Morgunblaðið - 28.03.1984, Síða 15
MORGUNBkAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
15
Kennari og nem-
andi í sama bekk
Spjallað við Sigurgeir Jónsson í Vestmannaeyjum
Vetftmmnnaejjum, 21. nwrs.
ÆTLI þad sé ekki harla fátítt að
kennari sé jafnframt nemandi í eig-
in bekk. Slfkt á sér engu að síður
stað í Stýrimannaskólanum í Vest-
mannaeyjum nú í vetur þar sem
meðal nemanda á II. stigi er Sigur-
geir Jónsson, 43 ára gamall, borinn
og barnfæddur Vestmanneyingur.
Sá hinn sami Sigurgeir er einnig
einn af kennurum skólans, kennir
íslensku, ensku, dönsku, vélfræði og
skriflega sjómennsku. Nokkrar
þessara greina kennir Sigurgeir ein-
mitt á II. stigi og er þá í því óvenju-
lega hlutverki að vera nemandi hjá
sjálfum sér.
Þetta vakti athygli okkar
Mbl.manna hér á skerinu og feng-
um við Sigurgeir til þess að spjalla
við okkur. Fyrst lék okkur forvitni
á að vita hvernig málin gengju
fyrir sig, þegar að prófum kemur,
er þá ekki nemandinn Sigurgeir
Jónsson öruggur með að ná góðu
prófi í þeim greinum sem kennar-
inn Sigurgeir Jónsson samdi próf-
verkefnin í.
„Það hefur þegar reynt á þetta í
einni grein, vélfræði. Þá samdi ég
prófið fyrir mína nemendur, en
skólastjóri Vélskólans var fenginn
til þess að semja próf sem mér var
ætlað að þreyta. Ég sat þá úti í
bekk með öðrum nemendum en
varð af og til að standa upp og
útskýra eitt og annað varðandi
prófið fyrir nemendum."
— Og hvernig tókst til?
„Þegar einkunnir komu þá kom í
Bjarni Jón&sson með nemendum sínum í veðurfræði, Sigurgeir annar nem-
endanna. Morgunblaðið/ Sigurgeir.
Enskukennarinn Sigurgeir Jónsson.
ljós að kennarinn hafði orðið
lægstur, með rúmlega 8. Þetta
bendir til þess að kennslan hafi
verið þokkaleg og nemendurnir
kannski ívið greindari en kennar-
inn. I vor verð ég svo að taka próf
í ensku og íslensku og ætla ég að
láta skólastjórann ráða fram úr
því máli.“
Við spurðum Sigurgeir hvort
svona nokkuð væri ekki einsdæmi
hér á landi. Taldi Sigurgeir það
mjög fátítt að sami maður væri í
senn bæði nemandi og kennari í
sama bekk en sagðist vita til þess
að Þorsteinn Gíslason fiskimála-
stjóri hefði eitt sinn verið bæði
nemandi og kennari við Stýri-
Lóðarvandræði Bflasölu Guðfinns:
„Við og hund-
arnir bannað-
u
ir í borginni
— en þó er von til að hundarnir fái und-
anþágu, segir Guðfinnur Halldórsson
„ÞETTA stefnir í að hvorki hundum
né Bílasölu Guðfinns verði heimilt
að vera í Reykjavík — en þó er von
um undanþágu fyrir hundana. Það
verður að segjast eins og er, að borg-
aryfirvöld hafa hagað sér mjög
óþægilega gagnvart mér,“ sagði
GuðHnnur Halldórsson, bflasali, í
samtali við blaðamann Mbl. Guð-
flnnur hefur undanfarna mánuði
verið á hrakhólum með fyrirtæki sitt
og misst af einum fjórum lóðum,
sem hann hafði áður fengið fyrirheit
eða góðar vonir um.
„Þetta hefur farið illa með mig
og starfsemi fyrirtækisins," sagði
Guðfinnur. „Það er alltaf verið að
halda manni volgum, lofa manni
þessari lóð eða hinni en siðan fær
maður bara að heyra að þetta hafi
verið mistök. Mér þykir þetta
þeim mun undarlegra fyrir þá sök,
að í vetur hefur tveimur bílasölum
verið úthlutað lóðum í Reykjavík
— og eigandi annarrar býr í Kópa-
vogi! Nú síðast var mér sagt að ég
fengi ekki lóð vestan Elliðaáa. Það
þykir mér heldur lítil tillitssemi."
