Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
Arnarflug gerir 2
samninga upp á
70 milljónir króna
ARNARFLUG skrifarti í gær undir samning við ríkisflugfélag Túnis, Tunis
Air, um 7 mánaða leigu á 727-vél félagsins, sem verið hafði í leiguverkefnum
í Nígeríu. Flugvélin er komin til Túnis og hefst fyrsta flugið á laugardaginn.
Flogið verður á áætlunarleiðum Tunis Air, sem eru á milli Túnis og ýmissa
borga Evrópu, m.a. Parísar, Amsterdam, Frankfurt, Madríd og Rómar. Um
er að ræða 200 klukkustunda flug á mánuði. Ennfremur standa yfir viðræður
við Tunis Air um leigu á annarri flugvél fyrirtækisins í sams konar verkefni.
Þá hefur Arnarflug samið við í þriðja lagi er áætlað að gera
belgíska flugfélagið Sobil Air, breytingu á afgreiðslufyrirkomu-
dótturfyrirtæki Sabena, um helg-
arflug með ferðamenn í aprílmán-
uði. Til þessa flugs verða notaðar
737-vélar Arnarflugs. Verður flog-
ið frá Brússel til Aþenu og áfram
til Alicante á Spáni, frá Brússel til
Malaga og einnig til Mallorca. Að
sögn Agnars Friðrikssonar, fram-
kvæmdastjóra Arnarflugs, er
verðmæti tveggja ofangreindra
samninga tæplega 70 milljónir
króna.
Um innanlandsflug félagsins
sagði Agnar, að á stjórnarfundi í
hádeginu í gær hefði verið ákveðið
að halda því áfram „til að minnsta
kosti 31. ágúst nk., enda verði þá
sýnt að þær ráðstafanir sem grip-
ið verður til skili þeirri bættu af-
komu sem vænst er, þannig að
reksturinn verði hallalaus", eins
og segir í samþykkt stjórnarinnar.
Þær ráðstafanir sem hér er vís-
að til eru í fjórum liðum. Það er í
fyrsta lagi breyting á flugvéla-
flota félagsins, en meiningin er að
allar vélar félagsins verði af
Cessna gerð í framtíðinni. Eins og
sakir standa hefur félagið yfir
þremur tegundum véla að ráða,
Cheyenne, Twin-Otter, auk
Cessna. Að sögn Agnars er Cessna
ótvírætt ódýrust þessara þriggja
vélategunda í rekstri.
f öðru lagi á að breyta við-
haldsfyrirkomulagi flugvéla fé-
lagsins, en Agnar vildi ekki tjá sig
að svo stöddu um hverjar þær
breytingar yrðu.
INNLENT
lagi félagsins. Tekin verða upp ný
og einfaldari vinnubrögð á
Reykjavíkurflugvelli og starfs-
fólki fækkað. Sagði Agnar að
þetta yrði gert án þess að dregið
verði úr þjónustu við viðskiptavini
Arnarflugs.
Ofannefndar þrjár breytingar
miða að því að lækka rekstrar-
kostnað félagsins, en einnig er
áætlað að auka tekjurnar með því
að ástunda öfluga markaðsstarf-
semi.
Nýjung í Noregi:
HÚSIÐ sem áður stóð við Laugaveg númer 63, er nú komið á sinn frambúðarstað við Framnesveg. Ekki er
annað að sjá en húsið hafi skekkst eilítið í flutningunum.
„Friður og öryggi“ val-
grein í framhaldsskólum
FYRIR ALÞINGI íslendinga liggur eins og kunnugt er ályktunartillaga um
að menntamálaráðherra hefji undirbúning að frekari friðarfræðslu á barna-
heimilum, í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. Þingmenn allra
flokka standa að tillögunni sem menntamálaráðherra hefur sagt að sé
„óljós“ en greinargerðin með henni þó „óljósari". Morgunblaðinu hefur nú
borist fréttatilkynning frá kirkju- og skólamálaráðuneytinu í Noregi þar sem
frá því er skýrt að þar verði stofnuð valgreinin „friður og öryggi“ í fram-
haldsskólum þar sem meðal námsefnis verði hlutverk hersins í þágu friðar
og öryggis.
Kjell Magne Bondevik, kirkju-
og skólamálaráðherra Noregs,
skýrði frá því á fundi með skóla-
stjórum framhaldsskóla, þriðju-
daginn 20. mars síðastliðinn, að
ráðuneyti sitt hefði samþykkt
námsefni fyrir valgreinina „friður
og öryggi" í norskum fram-
haldsskólum. Verði unnt að bjóða
tvær kennslustundir á viku í þess-
ari grein frá og með haustinu
1984. Ráðuneytið hafnaði hins
vegar hugmyndum um að „friðar-
fræðsla" yrði gerð að skyldunáms-
grein. Um efni e'r snerta frið, ör-
yggi, mannréttindi og afvopnun-
armál ætti sem fyrr að ræða í
kennslu skyldugreina eins og t.d.
samfélagsfræði, norsku og sögu.
Áður en framhaldsfræðsluráðið
í Noregi lagði fram tillögu um
hina nýju námsgrein fyrir ráð-
herrann leitaði það meðal annars
álits utanríkisráðuneytisins og
varnarmálaráðuneytisins og var
tekið tillit til sjónarmiða ráðu-
neytanna við gerð námsskrárinn-
ar. f greininni „friður og öryggi"
skal meðal annars miðlað fræðslu
um orsakir átaka og styrjalda,
friðarstarf og sættir í deilum,
hlutverk hersins i þágu friðar og
öryggis, afvopnun og takmörkun
vígbúnaðar, mannréttindi og nýja
efnahagsskipan í veröldinni.
