Morgunblaðið - 05.04.1984, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.04.1984, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1984 25 Soffía frænka mætt til leiks. MorKunblaöiö/G.BerK. Leikfélag Akureyrar: Kardemommubærinn frumsýndur Akureyri, 3. apríl. SÍÐASTA frumsýning hjá Leikfé- lagi Akureyrar á þessu starfsári verður sunnudaginn 8. apríl, en þá frumsýnir félagið barnaleikritið Kardemommubæinn eftir Thor- björn Egner. Ellefu ár eru nú síöan Leikfélag Akureyrar setti þetta verk upp síöast og aö sögn Signýjar Pálsdóttur, leikhússtjóra, er þaö nú sett upp aftur, þar sem félagið liti svo á að allar kynslóöir ættu aö eiga þess kost á barnsaldri aö njóta þessa leikhúsverks. Mikið er lagt í þessa sýningu hjá félaginu, leikarar eru alls 28, þar af átta börn og ellefu manna hljómsveit Tónlistarskólans að- stoðar við sýningarnar undir stjórn Roars Kvam. Leikstjóri er Theódór Júlíus- son og leikmyndir gerir Þráinn Karlsson. Búningahönnuðir eru tveir, Freygerður Magnúsdóttir, Ræningjarnir í Kardemommubænum á Akureyri. sem sér um búninga á mannfólk- ið, og Anna G. Torfadóttir sér um dýrabúningana. Aðalleikendur eru Sunna Borg, sem leikur Soffíu frænku, og ræningjana þrjá leika þeir Þráinn Karlsson, Bjarni Ingva- son og Gestur E. Jónsson. Björn Karlsson leikur Bastian bæjar- fógeta og frú Bastian munu þær Þórey Aðalsteinsdóttir og Signý Pálsdóttir skipast á að leika. Marinó Þorsteinsson leikur Tobías gamla í Turninum. Ljósameistari er Viðar Garð- arsson. G.Berg. Varöberg skrifar Friðarhópi kirkjunnar: Vill taka þátt í friðarmóti og kynna 6 málefni SÉRA Bcrnharöur Guömundsson, biaöafulltrúi þjóökirkjunnar og forgöngu- maður í Frióarhópi kirkjunnar, og Högni Oskarsson, læknir, forgöngumaöur í Samtökum lækna gegn kjarnorkuvá, fóru þess á leit viö forsvarsmenn V'arðbergs, félags áhugamanna um vestræna samvinnu, aö áfram yröi rætt um þátttöku félagsins í friöarmóti á páskum. Fóru þessar viöræöur fram um helgina. í fyrradag samþykkti stjóm Varðbergs aö heimila Friöarhópi kirkj- unnar að bera þaö enn einu sinni upp í „samstarfshópi" um friðarmótiö aö Varöberg verði formlega aðili aö því. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins átti að bera tillögu um þátttöku Varðbergs í friðarmótinu upp á fundi „samstarfshópsins" í gærkvöldi, miðvikudagskvöld. Var það í þriðja sinn sem hópurinn ræddi máíið, en tvisvar hefur Varðbergi verið ýtt til hliðar. í fyrra sinnið með því að breytt var „friðarávarpi" sem formaður Varðbergs taldi ekki hindrun fyrir aðild félagsins og í annað skipti með því að bjóða félaginu „auka- aðild" að friðarmótinu. Eftir viðræður stjórnarmanna í Varðbergi við þá séra Bernharð Guðmundsson og Högna Óskars- son tók stjórn félagsins ákvörðun um að láta enn á það reyna innan „samstarfshópsins", hvort félagið fengi fulla aðild að friðarmótinu enda verði félaginu falið af hópn- um að kynna sex sérgreind mál- efni og velja ræðumenn til þess. Hér fer á eftir orðsending Varðbergs til Friðarhóps kirkj- unnar: „Stjórn Varðbergs fer þess á leit við friðarhóp íslensku þjóðkirkj- unnar að hann fylgi eftir frum- kvæði sínu, um að Varðberg fái að taka fullan þátt í undirbúningi og framkvæmd friðarmóts, með því Menntamálaráóherra um útvarpslagafrumvarpió: „Viðlíka frelsi og fjölbreytni og hjá prentuðum fjölmiðlum RÚV stenzt hvorki samkeppni um starfsfólk né efni, sagöi þingmaður Kvennalista Grundvallarbreytingin í þessu útvarpslagafrumvarpi er fólgin í því aö fleirum en RÚV (ríkisútvarpi) verði veitt leyfi til reksturs útvarps, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps, sagöi