Morgunblaðið - 23.03.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984
Fashanu til Indlands
— mun vinna þar með Móður Teresu
Frá Bob Hennetay. fráttamanni Morgunblaöaina á Englandi.
JUSTIN Fashanu, framherjinn
kunni hjá Notts County, sem áður
lék með Nottingham Forest og
Norwich, fer til Kalkútta á Ind-
landi þegar keppnistímabilinu
lýkur og þar mun hann vinna að
líknarmálum um tíma.
Fashanu er mjög trúaður og
sannkristinn. Hann mun vinna meö
Móöur Teresu í fátækrahverfum
Kalkútta-borgar. „Þó Justin hafi
oröiö frægur og ríkur hefur hann
ekkert breyst hvaö trúna varöar.
Hann er mjög kristinn maöur og
ræktar trú sína,“ sagöi einn for-
ráöamanna Notts County í gær.
DANÍEL Hilmarsson, Dalvík, og
Nanna Leifsdóttir, Akureyri, sigr-
uðu bæði tvöfalt um síðustu helgi
á punktamóti SKÍ sem fram fór á
Ísafirðí — unnu svig og stórsvig.
Tímar efstu manna uröu sem
hér segir:
Stórsvig karla:
Daníel Hilmarsson, Dalvík 105,95
Guöm. Jóhannsson, ísafiröi 107,15
Atli Einarsson, ísafiröi 107,66
Stórsvig kvenna:
Nanna Leifsdóttir, Akureyri 94,04
Signe Viöarsdóttir, Akureyri 94,34
Anna María Malmquist, Akureyri
96,15
Svig karla:
Daníel Hilmarsson, Dalvík 94,71
Árni ÞórÁrnason, Reykjavik 96,16
Ólafur Haröarson, Akureyri 98,18
Svig kvenna:
Nanna Leifsdóttir, Akureyri 97,58
Hrefna Magnúsd., Akureyri 98,66
Sigrún Grímsdóttir, Isafiröi 108,72
• íslenska landsliðið í handbolta náði frábærum árangri í þremur leikjum gegn heimsmeisturum
Sovétmanna um helgina eins og fram hefur komiö. Á föstudagskvöldiö mættust liöin á Akureyri í
íþróttahöllinni nýju — og er það í fyrsta sinn sem landsleikur í handknattleik fer fram á Akureyri.
Bæjarbúar kunnu vel aö meta það. Þeir fjölmenntu í Höllina og var uppselt á leikinn — og var
stemmningin góö. Þessi mynd var tekin fyrir leikinn er leikmenn liðanna stilltu sér upp og voru kynntir
fyrir áhorfendum. Morgunblaöiö/Friöþjófurr
Unglinga-
meistaramót
á Akranesi
Unglingameistaramót ís-
lands í badminton fer fram
nú um helgina, 24.-25
mars, á Akranesi.
Mun íþróttafélag Akra-
ness sjá um alla framkvæmd
þess. Það er vel viöeigandi
að mótið skuli nú vera haldið
á Akranesi, því í fyrra urðu
Akurnesingar mjög sigur-
sælir á þessu móti og fengu
flest verðlaunin og munu ef-
laust hvergi gefa eftir í þetta
sinn frekar en aörir kepp-
endur, og víst er að góð
skemmtun verður fyrir
áhorfendur aö fylgjast með
tilvonandi íslandsmeisturum
t badminton um helgina.
Keppt veröur í öilum grein-
um, þ.e. einliöaleik, tvíliöaleik
og tvenndarleik, í öllum flokk-
um unglinga:
10—12 ára, hnokkar/tátur
12—14 ára, sveinar/meyjar
14—16 ára, drengir/telpur
16—18 ára, piltar/stúlkur.
Þetta mun veröa fjölmenn-
asta badmintonmót sem
haldiö hefur veriö hér á landi,
því keppendur veröa 250 tals-
ins og koma frá eftirtöldum
félögum: TBR, Víkingi, KR og
Val úr Reykjavík og svo frá
Akranesi, Hafnarfiröi, Akur-
eyri, Siglufiröi, Selfossi,
Hverageröi og Borgarnesi.
Leiknir veröa á þriðja
hundraö leikir og hefst
keppnin á laugardagsmorgun
en á sunnudag veröa leikin
úrslit.
Landsflokka-
glíman og
Glímuþing
Landsflokkaglíman — ís-
landsmeistaramótið í glímu
— verður haldm á morgun,
laugardag. Keppnin hefst kl.
17 í íþróttahúsi Vogaskóle.
