Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 25

Morgunblaðið - 28.03.1984, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 25 Bragi Steinarsson, vararíkissaksóknari, í Sakadómi: Lögreglumennirnir gerðu mistök dyravarða að sínum • Telur handtöku Skafta Jónssonar tilefnislausa og ólögmæta • Telur framburð Skafta þess efnis, að lögregluþjónn hafi viljandi slegið andliti í gólf lögreglubifreiðar „ótrúverðugan“ „SKAFTI Jónsson var handtekinn í Leikhúskjallaranum án nægilegra ástæðna eða tilefnis. Lögreglumennirnir gerðu mistök dyravarða að sínum. Ákæran beinist ekki gegn lögreglumönnunum þremur sem slíkum — þetta var slys. Sakfellisdómur á ekki að hafa minnstu áhrif á störf þeirra. I'vert á móti — af mistökum læra menn og þeir verða betri lögreglumenn eftir,“ sagði Bragi Steinarsson, vararíkissaksóknari, i lok málflutnings síns í Skaftamálinu svo- kallaða í Sakadómi Reykjavikur í gær. Frá málflutningi í Sakadómi í gær; frá vinstri Bragi Steinarsson, vararíkissaksóknari, Sverrir Einarsson, sakadómari, Hjördís horsteinsdóttir, dómritari, Jón Oddsson, hrl., Guðmundur Baldursson, Guðni Haraldsson, hdl., Jóhann Valbjörn Ólafsson og Sigurgeir Arnþórsson. Morgunbiaðið/Friðþjóíur. Sem kunnugt er kærði Skafti Jónsson þrjá lögreglumenn fyrir harðræði þegar hann var handtek- inn í Þjóðleikhúskjallaranum 27. nóvember síðastliðinn. í framhaldi af kæru Skafta fór fram ítarleg lögreglurannsókn og síðar dóms- rannsókn og í kjölfarið fylgdi opin- ber ákæra embættis ríkissaksókn- ara. Þar er lögreglumönnunum þremur, Guðmundi Baldurssyni, Jó- hanni Valbirni Ólafssyni og Sigur- geiri Arnþórssyni, gefið að sök að hafa handtekið Skafta Jónsson án nægilegra ástæðna eða tilefnis. Þá var Jóhanni og Guðmundi gefið að sök að hafa með harðræði orðið valdir að því að Skafti hlaut áverka í flutningi í fangageymslur og að fatnaður Skafta hefði skemmst vegna blóðbletta og óhreininda. Ótrúverðugt að andliti Skafta hafi verið slegið viljandi í gólf Bragi lýsti því yfir, að hann teldi framburð Skafta Jónssonar þess efnis, að Guðmundur hefði viljandi slegið andliti hans hvað eftir annað í gólf lögreglubílsins á leið í fanga- geymslur, ótrúverðugan. Ekki væri deilt um að Skafti gæti hafa meiðst þegar hann féll framyfir sig inn í lögreglubifreiðina, en hins vegar væri deilt um hvort lögreglumenn hefðu með ásetningi slasað Skafta með því að slá andliti hans f gólfið. Eiginkona Skafta, Kristfn Þor- steinsdóttir, hefði tekið undir ávirðingar. „Ég verð að lýsa þeirri skoðun minni að ég tel framburð Skafta Jónssonar og Kristinar Þorsteinsdóttur um þetta atriði ótrúverðugan," sagði Bragi og bar fram ýmis rök máli sínu til stuðn- ings. I því sambandi nefndi hann, að ásakanir þessar hefðu ekki komið fram á lögreglustöð heldur undir morgun á heimili tengdaforeldra Skafta, svo alvarlegar sem þær væru. Hann taldi að vætti Astu Svavarsdóttur renndi stoðum undir þessa skoðun sína. Ásta kvað Krist- inu hafa fylgst með Skafta f lög- reglubílnum. Kristfn hefði aldrei haft á orði að andliti Skafta væri slegið í gólfið og Kristín hefði ekki haft þetta á orði eftir