Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
17
Ijóam. Mbl. KÖE.
Gestir fundarins voru Ragnhildur Helgadóttir menntamilaráðherra, Örnólf-
ur Thorlacius rektor MH, Guðmundur Magnússon rektor HÍ og Guðmundur
Arnlaugsson, fyrrv. rektor MH. í ræðustól er Sigurrós Þorgrímsdóttir, for-
maður Öldungaráðs.
urðu nokkrar umræður. I þeim
kom m.a. fram að kostnaður á
hvern nemanda í öldungadeild
MH væri um það bil 5.000 krónur
á ári, en kostnaður á hvern nem-
anda í dagskóla MH væri 28.000
krónur á ári. Rætt var um fjár-
hagsvanda sumra deildanna og að
brýnt væri að leysa hann sem
fyrst.
í lok fundarins afhenti formað-
ur Öldungaráðs menntamálaráð-
herra ályktun frá fundi öldunga-
ráðs og Hagsmunaráðs, sem hald-
inn var hinn 10. mars síðastliðinn.
Þar er meðal annars skorað á
menntamálaráðherra að skipa
nefnd með fulltrúum ráðuneytis-
ins, skólayfirvalda og nemenda.
Nefndinni skyldi falið að semja
lagaákvæði um tilhögun öldunga-
deilda í framhaldsskólakerfinu og
færu ákvæðin inn í tilvonandi
frumvarp um framhaldsskóla. Þá
skyldi nú þegar verða sett reglu-
gerð sem staðfesti núverandi
fyrirkomulag öldungadeilda.
Guðmundur Magnússon rektor
Háskóla íslands var inntur eftir
því hvort ákveðnar deildir innan
Háskólans, eða hluti þeirra yrði
fluttur til Akureyrar og svaraði
hann því til að það mál væri í
athugun og ítrekaði það sem kom
fram í framsöguerindi hans um
opinn háskóla. Hann kvaðst ekki
sjá neitt því til fyrirstöðu að menn
brautskráðust frá Háskóla íslands
þó þeir stunduðu nám sitt utan
skólans.
Landssamtök öldunga-
deilda stofnuð
Að fundinum loknum héldu full-
trúar sjö öldungadeilda með sér
fund þar sem rætt var um vænt-
anlega stofnun landssamtaka öld-
ungadeilda. Þar kom meðal ann-
ars fram að um 2.000 manns
stunda nám í öldungadeildum í tíu
framhaldsskólum vítt um landið.
Þriggja manna nefnd var valin til
að vinna frekar að undirbúningi
stofnunarinnar, semja drög að
lögum samtakanna og starfs-
grundvelli. Þá var samþykkt að
samtökin yrðu formlega stofnuð í
upphafi næsta skólaárs.
„Þær geta nú verið margvísleg-
ar, bæði stórar og smáar, en þó
yfirleitt alltaf tengdar bygginga-
iðnaðinum. Við höfum til dæmis
haldið mjög fjölmenna ráðstefnu,
15. Norræna byggingardaginn,
fjölmennustu ráðstefnu á íslandi,
við höfum fjallað um þök á Is-
landi, og margt fleira. I sambandi
við ráðstefnur látum við okkur
ekkert óviðkomandi varðandi
byggingaiðnaðinn hér heima sem
erlendis.“
Kaunhæf kjarabót
— Og hver eru svo verkefnin
framundan?
„Hér verður í stórum dráttum
unnið áfram á sömu braut og gert
hefur verið í aldarfjórðung. Við
vonumst þó vissulega til að geta
enn aukið starfsemina, húsbyggj-
endum og þjóðinni allri þar með
til hagsbóta.
Við viljum gera meira í fræðslu-
og upplýsingastarfseminni, og ég
vil benda á, að takist okkur vel
upp þar er eftir nokkru að slægj-
ast. Takist okkur til dæmis, með
leiðbeiningum og ráðgjöf, að spara
fólki útgjöld um 10%, þá er verið
að tala um 300 þúsund krónur af
hverri þriggja milljóna króna
eign. Hliðstæðar tölur mætti
nefna varðandi endurbætur á
eldra húsnæði, viðbyggingar og
fleira. Hér er því um raunhæfa
kjarabót að ræða, og í mínum
huga er ekki vafi á því að starf-
semi eins og sú, sem Bygginga-
þjónustan innir af hendi, er bráð-
nauðsynleg og mjög hagkvæm,
hvort heldur er litið til einstakra
húsbyggjenda eða þjóðarbúsins í
heild. Aukin þekking og rannsókn-
ir, sem tekst að miðla út til þeirra
sem á þurfa að halda, er mjög
arðbær fjárfesting," sagði ólafur
Jensson að lokum.
— AH.
Fjöldi manna leitar til Byggingaþjón-
ustunnar daglega, bæði fagmenn og
húsbyggjendur, og öll þjónusta er lát-
in í té án endurgjalds.
# r 1
0
,___, UMBORNIN
PAÐ GBRIR (€LKO) OG FRAMLEIÐIR TENGLA
MEÐ „BARNAVERND“
Reynslan hefur sýnt að þörf er á að fyrirbyggja slys á heimlluni
— Maður veit aldrei á hvcrju bömin taka uppá.
uppá.
FAGMENN ættu að hugleiða öryggið sem Elko veitir
börnunt.
'RÖNNING Sundslsa
simi 84000