Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 3

Morgunblaðið - 11.04.1984, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984 51 TlLGtÖGGVUNAR Til að sjá eru páskaegg eiginlega ekki mjög frábrugðin hvert öðru. En vegna þess hve þau eru ólík að bragði og innihaldi er mikilvægt að geta greint á milli tegunda. Hér fylgir því ofurlítill leiðarvísir um páskaegg frá Nóa og Síríus. Verði ykkur að góðu! jmöd Síriui öruggasta leiðin er auðvitað að kaupa egg, brjóta það og bíta í. Pá finna bragðlaukarnir hvort um rétt egg er að ræða En það má llka treysta því, að ef miði með 5 litlum og sætum ungum prýðir pokann, er eggið frá Nóa Síríus. Poki úr glæru plastefni. Ganga má úr skugga um að um réttan poka sé að ræða, með því að blása hann upp, halda fyrir opið og slá slðan þéttingsfast á botninn með lausu höndinni. Á pokinn þá að gefa frá sér hátt og hvellt hljóð til merkis um að hann sé frá Nóa Síríus. Súkkulaðibragðið á að minna ákveðið á bragðið af Síríus hjúpsúkkulaði og Pippi. Kúlur, kropp, konfekt, karamellur og brjóstsykur benda eindregið til þess að eggið sé frá Nóa Síríus. Pó því aðeins að bragðið sé Ijúffengt. Gulur ungi af vandaðri þýskri gerð. Athugið þó að aðrir framleiðendur hafa einnig gula unga á eggjum sínum. Hnyttinn, rammíslenskur málsháttur skráður með svörtu letri á litaðan borða XIM <UOÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.