Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 5

Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 5 Sinfóníuhljómsveit íslands: Þrettándu tónleikarnir á starfsárinu Sinfóníuhljómsveit íslands heldur 13. áskriftartónleika sína á starfsárinu í Háskólabíói á morgun, fimmtudag kl. 20.30. Hljómsveitarstjóri verður Rob- ert Henderson og einleikari Roger Woodward, píanóleikari. Á efnisskránni er Andante spianato e Grande Polonaise Brilliante, op.22 eftir Chopin, Píanókonsert nr. 1 í Des-dúr, op.10 eftir Prokofíeff, konsert fyrir hljómsveit eftir Bartók og Þjóðvísa eftir Jón Ásgeirsson. Þjóðvísa var fyrst flutt á tónleik- um Sinfóníuhljómsveitarinnar 1967, undir stjórn B. Wodiczko, en tónskáldið endurskoðaði verkið sl. sumar og verður það frumflutt eftir þær breytingar. Robert Henderson hóf fjög- urra ára gamall nám í hljóð- færaleik, fyrst á fiðlu, þá píanó og síðan horn. Hann hefur einn- ig unnið að tónsmíðum og hlaut Bandaríkjamaðurinn, Robert Hend- erson, sem verður hljómsveitarstjóri í tónleikunum á morgun. Ráðstefna Landverndar: „Landnám Ingólfs, land- nýting og landnotkun“ „LANDNÁM Ingólfs, landnýting og landnotkun'* er yfirskrift ráðstefnu sem Landvernd, landgrsðslu- og nátt- úruverndarsamtök Islands, gengst fyrir á morgun, fimmtudag. A ráð- stefnunni verða flutt sex erindi er varða landnot á því svaeði er tilheyrir landnámi Ingólfs, vandamál sem að því steðja og leiðir til úrbóta. Að lokn- um erindunum verða umræður, bæði almennar og í hópum. Hefur öllum fulltrúum frá öllum baejar- og sveitar- stjórnum, þingmönnum og öðrum hagsmunaaðilum úr þessum lands- hluta verið boðið til ráðstefnunnar. Ráðstefnan hefst í Borgartúni 6 kl. 10.00 og að lokinni setningu verða erindi flutt. Framsögumenn verða Hákon Sigurgrímsson, sem fjallar um stöðu landbúnaðarins, Páll Sigurðsson, sem ræðir um lög- fræðileg álitaefni, Stefán Thors, sem flytur erindi um skipulag og landnotkun, Svanhildur Halldórs- dóttir, sem flytur erindi sem ber heitið „Leikmannsþankar", Þorleif- ur Einarsson, sem ræðir um efnis- töku og jarðrask og Gísli Gíslason, sem flytur erindi um friðlýsingu og skráningu náttúruminja. Að loknu matarhléi skipast ráðstefnugestir í umræðuhópa og að þeim umræðum loknum verður greint frá niðurstöðu hópanna. Þá verða almennar um- ræður, en ráðstefnunni verður slitið um kl. 18.00. Varði doktorsrit- gerð í jarðverkfræði Björn Oddsson varði doktorsritgerð í jarðverkfræði (engineering geology) við Eidgenössische Technische Hochschule í Ziirich í Sviss, þriðjudag- inn 20. mars sl. Björn er fæddur 1. nóvember 1951, í Reykjavík, sonur þeirra Odds Sigurðssonar, iðnrekanda, og Guð- finnu Björnsdóttur. Hann varð stúdent frá stærð- og eðlisfræði- deild MR árið 1971 og lauk prófi í jarðfræði frá Universitát Zurich ár- ið 1976. Síðan hefur Björn unnið að sjálfstæðum rannsóknum til dokt- orsritgerðar við Eidgenössische Technische Hochschule og jafn- framt stundað kennslu í jarðfræði við jarðfræði- og verkfræðideild sama skóia. Á ensku ber ritgerðin heitið: „Geology and geotechnical behavior of the young icelandic volcanics with special consideration of the petrographic control of their prop- erties." Ándmælendur voru Prof. C. Schindler (fyrir hönd jarðverk- fræðideildar), Prof. J.G. Ramsay (jarðfræðideild) og prof. K. Kovári (verkfræðideild). Athöfninni stýrði Prof. R. Trúmpy, en hann er forseti alþjóðasambands jarðfræðinga. Ritgerðin fjallar annars vegar um jarðfræði „Plio-Pleistocene og Upper-Pleistocene myndana tslands með sérstöku tilliti til þeirra þátta sem mikilvægir eru viðvíkjandi mannvirkjagerð og hins vegar um tæknilega eiginleika bergsins, sem hér kemur fyrir (móberg, basalt, hraun og innskot, bólstraberg og jökulberg). í dæmigerðum bergsýn- um voru mældir ýmsir tæknilegir eiginleikar bergsins, sem ýmist eru notaðir beint eða hafðir til hliðsjón- ar við