem allir viðstaddir eru sakaðir um ýmsa glæpi, sem þeir hafi gerzt sekir um, en þannig framdir eða að- stæður á þann veg að enginn hefur fengið dóm fyrir. Nú mun þeim verða refsað. Það rennur smám saman upp fyrir þeim að ekkert viðstaddra hefur hug- mynd um hver Norman þessi er, þau hafa öll verið blekkt til að koma á staðinn. Færist nú senn fjör í leikinn og hrynja gestirnir niður samkvæmt tíu litlu negra- stráka-þulunni. Og fleiri óhugn- anlegir atburðir gerast, sýnt er að þeim eru allar bjargir bann- aðar að komast undan, verður loft allt lævi blandið. Leikritið er smellið og hlýtur að vera spennandi, en ekki fannst mér sú spenna komast til skila eins og vert væri í sýningu Leikfélags Hveragerðis. „Rödd- in“ sem boðar þeim hegningu er alltof hress og glaðvær til að hún veki hjá manni nokkurn óhug, þar er fyrsta villan að mínum dómi. Leiksviðið er þröngt og erfitt og allir þessir leikendur — að minnsta kosti meðan Nikó- demus Norman er ekki byrjaður á útrýmingarstarfinu — áttu í töluverðu basli með að koma sér fyrir. Þar hefði leikstjóri þurft að gæta betur að og sýna meiri útsjónarsemi í staðsetningum. Leikendur höfðu ekki þéringar á valdi sínu og hefði mátt breyta því í þýðingu, það hefði hjálpað til. Þágufallssýki skaut upp koll- inum. Afleitt það. Framsögnin var ákaflega gölluð og er ekki verið að gera nema lágmarks- kröfur hvað það varðar: Það liggur nokkurn veginn í augum uppi að áhugaleikarar hafa hana ekki á valdi sínu eftir eitt nám- skeið eða tvö. Sjálfsagt og skylt er að geta þess að áhorfendur tóku sýning- unni mæta vel að leikslokum. Undir teppinu hennar ömmu er vodkaflaska Leiklist Óiafur M. Jóhannesson llndirtitill leikverks: l'ugl óttans. Höfundur: Nína Björk Arnadóttir. Leikstjóri: Inga Bjarnason. Leikmynd og búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir. Tónskáld: Mist Þorkelsdóttir. Tónlistarflutningur: Guðrún Birg- isdóttir, flauta, og Hákon Leifsson á harmónikku. Ljós: Árni Baldvinsson. Hljóðmaður: Hákon Leifsson. Hljóðupptaka: Studio Stemma. Flugleiðamenn hafa gjarnan stutt við bakið á íslenskum lista- mönnum, ekki síst myndlistar- mönnum, og nú styðja þeir ræki- lega viö bakið á frjálsri leiklist í landinu er þeir opna ráðstefnu- sal sinn fyrir Alþýðuleikhúsinu. Ég veit ekki hvort menn gera sér almennt grein fyrir hversu mik- ilvægt framlag Flugleiðamanna er, þá þeir veita hinu aðþrengda Alþýðuleikhúsi skjól. Þeir eru blátt áfram að hjálpa ungum leikurum og þeim eldri sem lítt hafa baðað í sviðsljósi atvinnu- leikhúsanna að koma undir sig fótunum. Fátt er ömurlegra en horfa á unga bráðefnilega leik- ara á sviði Leiklistarskóla Is- lands og svo ekki söguna meir. Jú, sumir fá fasta stöðu hjá at- vinnuleikhúsunum og nokkrir komast á hvíta tjaldið. Aðrir leita á náðir sjónvarpsauglýs- inga og kennslu- og leikstjórn- arstarfa. Er sannarlega gott til þess að vita að áhugaleikhópar njóti starfskrafta nýbakaðra leikara. En þegar fram í sækir hlýtur þrá leikarans eftir sviðsljósinu að vaxa. Hann hefur jú staðist strangt inntökupróf í leiklistarskóla og fengið þar hina ágætustu menntun. Ég færði þetta í tal við ungan og efnilegan leikara nú um jólin. Hann tjáði mér að nánast ör- vænting ríkti meðal margra ungra leikara, sumir hefðu vart stigið á svið frá því þeir luku námi. Skildist mér að kreppan í efnahagslífinu yki enn á von- leysið. En einsog ég sagði áðan, er ekki öll von úti, meðan listvinir sitja við digra sjóði, og Vorkonur Alþýðuleikhússins sanna okkur, að ekki þarf hundavini til að styðja við bakið á litla mannin- um. Þessar ágætu konur sýna nú á sviði Loftleiðahótelsins ein- þáttung eftir Nínu Björk Árna- dóttur skáld er hún nefnir: Undir teppinu hennar ömmu og ber ein- þáttungurinn undirtitilinn: Fugl óttans. Þessi klukkutímalangi einþáttungur er dálítið laus í sér, ef svo má segja. Kemur los- arabragur helst fram í því að stefnt er saman ólíkum