Morgunblaðið - 28.03.1984, Side 48
ETTT KORT AiiS SIAÐAR
MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
N-Atlantshafsflug Flugleiða:
26,6% fjölgun farþega
á fyrsta hluta ársins
— miöaö við sama tíma
FJÖLGUN farþega Flugleiða fyrsU
hluta þessa árs miðað við sama tíma
í fyrra nemur 26,6% á Norður-
AtlanLshafsfluginu, 1,4% í Evrópu-
fluginu og 2,6% í innanlandsflugi.
Miðað er við tímabilið frá ára-
mótum til 17. marz sl. Samtals
flugu 75.491 með Flugleiðum á
í fyrra
þessu tímabili í ár, en 69.165 í
fyrra. Á Norður-Atlantshafsflug-
leiðinni voru farþegar nú 24.768 en
19.558 í fyrra og nemur aukningin
26,6% eins og fyrr greinir. Á Evr-
ópuflugleiðum eru farþegar 17.400
á móti 17.160 í fyrra, en innan-
lands 33.323 á móti 32.465 í fyrra.
Vestmannaeyjar:
Eldingu laust í
stuttbylgjustöð
— skemmdir á tækjum, tæki í
Loftskeytastöðinni óvirk um tíma
Vestmannaeyjum, 27. mars.
SKÖMMU fyrir hádegi í dag sló
niður eldingu við stuttbylgjustöð
Pósts og síma á Klifi með þeim af-
leiðingum að allar línur í jarðstreng,
Tillaga banka-
málanefndar:
Bindiskyldan
aukin um 5%
í TILLÖGUM bankamálanefndar er
m.a. gert ráð fyrir að bindiskylda inn-
lánsstofnana hjá Seðlabanka verði
aukin um 5 prósentustig, þ.e. úr 28% í
33%. Þetta kemur fram í viðtali Mbl.
við dr. Jóhannes Nordal, Seðlabanka-
stjóra, sem birt er í dag.
Dr. Jóhannes segir að þessi tilhög-
un myndi gefa Seðlabankanum
meira svigrúm til að hafa áhrif á
útlánastarfsemi bankanna. Sér hefði
hinsvegar komið á óvart að ekki væri
gerð ákveðin tillaga til að draga úr
endurkaupum, þvf gert væri ráð
fyrir því í málefnasamningi ríkis-
stjórnarinnar, að dregið verði úr
þessum endurkaupum og starfsemin
flutt til viðskiptabankanna.
Sjá nánar á miðsíðu: „Sakna
tillagna um endurskipulagninu
bankakerfisins"
sem liggur frá stöðinni niður af fjall-
inu, duttu út, öll öryggi sló út og
skemmdir urðu á tækjum í stöðinni.
Tæki Loftskeytastöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum urðu óvirk en
skemmdir urðu ekki á sendum út-
varps og sjónvarps.
Loftskeytastöðin varð þó ekki
með öllu sambandslaus þvi hún
gat notast við minni stöð, sem
staðsett er í Sæfelli. Viðgerðar-
menn Pósts og síma fóru strax á
fjallið til viðgerða og tókst fljót-
lega að koma tveimur rásum
loftskeytastöðvarinnar í lag. Síð-
degis í dag var þó ekki vitað hve-
nær fullnaðarviðgerð lyki. Hér var
vonskuveður í morgun, hvasst og
slydduhríð, og gekk á með þrum-
um og eldingum.
Jón Sighvatsson, annar tveggja
viðgerðarmanna Pósts og síma,
sem ekki er óvanur að leggja á
fjallið í óblíðu veðri, sagði í sam-
tali við Mbl. að það væri frekar
fátítt að skemmdir yrðu á tækja-
búnaðinum á Klifinu af völdum
eldinga. Hann sagðist þó minnast
þess, að slíkt hefði skeð þrisvar
sinnum þau fimmtán ár, sem hann
hefði starfað hjá Pósti og síma og
oftast hefði þá aðkoman verið
verri en núna.
-hkj.
1
Frá slysstað í gær. Eins og sjá má er Mini-bifreiðin ónýt eftir áreksturinn. Morgunbiaðið/Arnór Ragnarsson.
Harður árekstur á Keflavíkurveginum
TVENNT var flutt á slysadeild eftir mjög harðan árekstur á Keflavíkurveginum á móts við Hvassahraun, rétt
innan sýslumarka Gullbringusýslu, um kl. 17 í gær. Ökumaður Mini-bifreiðar missti þá stjórn á bifreið sinni
með þeim afleiðingum, að hún hafnaði þversum framan á vörubifreið, sem var á leið suður eftir Keflavíkurveg-
inum. Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar voru báðir fluttir á slysadeild. Fólksbifreiðin er talin gerónýt.
