Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
23
Elísabet skoðar hrossin
Elísabet Bretadrottning var í Jórdaníu í dag og fór allt hið besta fram. Hún átti viðræður við Hussein forseta og
ýmsa ráðamenn og breskir diplómatar sem eru í föruneyti drottningar eru sagðir hafa rætt hugsanlegan
vopnasölusamning við starfsbræður þeirra jórdanska. Var talað um að Bretar seldu Jórdönum 1500 Javelin-loft-
varnareldflaugar. Síðdegis skoðaði drottning hrossastóð Husseins og fjölskyldu hans, en bæði hann og Elísabet
eru miklir hrossaáhugamenn. Á meðfylgjandi mynd má sjá drottninguna í hinu besta yfirlæti á búgarði
Husseins, virða fyrir sér eitt af hrossum hans. Drottningin er lengst til vinstri, næst henni situr Alía Jórdaníu-
prinsessa, þá Filipus Bretaprins og loks Noor Jórdaníudrottning.
Stokkhólmur:
Palme réðst að
Bildt að ósekiu
Stokkhólmi, 27. mars. Frá Krik Liden, fréttaritara Mbl.
FYRIR TÆPU ári varð dálítill hvellur í sænskum stjórnmálum þegar stjórn-
in með Olof Palme í broddi fylkingar réðst með offorsi á einn þingmann
stjórnarandstöðunnar, hægrimanninn Carl Bildt, og sakaði hann um að hafa
lekið leyndarmálum um sænskar varnir í bandarísku leyniþjónustuna. Sendi-
herra Svía í Washington hefur nú kveðið sér hljóðs í þcssu máli og sýknað
Bildt af allri sök.
Carl Bildt átti sæti í kafbáts-
nefndinni svokölluðu og fór í ferð
til Bandaríkjanna strax eftir að
skýrsla hennar kom út í fyrra.
Átti hann þar viðræður við ýmsa
háttsetta menn en strax eftir
heimkomuna, þann 26. maí, réðst
Palme að honum og sakaði hann
um að hafa gefið Bandaríkja-
mönnum leynilegar upplýsingar
um varnir Svía. Idag skýrði Bildt
hins vegar frá því fyrir stjórn-
arskrárnefnd þingsins, að Wil-
helm Wachtmeister, sendiherra
Svía í Washington, hafi sagt í
skýrslu til stjórnarinnar, að Bildt
hafi engar upplýsingar gefið og
ekkert sagt, sem hann mátti ekki í
Bandaríkjaferðinni. Þessi skýrsla
Wachtmeister barst stjórninni
tveimur dögum áður en hún réðst
að Bildt.
Wachtmeister hefur nú staðfest
þetta og segist hafa verið við-
staddur alla fundi Bildt með full-
trúum bandarískra stjórnvalda.
Viðræður Rússa og Kínverja:
Enginn árangur
Peking, 27. mars. AP.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Kínverja, Qian Qichen, sneri
heim frá Moskvu í dag og hefur
augljósiega enginn árangur orð-
ið af viðræðum hans við stjórn-
völd þar. Var tilgangurinn með
þeim að reyna að koma sam-
bandi ríkjanna í eðlilegt horf á
ný.
Kínverjar hafa krafist þess
í viðræðunum, að Sovétmenn
dragi úr vígbúnaði sínum á
landamærum ríkjanna, að
þeir hætti að styðja hernám
Víetnama í Kambódíu og þeir
hverfi á brott frá Afganistan.
Á þetta hafa Sovétmenn ekki
viljað fallast. Næstu viðræður
þjóðanna verða ekki fyrr en í
október í haust.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Bangkok
Berlín
BrUssel
Buenos Aires
Chicago
Dublin
Genl
Helsingfors
Hong Kong
Honolulu
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Lissabon
London
Los Angeles
Madnd
Mexfkóborg
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ostó
Parfs
Reykjavik
Rfó de Janeiró
Róm
Stokkhólmur
Tókýó
Toronto
Vancouver
Vinarborg
Þórshðln
0 úrk. i gr.
9 skýjaó
20 heióskirt
35 heiðskírt
11 heióskirt
10 rigning
25 heióskírt
9 rigning
8 skýjaó
9 heióskírt
+1 snjókoma
22 heióskírt
31 rigning
14 heióskirt
25 skýjaó
16 skýjaó
11 skýjað
17 skýjaó
12 skýjaó
27 heiðskirt
30 skýjaó
1 heióskírt
1 skýjaó
11 heióskírt
0 skýjaó
11 rigning
+1 snjókoma
34 heióskírt
18 heióskfrt
0 skýjaó
13 skýjaó
3 skýjaó
10 akýjaó
14 skýjaó
3 skýjað
Jarðskjálftinn í Sovétríkjunum:
Borgarbúar búa
í tjaldbúðum
Moskvu, 27. mars. AP.
HVER EINASTI íbúi sovésku borgarinnar Gazli, sem hrundi nánast til
grunna í feiknajaróskjálfta fyrir nokkrum dögum, býr í tjaldi, eftir því sem
sovéskt dagblað greindi frá í dag. Það fylgdi þó fréttinni, að uppbygging sé í
fullum gangi og miði vel áfram.
Dagblaðsfréttin gat þess að
vatnslagnir, rafmagnsleiðslur og
símasamband væri komið í samt
lag og unnið væri að því að koma
upp bráðabirgðahúsnæði, en í
millitíðinni búa allir í tjöldum.
