Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 48

Morgunblaðið - 23.03.1984, Side 48
EITT KORT ALLS SIAÐAR FÖSTUDAGUR 23. MARZ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Krítarkortin: Kaupmenn vilja lægri þóknun „ÞAÐ ER óhjákvæmilegt, að sá kostnaður, sem er kn'tarkortunum samfara, komi fram í hækkuðu vöru- verði. Við viljum komast hjá þessari hækkun og höfum þess vegna farið fram á viðræður við VISA Island og Kreditkort sf.,“ sagði Jón Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Miklagarðs, á fundi með blaðamönnum í gær. Nítján verslanir á höfuðborgar- svæðinu hafa tekið höndum sam- an og ætla að segja upp samning- um sínum við ofangreind fyrir- tæki þann 20. apríl náist ekki sam- komulag um lægri þóknun en nú er. Á meðal þessara 19 verslana eru allir stórmarkaðirnir á um- ræddu svæði. f máli kaupmannanna kom fram, að þóknunin til krítarkorta- fyrirtækjanna hérlendis væri að þeirra mati of há. Hún væri að meðtaltali um 3%, en t.d. aðeins 0,5% í Danmörku. Þá kom fram á fundi þeirra, að svo miklar fjár- hæðir væru bundnar í krítar- kortalánunum að það veikti inn- kaupastöðu verslana stórlega. Það leiddi svo aftur til hækkaðs vöru- verðs. Gunnar Bæringsson, fram- kvæmdastjóri Kreditkorta sf., sagði í gærkvöldi, að ekki væri rétt að þóknunin í Danmörku væri aðeins 0,5%. Hún væri á bilinu 4—6%. Gunnar sagðist ekki vilja tjá sig um það hvort Kreditkort sf. sæju sér fært að lækka þóknunina. Honum hefði rétt borist bréf kaupmannanna og hann ætti eftir að kanna það nánar. Jóhann Ágústsson, stjórnarfor- maður VISA fsland, tók í sama streng og sagðist ekki vilja tjá sig um bréfið að svo stöddu. Stjórnar- menn fyrirtækisins væru ekki all- ir búnir að sjá bréfið og ákvörðun um framhald yrði ekki tekin fyrr en svo væri. Sjá nánar um fund kaupmanna með blaðamönnum á miðopnu. Gideon VE heim frá Póllandi Vestmannaeyjum, 22. mars. FYRSTA þeirra þriggja pólsku fiskiskipa, sem smíðuð eru fyrir íslenska aðila hjá Northern Ship- yard-skipasmíðastöðinni í Gdansk, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum klukkan ellefu í kvöld. Er það Gideon VE 104, sem var afhentur eigendum, Sam- togi sf., þann 15. mars sl. Skipið lagði af stað frá Gdansk í Pól- landi sl. lostudag og tekur heim- siglingin því rétta viku. Annað skipið, Halkion VE 105, sem einnig er í eigu Sam- togs sf., verður afhent síðari hluta aprílmánaðar en þriðja skipið, sem er í eigu Hróa hf. í Ólafsvík, er skemmra á veg komið. Þessi pólsku skip eru útbúin sem litlir skuttogarar, 222 brúttólestir að stærð, 76 tonn nettó. í þeim er 840 hestafla Sulzer-Cegielski aðalvél. Samkvæmt heimildum, sem Mbl. hefur aflað sér, er kaup- verð skipsins heimkomið, full- búið en án veiðarfæra, 70 millj- ónir króna. hkj. Umfangsmiklar björgunarað- gerðir fóru fram á Reykjavíkur- flugvelli um kl. 22 í gærkvöldi eftir að Almannavarnir settu þar á svið slys. Málsatvik voru þau, að björg- unarsveitum, lögreglu og siökkviliði var tilkynnt um kl. 21.30, að Fokker í innanlands- flugi með 54 farþega innanborðs væri með bilaðan hjólabúnað. Nokkrum mínútum síðar voru slökkvilið og sjúkrabifreiðir til taks við flugbrautina. Flugmaður tilkynnti þá að hjólabúnaðurinn væri kominn í lag, en rétt fyrir lendingu gerðist það svo, að einkaflug- vél lenti í árekstri við vél hans. Björgunarmenn voru skjótir á staðinn og gekk greiðlega að að losa hina slösuðu úr flak- inu. í miðju björgunarstarfinu sást svo hvar neyðarljós blikk- aði úti á Skerjafirði. Reyndist það vera sá eini eftirlifandi þriggja farþega einkaflugvél- arinnar, sem kastast hafði út í Skerjafjörð við áreksturinn. Voru menn þegar sendir hon- um til bjargar. Byggingalán ekki greidd út í gær: Veðdeildin hætti að lána Byggingasjóði Ríkissjóður leysti málið með 55 milljón kr. ávísun LITLU mátti muna í gær að ekki kæmi til verulegra vandræða í Veðdeild Landsbanka íslands og Byggingasjóði ríkisins. Þegar húsbyggjendur komu þangað í gærmorgun til að taka á móti lánum sínum voru ekki til peningar í stofnuninni. Leystist málið síðdegis er ríkissjóður hljóp undir bagga og sendi Veðdeildinni 55 milljón króna ávísun. „Það kom í ljós, að peningar, sem áttu að vera komnir til okkar, höfðu ekki borist," sagði Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Hús- næðisstofnunar