Morgunblaðið - 05.04.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.04.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1984 Hampiðjan filfl ára Rannsóknir, þróun veiðarfæra og fræðsla er framtíðarsýnin Nýbygging Hampiðjunnar á Bfldshöfða. Moris«iibUói4/ói.K.M. Fyrir um 20 árum hékk líf Hampiðjunnar á blá- þræði. I»á var hún eina uppistandandi veiðarfæraverk- smiðjan á landinu og stóð frammi fyrir þeirri staðreynd, að gerviefnin höfðu leyst hamp- inn af hólmi. Stjórnendum fyrirtækisins tókst að yfir- vinna þá erfiðleika þrátt fyrir andstöðu stjórnvalda gegn leið- réttingum á samkeppnisað- stöðu þessa iðnaðar. Má því segja að efni til veiðarfæra hafi verið af öðrum toga spunnið síð- an. Alla tíð hafa stjórnendur Hampiðjunnar horft fram á veginn og nú, á hálfrar aldar afmæli hennar, sér Hampiðjan útgerðum fjölmargra landa fyrir efni í veiðarfæri auk ís- lenzkum sjávarútvegi. Stöðugt er horft fram á veginn og rann- sóknir, þróun veiðarfæra og fræðsla um meðferð þeirra er einn stærsti þáttur starfsem- innar auk framleiðslunnar sjálfrar. Sjávarútvegur, landbún- aöur og byggingariðnaður Framleiðsla Hampiðjunnar er mjög fjölbreytt og segja má að hún þjóni þremur atvinnugrein- um, sjávarútveginum, landbúnað- inum og byggingariðnaðinum auk þess sem ýmiss konar tóg og bönd eru notuð af almenningi. Megin- hluti framleiðslunnar er kaðlar og tóg af ýmsu tagi til veiðarfæra og trollnet ýmiskonar, en auk þess er framleiðsla þorskaneta á tilrauna- stigi. Þá hefur fyrirtækið selt stóran hluta af því heybindigarni, sem notað er í landinu og nú síð- ustu árin hafa plaströr verið inni í myndinni. Framleiðslan hefur far- ið vaxandi fram á síðustu ár, en þau hafa verið erfið sjávarútveg- inum og leitt af sér nokkurn sam- drátt í framleiðslu veiðarfæra. Aukin tækni hefur verið stór þátt- ur í aukningunni og fyrir 10 árum var framleiðslan 800 lestir, starfsmenn 190. Á síðasta ári var framleiðslan 2.300 lestir og starfsmannafjöldi sá sami. Sölu- verðmæti ársins var um 188 millj- ónir króna, 49% í netum, 41% í garni, línum og köðlum og 10% í rörum. Framleiðsla plaströra hófst árið 1977 og eru framleidd niðurfallsrör, rafmagnsrör og skolprör. Útflutningur á þessu ári er áætlaður um 20% heildarfram- leiðslunnar, aðallega trollnet, og nemur það um 40% af trollneta- framleiðslunni. Meðal annars sér Hampiðjan um 55 togurum við austurströnd Kanada fyrir veiðar- færum og er útflutningurinn mestur þangað. Önnur útflutn- ingslönd eru til dæmis Bandarík- in, Bretland, Danmörk, Færeyjar, Nýja-Sjáland, Ástralía og Suður- Afríka. Frá Hampiðjunni gegn- um Danmörk og Svíþjóð til Dalvíkur Hampiðjan framleiðir talsvert af rækjutrollanetum og til þessa hefur að mestu verið um útflutn- ing að ræða, en með aukinni sókn í úthafsrækjuna hér hefur fram- leiðslan á innanlandsmarkaðinn aukizt verulega. Áður fyrr var al- gengt að íslenzkir útgerðarmenn keyptu rækjutrollin frá Dan- mörku, unnin úr efni frá Hampiðj- unni. Útgerðarmaður frá Dalvík taldi sig eitt sinn hafa fengið sænskt rækjunet úr einhverju bezta efni, sem hann hafði kynnzt. Þegar allt kom til alls, var efnið ekki sænskt heldur hafði leið þess legið að heiman í gegnum Dan- mörku og Svíþjóð til Dalvíkur. Nú er mestur vaxtarbroddur í rækju- veiðunum og hefur Hampiðjan nú auk útflutningsins hafið fram- leiðslu á efni til þeirra, sem hér stunda þær veiðar. Hafa á vegum hennar verið sett upp tvö rækju- troll, sem gefa góða raun og er nú verið að kanna veiðihæfni þeirra með neðansjávarmyndatökum í ísafjarðardjúpi. Ýmsar gerðir rækjutrolla eru á boðstólum víða um heim og enn hefur ekki komið í ljós hvaða gerð íslenzkir út- vegsmenn kjósa. Tilhneiging hefur verið til þess að framleiða grennra og meðfærilegra garn í rækju- trollin, meðal annars í orkusparn- aðarskyni og hefur Hampiðjan nú komið með slíkt garn á markað- inn. Dragnótaveiðin á upplcid aftur Dragnótaveiði hefur verið mjög til umfjöllunar að undanförnu í kjölfar umræðna um aukin gæði fisksins. Hafa veiðiheimildir til dragnótaveiða verið rýmkaðar og er þar nokkur aukning fyrir- sjáanleg. Hingað til hafa Skotar