Börnin sækja skóla í tjöldum, það
er etið og sofið í tjöldum, enda
standa fá hús uppi og enn eru
hræringar á svæðinu og því varla
þorandi að vera innanhúss.
Samkvæmt fréttinni, lést eng-
inn í jarðskjálftanum sem var um
7 stig á Richter. Það er með því
mesta sem gerist og telja ýmsir
sérfræðingar að hafi enginn látið
lífið, þá heyri það undir krafta-
verk, sérstaklega þar sem þess er
getið í blaðafregninni, að ekki hafi
verið til það þak í borginni sem
ekki hrundi. Fréttaritarinn
klykkti út með því að geta þess
hversu hugrakkt fólk búi í Gazli.
„Það óttast ekkert og hefur sýnt
sig sterkara en móðir náttúra,"
stóð orðrétt.
Elsta atvinmigrein-
in leyfð í Victoriu
Melbourne, Astralíu, 27. mars. AP.
STJÓRNVÖLD Victoria-rfkis í Ástralíu hafa gert heyrinkunnugt, aó vændi
verði löglegt á nuddstofum í ríkinu á næstunni. Hins vegar veróur bannað að
kalla fyrirbærið „hóruhús" þar eð almenningi þykir nafnið ósiðsamlegt.
Nuddstofurnar verða þó að uppfylla viss skilyrði til þess að vændið verði
leyft innan veggja þeirra.
Til að myhda má engin nudd-
stofa í ríkinu hafa vændi innan-
dyra sé hún í 40 metra fjarlægð
frá æskulýðsmiðstöðvum eða
skátaheimilum, eða þaðan af nær.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði í dag, að því færi víðs fjarri
að hér væri um einhverja byltingu
að ræða, það væri vitað að 149
nuddstofur hefðu starfrækt vændi
og hefði það verið opinbert leynd-
armál. „Almenningur amaðist
ekki við þeim og starfsemin hefur
verið látin óáreitt af þeim sökum.
Ég vil heldur segja að með því að
lögleiða starfsemina, séum við hér
í Victoria að undirstrika að við er-
um í takt við tímann," sagði tais-
maðurinn.
Veggjalýs keppa
í spretthlaupi!
Honiton, Englandi, 27. mars. AP.
NÝSTÁRLEGT kapphlaup verður haldið í fyrsta sinn í breska smábænum
Honiton á næstu dögum. Keppt verður á 60 sentimetra löngu bretti með
tíu rásum. Keppendurnir eru tíu veggjalýs.
Maðurinn sem fékk þessa und-
arlegu hugdettu heitir Terry
Glanvill, fyrrum bæjarstjóri
Honiton. Hann vakti athygli á
sjálfum sér og bænum í fyrra er
hann gekkst fyrir músakapp-
hlaupi, nú skal leyfa veggjalús-
um að spreyta sig. „Ég hef raka
dulu á endanum á brettinu til að
eggja lýsnar áfram, þær eru
sólgnar í rakar dulur," segir
Glanville, sem fékk hugmyndina
er hann gerði athugun á hegðun
ýmissa skordýra í háskólanum í
Nottingham á síðasta ári.
Glanville segir: „Þetta gæti
orðið spennandi keppni og það
verða veðmál í fullum gangi.
Veggjalúsum þykir gaman að
keppa, held ég bara, og ég held
ekki að athæfið verði kært vegna
illrar meðferðar á dýrunum. Það
eina sem þeim er í rauninni gert
er að mála lítinn díl á bak
þeirra, hver lús fær sinn lit til að
aðgreina þær, enda er ekki víst
að þær láti segjast og haldi sig á
sinni rás.“ Talsmaður dýra-
verndunarsamtaka Bretlands-
eyja sagðist ekki reikna með því
að gerð yrði athugasemd, nema
þá að sannaðist að illa væri farið
með lýsnar. Glanville skaut því
að í lokin, að allar tekjur sem
verða af lúsakapphlaupinu muni
renna til góðgerðarstofnana.
Fleiri BA-farþeg-
ar fá matareitrun
Jidda, Saudi Arabíu. 27. mars. AP.
ÁITA SAUDI-ARABAR bættust í dag í hóp þeirra mörgu sem fengió hafa
matareitrun um boró í farþegaþotum British Áirways síðustu vikurnar. Rétt-
ur dagsins sem veitingamióstöó ein ónefnd í Lundúnaborg útvegaöi reyndist
morandi í hættulegum salmonellupöddum.
Greint var frá þessu í Jidda í
dag, en mennirnir veiktust í flugi
BA frá Lundúnum til Washington
13. þessa mánaðar. Meðal hinna
sjúku var aðstoðarefnahagsmála-
ráðherra Saudi-Arabíu og Ali
Abdullah Ali Reza, 63 ára gamall
fyrrum sendiherra Saudi Arabíu í
Washington. Hann lést nýlega úr
hjartaslagi, en fjölskylda hans
segist sannfærð um að matareitr-
unin hafi komið hinni banvænu
hjartveiki af stað. Talsmaður fjöl-
skyldunnar hefur látið að því
liggja að farið verði fram á miklar
skaðabætur fyrir fyrrum sendi-
herrann.
Talsmaður BA endurtók í dag
fyrri yfirlýsingar fyrirtækisins
þess eðlis að það gerði sér grein
fyrir ábyrgðinni og skaðabóta-
kröfur væru kannaðar gaumgæfi-
lega. „Þeir sem eiga rétt á slíku
munu fá sanngjarnar skaðabæt-
ur,“ sagði hann.