Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 39

Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984 39 — talað um Svíþjóð sem aðalathvarf rúnaristu upp úr 11. öld, þá hefði verið gaman að geta um afleiðing- ar þess, því að rúnaletur varð þar langlífast (Dalekarlien); og í stafrófi frá árinu 1599 þrífast enn 6 rúnir. Orðið Söngleikur er hér notað í of takmarkaðri merkingu. Sú var tíðin, að Islendingar kölluðu allar óperur söngleiki. Hreinstefnu- menn (púristar) höfnuðu orðinu ópera. Söngleikur er orðrétt þýð- ing á þýzka orðinu Singspiel og var upphaflega (og er í sögu- kennslu enn) viðhaft um öll leik- sviðsverk með músík, þar sem söngur var rofinn af munnmæltri samræðu (dialog). í þessum skiln- ingi eru allar óperettur söngleikir, sömuleiðis jafnvel Freischútz og Zauberflöte. Annars eru textar óperettu yfirleitt svo lítilsigldir, að bókmenntagildi þeirra stendur á núllpunkti. Dramatísk bygging fyrirfinnst þar alls ekki, því að hér er um að ræða aðeins borgara- lega afþreyingarmúsík. Musical heitir fullu nafni musi- cal play eða musical comedy og út- heimtir aðeins litla hljómsveit með fjölbreyttu slagverki. Kostur þess má heita, að horfin er öll til- finningavæmni óperettu, og texti er betri, enda oft sniðinn eftir klassískum skáldverkum (Dickens: Oliver Twist; enskur músíkgam- anleikur eftir L. Bart: Oliver). Nú hefir verið drepið á ýmislegt, er betur skyldi fara. Fleira mætti þó til koma, t.d. skortur á þýðing- um útlendra verka og á skýringum (öfugmælavísur Kormáks). Finna má stílfræðilega að tíðri ofnotkun á viðhengdum ákveðnum greini, þegar rætt er um almennt en ekki sérstakt efni. Sömuleiðis færi bet- ur á því að rita í nefnifalli skýr- ingarorð innan sviga, einnig upp- talningu á verkum (t.d. bls. 251, Narfi í stað Narfa). Nokkurn keim af nesja- mennskulegum oflátungshætti ber sú tilhneiging að umrita heiti klassískra verka eftir framburði (t.d. Fást í stað Faust) eða fall- beygja erlend fagheiti (t.d. vaude- villunnar, en í uppslætti ritast hún vaudeville en ekki vaudevilla). íslenzk stafsetning á sígildum hugtökum virðist heldur ekki vera til bóta (díþýrambos í stað dith- yrambos). Öll slík viðleitni verkar ekki málhreinsandi eða málauðg- andi, ef sá er tilgangur, heldur villir mönnum sýn og fjarlægist uppruna. Hér má hæglega ofgera, svo að hlálegt verður; t.d. ef sagt væri: Ráðstefnan var haldin í Kösublönku í stað Casablanca). Prentvillur eru fáar (bls. 309, 1930 í stað 1830), en nokkurs mis- ræmis gætir í notkun forsetninga með landanöfnum (á Englandi, í Bretlandi, ýmist á eða í Þýzka- landi). Stundum hæfir betur, að orðið sjónleikur en ekki leikrit standi í texta (bls. 205; leikrit = ritverk; sjónleikur = sýnd upp- færsla þess). Leiðinlegt er að rek- ast á málvillur eins og beggja megin (í stað báðum megin, eða beggja vegna; bls. 279). Þrátt fyrir téða annmarka (við- eigandi notkun viðtengingarhátt- ar mundi prýða texta), er rit þetta hið eigulegasta og geymir mikinn fróðleik um bókmenntir allra tíma meðal allra helztu þjóða, form þeirra, innihald og þróunarbraut. Um upptöku efnisatriða geta verið skiptar skoðanir, en þó finnst mér, að hér ættu að vera greinar um málfræði, orðabók, skrift, nýyrði, pathos og Kæmpeviser, svo að fátt eitt sé nefnt. — Persónulega ánægju hafði ég af að rekast á gamlan lærimeistara, Emil Staig- er, frá háskólanum í Zúrich, og lesa um þýðingu hans fyrir New Criticism og innviða-greiningu verka. Að síðustu óska ég þess, að þetta brautryðjendaverk megi stuðla að því að opna augu sem allra flestra fyrir gildi skáldlistar, lögmálum hennar og þroskaferli, því að hún lýsir sjálfum mannin- um betur en öll heimspeki og sagnfræði. Dr. Hallgrímur llclgason er þjód- kunnugt tónskíld og prófcssor rið Háskóla íslands. fremur frá fundi Hafskipsmanna í Luxemborg í byrjun marz. Voru þar um 25 manns, þ.