Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
15
Þórður Pálsson fisksali í Borgarnesi:
„Fólk vill fá fiskinn til-
búinn beint á pönnuna44
— Undirbýr framleiðslu á bitafiski úr silungi
Starfsfólk Fiskbúðar Þórðar í versluninni: Unnur Ólafsdóttir, Rúnar
Kagnarsson og Þórður Pálsson.
Borgarnesi, 15. mars.
FISKBÚÐ ÞÓRÐAR í Borgarnesi
hefur hafið framleiðslu á bita-
harðfiski og er raeð framleiðslu á
bitafiski úr silungi í undirbúningi.
Þórður Pálsson hefur rekið
fiskverkun og búð í Borgarnesi í
um 10 ár. Fiskbúðin í þessu ann-
ars fisklausa sveitaþorpi er róm-
uð fyrir mikið og gott úrvai og
kemur fólk stundum langar leið-
ir til að versla. „Fyrst þegar ég
byrjaði þótti fólki hér gott að fá
bara saltfisk og ýsu, það gerði
ekki aðrar kröfur," sagði Þórður
í samtali við blm. Mbl. „En á
síðustu árum hefur þetta verið
að þróast upp í það að fólk vill fá
fiskinn í tilbúnu formi, þannig
að það þurfi sem minnst fyrir
matseldinni að hafa. Helst þarf
þetta að vera tilbúið á pönnuna.
Við höfum gert okkar til að
verða við þessum óskum fólks.
Til dæmis útbúum við ýsuflök
með raspi og kryddi, sem tilbúin
eru beint á pönnuna. Þau eru
mjög vinsæl og einnig lúðuflök,
Rúnar Ragnarsson með bitafisk-
inn sem nú er alls staðar að slá í
gegll. Morgunblaðið/HBj.
sem eru útbúin í rúllur og fyllt
og krydduð. Þeim fer sífellt
fækkandi sem koma og kaupa
sína heilu ýsu. Nú er svo komið
að ekkert þýðir að bjóða skóla-
krökkum til dæmis fiskinn í því
formi."
Þórður kaupir fiskinn aðallega
frá Akranesi og reynir að sækja
hann þangað daglega en áður
keypti hann fiskinn mest frá
Ólafsvík. Sagðist hann mest
selja fisk í Borgarnes og héraðið
en einnig útvegaði hann fisk í
skólana í héraðinu og víðar, t.d.
norður í land. Þá sagðist hann
selja harðfisk og hákarl til höf-
uðborgarsvæðisins. Þá sagði
Þórður að áberandi væri hvað
farþegar úr áætlunarbifreiðun-
um á leið norður og vestur kæmu
mikið við og versluðu á meðan
rúturnar stoppuðu við hótelið,
hinum megin við götuna. Að-
spurður um neyslu fisks sagði
Þórður að ekki væri hægt að
kvarta undan henni, hún væri sí-
fellt að aukast.
Þórður byrjaði eins og áður
sagði að vinna fisk í Borgarnesi
fyrir 10 árum. Byrjaði hann þá á
því að kaupa þorskhausa og
skera af þeim gellur og kinnar.
Með góðra manna hjálp hefur
hann síðan sífellt aukið við sig
og hefur nú hafið framleiðslu á
bitaharðfiski og selur víða. Sagði
Þórður að bitarnir hefðu líkað
afar vel. Bitafiskurinn er búinn
þannig til að, flök eru sett í salt-
pækil og síðan fryst. Þá er þeim
rennt í gegnum vél, sem sneiðir
þau í bita og loks eru bitarnir
þurrkaðir í sérstökum þurrk-
klefa. Sagði Þórður að ætlunin
væri að gera einnig tilraunir
með að gera bitafisk úr silungi I
sumar. Sagðist hann vera afar
spenntur að sjá hvernig til tæk-
ist með það, því mikið af smásil-
ungi félli til í héraðinu, sem
vandræði væri að koma í verð.
Þá sagðist Þórður einnig vera að
útbúa aðstöðu til að reykja bæði
silung og fisk og væri stefnan sú
að vinna sem mest af fiskinum
sjálfur. Rúnar Ragnarsson, sem
vinnur hjá Þórði í fiskbúðinni,
stendur með honum að nýjung-
unum, þ.e. bitafiskframleiðsl-
unni og reykingunni.
— HBj.
ÞAÐ STAÐFESTIR VERÐKÖNNUN VERÐLAGSSTOFNUNAR
Verðlagsstofnun framkvæmdi verð-
könnun í lok nóvember og tók hún til allra
fáanlegra rafhlaðna á markaðnum hér
Þessi verðkönnun staðfesti m.a. það sem
við höfum alltaf sagt: AÐ WONDEB BÝÐUR
ÓDÝRUSTU ALKALINE RAFHLÖÐURNAP í
ÖLLUM ÞEIM FLOKKUM SEM ÞÆR FAST.
(Sjá töflurnar hér til hliðar).
Einnig viljum við benda á geysigóða
útkomu WONDER SUPER rafhlaðnanna í
sömu könnun. Þar er verðmunurinn einnig
verulegur, eða 3,5%-37,0% ódýrari en meðal-
verð og 21,4%-49,6% ódýrari en hæstaverð.
allt eftir flokkum og notkunarsviði. Nú þarftu
ekki lengur vitnanna við:
JíSoSfíW (tsso)
Olíufclagið hf
Fást á bensínstöövum ESSO og miklu víðar.
TAFLA I
Rafhlöður fyrir vasaljós,
útvörp, segulbönd, raf-
knúin leikföng o.fl. (R 20)
D (alkaline rafhlöður): Wonder alkaline .... 55,20
Duracell alkaline National alkaline Berec alkaline plus .. .. Ucar professional Ray-Ó-Vac alkaline .... Hellesens alkaline Varta energy .... 65,00 .... 68.00 .... 69,00 .... 74,05 .... 86,40 .... 95,00 .... 98,50
TAFLA II
Rafhlöður fyrir flöss,
reiknivélar, reykskynjara
o.fl. (R 6)
O (alkaline);
Wonder alkaline ............. 22,30
Ray-O-Vac alkaline .......... 27,00
National alkaline ........... 33,00
Ucar professionai ........... 33.00
Berec alkaline plus ......... 33,75
Hellesens alkaline .......... 34.00
Varta energy ................ 34,25
Duracell alkaline ........... 36.00
TAFLA III
Rafhlöður fyrir reykskynjara o.fl. (6F 22) D (alkalinel:
Wonder alkaline 118,30
National alkaline Varta energy Duracell alkaline Hellesens alkaline Ucar professional 120,00! 131 40 135,00 139,00 140,00
TAFLA IV
Rafhlöður fyrir myndavélar, tölvuspil reiknivélar o.fl. LR 03 - alkaline: ,
Wonder1’ Varta 30,85 36.15
Berec ......................... 42.00
Ucar .......................... 43,00
Duracell ....................... 45.00
Hellesens ...................... 45,00
1) Þessar rafhlðður eru aðeins seldar tvær a
spjaldl. uppgelíð verð er a einni ralhlöðu
Heimild: Verikynning. 11. tbl. 3. árg. 1983