Morgunblaðið - 05.04.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 1984
45
»1 W? , JJ
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
SÍBS og Vinnuheimilið að Reykja-
lundi efna til ferðar í samvinnu við
Ferðaskrifstofuna Útsýn til
38
MORGUNBLAÐIO, FOSTUOAGUR 23 MARZ ll
Ein lftíl hugvekja handa
ábyrgum alþingismönnum
— eftir tíaldvin Þ.
Krixtjánxson
Mortfunblaðið birti rétt fyrir
hátiðarnar i vetur átakanlegar
frásairnir aI lifsaðstoðu nokkurra
namalmenna hér I hofuðborKinni
Komu þær vlat ýmsum á óvart og
runnu áreiðanlejta moritum til
rifja. Fleiri áþekkar frásaRnir
hafa birzt i bloðunum siðan. Allar
eru þipr þó aðeins einstök dæmi úr
morjjum, sem fyrirfyndust ef eftir
væri leitað og grannt skoðað.
Fjoldi jtamalmenna hirist hér ojj
•r:-.r^finn i hinni öm-
eiga i fullu tré með að framfleyta
fjolskyldum sinum af heiðarleika
<»K fullri ráðdeild.
„Kinstæða foreldra" — þá mis-
litu hjorft — minnist ég ekki á, en
vísa til greinar Jónasar Guð-
mundssonar í DV fyrir stuttu
Að lokum kemur svo sú mann-
tegundin, sem hljóðust er i þrenjt-
injtum sinum og fæsta á formæl-
endurna, gamla fólkið, eða a.m.k.
hluti þess.
Umbeðinn komst ég nýlega — i
sambandi við siðasta skattframtal
— i snertingu við gömul hjón, um
hálfáttrætt. Þau eru nú alls ekki
útávið talin standa á nástrái Þau
ei<ra nálega alveg skuldlausa ibúð
laj<ið okkar ætlar þessum hálf-
áttræðu hjónum mánaðarlega til
fæðis, klæðis, hvers konar „uppá-
koma“, að ógleymdri „menning-
arneyzlunni*, ef þau hefftu heilsu J
til að notfæra sér hana að ein-
hverju leyti. Það eina sem þau I
eiga eftir til allra þessara hluta I
eru ellilaunin hans eina, að við- I
bættum I94,- kr. — segi og skrifa |
eill hundrað níut'u og fjórum krón
um. Þetta cr nú dæmi um „vel- I
aella" fólkið. Hvað mun þá uml
hitl?
Varðandi öll dæmi og allt h.i'
um fjárhagsafkomu fólks.
skattamálin afgerandi og
skiptandi þáttur. En á þ
Hugvekjuþankar
N.N. skrifar:
„Velvakandi.
Morgunblaðið birti smágrein
eftir mætismanninn Baldvin Þ.
Kristjánsson, föstudaginn 23.
mars síðastliðinn. Greinin hét
„Ein lítil hugvekja handa ábyrg-
um alþingismönnum" og er skel-
egg og skorinorð hugvekja, einsog
höfundar var von og vísa, auk þess
sem hún vekur væntanlega alla,
sem lesa hana, til alvarlegrar um-
hugsunar um þjóðarhag. Baldvin
segir þar frá tekjum og föstum
lögboðum gjöldum hálfáttræðra
hjóna, sem hann þekkir. Hann tel-
ur að mánaðarleg greiðsla þeirra á
fasteignaskatti af eigin íbúð sé
2.628 krónur. Nú veit ég ekki betur
en að skattur slíkur sem þessi sé
ekki greiddur mánaðarlega heldur
aeðins þrisvar á ári, það að segja
15. janúar, 1. mars og 15. apríl að
því er mig minnir. Baldvin kemst
einnig að þeirri niðurstöðu að hjón
þau er hann tekur dæmi af, hafi
einungis 3.733 krónur sér til lífs-
viðurværis á mánuði, að föstum
gjöldum frádregnum.
Mér er einnig kunnugt um göm-
ul hjón, sem ekki eru hálfáttræð
heldur um það bil hálfníræð. Þau
eiga það sameiginlegt með hjónum
Baldvins að eiga skuldlausa eða
skuldlitla íbúð og nokkrar krónur
í sparisjóði, sem að vísu hafa oltið
ansi hratt undan brekkunni síð-
astliðin eitt til tvö ár, vegna ým-
issa orsaka og eru nú 40—50%
færri en áður. Þessi gamalmenni
eiga það einnig sameiginlegt með
hjónum Baldvins að húsbóndinn
er fyrrverandi ríkisstarfsmaður
og húsfreyjan fyrrverandi verka-
kona og því fá þau bæði greiðslur
úr verðtryggðum lífeyrissjóðum,
ellilaun og lítilfjörlega tekju-
tryggingu að auki.
