Morgunblaðið - 23.03.1984, Síða 31

Morgunblaðið - 23.03.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 31 Hinn lítilsvirti höfundarréttur Hvað er ljósritað í skólunum? — eftir Hörð Bergmann Ýmsar tækninýjungar hafa orð- ið til þess að grafa undan höfund- arréttinum og gert erfitt að gæta hans. Nægir í því sambandi að minna á hljómbönd, myndbönd og ljósritunarvélar. Ný lagaákvæði og samningar, sem gerðir hafa verið til að koma í veg fyrir hömlulausan hugverkaþjófnað, hafa jafnan komið seint og dugað illa hér á landi. Mikið skortir hér á að virðing fyrir öðrum tegund- um eignarréttar. Engum dettur í hug að efast um réttmæti þess að heimtað sé gjald fyrir afnot af veiðiám, vatni til virkjana o.þ.u.l., en þegar kemur að spurningunni um afnot af bókum, sem eru ljós- ritaðar til afnota í skólum og liggja frammi í skólasöfnum, reynist erfitt að skapa skilning á því að réttmætt sé að gjald komi fyrir. Eftir því sem ljósritunar- og fjölföldunartæknin verður ódýrari og auðveldari bitnar notkun henn- ar harðar á hagsmunum höfunda og útgefenda. Með tilkomu ljósrit- unarvéla í flestum skólum varð mikil umbreyting á stöðu og möguleikum útgefenda og höfunda þeirra verka sem einkum er seilst til á þessum vettvangi. Stórlega dró úr sölu á ýmsum kennslugögn- um sem notuð eru í 9. bekk og framhaldsskólum, einkum verk- efna- og málakennsku. Óheft framhald þeirrar þróunar hlýtur að mínum dómi að draga úr út- gáfu og samningu slíkra verka og torvelda að sínu leyti æskilega endurnýjun. Eftir að gerður var samningur 6. maí 1983 um að gerðardómur skyldi úrskurða um greiðslur til handhafa höfundarréttar fyrir ljósritun og hliðstæða eftirgerð í íslenskum skólum, glæddust vonir kennslubókahöfunda um að breyttir tímar væru framundan. Samningurinn var gerður milli menntamálaráðuneyti'sins annars vegar og Blaðamannafélagsins, Rithöfundasambandsins, Tón- skáldafélagsins, STEFS og Félags íslenskra bókaútgefenda hins veg- ar. Var því ljóst að þeir höfundar, sem einkum höfðu hagsmuna að gæta, stóðu utan samningsins, enda höfðu þeir ekkert félag til að gæta hagsmuna sinna. Úr því var bætt 1. júlí í fyrrasumar þegar stofnað var félag sem fékk heitið „Hagþenkir — félag handhafa höfundarréttar á fræðiritum og kennslugögnum". Það sótti um að- ild að áðurnefndum samningi með óskertum réttindum en því var hafnað af Rithöfundasambandi Is- lands. Höfundar fræðirita og kennslugagna eiga enn eftir að fá hlut sinn viðurkenndan og bíða úrskurðar gerðardómsins sem væntanlega lýkur störfum í næsta mánuði. Frá sjónarmiði höfunda fræði- rita og kennslugagna er enn langt frá því að búið sé að koma viðun- andi skipan á væntanlegar greiðslur fyrir ljósritun og aðra fjölföldun í íslenskum skólum. í fyrsta lagi verður að teljast vafa- samt að sanngjörn niðurstaða fá- ist meðan félagi þeirra, sem hafa mestra hagsmuna að gæta, er haldið utan við leitina að henni. f öðru lagi verður að telja bæði ámælisvert og hæpið að ætla að fella dóm um greiðslur fyrir 11 ára tímabil án þess að byggja á niðurstöðum vandaðrar könnunar á því hve mikið er fjölfaldað úr útgefnum verkum og hvernig hún skiptist milli hinna ýmsu texta- tegunda. Síðastliðið haust fór Hagþenkir þess á leit við menntamálaráðu- neytið og aðra samningsaðila að slík könnun yrði gerð. Hvernig sem á því stendur fékk tillagan ekki undirtektir. Af þessum sök- um ákvað stjórn Hagþenkis að gangast fyrir könnun á eigin veg- um á umfangi og skiptingu fjöl- faldaðs efnis. Niðurstöður þeirrar könnunar liggja nú fyrir og hafa verið sendar áðurnefndum aðilum. Könnunin fór fram á fjögurra vikna tímabili í ársbyrjun. Hún náði til 7 grunnskóla