hönnun og mannvirkjagerð f bergi og lausum jarðvegi. Rann- sóknir þessar innihalda m.a. mæl- ingar á styrkleika og elastiskum eiginleikum í einása-, þriása- og togbrotþolsprófunum, hörkuprófan- ir (abrasivity), hljóðhraðamælingar fyrst verðlaun fyrir þær 13 ára gamall. Hann er stjórnandi sin- fóníuhljómsveitarinnar í Little Rock, Arkansas í Bandaríkj- unum, en stjórnaði áður sin- fóníuhljómsveitinni í Utah. Einleikarinn á tónleikunum á morgun, Roger Woodward, kom fyrst fram á tónleikum í Lund- únum 1971, bæði sjálfstætt og með Konunglegu Fílharmoníu- hljómsveitinni. Hann hefur síð- an leikið víða m.a. með hljóm- sveitarstjórunum Kurt Masur, Lorin Maazel, Zubin Mehta og Pierre Boulez. 1982 tók Wood- ward þátt í afmælishátíð ástr- alska útvarpsins, flutti þar og tók upp alla fimm píanókon- serta Beethovens og píanósónöt- urnar, 32 að tölu. A síðasta ári flutti hann síðan öll píanóverk Chopins á tólf tónleikum, en auk tónleikahalds hefur Woodward leikið inn á 20 hljómplötur. Björn Oddsson hefur unnið að sjálfstæðum rannsóknum við Eid- genössische Technische Hochschule í Sviss, og varði þar doktorsritgerð sína. o.s.frv. Brotþolsmælingarnar eru gerðar í afar fullkomnu tæki (stiff servo-controlled device) svo unnt er að mæla styrkleika bergsins eftir að brot hefur átt sér stað. Við þríása brotþolsprófanirnar er notuð ný að- ferð, svokallað „continuous failure state test“, en með henni fást mun meiri niðurstöður út úr hverju sýni en áður var mögulegt. Niðurstöður mælinganna eru siðan túlkaðar með tilliti til bergfræðilegrar gerðar (m.a. poruhlutfall, míneralsamsetn- ing, kornastærð og -lögun, strúktúr, ummyndun) sýnanna. Slíkar túlkan- ir gefa mikilvægar hagkvæmar upp- lýsingar, t.d. um það hvernig frá- brugðið berg muni haga sér við svip- aðar aðstæður svo og hvernig og að hve miklu leyti niðurstöður mæl- inga á bergsýnum geta verið víkkað- ar út i mælikvarða bergsins eins og það kemur fyrir við mannvirkja- gerð. Eiginkona Björns er Gabriella Richter. Munið Útsýnarkvöldið næstkomandi sunnudagskvöld í Broadway Sjá nánar auglýsiningu í Morgunblaðinu á morgun. Borðapantanir í síma 77500. Páskaferðir Utsýnar > Vorið í Evrópu, einn yndislegasti tími ársins, bíður þín í páskaferöum Útsýnar. Við bjóöum þér ánægjulega og ódýra valkosti. GLASGOW Wmm -■ ■■ 17. til 24. apríl. Gisting á Hotel Ingram í hjarta borgarinnar, sem alltaf er jafn vin- sæl meöal íslendinga. Verð frá kr. 14.150.- GOLF-FERÐ TIL SKOTLANDS 17. til 24. apríl. Gisting á Pond Hotel, ákjósanlegum dval- arstaö fyrir golfunnendur. Verö frá kr. 14.150.- KAUPMANNAHÖFN 18. til 23. apríl. Gisting á Hotel Marienlyst i Helsingör, einhverju glæsilegasta hóteli Danmerkur. Nýtískulegar og vel búnar íbúðir eöa hótelherbergi. Tíöar lestarferöir til Kaupmannahafnar sem taka aðeins um 45 mín. Verö frá kr. 11.210.- 16. til 23. apríl. LUXEMBORG Gisting á Hotel Cravat sem er vel staðsett og stutt frá verslunum, veitinga- og skemmtistööum. Hér er upplagt aö leigja sér bíl. Verð frá kr. 15.400.- 17. til 24. apríl. AMSTERDAM Gisting á Hotel Pulitzer sem er afar aölaöandi og sér- kennilegt fyrsta flokks hótel, staðsett í hjarta gamla borg- arhlutans, sem býr yfir einstöku andrúmslofti. Verö frá kr. 17.120.- KANARIEYJAR 18. apríl til 2. maí. Gisting á hóteli eða í íbúðum á ensku ströndinni, á þessum sannkallaða sælureit sóldýrkenda og annarra sem kunna aö meta lífsins lystisemdir. Verð frá kr. 24.436.- COSTADEL SOL 18. til 29. apr^#Jy~^L^ynd aö Útsýn hefur haldiö uppi feröum til Có^^^r#V^ijmur viö sívaxandi vinsæld- ir, er e.t.v. bestríísi^^Olj^<hrifningu og ánægju þeirra, sem notiö hafa^þs^gr^^Jr^ntunar og marg- háttaöra ævintýra fyrir tilstinr Verö frá kr. 17.900.- Reykjavík: Austurstræti 17, simi 26611. Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911. Umboðsmenn um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.