Meðal þess efnis sem skólum er
skylt að leggja nemendum til
vegna fræðslu um frið og öryggi
eru alfræðiorðabækur, ítarleg
mannkynssaga og saga Noregs. Þá
á að útvega nemendum NATO-
handbækur en að öðru leyti er
kennurum og nemendum heimilað
að leita fyrir sér í opinberum
gögnum, norskum og útlendum
tímaritum og dagblöðum.
Anna Vilhjálms og Þröstur Bjarnason voru gefin saman við hátíðlega
athöfn í efri sal veitingahússins Þórscafé í gærkvöldi. (Momunblaðifl: Kriatján)
Hjónavígsla
í Þórscafé
ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem
prestsvcrk eru unnin í veitingahús-
um, en það átti sér stað í Þórscafé
í gærkvöldi er þar voru gefin sam-
an í hjónaband, Anna Vilhjálms og
Þröstur Bjarnason
Séra Valgeir Ástráðsson gaf
brúðhjónin saman, en svara-
menn voru Kristinn Guðmunds-
son, veitingastjóri í Þórscafé, og
Richard G. Jónsson, fram-
reiðslumaður. Anna Vilhjálms
hefur undánfarin ár sungið með
húshljómsveitinni I Þórscafé,
Dansbandinu, og voru félagar
hennar úr ihljómsveitinni að
sjálfsögðu viðstaddir athöfnina
svo og flest allt starfslið veit-
ingahússins. Að lokinni vígsl-
unni var slegið upp starfs-
mannaballi þar sem Lúdó og
Stefán léku fyrir dansi fram eft-
ir nóttu.
Ríki og borg bjóða Að-
alheiði nýjan samning
„AF HÁLFU viðsemjenda Sóknar
var lögð áhersla á, að hægt væri að
semja á grundvelli efnis bréfsins,
sem borgarstjóri og fjármálaráð-
herra hafa sent formanni Sóknar, ef
það yrði gert nú þegar eða á næst-
unni,“ sagði Þorsteinn Geirsson,
formaður samninganefndar ríkisins,
um fyrsta samningafundinn með
nýrri samninganefnd Starfsmanna-
félagsins Sóknar í gærmorgun.
Fundurinn stóð í rúma klukku-
stund og lauk án þess að til nýs
fundar væri boðað. Samninga-
nefnd Sóknar mun síðar í vikunni
halda fund með 30—40 manna
baknefnd sinni, þar sem tekin
verður afstaða til tilboðs viðsemj-
enda félagsins, þ.e. Reykjavíkur-
borgar, fjármálaráðuneytisins og
sjálfseignarstofnana ríkisins.
„Þar munum við ræða tilboðið sem
við fengum á fundinum, og taka
afstöðu til þess hvort því verður
tekið eða hvort knúið verður á um
viðhlýtandi lausn fleiri ágrein-
ingsefna, sem við tilgreinum í
okkar kröfum," sagði Ólafur
Gíslason, einn samninganefndar-
manna Sóknar, í samtali við blm.
Morgunblaðsins.
Ólafur sagði nefndina líta svo á,
að í tilboðinu fælist viss sigur
fyrir Sóknarfólk. „Þeir fallast á að
fyrri samningsákvæði gildi öll frá
og með 21. febrúar og að auki að
unglingataxtinn falli út og að
Sóknarfélagar fái launaflokks-
hækkun eftir 15 ára starf," sagði
hann. „En það þykir okkur athygl-
isvert, að bréfið til formanns
Sóknar, þar sem þessi atriði eru
tíunduð, barst áður en samninga-
nefndin kynnti nýjar kröfur sínar
á mánudagskvöldið. Höfuðatriðið
er þó það, að við viljum reyna að
leysa þessa deilu sem fyrst," sagði
Ólafur Gíslason.
Alkóhólskattur á
Campari of hár?
ÞAÐ VAKTI athygli þegar ný
verðskrá Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins var opinberuð fyrir
skömmu að verð á Campari bitter
hækkaði hlutfallslega mun meira
en flestar aðrar tegundir, úr 320
krónum í 570, eða um 80%. Nú
virðast allar líkur á því að skekkja
hafi orðið í verðútreikningnum og
vínið hefði átt að hækka um 47%,
eða í 470 krónur.
Síðasta áfengishækkun var
reiknuð út frá nýjum reglum
fjármálaráðuneytisins, þar sem
aðalnýjungin var fólgin í því að
leggja á sérstakan stighækkandi
alkóhólskatt. Lét ráðuneytið út-
búa sérstakt línurit sem sýnir
skattlagninguna á hverju pró-
senti af alkóhóli. Svo virðist sem
þau mistök hafi átt sér stað við
verðútreikning á Campari bitter,
að of hár alkóhólskattur var
lagður á vínið, 314 krónur í stað
230, sem línuritið gefur til
kynna.
Jón Kjartansson, forstjóri
ÁTVR, sagðist ekkert geta sagt
um málið að svo stöddu, þegar
blaðamaður Morgunblaðsins
hafði samband við hann í gær.
Hann sagði að verið væri að yfir-
fara verðútreikninginn og það
kæmi í ljós innan tíðar hvort of
hátt verð hefði verið reiknað eða
ekki.