Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
Athugasemd frá Jónasi Bjarnasyni:
Alrangt hjá Kristjáni Ragnarssyni
að matsreglur rýri tekjur seljenda
Bjarni Björgvinsnon sölumaöur stendur við hina nýju bátavél sem Volvo-
umboóið er nú að hefja sölu á.
Volvo-umboðið hefur sölu á
tveggja skrúfu bátavélum
MORGUNBLAÐINU hafa borizt eftir-
farandi athugasemdir frá Jónasi
Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Fram-
leiðslueftirlits sjávarafuröa:
„Ég hef ýmsar athugasemdir við
það, sem Kristján Ragnarsson segir
í Morgunblaðinu fimmtudaginn 22.
marz. I fyrsta lagi segir hann, að það
sé tvímælalaust ljóst að metið hafi
verið eftir öðrum reglum en sam-
þykkt var við síðustu verðákvörðun
og það hafi vissulega rýrt tekjur
seljenda. Þær reglur, sem við metum
eftir, eru að sjálfsögðu ekki reglur,
sem ákveðnar eru af Verðlagsráði.
Þetta er misskilningur númer eitt og
þetta á Kristján Ragnarsson að vita.
Þær reglur, sem við metum eftir, eru
undirskrifaðar af ráðherra, það eru
opinberar reglur. í öðru lagi, að
þetta hafi rýrt tekjur seljenda, er
með öllu rangt og það hef ég sýnt
fram á og Kristján Ragnarsson hef-
ur alls ekki sýnt fram á hið gagn-
stæða.
Kristján tiltekur tvö dæmi um
afla úr togurum, annars vegar tog-
ara á Seyðisfirði og hins vegar tog-
ara, sem ég hef meira en ákveðnar
ALÞJÓÐLEGI veðurdagurinn er í
dag. Blaðamaður Morgunblaðsins
hafði samband við Hlyn Sigtryggs-
son, veðurstofustjóra, og innti hann
eftir tilefni þessa dags.
„Stofnskrá Alþjóða veðurfræði-
stofnunarinnar tók gildi þennan
dag 1950 og má segja að þessi dag-
ur sé því afmælisdagur stofnunar-
innar. Stofnunin hefur eins konar
ráðgjafarhlutverk með höndum og
samræmir hún aðgerðir hinna
grunsemdir um, að ég viti hver er.
Það kemur varla annar til greina.
Hann tilgreinir tölur um það hvern-
ig matið varð núna og telur að það sé
sönnun fyrir því, að metið sé hér
eftir öðrum og strangari matsregl-
um en áður. Þetta er að sjálfsögðu
með öllu tilhæfulaust. Matið er að
sjálfsögðu vont og ég hef upplýs-
ingar um báða þessa farma, stað-
festar af matsmönnum í báðum
löndunarhöfnunum, þess efnis að
hefði verið unnið nákvæmlega eftir
gömlu aðferðunum, hefði útkoman
hreint ekki orðið betri, ef nokkuð, þá
verri. Þannig að þessar tölur, sem
Kristján tiltekur, eru í fyrsta lagi
rangar, en það er nú sama, þær sýna
slæma útkomu, en þær hafa ekkert
með nýju matsaðferðina að gera. Að
nefna slíkar tölur er þess vegna al-
gjörlega út í hött og segir alls ekki
neitt og það eiga allir að sjá.
Kristján segir ennfremur: „Við
töldum, að við hefðum leyst þetta
mál með fullu samkomulagi, að til-
raunamat yrði framkvæmt í vetur til
samanburðar, þannig að meta mætti
áhrif nýju reglnanna á fiskverð, þeg-
ýmsu aðildarríkja, en flest lönd í
heimi eru aðilar að henni." Að-
spurður um hvort væri verið að
vekja athygli á sérstöku málefni
sagði hann að svo væri ekki heldur
væri verið að minna á veðurstofur
í hverju landi og það gildi sem þær
hefðu fyrir íbúa hvers lands. Hér
á landi var fyrst haldið upp á dag-
inn 1961 með útstillingu í málara-
glugganum en síðan hefur verið
dreift fróðleiksgögnum í skóla og
til þeirra sem gagn gæftu haft af.
ar það yrði ákveðið næst, en farið
yrði eftir gömlu reglunum þangað
til.“ Alveg hárrétt. Það stendur til að
breyta reglum og það starfar ákveð-
in nefnd að því að gera tillögur um
breytingar á reglum. Það eru reglu-
breytingar og í tengslum við þær
reglubreytingar er sjálfsagt að láta
fara fram tilraunamat. Þetta er allt
annar hlutur. Við erum núna að
starfa eftir gildandi reglum. Við höf-
um í engu breytt út frá þeim og þær
aðferðir, sem við höfum verið að
reyna undanfarið, miða að því að við
störfum jafnvel frekar og betur eftir
gildandi reglum en áður var. Það er
allt og sumt.
