Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 19
Helgi Hálfdanarson:
Gott er góðu að
í Morgunblaðinu 24. þ.m. var
fundið að framburði fólks á
Veðurstofu íslands þegar það
talar í útvarp. Það var að vísu
gert af hófsemi og naumast
drepið á önnur dæmi en rangar
áherzlur. Raunar mætti æra
óstöðugan að elta uppi hvers-
konar málglöp manna sem tala
í útvarp, jafnvel þó aðeins væri
sinnt um framburð; og ekki
hygg ég að starfsfólk veðurstof-
unnar brjóti þar af sér meira en
gengur og gerist.
Hins vegar mættu nöldur-
seggir eins og ég og mínir líkar
einnig benda stöku sinnum á
það sem vel er gert og er út-
varpshlustendum til fyrirmynd-
ar. Þó ætla ég ekki að fjölyrða
um sjálfa þuli útvarpsins, sem
vissulega eiga mikið lof skilið
fyrir prýðilegan framburð. Eng-
um er gert rangt til þó að þar sé
einungis nefndur sá sem lengst
allra hefur á teig staðið, Pétur
Pétursson; en það hygg ég, að
hann hafi flestum mönnum
fremur mótað til góðs framburð
íslendinga sem vaxið hafa úr
grasi eftir stríð.
En úr því rætt var um fólk
sem les í útvarp fréttir frá Veð-
urstofu íslands, vil ég minnast
þess, að í þeim flokki hef ég
heyrt að minnsta kosti eina
konu og að minnsta kosti einn
karl, sem ég hygg að óvenju-vel
fullnægi kröfum þeim, sem með
lögum eru gerðar til útvarps-
mælenda um málfar.
f útvarpi tíðkast að nafn-
greina sí og æ hvern þann sem
þar lýkur sundur vörum, ekki
aðeins fasta starfsmenn sem
koma fram daglega og hvert
mannsbarn á landinu þekkir,
heldur alla, jafnvel svokallaða
„tæknimenn", sem ekki segja
stakt orð, svo fæstir vita hvað
þeir eru að bauka. Þeim mun
undarlegra er það, að veður-
stofufólk skuli fá að njóta nafn-
leyndar og vera þó að tala í út-
varpið dögum oftar. En fyrir
bragðið get ég ekki sent per-
sónulegt þakkarávarp þessu
góða fólki sem unun er á að
hlýða.
Þessari að minsta kosti einu
konu og þessum að minnsta
kosti eina karli verður það
aldrei á að segjast vera á „Veu-
stou ísslas", eins og þau hefðu
una
drukkið kogara eða amiríkskt
viskí eða étið skósvertu. Og
aldrei mæla þau vindinn í
„vinstigum", svo sem þau hefðu
stungið mælinum í bróðurkær-
leikann út um öll kjördæmi
landsins. Og aldrei bera þau ís-
lenzkt x fram eins og tvö g plús
s, líkt og þau væru með hugann
vestur í Texas, og segja því
aldrei að klukkan sé „seggs",
svo ekki sé á það minnzt, að
Teggsas-eggsið færi út kvíarn-
ar, og lægð myndist á milli ís-
lands og „Noreggs". Og ekki
bregður heldur fyrir neinni
smámæltri þ-slikju á s-inu, svo
sem það hafi verið fundið upp
suður í Lundúnaþokunni. Og
þau segja aldrei „norð-au-
sturu-land“, samtals fimm at-
kvæði með löngu au-i, eins og
hjartað sé að dufla við Tjallann,
hvað sem tungan tautar. Og
aldrei kemur fyrir að þau segi,
að vindur sé „hvas“, með einu
s-i og löngu a-i, eins og þeim
hafi einungis verið kennt að
bera fram ensku en alls ekki ís-
lenzku, og því færu þau seint að
dæmi popparanna sem ríma
saman sælubros og hakakros.
Og kílómetrana kalla þau ekki
„kílómeddra“, heldur eins og
skrifað stendur: kílómetra; og
Grænland kalla þau aldrei
„Grannland", þó ekki væri þar
miklu logið. Og svo mætti leng-
ur telja skyssur þær, sem þess-
um að minnsta kosti tveimur
vandvirku veðurfregna-þulum
verður aldrei á.