af ólíkri stærð í Reykjavík og úti á landi og til þriggja framhaldsskóla. Helstu niðurstöður voru þær að í grunnskólum reyndist efnið, sem Ijósritað var, skiptast þannig að hlutdeild innlends efnis reyndist vera 63% en erlends 37%. Af því innlenda efni, sem ríkissjóði ber að greiða fyrir samkvæmt áður- nefndum samningi, reyndist hlut- ur kennslubóka og fræðirita vera um 95% og hlutur fagurbók- mennta um 5%. I þeim þremur framhaldsskólum, sem könnunin náði til, reyndist allt innlenda efn- ið, sem ljósritað var, vera úr kennslubókum og fræðiritum. I þessari könnun varð hlutur þeirra höfunda sem hafa stofnað „Hagþenki — félag handhafa höf- Bridgefélag Akureyrar: 40 ára afmælis- mót hefst í kvöld í KVÖLD hefst í Félagsborg á Akureyri afmælismót Bridge- félags Akureyrar. 56 pör, þar af á þriðja tug víðs vegar að af landinu, taka þátt í mótinu sem lýkur á sunnudag. Undankeppnin verður spiluð í fjórum 14 para riðlum í þremur lotum. Fyrsta lotan verður eins og fyrr sagði í kvöld og hefst kl. 19.30. Önnur umferð verður svo fyrri part laugardags og þriðja lota eftir hádegi og er áætlað að ljúka spilamennsku um kvöld- mat. Tuttugu efstu pörin spila svo til úrslita á sunnudag. Verður spilaður tölvugefinn barometer, tvö spil milli para. Verðlaun í mótinu eru ekki af verri endanum. Fyrstu verðlaun eru 15 þúsund krónur, önnur verðlaun 12 þúsund og þriðju 8 þúsund kr. Auk þess eru vegleg- ir verðlaunabikarar. Fjórðu verðlaun eru helgarpakki Akur- eyri-Reykjavík eða Rvík-Akur- eyri, fimmtu verðlaun tveir svefnpokar og sjöttu verðlaun myndataka fyrir 2 á ljósmynda- stofunni Norðurmynd. Þá verða verðlaunapeningar fyrir 4.-6. sæti. Keppnisstjórar verða Albert Sigurðsson og Guðmundur Kr. Sigurðsson og reiknimeistari Margrét Þórðardóttir. undarrétta á fræðiritum og kennslugögnum", mun meiri en stjórn félagsins hafði ætlað. Því miður var könnunin of takmörkuð til að geta gefið óyggjandi niður- stöður en hún gefur vísbendingu um hvernig þessum málum er háttað og bætir við þær upplýs- ingar sem voru fyrir hendi. Könn- unin ítrekar í rauninni nauðsyn þess að gerð verði viðameiri lang- tímakönnun sem allir aðilar sem málið varðar, sameinist um. Ég ætla að enda þessar línur á því að setja fram ósk um það að ekki líði á löngu þangað til hægt verður að sameina krafta allra hagsmunaaðila í að koma viðun- andi skipan á gæslu höfundarrétt- ar og sérstaklega í sambandi við ljósritun og aðra fjölföldun í skól- um. Auk þess skorts á upplýsing- um, sem ég hef gert hér að um- ræðuefni, má geta þess að enn hef- ur skólum landsins ekki verið til- Höröur Bergmann „Eftir því sem ljósritunar- og fjölföldunartæknin verður ódýrari og auðveld- ari bitnar notkun hennar hardar á hagsmunum höf- unda og útgefenda.“ kynnt um að gerður hefur verið samningur um þetta efni og ákvæði um þær takmarkanir á rétti til ljósritunar, sem í honum felast, því ókunnar kennurum. Raunar er óskiljanlegt að aðil^rn- ir, sem gerðu fjölföldunarsamn- inginn, skuli ekki hafa auglýst betur ákvæði hans og minnir það að sínu leyti á hve margt er enn á skötulíki í þessum efnum. Hördur Bergmann er nimsstjóri og formadur „Hagþenkis — félags handhafa höfundarréttar á fræði- ritum og kennslugögnum“. AUSTURSTRÆT117 STARMYRI 2 SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Verð sem standast samanburð!! Nýslátrað svínakjöt: Víkingasteik Tilbúin í ofninn 195« Bogur 12Q.00 X pr.kt*. Ekta Sunnudagssteik! pr.kg. Kótilettur Kynnum 220v°í? Hryggur 210« • CfgmSffó Svínalæri .oo 14^.oo prkft* X pr.kg. Kjúklingar S89« 125« Opið til kl. 7 í kvöld en til kl. 4 á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.