Morgunblaðið - 05.04.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.04.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1984 Blíðviöri við Mývatn Björk, MývatnsHveit, 4. aprfl. HÉR HEFUR verið mikið blíð- viðri undanfarna daga og ekki orð- ið úrkomu vart í langan tíma. Glampandi sólskin var í gær og dag. Hitinn hefur komist í 8—10 stig. Snjór er mikið að hverfa, bú- ið að hefla vegi og þeir orðnir það þurrir að farið er að rjúka úr þeim. Komið er á aðra viku síðan vart varð við gæsir hér í grennd- inni. Sú von læðist að manni að vorið sé að koma. — Kristján Fulltrúi Alþjóðabankans staddur hérlendis: Heldur fyrirlestur um orkumál JIILIAN Bharier, fulltrúi Alþjóða- bankans, mun á morgun kynna orkuáætlanir Alþjóðabankans og Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóð- anna á fundi, sem haldinn verður í Borgartúni 6 kl. 15 í dag. Fundurinn er opinn verkfræð- ingum og öllum þeim, sem áhuga hafa á að fræðast um starfsemi þessara tveggja alþjóðastofnana á sviði orkumála, t.d. með ráðgjöf í huga. (Úr fréttatilkynningu.) Gamanmynd í Laugarásbíó Laugarásbíó hefur frumsýnt kvikmyndina „Smokey and the Bandit III“. Er þetta bandarísk gamanmynd úr myndaflokki, sem notið hefur mikilla vin- sælda. Aðalhlutverkið ieikur Jacky Gleason. Nú qetur húsbvqqjandi í Hafnarfirði verslað í BYKO án þess að fara í Kópavog Við bjóðum vkkur veikomin í nýja bygeineavöru- verslun BYKO í Hafnarfirði. Þar ætlum við okkur að þjóna húsbyggjendum og öðru ágætu athafnafólki í Hafnarfirði og ekki síður Garðabæ, Alftanesi, af Suðumesjum og víðar. Markmið okkar er að BYKO í Hafnarfirði verði í engu eftirbátur BYKO í Kópavogi sem er rómuð fyrir glæsilegt vöruval, vörugæði, sanngjamt verð og góða þjónustu. Þeir sem búa á þessu svæði og standa í stómm sem smáum framkvæmdum geta nú sparað sér um- talsverðan tíma og fyrirhöfn með heimsókn í BYKO í Hafnarfirði. VIÐ VONUMST TIL AÐ SJA YKKUR gLS BYGGINGAVORUR RYngHAFNARFIRÐI DALSHRAUN115 SÍMAR: 52870 / 54411 BYKO verslun opnuð í Hafnaiifirði } < D < Þar sem fagmennirnir versla er þér óhætt Leiðrétting Prentvillupúkinn lék lausum hala í greininni „Drottning lofts- ins“, sem birtist á Flugsíðunni í gær. Þar er sagt, að 9. febrúar sé stór dagur í sögu Boeing, sem er rétt, en þann dag fyrir 15 árum hóf fyrsta Boeing-747 risaþotan sig á loft. Sama dag sjö árum áð- ur, eða fyrir 21 ári, flaug fyrsta Boeing-727 vélin (ekki B-747 eins og stóð). í töflunni, þar sem afkastageta flugvéla sl. 25 ár er borin saman, stóð að Douglas DC-8 hefði flogið árið 1951 en á að vera 1961. Glögg- ir lesendur hafa eflaust áttað sig á þessu því DC-8 vélarnar voru ekki til árið 1951. Hlutaðeigendur eru beðnir vel- virðingar á þessu. Kísilmálmur SlÐARI hluti orðsins kísilmálmur féll niður á nokkrum stöðum í grein dr. Björns S. Stefánssonar í blaðinu í gær. Leiðréttist þetta hér með, og biðst blaðið afsökunar á þeim mistökum. Leiðrétting I FRÉTT um lát Björns Ólafsson- ar fyrrverandi konsertmeistara í Mbl. í gær misritaðist að Björn hefði verið 77 ára, er hann lézt. Hið rétta er að hann var 67 ára. Þá féll niður stafur í nafni kenn- ara Björns í Ameríku. Nafn hans er rétt ritað Adolf Busch, en ekki Dolf Busch. Mbl. biðst velvirð- ingar á þessum misritunum. Stjörnuefni f GREIN Ólafs M. Jóhannessonar, „Ugla sat á kvisti", í blaðinu í gær misritaðist orðið stjörnuefni svo úr varð stjörnukerfi. — Er velvirð- ingar beðist á þeim mistökum. Þú Ert þú að leita að skemmti- legri vinnu sem gefur vel í aðra hönd? Viö erum að leita aö fólki um allt land, sem hef- ur áhuga á aö selja lífrænar heilsuvörur til verndar húö- inni. Viö munum kenna þér allt sem þú þarft aö vita á námskeiöi í Reykjavík í vor. Ef þú hefur áhuga og óskar viötals þá skrifaðu okkur fyrir 15. maí upplýsingar um þig og símanúmer. Utanáskriftin er: Nuna Box 37, 200 Kópavogur. Skrúfur á báta og skip Allar stæröir frá 1000—4500 mm og allt aö 4500 kíló. Efni: GSOMS—57—F—45 Eöa: GNIALBZ—F—60. Fyrir öll klössunarfélög. Skrúfuöxlar eftir teikningu. \ SflQjiiíllaiuigjiuKí' <& (Sco) Vesturgotu 1 6, Sími 14680.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.