Morgunblaðið - 23.03.1984, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
41
Engilbert Eiðs-
son — Kveðjuorð
Fæddur 29. júní 1964.
Iláinn 11. mars 1984.
Kveðja frá vini.
Mánudaginn 12. mars var ég að
venju mættur í skólann um morg-
uninn. En ekki kom mér til hugar
að dagur þessi ætti eftir að vera
einn sá sorglegasti í lífi mínu
hingað til.
Skömmu eftir komu mína í skól-
ann frétti ég að Hellisey VE 503
hefði farist um nóttina. Sú frétt
fékk hjartað í mér til að slá helm-
ingi hraðar en það er vant að gera,
því einn minn besti vinur, Eddi,
var einn af skipverjum þar um
borð.
Seinna frétti ég að aðeins einn
skipverjanna hafði komist í land,
og það á frækilegan hátt, og Eddi
var einn af þeim sem höfðu farist.
Gat þetta veríð? Var þetta satt?
Var hann Eddi farinn frá okkur?
Þetta átti ég erfitt með að sætta
mig við og mun sjálfsagt aldrei
gera. En vegir guðs eru órannsak-
anlegir, og okkur er sagt, að einn
komi þá annar fer. Nú eru það
minningarnar um traustan og
góðan vin sem fylla hug minn, þær
ætla ég að varðveita vel, þær getur
enginn tekið frá mér. Sagt er, að
þeir deyji ungir sem guðirnir elska
mest. Hafið gefur og hafið tekur,
það eru orð að sönnu.
Elsku Solla, Eiður og Sigurborg,
systkini og aðrir vandamenn, ykk-
ur sendi ég mínar dýpstu samúð-
arkveðjur. Eddi verður alltaf til í
hugum okkar, og það ásamt bless-
un guðs mun veita ykkur og okkur
vinum hans styrk til þess að halda
áfram.
Edda mun ég aldrei gleyma.
Ornólfur Lárusson.
Bára Aðalsteins-
dóttir — Minning
Kveöja frá starfsfélögum á nudd- og
baðdeild og sjúkraþjálfara.
Hún Bára Aðalsteinsdóttir er
dáin. Hún andaðist í Landspítal-
anum þann 4. þ.m. eftir stutta en
stranga sjúkdómslegu.
Við starfssystkini Báru eigum
nú á bak að sjá einum af okkar
ágætu félögum og vinum, sem við
kveðjum með söknuði og um leið
þakklæti til gjafarans mikla, sem
leyfði okkur að njóta samvistar
hennar og mannkosta, hjálpsemi
og fórnfýsi, sem jafnan var til
staðar, unz leiðir skildu.
Bára var framúrskarandi góður
félagi. Hún var léttlynd og glað-
Fædd 26. nóvember 1903
Dáin 14. mars 1984
Ég kveð í dag hinstu kveðju
ömmu mína og nöfnu, Karólínu
Jósepsdóttur. Hún bjó í Skipa-
sundi 36, Reykjavík, lengst af sín-
um búskap. Húsið og garðurinn
var henni mjög kært. Húsið henn-
ar ömmu hét áður Litli-Háteigur
og stóð þá annars staðar í bænum,
en síðar fluttu þau það inn í
Skipasund, en alltaf var sjarmi yf-
ir sögunni um Litla-Háteig og því
til minningar málaði amma mín
platta með húsinu eins og það var
áður en það var flutt og stækkað.
Hún var gift Kristni Halldóri
Kristjánssyni, en hann dó árið
1952 svo aldrei naut ég nærveru
hans í þessu lífi, en amma talaði
mikið um hann og sagði okkur
Á vegum heilbrigðisyfirvalda og
Þróunarsamvinnustofnunar íslands í
samvinnu við Rauða Kross íslands
fer nú fram söfnun á notuðum en vel
með förnum hjúkrunargögnum og
lækningatækjum til sjúkrastofnana á
Grænhöfðaeyjum.
í frétt frá landlækni kemur fram
að forráðamenn og stjórnendur
sjúkrahúsa í þéttbýli og dreifbýli
hafi sýnt þessu starfi góðan skiín-
ing og að söfnun gangi allvel.
vær í viðmóti og framkoma henn-
ar öll var í senn gleðjandi og
traustvekjandi. Störf sín rækti
barnabörnunum frá honum alveg
fram undir það síðasta.
Áttu þau 8 börn, tvö þeirra dóu
ung, ein stúlka ólst upp á öðru
heimili en hin eru þau Anna, Al-
freð, Gunnar, Jósep og Jónína
Stella.
Margs er að minnast er hugur-
inn reikar til liðins tíma, garður-
inn hennar ömmu var paradis á
jörð og kom dálæti hennar á blóm-
um og allri fegurð þar vel í ljós.
Hún var alveg sérstaklega mikil
handavinnukona og margt er til
fallegt eftir hana. Sjálfri þykir
mér vænst um öll dúkkufötin sem
hún heklaði og prjónaði á dúkk-
urnar mínar er ég var lítil. Margt
var henni til lista lagt því mikið
vann hún úr leir einnig.
Eftir að afi dó og hún var enn
ung að árum tók hún við þar sem
Þeim sem vilja gefa til söfnunar-
innar er bent á að hafa samband
við skrifstofu Iandlæknis eða
Rauða kross Íslands. Sigríður Guð-
mundsdóttir hjúkrunarfræðingur
hjá Rauða krossi íslands hefur um-
sjón með söfnunni.