Þegar litið er á föst útgjöld
þessara gamlingja og jafnframt
tekjur, virðist mér að þau hafi til
jafnaðar mánaðarlega yfir árið
u.þ.b. þrisvar sinnum hærri upp-
hæð til fæðis og klæðis, blaða og
bóka, en þá sem Baldvin nefnir,
þ.e. 9—10 þúsund krónur en ekki
Enga þursa-
tónlist í morg-
unútvarpið
3.733 krónur. Vonandi sjá það allir
sem sjá vilja, að hálfníræð hjón
eru í flestu upp á aðra komin, lifa
engu bílífi á níu til tíu þúsund
krónum. En með ítrustu aðgætni
og frestun á þokkalegu og jafnvel
nauðsynlegu viðhaldi íbúðar sinn-
ar, má ná endum saman. Og þann-
ig vilja þau standa meðan stætt
er.
Ekkert nema gott eitt er um það
að segja að fá skrattann málaðan
á vegginn svona við og við, óþarft
ætla ég þó að gera hann svartari
og svipljótari hverju sinni, en efni
standa til. Að alhæfa einstök
slæm og stundum afleit tilfelli er
enn óþarfara enda gerir Baldvin
það ekki í sinni hugvekju."
Vinnuveitendur
svari umsóknum
Guðjón Sigvaldason skrifar:
„Ég vil koma á framfæri við
vinnuveitendur í Reykjavík sem
og annars staðar þeirri ósk minni,
að þeir láti svo lítið að svara þeim
umsóknum sem berast, er þeir
auglýsa eftir starfsfólki. Einnig
vil ég láta þess getið að ég tel það
hreinustu óskammfeilni að biðja
fólk um allskyns persónulegar
upplýsingar og virða það svo ekki
svars.
Þetta er mín reynsla, en ég hef
sótt um hinar ýmsu stöður síðast-
liðna tvo mánuði. Þó vil ég taka
það fram að ekki eru allir vinnu-
veitendur undir sama hatti, sumir
láta svo lítið að svara, en draga
það svo lengi að maður hefur
hvort sem er gefið upp alla von um
vinnuna, þegar svarið berst. Þó
eru einstaka aðilar sem svara
strax, en það er þá í flestum til-
fellum auglýst undir nafni fyrir-
tækisins. Og ég er kominn á þá
skoðun að þeir séu undantekning-
in sem sannar regluna.
Vil ég með þessum orðum mæl-
ast til þess að vinnuveitendur, sem
auglýsa eftir starfsfólki nú og í
framtíðinni, svari öllum umsókn-
um sem berast, því tími okkar er
dýrmætur, sem og ykkar.
Virðingarfyllst."
Rauðmagi
til sölu
Jónas Jósteinsson skrifar:
„Nú eru veiðar á rauðmaga
hafnar bæði í Reykjavík og annars
staðar og þykir mörgum það góður
matur. I Reykjavík er nokkur
veiði.
Ég hef komið í vörina á
Grímsstaðaholti og keypt þar
rauðmaga. Okkur hjónunum þykir
best að fá hann glænýjan upp úr
bátnum. Einn helsti veiðimaður-
inn þarna er Björn Guðjónsson
sem býr á Ægissíðu 66. Hann mun
hafa mörg net úti og margir kaupa
rauðmagann af honum, meðal
annars ég.
Fyrir nokkrum árum festi ég
spjald á dyrnar á netaskúrnum
hans, þar sem segir að hann selji
rauðmaga. Spjaldið er þarna enn
því Björn er mjög þægilegur í við-
móti.
Vor
A Grímsstaðaholt, þegar grásleppan veiðist,
er gaman að koma og litast um.
Gamli tíminn þar segir þér sögu,
sær spilar undir, ef raular þú bögu.
Haust
Krían er horfin, komið er haust,
kvakar ei lóan í mónum.
Bátarnir koma bráðum í naust,
er bregst þeim veiðin í sjónum “
Gullkornid
Sumir sjá engla þar sem aðrir
sjá ekki annað en tómið.
— Ruskin (1819—1900),
enskur rithofundur. —
SIG6A V/öGA £
Costa del Sol
á Suöur-Spáni 29. apríl nk. í 18
daga.
Til aðstoðar verða hjúkrunarfræðingar og starfs-
fólk frá Reykjalundi.
Frekari upplýsingar fást á skrifstofu
SÍBS Suðurgötu 10, sími 22150 og
Reykjalundi sími 66200.
Austurstræti 17, Reykjavík,
sími 27209.
Litli liósálfurínn
hefur sannað ágæti sitt á íslandi.
Lltll Ijósálfurlnn gefur þér góða birtu við bóklestur án
þess að trufla aðra, frábær í öll ferðalög og sumarbústað-
inn. KJörin gjöf.
Litll Ijósálfurlnn er léttur og handhægur, getur jafnt
notað rafhlöður og 220 volta rafstraum. Honum fylgir
aukapera, hylki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig
fást geymslutöskur.
Litll Ijósálfurinn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun
og í Borgartúni 22.
HiLDA PAKKINN
Jónína P., Hraunbæ, skrifar:
„Til Velvakanda.
Geturðu ekki komið þeirri ósk á
framfæri að þursatónlist glymji
ekki yfir manni í morgunútvarp-
inu. Þessir þættir eru svo ágætir
hjá unga fólkinu og þar sem ég
kemst ekki út, hlusta ég mikið á
útvarpið.
f morgunútvarpinu er oft mikill
fróðleikur og fallegir þættir, en
þegar þursapoppið dynur svo allt í
einu yfir mann, er ég alveg búin að
vera.
Kærar þakkir."