á m. um- boðsmenn Hafskips og starfsmenn Cosmos-fyrirtækisins, flutnings- firma, sem Hafskip keypti í Bandaríkjunum í fyrra eins og kunnugt er. Aðalskrifstofa þess í Evrópu var nýlega opnuð í Rott- erdam, en skrifstofur Cosmos í Bandaríkjunum eru í New York, Baltimore, Miami, Chicago og New Orleans. Cosmos er algerlega í eigu Hafskips á íslandi, en starfar að öllu leyti sjálfstætt. í dag er starfsemi þess mest flutnings- miðlun milli Bandaríkjanna og Suður-Ameríku og Asíu. í fram- tíðinni er gert ráð fyrir því, að fyrirtækið auki starfsemi sína á vöruflutningum milli Bandaríkj- anna og Evrópu, ekki sízt eftir opnun skrifstofunnar í Rotter- dam. í framhaldi af þessu má geta þess, að starfsmenn Hafskips og dótturfyrirtækja erlendis í dag eru um það bil 80. Sýnir það nokk- uð umfang útrásar fyrirtækisins, sem þó er alls ekkijpkið. Hólmfríður Gunnarsdóttir hef- ur unnið hér frá opnun skrifstof- unnar í fyrra eins og áður sagði. Annast hún gerð útflutnings- skjala og segist vinna sömu störf og áður hjá skipafélaginu heima, aðeins á hinum endanum. Er Hólmfríður hin ánægðasta með hinn sólrfka vinnustað og aukna þj ónustumögu lei ka. Nýfarinn utan er Guðmundur Baldur Sigurgeirsson, en hann hefur unnið hjá Hafskip í 20 ár. Guðmundur sér um „operation" skipa, þ.e. annast um samskipti við skipin og sér um vörumeðferð og vöruhús. Guðmundur hefur unnið fyrir Hafskip í Hamborg og hyggur gott til starfsins hér, enda vanur vel. Hann sá um allan Haf- skipsflotann heima að sama leyti, en það eru 7 skip í föstum ferðum og eru þar af 5 í eigu félagsins. Peter Fahl er þýskur að upp- runa, en hefur lengi átt heima í Danmörku. Hann er nýkominn til starfa hjá Hafskip, en er félaginu og íslenzkum flutningum kunnur, því að hann vann áður hjá fyrr- verandi umboðsmanni Hafskips, E.A. Bendix, á sjöunda ár. Hann hefur því mikla þekkingu á sviði skipaflutninga og er hinn bezti starfsmaður að sögn forstjórans. Rómaði Peter samstarf við Haf- skip og bar fram hamingjuóskir félaginu til handa á þessum tíma- mótum. G.L. Ásg. 141 hefur hlotið starfs- laun listamanna ’69—’83 SAMTALS hefur 141 listamaöur hlotiö starfslaun samkvæmt reglum nr. 165/1969. Borgar Garöarson, leikari, og Kinar Þorláksson, mynd- listarmaöur, hafa oftast notiö starfs- launa, eöa alls í 18 mánuöi. Frá því starfslaunum listamanna var fyrst áthlutað áriö 1969 og fram til síðasta árs hefur verið úthlutaö launum í 877 mánuði, eöa sem svarar 73 ár og 1 mánuö. Skipting starfslauna listamanna eftir listgreinum er svohljóðandi: 73 myndlistarmenn hafa hlotið starfs- launin í alls 449 mánuöi, 43 rithöf- undar hafa hlotið starfslaun í 270 mánuöi, 18 tónlistarmenn og höf- undar hafa hlotiö launin í 115 mán- uði, firam leikarar hafa hlotið starfslaun í 34 mánuöi og loks hafa 2 kvikmyndageröarmenn hlotiö starfslaun í samtals 9 mánuði. Eftirfarandi listamenn hafa hlotiö starfslaun á árunum 1969 til 1983 aö báöura árum meðtöldum. Starfslaun í 18 mánuði: Borgar Garðarsson, leiklist (12 mán. 1973; 6 mán. 1983). Einar Þorláksson, myndlist (12 mán. 1974; 6 mán. 1983). Starfslaun í 15 mánuöi: Hringur Jóhannesson, myndlist (3 