Ragnhildur Helgadóttir efnislega, er hún mælti fyrir stjórnarfrumvarpi til útvarpslaga í neðri deild Alþingis í gær. Frumvarpið er samið af útvarpslaganefnd, sem haföi þrennt aö leiöarljósi: 1) aö RÚV hafi áfram skyldur um fjölbreytta dagskrá hljóðvarps og sjónvarps, er nái til landsmanna allra, 2) aö fleiri en RÚV fái rétt til rekstrar hljóðvarps og sjónvarps, að uppfylltum settum skilyröum, 3) aö ein útvarpslög fjalli um allan útvarpsrekstur í landinu. Kagnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra, rakti aðdraganda málsins, skipun útvarpslaga- nefndar 1981, starfsemi hennar og niðurstöður sem og efnisatriði frumvarpsins. Ráðherra greindi frá fjölmiðlaráðstefnu í Stokk- hólmi um sl. helgi, sem fjallaði um nýja tækni í sambandi við útvarp og sjónvarp, einkum notkun gervi- hnatta. „Það sem einkenndi allt það, sem fram kom á þessari ráð- stefnu," sagði menntamálaráð- herra, „næstum að segja hverja skoðun sem menn höfðu á efnis- atriðum, var þetta, að tækni- þróunin gerði beinlínis óhjá- kvæmilegt, að afnema einkarétt ríkisins á útvarpi og sjónvarpi. Hinsvegar greindi menn nokkuð á um þátt auglýsinga ...“ Ráðherra tók fram að þó að þetta frumvarp væri flutt sem stjórnarfrumvarp hafðu þing- menn stjórnarflokkanna óbundn- ar hendur, að því er varðar af- stöðu til málsins. Afstaða manna til þessa máls fer ekki eftir flokkspólitískum línum. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks hafi þegar lagt fram breytingartillög- ur. En meginmálið er að létta af algjörum einkarétti RÚV á þess- ari fjölmiðlun, þannig, að við meg- um njóta viðlíka frelsis og fjöl- breytni um efni, sem flutt er á öldum ljósvakans, eins og er um fjölmiðlun í formi prentaðs máls. Það ætti ekki á okkar dögum að vera neitt óeðlilegra að frelsi ríki í þessari tegund fjölmiðlunar en tjáningarfrelsi ríki í öðru formi hennar. Ingvar Gíslason (F), fyrrv. menntamálaráðherra, kvaðst fylgjandi meginefni frumvarpsins, sem samið væri af nefnd, er hann hefði skipað sem ráðherra. Það væri góður grundvöllur undir skynsamlega umræðu um út- varpsmál almennt. Hinsvegar hafi hvorki náðst samkomulijg um frumvarpið í þingflokki Fram- sóknarflokks né fyrrverandi ríkis- stjórn og þessvegna hafi það ekki verið lagt fram í sinni ráðherratíð. Ingvar kvaðst ekki sjá neitt rangt við það að takmarka einkarétt RÚV en hinsvegar þyrfti að búa svo um hnúta að RÚV gegndi áfram því frétta-, menningar- og öryggishlutverki í þágu lands- manna allra, er það hafi sinnt af prýði i hálfa öld. Hjörleifur Guttormsson (Abl) kvað Alþýðubandalagið andvígt mikilvægum atriðum í þessu frumvarpi. Ekki sízt þeim, að fjár- Ragnhildur Helgadóttir magnið eigi að ráða dreifingu frétta og fróðleiks á öldum ljós- vakans, eins og nú gerðizt í blaða- heiminum. Bót væri í máli að stjórnarliðið væri sundrað í af- stöðu til málsins. Máske fengist, þessvegna, fram breyting við hæfi á frumvarpinu. Páll Pétursson (F) kvaðst ekki vilja standa að neinu er veikti stöðu ríkisfjölmiðla, þó skapa mætti svigrúm fyrir aukinni fjöl- breytni á þessum vettvangi. Hlut- verk útvarsréttarnefndar, sem meta ætti umsóknir um útvarps- rekstur (hljóvarp & sjónvarp) gæti allt eins yerið í hendi út- varpsráðs, að sínu mati. Hann kvaðst gjarnan vilja standa þann veg að afgreiðslu frumvarpsins að staða ríkisfjölmiða væri betri eftir en áður. Kristín Halldórsdóttir (Kvl) kvað RÚV vanbúið að mæta samkeppni við fjársterka samkeppnisaðila. Það gæti hvorki keppt við slíka aðila um starfsfólk né efni. Búast mætti við „atgervisflótta" frá RÚV. Ef samkepnnisaðilar