Keppt veröur í sex flokk-
um, þrír keppa í yfirþyngd,
fjórir í milliþyngd, fimm í lótt-
þyngd, tveir í unglingaflokki,
fimm í drengjaflokki og sex í
sveinafiokki. Flestir keppend-
ur veröa frá HSÞ og KR — 10
frá hvoru félagi, 3 frá Víkverja
og 2 úr Armanni.
Glímuþing verur haldiö á
Hótel Loftleiöum á sunnudag
og hefst kl. 13.
Stjarnan með 5 flokka í úrslitum
• Nú er íslandsmótiö í handknattleik á lokastigi. Innan tíðar munu úrslit liggja fyrir í öllum flokkum, jafnt yngri sem eldri. Eitt félag, Stjarnan
í Garðabæ, hefur náö þeim frábæra árangri í starfi sínu í vetur aö fá fimm flokka í úrslítakeppnina. Það eru 5., 4. og 3 flokkur pilta og 2. og 3.
flokkur kvenna. Á myndinni má sjá alla flokkana. Er þetta fríður hópur, sem á án efa eftir aö gera þaö gott í lokakeppninni.
Ofurstrangt lágmarþ
lyftingamanna fyrir 01.
Ólympíunefnd íslands hefur
ákveöiö lágmark í einstökum
flokkum lyftinga, sem lyftinga-
menn verða að ná eigi þeir að
koma til álita viö val á Ólympíu-
leikana í sumar. Lágmark í hverj-
um flokki fyrir sig er verulega
strangara en þaö lágmark, sem
Alþjóðalyftingasambandiö(IWF)
hefur sett fyrir þátttöku. Einnig
þurfa íslenskir lyftingamenn að
stórbæta íslandsmetin í viðkom-
andi flokki til þess aö geta náö á
lágmarkinu.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
var lágmark lyftingamanna ákveð-
iö án samráös viö landssamband
þeirra, Lyftingasamband íslands.
Lágmarkiö í hverjum flokki er ann-
ars sem hér segir (í svigum eru
alþjóöalágmörk í þeim flokkum,
/lilfrilllfB
sem íslenskir lyftingamenn eru
sterkastir).
52 kg fl. 225 kg
56 kg fl. 245 kg
60 kg fl. 265 kg
67.5 kg fl. 290 kg
75 kg fl. 315 kg (295)
82.5 kg fl. 345 kg
90 kg fl. 360 kg (315)
100 kg fl. 375 kg (325)
110 kg fl. 380 kg
110+ kg fl. 400 kg
Fjórir íslenskir lyftingamenn
hafa náö árangri, sem er jafn eöa
betri en alþjóöalágmarkiö, en lak-
ari en lágmark ól.nefndar íslands.
Haraldur Ólafsson ÍBA, sem keppir
í 75 kg flokki, lyfti nýlega 295 kíl-
óum, eöa sama árangri og lágmark
IWF hljóöar upp á. Baldur Borg-
þórsson KR hefur nýlega lyft 327,5
kg í 90 kg flokki, sem er 12,5 kg
yfir alþjóöalágmarkinu en undir því
íslenska. Bróöir hans, Birgir Borg-
þórsson, lyfti nýlega 330 kg í 100
kg flokki en á þar best 340 kg, en
hvorutveggja er yfir alþjóöalág-
markinu en undir því íslenzka.
Loks hefur Garöar Gíslason ÍBA aö
undanförnu náö bæöi lágmarki í
90 kg flokki, lyft 320 kg, og í 110
kg flokki, lyft 330 kg.
Allir þessir lyftingamenn hafa
æft af miklum krafti í vetur, í því
skyni að ná árangri til aö veröa
boölegir á Ólympíuleikana, sem
þeir hafa og reyndar náö, en nú
lesa þeir þaö í Morgunblaöinu aö
þeir verði aö gera enn betur, því
ekki mun sérsamböndum eöa
íþróttamönnum hafa veriö kynnt
lágmörkin, samkvæmt heimildum
blm. Mbl.
Þess má aö lokum geta, aö nú
þegar hafa veriö valdir nokkrir
sænskir og danskir lyftingamenn á
leikana, sem náö hafa svipuöum
árangri og fjórmenningarnir fyrr-
greindu. Islensku piltarnir hafa þó
einmitt sigraö viökomandi lyit-
ingamenn á mótum í heimalandi
þeirra nýlega. — ágás.
MorKunblaftiö Skapti Hallgrim98on.
• Haraldur Ólafsson ÍBA hefur
staðið sig vel að undanförnu og
sýnt framfarir. Hann er með
okkar albestu lyftingamönnum.
Punktamót á skíðum:
Daníel oq Nanna
unnu bæoi tvöfalt