að til lög- reglustöðvarinnar kom. Hún hefði ekki heyrt um þessar ásakanir fyrr en Skafti kom til heimilis tengda- föður sfns úr fangageymslu. Einnig nefndi Bragi, að lögregla hefði tæp- ast farið að misþyrma mönnum f lögreglubifreið eftir að hafa leyft vitnum, Kristínu og Ástu, að vera f lögreglubifreiðinni á leið í fanga- geymslu. „Hvenær þessar ásakanir koma fram — undir morgun þegar meint brot lögreglu voru dregin fram, ger- ir framburðinn um misþyrmingar marklftinn — ég vil segja mark- lausan," sagði Bragi Steinarsson meðal annars og bætti við: „Enda er þetta alls ekki ákæruefnið." Ákæruefnið væri ólögleg hand- taka og lögreglumenn hefðu með harðræði valdið áverkum Skafta, sem hefði, þegar lögreglumennirnir færðu hann nauðugan í bifreiðina, kastast fram yfir sig, lent á grúfu á gólfi bifreiðarinnar með hendur fyrir aftan bak. Þetta hefðu lög- reglumenn viðurkennt og þetta væri hugsanleg skýring á meiðslum Skafta. Báðir lögreglumenn hefðu talið sig verða vara við blóðpoll á gólfi áður en lagt var af stað í fangageymslur. Ljóst þætti að lögreglumennirnir hefðu ekki ætlað að valda Skafta tjóni. Bragi taldi að meta bæri þessi mistök lögreglu til refsingar og þá vegna gáleysis. En jafnframt nefndi Bragi, að hugsanlegt sé að andlit Skafta hafi rekist í gólfið vegna þeirra taka, sem honum voru tekin — eða vegna hreyfinga sjálfrar bifreiðarinnar. Meginefni ólögleg handtaka Bragi áréttaði að meginefni ákæru embættis ríkissaksóknara væri ólögleg handtaka og framhald- ið — flutningur frá Leikhúskjallar- anum í lögreglustöð, væri viðbót, ekki aðalatriði. I ákæru væru áverkar tilgreindir, en þeir voru nefbeinsbrot og blóð- nasir, glóðarauga á vinstra auga, tvær rispur á enni og roði og húð- mar í hársverði á hnakkasvæði, rispur og húðmar á vinstri öxl og á báðum upphandleggjum, hand- járnaför á báðum úlnliðum og bólga og eymsli á ökkla. Ákæruefni eru talin varða við 131. grein almennra hegningarlaga en til vara 132. grein og brot Guð- mundar og Jóhanns auk þess talin varða við 1. mgr. 218. gr. hegn- ingarlaganna, til vara 217. gr. sbr. 138. grein sömu laga. Raunar kom fram málflutningsyfirlýsing vara- ríkissaksóknara eftir að hann hafði lokið máli sinu þess efnis, að ákæruefni um ólöglega handtöku sé talið varða við 132. greinina, sem kveður á um handtöku af gáleysi. Bragi vék að rannsókn Rann- sóknarlögreglu ríkisins, sem hann kvað ítarlega og ágæta en takmark- aða við atburði, sem fylgdu hand- tökunni. Hann sagði að rannsókn RLR hefði verið tortryggð af ýms- um ástæðum, meðal annars vegna þess að Guðmundur hefði verið í starfi hjá RLR; rannsóknarlög- reglumaðurinn, sem rannsakaði málið, hefði verið á vöktum með Guðmundi fyrir nokkrum árum; og einnig nefndi hann að fréttatil- kynning, sem gefin var út af hálfu RLR, hefði valdið miklu fjaðrafoki. í ljósi þessa hefði hann farið fram á dómsrannsókn og henni markaður víðari bás. Mikilvægt væri að al- menningur tortryggði ekki niður- stöður slíkrar rannsóknar. Hann sagði að enginn nýr stórisannleikur hefði komið fram í dómsrannsókn, engin ný atriði sem máli skipta. Þá tiltók