ríkisins, í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld. „Veðdeild Landsbankans treysti sér ekki til að halda áfram útborg- unum og hélt því að sér höndum með greiðslur lána þar til féð barst. Það fer inn á reikninga lántakenda í fyrramálið og þar með verður staðan orðin eðlileg aftur." Fjörutíu af þessum 55 milljón- um áttu að koma að láni úr ríkis- ábyrgðasjóði og 15 úr ríkissjóði. Lánveiting ríkisábyrgðasjóðs hef- ur ekki verið afgreidd þar enn og munu því milljónirnar 55 allar hafa komið úr ríkissjóði. Staða Byggingasjóðs ríksins er slæm um þessar mundir, eins og áður hefur komið fram í Mbl. Er hann nú um 215 millj.kr. „í mín- us“, eins og það var orðað af heim- ildarmanni Mbl. í gær. Til dæmis hefur Veðdeild Landsbanka ís- lands, sem annast afgreiðslu og rekstur sjóðsins, lánað honum um 40 milljónir króna á undanförnum vikum. Yfirdráttur sjóðsins í Seðlabankanum mun nú nema um 182 milljónum króna og hefur Seðlabankinn lokað á frekari yfir- dráttarheimildir. Veðdeildin mun fá sínar 40 milljónir aftur af þeim 55, sem bárust í gær, en hvort tekst að halda uppi eðlilegri starf- semi sjóðsins lengi eftir helgina er allsendis óvíst, skv. upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær. Skv. heimildum blaðsins fara um tíu milljónir króna út úr sjóðnum daglega, aðallega vegna mikis útstreymis skyldusparnað- ar. Frá áramótum hefur sjóðurinn greitt út um 75 millj. kr. meira í skyldusparnað en inn í hann hefur komið. „Það má ekkert út af bera á meðan sjóðnum er ætlað að halda uppi eðlilegri starfsemi, eins og áhersla hefur verið lögð á,“ sagði Sigurður E. Guðmundsson. „Það hefur tekist og ekki orðið dráttur á lánveitingum nema í einstaka tilviki. Við höfum verið að bíða eftir lánsfjárlögum, sem loks voru samþykkt í gær, en þar held ég að okkur séu ætlaðar um 1.166 millj- ónir króna." Flugleiðir ráðgera flug til Florida FLUGLEIÐIR ráðgera að hefja reglulegt flug til Orlando í Florida í Bandaríkjunum 8. september í haust og er ætlunin að fljúga frá Luxemborg vikulega til Orlando. Ekki er enn jjóst hvort viðkoma verður höfð á Islandi i hverri ferð. Þetta áætlunarflug veltur á ieyfi stjórnvalda í Bandaríkjun- um, sem enn munu ekki hafa tekið afstöðu til málsins. Sam- kvæmt frétt í „Aviation Digest News“ verða Flugleiðir ef af verður fyrsta flugfélagið til að hefja áætlunarflug frá Evrópu til Orlando. Önnur evrópsk flugfélög hafa flogið til Tampa og Miami. Frumvarp um ný fjarskiptalög: Einkaréttur Pósts- og síma á notendabúnaði felldur niður „ÉG VONAST til að sjá þetta frumvarp orðið að lögum áður en Alþingi lýkur,“ sagði Matthías Bjarnason, samgöngumálaráöherra, um nýtt frumvarp til laga um fjarskipti sem nú hefur verið lagt fyrir Alþingi. Helstu breytingar í frumvarpinu, frá núgildandi lögum um fjarskipti nr. 30 frá 1941, eru fólgnar í því að fella niður einkarétt ríkisins, þ.e. Póst- og símamálastofnunarinnar, til að flytja inn og versla með notendabúnað til fjarskipta. Átta manna nefnd undir for- mennsku Halldórs E. Sigurðsson- ar, fyrrv. samgöngumálaráðherra, sem Steingrímur Hermansson, þáv. samgöngumálaráðherra, skipaði í nóv. 1981, til að endur- skoða lögin frá 1941, lauk störfum sínum í jan. sl. og kvaðst Matthías Bjarnason vera mjög ánægður með niðurstöðu hennar. Sagði hann það ljóst að ef frumvarpið myndi ná fram að ganga myndi það verulega auka frjálsræði í verslun einkaaðila með fjarskipta- búnað. Slíkan búnað má, sam- kvæmt frumvarpinu, þá aðeins setja á markað að Póstur og sími lýsi hann hæfan til að uppfylla gildandi kröfur hvers tíma um notendabúnað. Er Póst- og síma- málastofnuninni einnig heimilt að flytja inn og versla með fjar- skiptabúnað í samkeppni við þá aðila aðra sem vilja sinna slíkum viðskiptum. í greinargerð sem fylgir frum- varpinu segir m.a. að það sé sam- dóma álit nefndarinnar að Póst- og símamálastofnunin fari með, eftir sem áður, yfirráð og vald fyrir fslands hönd gagnvart öðr- um þjóðum hvað varðar fjarskipti. Hið sama á við um dreifingu og rekstur fjarskipta innanlands. Þá leggur nefndin áherslu á að leynd og vernd fjarskipta gildi jafnt hjá einstaklingum og fyrirtækjum, sem og á vegum Pósts og síma og gildi sama ákvæði um viðurlög í þeim efnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.