Að lokum er Kristján með per-
sónulegar dylgjur í minn garð með
ýmsum hætti. Mér finnst það í
fyrsta lagi benda til þess, að mál-
staðurinn sé ekki mjög góður, fyrst
hann þarf að grípa til slíks. Hann
minnist þarna á sjálfumgleði, yfir-
drepsskap og þrákelkni. Það pirrar
hann, að menn skuli ekki liggja al-
gjörlega flatir fyrir honum. Það er
það, sem hann meinar. Hann segir
að það sé verið að gera lítið úr útveg-
inum sem slíkum. Þetta sé lítilsvirð-
ing við útveginn. Á sama tíma veður
hann inn í ráðuneytið með hótanir,
sem byggja á nánast haldlausum
upplýsingum. Það er illa komið ís-
lenzkri stjórnskipan, ef menn vaða
inn' í ráðuneyti með hótanir, sem
byggjast ekki á traustari grunni en
svo.“
ACO hf. með
opið hús
MÖNNUM sem áhuga hafa á að
kynna sér það nýjasta í grafískum
greinum gefst kostur á að líta inn hjá
ACO hf., Laugavegi 168, þar sem sýnd
verða ný setningartæki frá LINO-
TYPE, framköllunarvélar frá ESKO-
FOT og ýmis ný tæki á markaðnum.
í SÝNINGARSAL Volvo-umboðsins
við Suðurlandsbraut er nú til sýnis
nýjung á sviði bátavéla.
Er það hin svonefnda Volvo
Penta DUOPROP, sem er tveggja
skrúfu vél, þar sem skrúfurnar
snúast hvor á móti annarri. Með
því fæst 15 til 20% meiri hraði og
30% meiri togkraftur. Auk þess
SÖFNUÐIR votta Jehóva halda tveggja
daga mót í samkomuhúsi sínu við Soga-
veg á morgun, laugardag og á sunnu-
dag. Fyrri daginn hefst dagskráin kl.
9.55, en á sunnudaginn hefst hún kl.
10.05.
í fréttatilkynningu frá vottum
Jehóva segir meðal annars að á
dagskrá mótsins verði 20 erindi, auk
viðtala og umræðuþátta.
Dagskráin er af sama tagi og al-
þjóðasamtök hafa haldið. Þar segir
jafnframt að Friðrik Gíslason flytji
verður stýringin einfaldari, þar
sem hliðartog á stýrið er úr sög-
unni. Þetta kerfi hefur hingað til
eingöngu verið notað á tundur-
skeytum og flugvélamótorum.
Fyrst um sinn verða til sölu hjá
umboðinu tvær tegundir þessara
véla, fjögurra strokka og 110 hest-
afla og sex strokka og 165 hestafla.
aðalræðu mótsins, sem hann nefnir:
„Hvaða framtíð bíður þín?“
Leiðrétting
RANGT var farið með verð á að-
göngumiðum á íslandsmeistaramót-
ið í Broadway á sunnudag í auglýs-
ingu í Mbl. Verðið er 250 krónur, en
ekki 450, eins og sagði í auglýsing-
unni.
Alþjóðlegi veð-
urdagurinn í dag
Vottar Jehóva halda
tveggja daga mót
ISLANDSMOTIÐ I HANDKNATTLEIK
URSLIT
1. UMFERÐ Föstudagur kl. 20.00 Stjarnan:Víkingur
23. mars 21.15 F.H.:Valur
Seljaskóli Reykjavík Laugardagur kl. 14.00 F.H.:Stjarnan
24. mars 15.15 ValunVíkingur
Sunnudagur kl. 20.00 VíkingunF.H.
9 25. mars 21.15 Stjarnan:Valur
Missið ekki af fjörinu!
VIKINGUR
Ferbatæki
í miklu úrvali
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999