Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 37

Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 37 öll aðstaða fyrir hendi. Það er ekki síður mikilvægt, að slík stækkun mundi geta leitt af sér mikla hag- ræðingu í rekstri núverandi verk- smiðju. Jafnframt vinnur samninga- nefnd um stóriðju nú að því að fá nýjan samstarfsaðila inn í Járn- blendiverksmiðjuna samtímis því að fjárhagsgrundvöllur hennar verði treystur. Um starf samninga- nefndarinnar hefur talsvert verið fjallað í fjölmiðlum, og er því ekki ástæða til þess að ræða það á þess- um vettvangi. Störf Stóriðjunefndar Verkefni Stóriðjunefndar er aft- ur á móti að vinna að nýjum stór- iðjukostum. Eitt fyrsta verkefnið var að taka þráðinn upp að nýju frá því fyrir hálfum áratug og gera það lýðum ljóst að íslensk stjórnvöld hafi raunverulega áhuga á stóriðju og samstarfi við alþjóðafyrirtæki á því sviði. f því skyni hefur verið gefinn út kynningarbæklingur, sem lýsir skilyrðum til orkufreks iðnað- ar á íslandi og veitir um leið al- mennar upplýsingar um land og þjóð. Þessum bæklingi var dreift víða um heim. í kjölfar þessa hefur verið leitað kerfisbundið eftir sam- bandi við helstu álfyrirtæki í heim- inum með tilmælum um að þau kynntu sér aðstæður hér á landi með það fyrir augum að taka hér þátt í uppbyggingu áliðnaðar í framtíðinni. Nokkur fyrirtæki hafa þegar gefið neikvæð svör að svo stöddu, en tvö af hinum stærstu jákvæð svör. Um áhuga nokkurra er ekki vitað enn. Nauðsynlegt verður að halda virku sambandi við nokkur fyrir- tæki á sviði orkufreks iðnaðar á næstu árum þótt ljóst sé, að ekki verði tök á því að ganga til samn- inga f fyrirsjáanlegri framtíð við nema 2—3 í mesta lagi. Um leið er sýnt, að nokkurn tíma mun taka að leiða í ljós hvort um raunverulegan áhuga er að ræða eða ekki og hvort samningsgrundvöllur getur fund- ist. Af öðrum verkefnum Stóriðju- nefndar má nefna leit að sam- starfsaðilum við byggingu kísil- málmvinnslu á Reyðarfirði og trjákvoðuverksmiðju á Húsavík, og könnun á áhuga hugsanlegra sam- starfsaðila um kísilkarbíðverk- smiðju á Suðurlandi og natríum- klóratverksmiðju á Reykjanesi. Staða þessara mála er í stuttu máli þannig, að 6—7 aðilar vilja ræða um hugsanlega aðild að kísilmálm- verksmiðju og eru könnunarvið- ræður að hefjast. Engu er á þessu stigi hægt að spá um árangur. Varðandi trjákvoðuverksmiðjuna er það að segja að ráðgjafaraðili hefur leitað til svo að segja allra hugsaniegra samstarfsaðila og tel- ur hann, að enginn þeirra muni hafa áhuga á viðræðum nú, aðal- lega vegna óhagstæðra aðstæðna á markaði fyrir trjákvoðu. Málið hef- ur því verið lagt til hliðar að sinni. Sömuleiðis eru fyrstu viðbrögð að- ila neikvæð gagnvart bæði kísilkar- bíð- og natríumklóratframleiðslu hér á landi. Stóriðjusamningar Á þessu stigi skal ekki spáð um, hvaða árangri Stóriðjunefnd kann að ná, en nefndin gengur að starfi sínu með opnum hug og af nauð- synlegri bjartsýni, en vonandi þó með fullu raunsæi. Erfitt er hins vegar að færa rök fyrir því hvers vegna ekki verði hægt að koma á fót frekari stóriðju hér á landi. Athuganir benda ein- dregið til að framleiðslukostnaður vatnsaflsstöðva sé síður en svo hærri hér en viðast hvar erlendis. Auk þess liggur landið tiltölulega nálægt löndum Efnahagsbanda- lagsins, þar sem við njótum toll- fríðinda umfram helstu samkeppn- islöndin og þar sem gert er ráð fyrir að loka þurfi mörgum álver- um á næstu árum vegna hækkandi orkuverðs. Á Islandi ætti því að vera rökrétt að framleiða ál fyrir Evrópumarkað. Þessu til viðbótar eigum við að geta boðið upp á mjög ódýra jarðgufu. Erfiðasta vandamálið í sam- bandi vð hugsanlega nýja stóriðju- samninga yrði sjálfsagt niður- greidd orka í öðrum löndum. Það er ljóst að við höfum ekki möguleika til þess að mæta slíkri samkeppni. I stað þess verðum við