verið fremstir á sviði þessara veiða, en þeir nota tóg í stað víra við dráttinn. Hampiðjan hefur selt þangað nokkuð af slíku tógi og er nú að vinna að þróun og endur- bótum á dragnótartóginu. f því sambandi hefur sá dragnótarbát- ur skozkur, sem náði mestu afla- verðmæti á síðasta ári, um 30 milljónum króna, tekið að sér að reyna tógið. Binnig hefur nokkuð af þessu tógi verið selt til Eng- lands og Noregs og er þar eins og hér á landi mikill markaður, sem gæti komið í stað samdráttar í tógframleiðslu til þorskaneta. Gluggatroll Vandamál sjávarútvegs og út- gerðar eru mismunandi eftir lönd- um. Hér fæst of lítið af blcssuðum þorskinum en við Nýfundnaland er vandamálið af öðrum toga spunnið. Við veiðar þar í ísnum er vandamálið of stór hol, 40 til 50 lestir, sem gera það að verkum og fiskurinn verður blóðsprengdur og því lélegt hráefni. Meðal annarra hefur Hampiðjan tekið þátt í því að þróa eins konar öryggisventil á troll þarlendra. Er þar um að ræða svokallaðan glugga, 6X6 möskva að stærð, við efra poka- byrðið, sem gerir það að verkum, að þegar komnar eru um 15 lestir í trollið, spýtist umframfiskurinn út um gluggann og það, sem eftir verður, blóðspringur ekki. Þá er verið að reyna troll með stærri möskva í togaranum Vest- mannaey í því augnamiði að geta samtímis verið með stærra troll Núverandi stjórn Hampiðjunnar: Frá vinstri Magnús Gústafsson, fráfarandi forstjóri, Bragi Hannesson, Hannes Pálsson, Árni Vilhjálmsson og Gunnar J. Friðriksson. Gunnar Jóhannsson, sölumaður: Þá var hnýtt út um allan bæinn „Kg hyrjarti hér fyrir 45 árum, um áramótin 1938 til 1939, sem verk- stjóri og hef verið við fyrirUekirt sírt- an. Ég vinn art vísu arteins hálfan daginn nú enda orðinn sjötugur. l’art hefur verirt gaman art fylgjast mert upphyggingunní og ég held art engan mann hafi órart fyrir því í upphafi, art plastið ætti eftir art leysa hampinn af hólmi," sagrti Gunnar Jóhannsson, sölumartur í llampirtjunni, er Mbl. ræddi virt hann. „Þegar ég byrjaði hér var fram- leiðslan bara trollgarn úr hampi og handhnýtt troll. Starfsmenn voru þá um 20 í húsi, sem mest líktist hlöðu. 1941 eða 1942 kom fyrsta kaðlavélin og ekki var hún burð- ugri en það, að hún réð ekki við nema 12 millimetra þykkt. Á stríðsárunum var enginn innflutn- ingur á veiðarfærum, svo mikið var að gera hjá okkur við fram- leiðsluna. Á þeim tíma voru trollin hnýtt út um allan bæ og jafnvel á Eyrarbakka og Stokkseyri líka. Eitt árið voru um 50 manns hér og 250 komust á skrá hjá okkur vegna handhnýtingar í heimahúsum, í Reykjavík, á Seltjarnarnesi og í Hafnarfirði. Þá var sett upp stofa á Eyrarbakka, sem rekin var í 20 ár, en þar unnu 15 til 20 stúlkur og um tima var mikið um heimahnýt- ingar þar líka. Þá var beðið eftir hverjum möskva, en meðal annars spann Hampiðjan allt band, sem Veiðarfæraverzlun íslands notaði í línu á þessum tíma. Mesta breytingin á starfstíma mínum var tvímælalaust þegar farið var úr hampinum yfir í plast- ið. Mig hafði ekki órað fyrir því, og líklega varla nokkurn mann, að netin yrðu framleidd úr plasti. Það hefur verið mjög gaman að fylgj- ast með allri uppbyggingunni, en hún var ákaflega erfið fyrst í stað og þá hefur tækninni fleygt ótrú- lega fram. Þetta eru ólíkir tímar. Hampballarnir gömlu voru upp í 250 kíló hver og þá var ekki til neitt f líkingu við lyftara nema mannshöndin. Nú kemur hráefnið í 25 kílóa plastpokum og fært á milli með fullkomnustu lvfturum og tækjum. En það var fleira, sem menn hafa iíklega ekki búizt við í gamla daga. Við framleiðum mikið af því heybindigarni, sem notað er á landinu og er það meðal annars mitt starf að selja það. Því ferðast ég nokkuð um landið til að kynna þetta, en kaupfélögin sjá aðallega um dreifinguna. Það er líklega óhætt að segja að bylting hafi orð- ið á þessum tíma. Hráefnið gjör- ólíkt og vélarnar sjá nánast um allt. Mannshöndin kemur varla nærri framleiðslunni nema til að mata og þjóna vélunum, sem sjá um það sem meðal annars var gert í aukavinnu á fjölda heimila á striðsárunum," sagði Gunnar Jóhannsson. — H<;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.