vararíkissaksóknari heimildir sem lögregla hefði til handtöku borgara. Hann nefndi 61. grein laga um meðferð opinberra mála, en þar eru tiltekin sjö atriði þar sem lögreglu er heimilt að handtaka menn. „Ljóst er að hand- taka þarf að styðjast við ótvíræða lagaheimild og hún verður að vera réttmæt. Lögregla verður að geta sýnt fram á réttmæti þess að svipta menn frelsi sínu,“ sagði Bragi. Sex ástæður tilgreindar fyrir handtöku „Ef allt væri með felldu, þá ætti lögregluskýrsla, þar sem skýrt er frá handtöku Skafta Jónssonar, að renna stoðum undir einn sjö tölu- liða 61. greinar laga um meðferð opinberra mála. En er svo — hvaða ástæður eru tilgreindar fyrir hand- tökunni?“ spurði Bragi og svaraði að í skýrslunni mætti finna sex ástæður fyrir handtökunni: 1. Skafti hefði verið áberandi ölvaður. 2. Skafti hefði verið handtekinn að kröfu dyravarðar, sem ætlaði að gera bótakröfur á hendur Skafta. 3. Dyravörður hefði beðið lögreglu- manna utandyra og beðið þá að fjarlægja æstan mann. 4. Skafti hefði eftir komu lögreglu og dyra- varðar niður ráðist á dyravörð. 5. Lögregla hefði þá tekið Skafta, sem „ÉG MUNDI gera ýmsar breytingar- tillögur, bæði varðandi Seðlabankann og viðskiptabankana. Ég tel til dæmis að það hefði verið ástæða til að fjalla meira um afstöðuna milli Seðlabank- ans og ríkisstjórnarinnar. Ég tel líka að ástæða hefði verið til að fjalla ákveðnar um heimildir Seðlabankans til að lána ríkissjóði og takmörkun heimilda ríkisins til að taka lán hjá Seðlabanka. Þá sakna ég tillagna um endurskipulagningu bankakerfisins, sameiningu banka og breytingar á verkaskiptingu þeirra. Það tel ég að þafi verið eitt meginvandamálið i bankakerfi okkar um árabil," sagði Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri, er hann var spurður hvort hann myndi, ef til hans væri leitað, gera margar breytingartillögur við tillögur banka- málanefndar, sem skýrt var frá í laug- ardagsblaði Mbl. Jóhannes sagði síðan, að tillögur þessar væru til umfjöllunar í Seðla- bankanum og að hann vildi því ekki segja mikið um málið fyrr en af- staða lægi fyrir af hálfu stofnunar- hefði ærst svo beita þurfti hann harðræði til að yfirvinna mótþróa. 6. Lögreglumenn höfðu eftir dyra- verði að Skafti hefði ráðist á hann, rifið bindi af honum og slitið tölur af skyrtu. Þetta væru ástæðurnar sem greindi frá í skýrslu um ástæður handtöku Skafta Jónssonar, en auk þess nefndi Bragi að í blöðum hefði sjöundu ástæðunni verið bætt við; þetta hefði gerst á öldurhúsi og þvi væri handtakan réttlætanleg — maðurinn hefði verið fullur. Bragi fór yfir skýringar lögreglu- manna á handtökunni. Við nána skoðun standist rök þeirra fyrir handtöku ekki og færði hann rök fyrir máli sínu. Skafti hafi ekki ver- ið ölvaður. Lögreglu var ekki skýrt frá af hverju til átaka hefði komið — né spurðust lögreglumenn fyrir um af hverju til átaka kom. Málavextir séu, að Skafti fékk ekki frakka sinn. Hann fékk leyfi til að leita hans, en var stöðvaður. Til átaka kom, en staðhæfing væri gegn staðhæfingu um hver átti upp- tökin. Ástæðulaust var að kalla til lögreglu. Skafti var rólegur á leið