Þó skal hér staðar numið og
látið við það sitja að færa þeim
þakkir fyrir afbragðs frammi-
stöðu í mikilvægu starfi, þar
sem beita þarf áhrifamesta fjöl-
miðli þjóðarinnar af ábyrgð og
háttvísi. Því miður er ekki hægt
að benda á þau með nafni, öðr-
um til fyrirmyndar.
Ferðamöguleikar og þjónusta
við farþegana fer sívaxandi
Norröna á leið út úr höfninni I Þórshöfn, Smyrill er hægra megin við
NorrÖUU. Maq(nblaiít/HG.
Búumst viö að flytja allt
ad 100.000 farþega með
Norrönu í sumar, segir
Óli Hammer, fram-
kvæmdastjóri Smyril-
Line
„ÞAÐ er óhætt að segja, að mikill
hugur sé í okkur nú. Þetta gekk mjög
vel í fyrra og nú eru bókanir um 50%
meiri en þá. 1982 flutti Smyrill um
32.000 farþega á áætlunarleiðum sin-
um, í fyrra llutti Norröna 58.000 far-
þega og í ár búumst við við því að þeir
verði allt að 100.000. Þá höfum við
breytt áætlun okkar og aukið ferða-
mögulcikana í tcngslum við sigling-
arnar svo þjónusta við ferðamenn
okkar fer sívaxandi," sagði Óli
Hammer, framkvæmdastjóri Smyril-
Line, sem gerir út farþegaskipið Nor-
röna, í samtali við Morgunblaðið.
„Helztu breytingar á ferðaáætl-
uninni eru þær, að nú verður hætt
við siglingarnar til Scrabster í
Skotlandi, en þess I stað verður
komið við I Leirvík á Hjaltlandi. Þá
verður nú mögulegt að fara beint
frá Seyðisfirði til Hanstholm I
Danmörku og þaðan bjóðum við
upp á ýmsa ferðamöguleika, meðal
annars til Frakklands og Italfu. Þá
verður einnig hægt að fara beint
frá Bergen til Seyðisfjarðar. í báð-
um þessum tilfellum er aðeins um
nokkurra klukkustunda stopp í
Þórshöfn að ræða. Ferðir Norröna
hefjast laugardaginn 26. maí frá
Hanstholm og kemur hún í sína
fyrstu ferð til Seyðisfjarðar
fimmtudaginn 31. maí. Siglingun-
um lýkur svo í septemberbyrjun. I
tengslum við ferðir Norröna til
Leirvíkur eru skipaferðir til Aber-
deen í Skotlandi. I Hanstholm erum
við svo í sambandi við ferðaskrif-
stofu, sem býður upp á rútuferðir
til Frakklands, Rínarhéraðanna og
Garðavatns á Norður-Ítalíu. Við
höfum þá meðal annars tryggt
okkur talsvert af aðgöngumiðum á
leiki í úrslitum Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu í Frakk-
landi í sumar. Þá getum við útvegað
fólki gistingu í sumarhúsum og á
hótelum í Danmörku, á Hjaltlands-
eyjum, í Noregi og Skotlandi.
Þar sem búizt er við mikilli aukn-
ingu ferðamanna í ár hafa umboðs-
aðilar okkar á Seyðisfirði í hyggju
að byggja hús við höfnina með góðri
aðstöðu fyrir farþega. Þar verður
rúmgóður biðsalur og afgreiðsla
auk almennrar upplýsingaþjónustu
og aðstöðu fyrir starfsmann Ferða-
málaráðs. Þar getur fólk komið og
Óli ilammer, framkvæmdastjóri
Smyril-Line.
fengið þær upplýsingar, sem það
æskir um ferðamöguleika og annað,
sem máli skiptir og meðal annars
höfum við látið gera kynningar-
mynd um löndin, sem við siglum til.
Við erum því bæði stórtækir og
bjartsýnir enda teljum við verulega
framtíð í þessum ódýra og þægilega
ferðamáta. Skipið reyndist afburða
vel í fyrra og við hlökkum til að
hefja ferðirnar að nýju,“ sagði Óli
Hammer.
VEF0 FRÁ 410.000 KRÓNUM, MED RYDVÖRN
Reynsluaksturíboói
/ SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200