mán. 1976; 12 mán. 1982). Jón Óskar, ritlist (12 mán. 1972; 3 mán. 1979). Vilhjálmur Bergsson, myndlist (12 mán. 1972; 3 mán. 1982). Starfslaun í 14 mánuði: Leifur Þórarinsson, tónlist (6 mán. 1971; 8 mán. 1981). Starfslaun í 13 mánuöi: Einar Hákonarson, myndlist (3 mán. 1969; 10 mán. 1983). Starfslaun í 12 mánuði: Árni Páll Jóhannsson og Magnús Kjartanss., myndlist (1980) Björg Þorsteinsd., myndlist (1977) Guðbergur Bergsson, ritlist (1976) Guðmunda Andrésd., myndl. (1971) Gurún S. Svavarsd., ritlist (1979) Hildur Hákonard., myndlist (1973) Indriði G. Þorsteinss., ritlist (1969) Jóhannes Helgi, ritlist (6 mán. 1973; 6 mán. 1981) Kristján Davíðsson, myndlist(1978) Oddur Björnsson, ritlist (6 mán. 1971; 6 mán. 1983) Ólafur Jóhann Sigurðss., ritl. (1975) Thor Vilhjálmsson, ritlist (1970) Tryggvi Ólafsson, myndlist (4 mán. 1977; 8 mán. 1981) Starfslaun í 11 mánuði: Gylfi Gíslason, myndlist (8 mán. 1974; 3 mán. 1982) Þorbjörg Höskuldsdóttir, myndlist (8 mán. 1975; 3 mán. 1982) Starfslaun í 10 mánuöi: Hjálmar H. Ragnarss., tónlist (1983) Jóhannes Jóhanness., myndl. (1979) Starfslaun í 9 mánuði: Ágúst Petersen, myndlist (6 mán. 1972; 3 mán. 1981) Áskell Másson, tónlist (3 mán. 1977; 6 mán. 1982) Áslaug Ragnars, ritlist (3 mán. 1981; 6 mán. 1983) Bragi Ásgeirsson, myndlist (1978) Einar Bragi, ritlist (1973) Hafliði Hallgrímsson, tónlist (3 mán. 1972; 6 mán. 1983) Jón Engilberts, myndlist (1970) Karl Kvaran, myndlist (1983) Karólína Eiríksdóttir, tónlist(1980) Nína Björk Árnadóttir, ritlist (6 mán. 1972; 3 mán. 1982) Ólafur Haukur Símonarson, ritlist (3 mán. 1973; 6 mán. 1982) Sigurður örlygsson, myndlist (6 mán. 1976; 3 mán. 1982) Steinar Sigurjónsson, ritlist (6 mán. 1972; 3 mán. 1981) Starfslaun í 8 mánuði: Arnar Herbertsson, myndlist(1975) Atli Heimir Sveinss., tónlist (1974) Erlingur E. Halldórss., ritlist (1975) Gunnar Reynir Sveinss., tónl. (1975) Ingimar Erl. Sigurðsson, ritl. (1974) Jón Þórarinsson, tónlist (1981) Jökull Jakobsson, ritlist (1974) Starfslaun í 7 mánuði: Arnar Jónsson, leiklist (1977) Jón Gunnar Árnason, myndlist (3 mán. 1969; 4 mán. 1977) Kjartan Guðjónss., myndlist (1977) Kristján Guðmundss., myndl. (1980) Starfslaun í 6 mánuði: Ásgerður Búad., myndlist (1981) Edda Erlendsdóttir, tónlist (1983) Einar G. Baldvinss., myndlist (1983) Eyjólfur Einarsson, myndlist (3 mán. 1973; 3 mán. 1982) Guðmundur Emilss., tónlist (1982) Guðný M. Magnúsd., myndl. (1982) Gunnar Ö. Gunnarss., myndl. (1976) Hafst. Austmann, myndl. (1982) Hallsteinn Sigurðsson, myndlist (3 mán. 1976; 3 mán. 1983) Helgi Þ. Friðjónss., myndl. (1981) Jón frá Pálmholti, ritlist (1974) Jón Reykdal, myndlist (1981) Kristinn Reyr, ritlist (1982) Magnús Pálsson, myndlist (1983) Magnús Tómasson, myndlist (1972) Níels Hafstein Steinþórsson, myndlist (3 mán. 1978; 3 mán. 1983) Ólafur Lárusson, myndlist (3 mán. 1978; 3 mán. 1981) Ragnar Kjartansson, myndl. (1983) Ragnhildur Óskarsdóttir, kvikmyndagerð (1979) Sigrún Guðjónsdóttir, myndlist (1983) Sigurður Örn Brynjólfsson, myndlist (1975) Sigurþór Jakobsson, myndlist (1981) Snorri Sigfús Birgisson, tónlist (1981) Steinunn Marteinsdóttir, myndlist (1983) Svava Jakobsdóttir, ritlist (1982) Þorgeir Þorgeirsson, ritlist (1976) Þorsteinn frá Hamri, ritlist (1969) Þórarinn Eldjárn, ritlist (1983) Þórður Ben Sveinsson, myndl. (1982) Þórður Hall, myndlist (3 mán. 1978; 3 mán. 1982) Örn Bjarnason, ritlist (3 mán. 1979; 3 mán. 1982) Starfslaun í 4 mánuði: Ragnar Björnsson, tónlist (1976) Starfslaun í 3 mánuði: Alfreð Flóki, myndlist (1983) Ása Ólafsdóttir, myndlist (1983) Ásgeir Jakobsson, ritlist (1983) Baldur Óskarsson, ritlist (1982) Bjarni Bernharður Bjarnason, ritlist (1982) Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlist (1983) Edda Jónsdóttir, myndlist (1980) Einar Guðmundsson, ritlist (1983) Einar Jóhannesson, tónlist (1980) Erlendur Jónsson, ritlist (1982) Eyborg Guðmundsdóttir, myndlist (1973) Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndagerð (1980) Guðjón Ketilsson, myndlist (1983) Guðmundur Elíasson, myndl. (1970) Guðmundur L. Friðfinnsson, ritlist (1983) Guðm. Halldórsson frá Bergstöðum, ritlist (1983) Fyrirlestur um prótein í fóðri jórturdýra GUNNAR Ríkharðsson mun flytja fyrirlestur í Bændaskólanum á Hvanneyri fimmtudaginn 29. mars og ber hann heitið „Samanburður á nýrri og eldri aöferöum viö mat á próteini í fóðri jórturdýra". Fyrir- íesturinn veröur haldinn í setustofu Guðmundur Thoroddsen, myndlist (1983) Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, myndlist (1983) Gunnar Dal, ritlist (1983) Gunnar Hjaltason, myndlist (1982) Gunnar R. Bjarnason, myndlist (1981) Gunnlaugur St. Gíslason, myndlist (1981) Hallmundur Kristinsson, myndlist (1980) Haukur Dór Sturluson, myndlist . (1981) Helga Ingólfsdóttir, tónlist (1982) Helgi Gíslason, myndlist (1981) Hjalti Rögnvaldsson, leiklist (1983) Hjörtur Pálsson, ritlist (1982) Indriði Úlfsson, ritlist (1981) Jakob Jónsson, myndlist (1983) Jóhanna Bogadóttir, myndlist (1981) Jón E. Guðmundsson, leikbrúðugerð (1981) Jón Helgason, ritlist (1979) Jónas Guðmundsson, ritlist (1983) Jónas Tómasson, tónlist (1973) Jónína Guðnadóttir, myndlist (1982) Kristín G. Magnús, lerklist—(1979) Manuela Wiesler, tónlist (1978) Ólafur Gunnarsson, ritlist (1982) ólafur Ormsson, ritlist (1983) Olga Guðrún Árnadóttir, ritlist (1982) Ómar Þ. Halldórsson, ritlist (1983) Pétur Gunnarsson, ritlist (1978) Ragna Róbertsdóttir, myndlist (1982) Sigfús Halldórsson, tónlist (1983) Sigríður Björnsdóttir, myndlist (1981) Sigríður Guðjónsdóttir, myndlist (1983) Sigrún Eldjárn, myndlist (1982) Sigurður Egill Garðarsson, tónlist (1982) Sigurður Þ. Sigurðsson, myndlist (1983) Sigurlaug Jóhannesdóttir, myndlist (1981) Sigþrúður Pálsdóttir, myndlist (1983) Steinunn Sigurðardóttir, ritlist (1983) Steinunn Þórarinsdóttir, myndlist (1981) Sveinn Björnsson, myndlist (1983) Valgerður Þóra Benediktss., ritlist (1983) Veturliði Gunnarsson, myndlist (1983) Þorbjörg Þórðardóttir, myndlist (1983) Þórunn Sigurðardóttir, leiklist (1981) Þráinn Bertelsson, ritlist (1977) Bændaskólans á Hvanneyri og hefst hann kl. 15.00. Fyrirlesturinn er lokaáfangi í fjórða árs námi Gunnars við bú- vísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri. Rannsóknarverkefni hans er á sviði fóðurfræðr---- Gunnar Ríkharðsson lauk námi frá Búvísindadeild á Hvanneyri 1981 og starfaði síðan sem hér- aðsráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Suður-Þingeyinga til 1982. Haustið 1982 hóf hann fram- haldsnám sitt en hefur jafnhliða náminu starfaö hjá Rannsókna- stofnun Landbúnaðarins. í GÆR víxluöust þessar myndir af þessum heiöursmönnum sem eru nafnar og áttu sjötugsafmæli í gær, þriöjudag. Um leið og þetta er leiörétt er beöist afsökunar á mistökunum. Það er Sigurður Kinarsson á Öldugötu 14 í Hafnarfiröi til vinstri. Til hægri er Siguröur Jónsson bóndi og hreppstjóri í Köldukinn í Haukadal í Dalasýslu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.