út þegar lögreglu bar að garði. Hann missti stjórn á sér og ærðist þegar hann var handtekinn — ólöglega. innar. Hann sagði það sina per- sónulegu skoðun, að margt væri at- hyglisvert í tillögunum og kannski væri stórtækasta breytingin stefn- an að frjálsari vöxtum, sem hann sagðist oft hafa tjáð sig fylgjandi. Það væri aftpr á móti spurning hvort nægilega vel væri skilgreint í tillögunum, hvernig þróa ætti nú- verandi kerfi yfir í hið nýja. Seðlabankastjóri sagði ýmislegt vera i tillögunum, sem ekki hefði komið fram opinberlega. Hann nefndi sem dæmi tillögu um að heimila 5% innlánsbindingu i við- bót við 28% innlánsbindingu inn- lánsstofnana hjá Seðlabanka. Hann sagði þetta gefa Seðlabankanum meira svigrúm til að hafa áhrif á útlánastarfsemi bankanna. Sér hefði hinsvegar komið á óvart að ekki væri gerð ákveðin tillaga um að draga úr endurkaupum því gert væri ráð fyrir því í málefnasamn- ingi ríkisstjórnarinnar, að dregið yrði úr þessum endurkaupum og starfsemin flutt til viðskiptabank- anna. Ef dyraverðir vildu fá bætur, þá áttu þeir að kæra Skafta og krefjast bóta, en lögregla hafði ekki heimild til að handtaka hann. Sýndu af sér stórfellt gáleysi „Það er eindregin skoðun mín að lögreglumennirnir gættu ekki réttra aðferða við handtökuna — að minnsta kosti sýndu þeir af sér stórfellt gáleysi," sagði Bragi og bætti við, að lögregla verði að hafa réttmætar ástæður til handtöku. Þó Skafti Jónsson hafi ærst við að- gerðir lögreglu og gert handtökuna óhjákvæmilega, þá geri það hand- tökuna ekki lögmæta. Handtakan var ekki studd haldbærum rökum. Fram kom að Skafti Jónsson hef- ur lagt fram bótakröfur á hendur lögreglumönnum fyrir tjón sem hann telur sig hafa orðið fyrir — alls liðlega 48 þúsund krónur Málflutningi var frestað að lok- inni ræðu Braga Steinarssonar. Honum verður haldið áfram í dag. Þá flytja verjendur lögreglumann- anna, Jón Oddsson, hrl., og Guðni Haraldsson, hdl., varnarræður. Dómari í málinu er Sverrir Ein- arsson, sakadómari. Um nauðsyn þess að fjalla nánar um afstöðuna milli Seðlabanka og ríkisstjórnar sagði dr. Jóhannes að þar hefði engin breyting verið gerð á sl. 20 ár. Hann kvaðst álíta að nauðsynlegt væri að athuga heim- ildir bankans og rikisstjórnar um lántökur hjá Seðlabankanum, þvi hættan væri sú, þegar ríkið tæki þar lán, að peningaþensla ykist i þjóðfélaginu. t mörgum nágranna- ríkjum okkar hefði verið reynt að setja við því skorður. Hann sagðist sakna þess mest í tillögunum að ekkert væri fjallað um endurskipu- lagningu bankakerfisins, þ.e. breyt- ingar á verkaskiptingu og samein- ingu, t.d. Búnaðarbanka og Út- vegsbanka, en skipulag bankakerf- isins hefði að hans mati verið eitt meginvandamálið um árabil. Seðlabankastjóri sagði að lokum: „Mér finnst vanta þarna nokkuð á. Það hefði verið æskilegra að kom- ast lengra. Það er þarna margt at- hyglisvert sem við þurfum að at- huga betur og við munum gefa álit okkar á tillögunum á næstunni." HH Seðlabankastjóri um tillögur bankamálanefndar: „Sakna tillagna um endur- skipulagningu bankakerfisins“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.