Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
►
►
KVÖLD fyrir aldraða var
haldið á skemmtistaðnum
Broadway fimmtudaginn
23. mars. Stjórnandi var
Hermann Hagnar Stefáns-
son. Pétur Sigurðsson, al-
þingismaður, var gestur
kvöldsins og flutti ávarp, en
síðan tók við viðamikil
dagskrá og komu ýmsir að-
ilar fram.
Skemmtuninni var mjög
vel tekið og fara hér á eftir
viðtöl við nokkra gesti.
Helga Jónsdóttir, sem er 82
ára, var í sjöunda himni með
skemmtunina og sagði að sér
litist mjög vel á staðinn og alla
hans ljósadýrð. „Ég er af
Skaganum og það er vegna
veiðibjölluskíts í vatninu og
síldar- og sementsverksmiðju-
ryks í loftinu sem Skagamenn
eru svo fjörugir og lifsglaðir
að þeir lifa örugglega af kjarn-
orkustyrjöld," sagði Helga að
lokum.
Sverri Bjarnasyni, 77 ára
Skagamanni, fórust svo orð:
„Þetta er þarft framtak og
mjög skemmtilegt. Staðurinn
finnst mér ekki tiltölulega ný-
stárlegur, enda hef ég séð svip-
aða staði erlendis, en þessi
skemmtun er ánægjuleg til-
breyting við dauflegt framboð
á skemmtunum fyrir aldraða."
Helena Halldórsdóttir var
ánægð með skemmtunina og
sagði að hér væri um starfsemi
að ræða sem þarft væri að
halda áfram. Það væri ekkert
um slíkar skemmtanir fyrir
aldraða, en undirtektir þessar-
ar skemmtunar væru slíkar að
vissulega væri grundvöllur
Helena Halldórsdóttir
fyrir fleiri skemmtunum af
þessu tagi.
Ólafur Laufdal, sem rekur
skemmtistaðinn Broadway,
kvað skemmtunina hafa tekist
sérstaklega vel, það hefði verið
fín stemmning, öll umgengni
hefði verið til fyrirmyndar og
aldrei hefðu jafn þakklátir
gestir komið á Broadway frá
upphafi vega. Hann bætti við
að þetta væru bestu gestir sem
nokkru sinni hefðu komið á
Broadway, það hefði verið fullt
hús og 400 gestir. Ólafur
Laufdal skýrði þessar miklu
undirtekir þannig að lítið sem
ekkert væri um skemmtanir
fyrir aldraða þar sem boðið
væri upp á mat, dagskrá og
vínveitingar og sagði að næst-
komandi fimmtudag, 29. mars,
yrði haldið annað kvöld fyrir
aldraða í Broadway þar sem
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
myndi ávarpa gesti.
V erkamannabústöðum
Ljósm. Mbi. c.Berg. Aðalgeir Finnsson, framkvæmdastjóri, afhendir Sigurði Hannessyni,
formanni stjórnar verkamannabústaða, lyklana að nýju íbúðunum.
Húsavík:
Varanlegt
slitlag
óæskilegt?
Ilusavík, 26. mars.
EINMUNATÍD hefur verið hér
síðan í byrjun febrúar og fært um
allar sveitir og milli héraða. í vet-
ur hefur vegurinn um Víkurskarð
verið ekinn í stað Dalsmynnis og
hefur það þótt hin mesta vegabót
og svo að Vaðlaheiði má teljast úr
sögunni bæði sumar og vetur.
Eitt er mjög athyglisvert í sam-
bandi við veginn um Víkurskarð,
að bílstjóri, sem hefur ekið hann
mikið í vetur, hefur tjáð mér, að
hann telji að varanlegt slitlag eigi
alls ekki að setja á þennan veg.
Hann teldi að slitlagið orsakaði
meiri hálku og gæti skapað bæði
erfiðleika og aukna slysahættu
fram yfir malarveginn. Hann taldi
svo stutt yfir skarðið, að öllum
væri vorkunnarlaust að taka á
gömlu vegagerðinni og síðast af
öllu sagði hann að slitlag ætti að
koma á þennan kafla leiðarinnar
frá Húsavík til Akureyrar. Hann
taldi og, að brekkan að vestan
gæti orðið ófær á varanlegu slit-
lagi, þegar fært væri með gömlu
malarkampana á báðum vegar-
brúnum.
Fréttaritari
Hió nýja hús við Keilusíðu 10.
Akureyri:
Akureyrí, 20. marH.
A FIMMTUDAG í síðustu
viku afhenti byggingafyrir-
tækið Aðalgeir og Viðar hf.
stjórn verkamannabústaða á
Akureyri fjölbýlishús, sem
fyrirtækið hefur byggt fyrir
stjórnina að Keilusíðu 10.
í húsinu eru 3 einstakl-
ingsíbúðir, 3 tveggja her-
bergja íbúðir, 4 þriggja her-
bergja íbúðir og tvær fjög-
urra herbergja. Að auki eru í
kjallara sérgeymslur fyrir
hverja íbúð, reiðhjóla- og
barnavagnageymsla, íþrótta-
og hvíldarherbergi, sauna,
baðaðstaða, snyrting og að-
staða húsvarðar. Allur frá-
gangur er til hinnar mestu
fyrirmyndar og eru nýir íbú-
ar þegar flyttir inn í húsið.
Framkvæmdir við bygg-
inguna hófust 12. október
1982 og er arkitekt hússins
Haraldur V. Haraldsson en
verkfræðilega hönnun ann-
fjölgar
aðist Teiknistofan Glerár-
götu 34.
Rafljós hf. annaðist raf-
lagnir, Magnús Gíslason hf.
múrverk, Þórarinn Thorlaci-
us og Þórir Magnússon önn-
uðust málningarvinnu og
Haukur Adólfsson pípulagn-
ir. G.Berg.