að leggja áherslu á önnur atriði, þar sem staða okkar er og verður sterk. Það verður líka að teljast hæpið, að stóru álfyrirtækin treysti því, að niðurgreiðslur á orku standi til frambúðar, þegar þau ákveða stað fyrir ný álver. Niðurlag Að lokum vildi ég undirstrika það sem ég hef áður nefnt, að tak- ast þarf á við orku- og stóriðjumál- in af stórhug og horfa lengra fram í tímann en menn eiga að venjast. Til þess að við séum í stakk búin til að ræða við erlend stórfyrirtæki um stækkun í Straumsvík og eina til tvær nýjar álbræðslur af hag- kvæmri stærð þurfa að vera tiltæk- ar fullhannaðar virkjanir sem samanlagt hefðu a.m.k. sexfalda orkuvinnslugetu á við þá í Búrfelli og sem unnt væri að ráðast í á næstu tveimur áratugum. Þegar framkvæmdir af þessu tagi eru annars vegar eru tveir áratugir ekki ýkja langur tími. Nauðsynlegt er því að flýta hönnun nýrra virkjana, sérstak- lega á Þjórsársvæðinu, Ijúka at- hugunum á staðarvali fyrir álver við Eyjafjörð, en þær eru nú langt komnar, og hefja endanlegar at- huganir á staðsetningu fyrir nýtt álver á Suður- eða Suðvesturlandi. Loks þarf að gera gangskör að því að rannsaka frekar hagnýtingu jarðgufu og ganga úr skugga um hverra kosta Islendingar eiga völ í því efni. Veldur veira liða- gigt í ungu fólki? Washington, 23. mars. AP. BANDARÍSKIR vísindamenn telja sig hafa komist aö raun um, aö lítil veira geti valdið gigt í mönnum og rennir sú uppgötvun þeirra styrkari stoðum undir fyrri kenning- ar um sama efni. í skýrslu, sem birtist í dag í tímaritinu „Science", segja vís- indamennirnir, að örsmá veira, sem fundist hafi í illa höldnum gigtarsjúklingi, hafi valdið sams konar sjúkdómi í ungum músum. Dr. Robert W. Simpson, prófessor í veiru- fræði við Rutgers-háskólann, vildi þó taka fram, að þar með væri ekki sannað sambandið milli veirunnar og sjúkdóms- ins en hins vegar beindi fund- urinn rannsóknunum inn á vænlegar brautir. í skýrslunni sagði, að mótefni í 13 gigtar- sjúklingum af 14 hefðu brugð- ist þannig við veirunni, að lík- legt væri að þeir hefðu smitast af henni áður eða skyldum veirum. Umræddir sjúklingar þjást af þeirri gigt, sem leggst á ungt fólk og alla liði líkamans. Telja vísindamenn, að sumt fólk hafi arfgenga tilhneigingu til að fá sjúkdóminn en að það sé veira, sem valdi honum þó. Önnur gigtartegund er sú, sem leggst einkum á aldrað fólk og stafar af liðasliti. Það kom líka í ljós, að engin mótefni fundust í blóði þess fólks við veirunni. Líkamsrækt i JSB VORNAMSKEIÐ 6 vikna vornámskeiö 2. apríl —17. maí Líkamsrækt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. 50 mín. æfingakerfi J.S.B. meö músík. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Tímar tvisvar eöa fjórum sinnum í viku. ★ „Lausir tímar“ fyrir vaktavinnufólk. Byrjenda- og framhalds- flokkar. Fyrir þær sem eru í megrun 3ja vikna kúrar. Tímar fjórum sinnum í viku. Mataræöi, vigtun, mæling. Verið brúnar og hraustar allt árið. Sólbekkirnir eru í Bolholti. Ath.: Einnig ný Ijós í Suðurveri. Sauna og góð búnings- og baðaðStaða á báðum stöðum. Stuttir hádegistímar í Bolholti. mín. æfingatími — 15 mín. Ijós. 25 Kennarar í Suðurveri: Bára, Sigríður og Margrét. Kennarar í Bolholti: Bára og Anna. Kennsla fer fram á báöum stööum. INNRITUN OG UPPLYSINGAR I SIMUM 83730, SUÐURVER OG 36645, BOLHOLT. Líkmsrækt JSB, ..jj Hársqyrtitaeki í verslunum Heimilistækja er geysigott úrval hársnyrtitækja frá ýmsum heimsþekktum framleið- endum, svo sem Philips og Braun. Gæðin eru óumdeilanleg og verðiö engu siðra. T.d. kosta hárblásarar aðeins frá 1.181.- krónu, krullu- járn frá 1.405.- krónum og hár- snyrtisett með blásara, bursta- setti, greiðu og krullujárni frá kr. 8.261.- Heimilistækí hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655 CHAMP \200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.