Vörubifreiðin skemmdist frekar lítið. Ökumann hennar sakaði ekki.
Gæsluvarðhalds krafist yfir feögum í Kópavogi:
Grunur um tíu millj.
króna söluskattsvik
Forstjóra bókhaldsfyrirtækis í Reykjavík sleppt eftir yfirheyrslur
TVEIR forráðamenn innflutnings- og
framleiðslufyrirtækis í Kópavogi hafa
verið handteknir, grunaðir um stór-
felld söluskatts- og bókhaldssvik.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
lagt fram kröfu um allt að einnar
viku gæsluvarðhald yfir þeim og verð-
ur tekin afstaða til kröfunnar í Saka-
dómi Kópavogs í dag. Grunur leikur
á, að fyrirtæki þeirra hafi komið sér |
hjá að greiða um eða yfir tug milljóna
í söluskatt á undanförnum tveimur
árum, skv. upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér. Mennirnir eru feðgar.
Þriðji maðurinn, framkvæmda-1
stjóri bókhaldsfyrirtækis í Reykja-
vík, var handtekinn í fyrradag
grunaður um aðild að svikunum en
honum var sleppt aftur í gær. Ekki
mun þó talið útilokað, að bók-
haldsfyrirtækið tengist málinu
með beinum hætti. Það hefur séð
um bókhald fyrirtækis feðganna.
lögreglustjóri ríkisins, sem stjórn-
ar rannsókninni af hálfu RLR,
sagði í samtali við blaðamann Mbl.
í gærkvöldi, að málinu hefði verið
vísað til RLR af rannsóknardeild
embættis ríkisskattstjóra. Hann
sagði að verið væri að rannsaka
bókhald og söluskattsgreiðslur
fyrirtækisins yfir ákveðið tímabil,
en kvaðst ekki geta svarað því
hvort rannsóknin myndi á síðari
stigum ná yfir lengri tíma.
Heildarskuldirnar nær 1.150 milljónir:
Hver Akureyringur
skuldar um 80 þús.
— vegna Hitaveitu Akureyrar
Akurejri, 27. mars.
HEILDARSKULDIR Hitaveitu Akureyrar nema nú um 1100—1150
milljónum króna eða um 80 þúsund krónum á hvert mannsbarn í
bænum. Aðeins vaxtagreiðslurnar af þessum skuldum nema á þessu
ári um 140 milljónum króna á sama tíma og heildartekjur hitaveit-
unnar eru áætlaðar 157,85 millj. Afborganir lána nema á þessu ári
49,3 millj., þannig að ca. 32 milljónir vantar upp á að heildartekjur
fyrirtækisins nægi fyrir afborgunum og vöxtum.
Þetta kom fram á bæjarstjórn-
arfundi hér í dag þegar fjárhags-
áætlun Hitaveitu Akureyrar var
til fyrri umræðu. Bæjarfulltrú-
arnir, sem tóku til máls um áætl-
unina, voru sammála um að of
lengi hefði dregist að taka þessi
mál föstum tökum, því augsýni-
legt hefði verið allt frá upphafi
hvert stefndi. Veitan hefur verið
rekin með miklu tapi frá upphafi
auk þess sem gengisþróun og
vaxtamál hafa valdið erfiðleikum.
Töldu bæjarfulltrúar þetta hafa
verið hálfgert feimnismál í bæjar-
stjórn en nú yrði ekki lengur und-
an því skorast að taka það föstum
tökum.
Sigurður J. Sigurðsson, stjórn-
armaður í Hitaveitu Akureyrar,
upplýsti á fundinum að á næst-
unni myndi verða óskað eftir
11—12% hækkun á aflsölunni og
væri sú hækkun í samræmi við
hækkun byggingarvísitölu en
taxtar veitunnar hafa ekki hækk-
að frá því í júlí á síðasta ári.
— G.Berg.
Hásetahluturinn
400.000 krónur
HÁSETAHLUTUR á aflahse.stu ast í Færeyjum. Bæði þessi skip
loðnuskipunum á vertíðinni er nú í hafa tekið meginhluta afla síns
kringum 400.000 krónur. Þetta eru síðustu tvo mánuði og hefur hlut-
skipin Eldborg HF og Hilmir SU, urinn því verið hlutfallslega meiri
sem bæði hafa aflað tæplega 20.000 þann tíma. Hins ber svo að gæta,
lesta síðan veiðar hófust í byrjun að tekjumöguleikar sjómanna á
nóvember. nótaskipunum eru litlir utan
Hvorugt skipanna er hætt veið- |loðnuvertíðarinnar og þvf dreifist
um, en Eldborgin landar í dag í hlutur þeirra yfir talsverðan
Reykjavík og Hilmir landaði síð- tíma, þegar á heildina er litið.