Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 17

Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 17 'l'exti: llelgi Hjarnason Frá Hellissandi. tþróttahúsiö og sundlaugin fyrir mióri mynd, skólahúsin þar til hliðar. Lárus Skúlason formaður á Hellissandi. Hann stofnaði skóla á heimili sínu og er það upphaf reglulegrar barnafræðslu á Hellissandi. í tilefni 100 ára afmælis skólahalds á Hellissandi hafa sjávarútvegsfyrirtæki á Hellissandi ákveðið að láta gera minnismerki, brjóstmynd af Lárusi sem reist verður á skólalóðinni. og var málið leyst með því að komið var fyrir vatnsheldri strigalaug í frystihúsinu og sundið kennt þar. Var laugin u.þ.b. 3—4 metrar í þvermál og var kælivatnið af vélum frysti- hússins notað. Þegar börnin sið- an gátu haldið sér á floti var farið út í Krókatjarnir þar sem haldið var áfram því þau urðu að geta synt ákveðna vegalengd til að ná prófi. Árið 1952 var tekin í notkun útisundlaug og á 7. áratugnum var byrjað að byggja yfir sundlaugina og endurbyggja búningsklefa. Hús- ið, þannig endurbyggt, var tekið í notkun 1977—1978. Yfir sund- laugina er sett gólf á vetrum og aðstaðan notuð sem íþróttasal- ur. Nýtt og glæsilegt skólahús Árið 1976 hófust bygginga- framkvæmdir við nýtt skólahús á lóð skólans við Keflavíkur- götu. Nýjasta skólahúsið var síðan tekið í notkun haustið 1981 en er enn ekki að fullu lok- ið. Gamla skólahúsið er áfram notað, aðallega til handavinnu- kennslu. í dag eru 102 nemend- ur í 10 bekkjardeildum í grunn- skóianum á Hellissandi, allt frá forskóladeild upp í 9. bekk. Kennarar eru 11 talsins, þar af 7 í fullu starfi. Skólastjóri er Haukur Matthíasson. Nemend- urnir eru úr sveitarfélaginu öllu, þ.e. af Hellissandi, Rifi og Gufuskálum. Þegar unglingarnir hafa lokið skólanámi í grunnskólanum fara þau til framhaldsnáms víða um land, mest þó í fram- haldsskóla á Vesturlandi. Að sögn forráðamanna skólans hef- ur verið rætt um það að taka þátt í Fjölbrautaskólanum á Akranesi sem Akraneskaup- staður rekur en ekkert hefur verið ákveðið í því efni. Sögðust þeir vilja fá fleiri deildir heim og þá í samvinnu við Ólafsvík eða jafnvel í samvinnu allra staðanna á norðanverðu Snæ- fellsnesi. Helstu áhugamál forráða- manna skólans um þessar mundir eru þau að lokið verði við húsið og að gengið verði frá lóðinni í kringum það. Þá er verið að vinna við að koma upp sérstöku bókasafni við skólann og verður því formlega komið á laggirnar í tilefni 100 ára af- mælisins. „Ærslafengio á köflum“ — segja krakkarnir sem leika í leik- ritinu „Vondur, „ÞETTA ER gamanleikrit sem ger- ist í nútímanum. Það fjallar um tvær fjölskyldur. f því er mikið líf og fjör og er það reyndar ærsla- fengið á köflum." Þetta sögðu fjór- ir nemendur Grunnskólans á Hell- issandi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins, er rætt var við þau um leikrit sem þau leika í, og ætlunin var að frumsýna um helg- ina í tilefni af 100 ára afmæli skólahalds á Hellissandi. Krakk- arnir eru: Þórður Kristleifsson 12 ára, Viggó Einar Hilmarsson 16 ára, Gunnur Stella Kristleifsdóttir 14 ára og Kristjana Kristinsdóttir 14 ára. Leikritið er sett upp af Leikklúbbi Hellissands og er Vigfús Hjartarson leikstjóri. Leikritið samdi Kristinn Krist- jánsson, kennari við skólann, í tilefni afmælisins, og ber það nafnið Vondur, verri, verstur. „Við erum 12 sem leikum í leik- ritinu, 7 fullorðnir og 5 krakkar, og höfum við æft í rúman mán- verri, verstur“ uð,“ sögðu krakkarnir. Þau sögðu einnig að leikið væri í skólanum á hverju ári og höfðu sum þeirra leikið áður en ekki í leikriti í fullri lengd eins og Vondur, verri, verstur er. „Jú, það er auðvitað skrekkur í okkur, en þetta er þó skárra núna en oft áður af því að fullorðnir eru með í leikritinu," sögðu krakkarnir. Aðspurð um félagslífið í skól- anum og áhugamál sögðu þau að skólinn væri fínn, dálítið mikið að gera en of fáir krakkar. Kom í ljós, að Þórður og Viggó eru miklir áhugamenn um skák. Þeir eru skákmeistarar skólans og hafa farið á sýslumót og kjör- dæmismót. Gunnur Stella og Kristjana sögðust aftur á móti hafa meiri áhuga á dansi og körfubolta, sem þær sögðu aðal- íþróttina á Hellissandi. Voru þær grobbnar með stelpulið skólans enda urðu þær héraðsmeistarar í fyrra en strákaliðið reyndist eitthvað lakara. VERD FRÁ 342.000 KRÓNUM, MED RYDVÖRN Reynsluaksturíboói Vfrt.fr 433 / SUÐURLANDSBRAUT 16 • SiMI 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.