keyptu upp allt bezta efnið til flutnings myndu þeir einnig krækja í aug- lýsingaþáttinn, á kostnað RÚV. Hún kvað frumvarpið nánast kippa fótunum undan starfsemi RUV. Kristín Kvaran (BJ) sagði efnis- lega, að undarlegt væri að hlusta á, hvort eða hvernig ætti að rýmka rétt til rekstrar útvarps þegar öll lönd umhverfis okkur væru í önnum við að hagnýta sér tækni- nýjungar á þessum vettvangi. Hún gerði athugasemd við skömmtun- arnefnd, sem úthluta ætti slíkum leyfum. Bandalag jafnaðarmanna hefði flutt breytingartillögur, sem m.a. gerðu ráð fyrir því „að öðrum aðilum verði heimilt að annast út- varp skv. skilyrðum 3.-6. grein- ar“. Jón Baldvin Hannibalsson (A) kvað frumvarpið gjarnan hafa fyrr mátt fram koma, þar eð það þurfi talsverða umfjöllun í þing- inu. Ég var hlynntur meginstefnu útvarpslaganefndarinnar, sagði hann efnislega, en efasemdir hafa sótt á, ekki sízt með tilkomu fjöl- miðlarisa á hægri væng, hvar Morgunblaðið, Dagblaðið, stærsti auðhringur landsins, SÍS, og Reykjavíkurborg náðu saman. Búist var við að umræða um þetta mál stæði yfir síðdegið og kvöldið í gær, en þess var freistað að ljúka umræðu. að láta enn á það reyna hvort fé- laginu verði veitt full aðild. Til þess að auðvelda friðarhóp- unum að breyta fyrri ákvörðun sinni, um að Varðberg geti ekki orðið fullgildur aðili að friðarmót- inu, mun félagið ekki gera neinar athugasemdir við nokkuð það sem ákveðið hefur verið á sameiginleg- um fundum friðarhópanna, varð- andi framkvæmd og dagskrá, né heldur þau verkefni sem einstöku friðarhópar eða einstaklingar inn- an þeirra hafa tekið að sér að vinna í þágu mótsins. Augljós skortur er á fræðsluer- indum í dagskrá. Félagið leggur áherslu á að eftirfarandi málefni verði kynnt og mun sjá um að út- vega ræðumenn fyrir þau: 1. Utanríkisstefna íslendinga og framlag til friðarmála. 2. Afvopnunarviðræður. Söguleg umfjöllun. Helstu samþykktir og efni þeirra. 3. Afvopnun. Forsendur og hug- myndir um framkvæmd. 4. Samanburður á utanríkisstefnu stórveldanna. 5. Hugmyndir um kjarnorku- vopnalaus svæði. 6. Siðferðileg afstaða kristinna manna til stríðs, hefðbundinna vopna og kjarnorkuvopna. Að sjálfsögðu mun Varðberg leggja ríka áherslu á að sérfróðir menn fjalli um ofangreinda mála- flokka og treystir því að hið sama gildi um framkvæmd annarra friðarhópa. Ofangreint verkefni Varðbergs verður ekki slitið úr samhengi við aðild félagsins að friðarmótinu. Þessi ákvörðun stjórnar er til komin vegna þess að óformlegar viðræður fulltrúa Varðbergs og fólks úr friðarhópunum, virðast benda til þess að einhver áhugi sé fyrir að Varðberg fái fulla aðild að friðarmótinu. Því taldi stjórn fé- lagsins rétt að leggja áherslu á að leita samkomulags á þennan hátt, svo friður verði síður deiluefni. Samþykkt á stjórnarfundi 3. apríl 1984. Stjórn Varðbergs.“ Athugasemd frá vara- ræðismanni Spánar Hr. ritstjóri. í tilefni greinar Ola Flage í blaði yðar miðvikudaginn 4. apr- íl óskast eftirfarandi birt í blað- inu: Undirritaður var skipaður vararæðismaður Spánar hinn 1. febrúar 1983, og var sú skipun staðfest af utanríkisráðherra, Ólafi Jóhannessyni, 10. febrúar 1983. Það er því á misskilningi byggt hjá Ola Flage að „enginn spænskur konsúll sé hér á landi.“ Það kann að valda misskiln- ingi hans að frá því að Magnús Víglundsson fyrrverandi vara- ræðismaður lést og þar til skip- un undirritaðs tók gildi leið tæpt eitt ár og á þeim tíma var enginn spænskur ræðismaður hér á landi. Með þakklæti fyrir birtinguna, Ingimundur Sigfússon, vararædismaður Spánar á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.