máls- sviðum, annarsvegar gallhörðum hversdagsprósa er vellur út úr munni ömmunnar og hinsvegar ljóðrænum texta er fjallar um fugl óttans. Það er vissulega býsna erfið raun að hnýta saman svo ólíkar málveraldir, enda fátt sameiginlegt með bráðfyndnum símasamræðum ömmunnar, er einkum fjalla um hálfdauðar fyllibyttur, og hinum ljóðrænu textum er flóa úr munni hinna leikaranna, einkum Manneskj- unnar og dótturinnar ungu. I hinu frábæra Súkkulaði handa Silju er Nína Björk framreiddi fyrir leikhúsgesti á síðasta ári hafði prósahöfundurinn taum- hald á skáldinu. Hér má hins vegar ekki á milli sjá hver hefir yfirhöndina. Ég býst við að menn skiptist nokkuð í tvö horn í afstöðu til þessa verks. Sumir njóta gagn- flæðis hins lýríska og þess grófa hversdagslega, aðrir fá ekki tamið í huga sér þessar andstæð- ur. Persónulega hefði ég kosið að Nína Björk hefði unnið frekar út frá hinum grófa, hversdagslega texta — sem var hreint óborgan- legur — og beitt mikilli varkárni við að skreyta hann ljóðmáli. Ég er viss um að hér er að finna efnivið í lengra leikhúsverk eða jafnvel kvikmyndaverk, því hér er tekið á allnýstárlegan hátt á kvenfrelsishugmyndafræðinni — sem ég persónulega álít mest spennandi af hinni nýju hug- myndafræði. í stað þess að leiða fram alvont karlrembusvín, er körlunum í verki Nínu Bjarkar hreinlega vikið til hliðar af svið- inu, og þeim lýst þaðan sem hálf- gerðum útlögum úr heimilislífi. Þeir eru sum sé sjaldnast heima hjá vorkonunum, heldur hanga þeir í sínum hóp og reyna þar að deyfa sársaukann með alkóhóli. Á heimilinu situr síðan amman — eldri kynslóðin — með svip- una reidda og viðheldur hinni aldagömlu kvennakúgun. En nú vík ég ekki frekar að efnisþræði og þeirri hugmynda- fræði er þar liggur að baki, en fer örfáum orðum um uppsetn- ingu þessa nýjasta verks Nínu Bjarkar Árnadóttur. Inga Bjarnadóttir leikstýrir Teppinu hennar ömmu og sýnir þar mikla hugkvæmni. Má segja að henni takist allvel að hnýta saman hinar ólíku málveraldir verks- ins. Þannig nýtir hún sviðið til hins ýtrasta og lamar hvergi brotakenndan textann með stofudramatískri framsetningu. En mest er um vert að Inga hefir valið rétta konu í hvert hlutverk. í hlutverki miðaldrakonunnar Lóu er Sigurjóna Björnsdóttir, svo efnileg ung leikkona að hún á ekki skilið að hafna á vergangi sjónvarpsauglýsinga. Mér hefur virst að Sigurjóna henti einkum í dramatísk hlutverk sem krefj- ast mikilla tilfinningalegra átaka. Hefði ég gaman af að sjá hana i hlutverki frú Macbeth eða sem Antígónu svo klassísk lýs- andi dæmi séu tekin. Um Sig- rúnu Eddu Björnsdóttur í hlut- verki ungu stúlkunnar Systu þarf ekki að fjölyrða, svo þekkt sem Sigrún er orðin fyrir það vald sem hún hefir jafnt á kóm- ískum sem tragískum hlutverk- um — enda hefur þessi unga leikkona til allrar hamingju fengið nokkurt færi á að þroska sína hæfileika. Sólveig Halldórsdóttir leikur ömmuna, fulltrúa eldri kynslóð- arinnar. Sólveig er afar sérstæð leikkona og vafalaust fengur að henni í ákveðin hlutverk. Kristín Bjarnadóttir leikur svo Mann- eskjuna, fer henni einkar vel að túlka hina tæru lýrik Nínu Bjarkar. Eru þá talin upp aðal- hlutverk en hvergi varð varl mis- brests í samleik hópsins. Og ég vil aðeins bæta við að Anna S. Einarsdóttir sannaði hér, að hún er efni í kómíker. Þá er bara eftir að þakka Guð- rúnu Svövu fyrir fyrirferðarlitla leikmynd, sem hvergi þvældist fyrir á hinu þrönga sviði. Teikn- ing Guðrúnar framan á leikskrá er líka til marks um listfengi hennar. Ég verð að biðja tón- skáldið unga Mist Þorkelsdóttur innilegrar afsökunar á því, að ég heyrði ekki tónlistina, svo upp- tekinn var ég af textanum. Kannski féll tónlistin bara svona vel að textanum. í það minnsta vona ég að ég heyri í hinu unga tónskáldi næst þegar vorkonur þessa lands fara á stjá og klaka- bönd bresta af landi voru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.