Gunnar Eydal, skrifstofustjóri
borgarinnar, sagði í samtali við
blm. Morgunblaðsins, að þegar
Bílasala Guðfinns hefði misst að-
stöðu sína í Ármúla hefði verið
kannað hvort ekki væri hægt að
útvega fyrirtækinu lóð við Skip-
holt, neðan við Sjómannaskólann.
Nemandinn Sigurgeir þungt hugsi
yflr skræðunum.
mannaskólann í Reykjavík. Sigur-
geir sagðist frekar álíta sig nem-
anda en kennara, taka nemandann
framyfir, allavega í vetur. En
hvernig er sambandið við nemend-
ur?
„Það er mjög gott. Ég hækkaði
meðalaldurinn á II. stigi um 5—6
ár og gæti verið faðir allra bekkj-
arfélaga minna, jafnvel afi sumra
þeirra, aldursins vegna. Það hefur
verið ágætis samkomulag á milli
okkar, þetta eru allt fyrirtaks
menn bæði sem félagar og nem-
endur," sagði Sigurgeir Jónsson.
Um ástæðu þess að hann gerðist
nemandi á II. stigi sagði Sigurgeir
að væri í og með vegna þess að
hann hefði kennt 9. bekk undan-
farin ár verklega sjóvinnu og sigl-
ingafræði, hann hefði öðlast bæði
vélstjóra- og matsveinaréttindi og
því fundist tilvalið að bæta þess-
um réttindum í safnið. Sigurgeir
tók I. stig 1982 og taldi það þægi-
legt að geta leyst af í öllum störf-
um um borð í því skipi sem hann
væri á. Sigurgeir Jónsson fór fyrst
til sjós árið 1959 og hefur að segja
má hvert ár síðan stundað sjóinn,
ýmist sem aðalatvinnu eða þá sem
sumarvinnu. — hkj.
Það hefði reynst ókleift. Þá hefði
verið athugað með lóð við Ármúla-
skóla, sem einnig hefði reynst
ókleift, síðan hefðu öryggissjón-
armið vegna flugumferðar komið í
veg fyrir að fyrirtækið fengi lóð
við Umferðarmiðstöðina og loks
hefði tillögu um lóð í Öskjuhlíð,
neðan við styttuna Vatnsberann,
verið hafnað af borgarráði. Þá var
og bókað í borgarráði, að ekki væri
hægt að leysa lóðarvandræði
fyrirtækisins vestan við Elliðaár.
„Manni sýnist að það sé sjálf-
krafa komið í blindgötu að bílasöl-
ur séu starfræktar vestan við Ell-
iðaár," sagði Gunnar. „Með þess-
ari afstöðu borgarráðs ,«r verið að
reyna að snúa þeirri þróun við, að
bílasölum fjölgi í sjálfri borginni.
Málið er því strand í bili, fjórar
tilraunir borgaryfirvalda til að út-
vega fyrirtækinu lóð hafa verið
árangurslausar, jafnvel þótt þrjár
síðustu lóðirnar, sem talað var
um, hefðu ekki átt að vera nerpa
til skemmri tíma.“
„Þetta er vissulega óþægileg
staða," sagði Guðfinnur Halldórs-
son. „Nú er ég mest með þetta
heima fyrir náð og miskunn ná-
grannanna, sem ég reyni vitaskuld
að halda friðinn við. Enda segja
þeir, þegar ég sel fyrir þá bíla, að
þeir útvegi sýningarsalinn sjálfir
— það er að segja að ég fæ að sýna
bílana í þeirra eigin bílskúrum."
AFMÆUSVERÐ
RVNINAIN
IDAG
ísfugl
1/4 pönnukjúklingur ............. kr. 55
Pönnuborgari...................... - 40
Pönnufiskur ...................... - 20
Franskar kartöflur ............... - 15
Salat ............................ - 10
Sósur ............................ - 10
Gos (með mat) .................... - 0
ís (eftir mat) ................... - 0
ísfugl
Fuglasiáturhusið aö Varmá
Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Simar 91-66103 og 66766