Ætlunin er að senda gögnin með
skipinu Feng sem fer til Græn-
höfðaeyja í apríl eða með öðrum
fiskiskipum sem leið eiga til Lissa-
bon. Síðan verður gögnum umskip-
að til Grænhöfðaeyja.
hún af alúð og einbeittum vilja og
var jafnan reiðubúin að sinna
óskum sjúklinga og starfsfélaga
eftir megni, hvernig sem á stóð.
Vorkunnlát og tilfinninganæm
var hún, svo að hún gat áreiðan-
lega tileinkað sér orð Páls postula:
„Fagnið með fagnendum og grátið
með grátendum!"
Fyrir alla þá góðvild og umönn-
un sem hún sýndi okkur og öllum
er henni kynntust, er henni nú
þakkað á viðkvæmri kveðjustund.
Hún Bára er horfin af sjónar-
sviði okkar, glaðlega brosið henn-
ar og hlýja handtakið mætir
okkur ekki lengur á sama hátt og
var, en minningin um góðan og
traustan vin máist ekki af spjaldi
minninganna.
Franskur liðsforingi, sem talaði
yfir gröf vinar síns, lauk máli sínu
með hinni þekktu, frönsku kveðju
„au revoir!" (Við sjáumst aftur)!"
Með þau orð í huga kveðjum við
Báru Aðalsteinsdóttur.
frá var horfið en hann hafði gert
út vörubíl og hélt hún því áfram
með dugnaði. Hún fór til Dan-
merkur að vinna og ferðaðist þá
mikið. Hún starfaði hér heima
lengst af í Þjóðleikhúskjallaran-
um, smurt brauð var eitt af henn-
ar listræna eðli, því það lék í
höndum hennar.
Börn hændust mjög að henni
ömmu og undrar það engan því
alltaf hafði hún tíma fyrir þau og
mikið útbjó hún af fallegum og
sérstæðum hlutum handa þeim og
er mér minnisstæðust sú sérstaka
Lína langsokkur sem enginn ann-
ar en hún gat saumað.
Amma mín var búin að vera
sjúklingur í nokkur ár og hygg ég
að hvíldin hafi orðið henni kær.
Ég kveð nú elsku bestu ömmu
mína. Að síðustu bið ég almáttug-
an Guð, sem tekið hefur Karó
ömmu í sinn náðarfaðm, að blessa
okkur öll.
Karólína Jósepsdóttir
Karólína Jóseps-
dóttir — Minning
Hjálparsöfnun fyr-
ir Grænhöfdaeyjar
Blaðanámskeið
fyrir utgetendur og bleðamenn landamílablaöa S|ált»tæði«llokk»-
A vegum fræðslunelndar Sjáltstæöisllokksins veröur etnt til nám-
skeiós föstudaginn 6 april og laugardaginn 7. april, sem ætlaö er
þeim, er starfa aö útgáfu landsmálablaöa og rita, sem gefin eru ut i
nafni Sjalfstæöismanna
DAGSKRA:
Föstud. 6. apríl:
Kl. 10.00 Setning: Esther Guömundsdóttir, formaöur
fræöslunefndar
Kl. 10.15—12 3 1. Hver er tilgangur blaöaútgáfu á Islandi.
hvernig blöö eru gefin ut, hver stór og til
hverra höföa þau?
2. Hvernig veröur blaö úti á landi til?
Fréttir — Greinar.
Kl. 12.30—13.30 Hádeglshlé.
Kl. 13.30—1500 3. Stjórnmálaleg hliö dagblaös, magn á stjórn-
málefni og ritun stjórnmalagreina
Kl. 15.00—15.30 4. Utbunaöur á ritstjórnarskrifstofu !
Kl. 15.30—16.00 5. Auglýsingar og auglýsingasöfnun
Kl. 16 00—16.30 Katfihlé.
Kl. 16.30—17.00 6. Utlitsteiknun.
Kl. 17.00—17.30 7. Rekstur blaös sem fyrirtækis. Þátttakendum
skipt í starfs hópa og verkefnum skipt.
Laugard. 7. apríl:
Kl. 09.00 Mæting.
Kl. 11.00 — 12.00 8. Verkefnum skilaö (umræöur — gagnrýni).
i Kl. 12.00—14.00 Hádegishlé.
Kl. 14.00 — 15.00 9. Ljósmyndun.
Kl. 15.00—17.00 10. Útlit, umbrot og prentun. Umræöur og fyrir-
spurnir.
Kl. 15.00—19.00 11. Heimsókn í prentsmiöju.
Námskeiöiö veröur haldiö i Valhöll viö Háaleitisbraut 1. Áriöandi er.
I aö þátttaka i námskeiöiö veröi tilkynnt sem allra fyrst til skrifstofu
Sjálfstæöistlokksins, simi 82900.
Fræöslunefnd
Siálfstæöisflokksins.
Veislubrauð
viö öll tækifæri.
'BRAUÐS
^BORGy
Laugavegi28,
símar 18680 — 16513.
I
i
Þjónusta
byggó
á þekkingu
Skipadeild Sambandsins Jlutti í Jyrra um 450
þúsund lestir af alls kyns vörum mtlli 106 hafna
innan lands og utan — allt Jrá Grænlandi til
Nígeriu.
Sambandsskipin sigla reglulega tilJjölda hajna
í Evrópu og Ameríku — en þjónusta okkar nær
um heim allan með samvinnu við sérhæjða
Jlutningsaðila á sjó og landi.
Þatftu að koma vörumjrá Akureyri tilAbu Dhabi
eða Jrá Barbados til Borgarness? Við sjáum um
það.
Þjónusta okkar er byggð á þekkingu.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200