Morgunblaðið - 11.04.1984, Page 19
i t '«\rv
í\*>
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984
67
Býður einhver betur?
— eftir Svanhildi
Óskarsdóttur
Af hverju virkar menntakerfið
ekki? Það er vegna þess að það
varð til á öðrum tíma, tíma fram-
leiðsluþjóðfélagsins. A tíma þegar
mikilvægast var að framleiða sem
mest með sem minnstri fyrirhöfn.
Þá var hlutverk kennarans mötun
með framleiðni sem tilgang. Góð-
ur kennari skilaði góðum fram-
leiðsluvélum. En breyttir tímar
kalla á ný form.
Tímaskekkja
í dag búum við í þjónustuþjóð-
félagi. Staðreyndir svo sem: Auk-
inn námsleiði, meiri heimska,
meiri sofandaháttur, meira ólæsi
er afleiðing þeirrar tímaskekkju
sem lítur á manninn sem hlut
(framleiðsluvél).
Fjárfesting í menntun
Við vitum að hlutir læra ekki.
Þess vegna hljómar það dálítið
undarlega þegar talað er um að
fjárfesta í menntun. Það er eðli-
legt að fjárfesta í byggingum og
vélum, en ekki í fólki, nema litið sé
á fólk sem þræla, sem sómi sér
best á „uppboðspallinum". Þetta
er sami hugsunarháttur sem segir
að þú megir ekki lenda í bílslysi,
þar sem þjóðfélagið er búið að
fjárfesta í þér og hagkvæmast er
að viðhaldskostnaðurinn sé í lág-
marki.
Mismunandi
manngeröir
Nú er þörf fyrir leiðbeinendur
með góða sjálfsstjórn, hæfni í
mannlegum samskiptum og vak-
andi athygli. Leiðbeinendur sem
hafa skilning á því að til eru mis-
munandi manngerðir með mis-
munandi þarfir og hæfileika.
Svipað og góður garðyrkjumaður
þekkir hver eru ákjósanlegustu
vaxtarskilyrði hinna mismunandi
plöntutegunda. Sumar þrifast best
við mikinn hita, aðrar minni,
sumar við mikinn raka, aðrar
minni o.s.frv. En allar eiga það
sameiginlegt að þær vaxa best
þegar þeim líður vel.
Heimskan eykst
Hvers vegna er þetta mikil-
vægt? Vegna þess að þjóðin er að
verða heimskari þrátt fyrir lengri
skólagöngu og betri tækjabúnað
og fólki líður verr og verr í skóla-
kerfinu, þrátt fyrir bættan aðbún-
að. Við erum með staðnaðar stofn-
anir sem tilheyra framleiðslu-
þjóðfélaginu, en lifum í raunveru-
leika þjónustuþjóðfélags. Þess
vegna stoðar lítið að bjóða upp á
valgreinar eða fækka í bekkjunum
á meðan áfram er litið á manninn
sem hlut. Þess vegna þarf að
breyta kerfinu. Ekki bara mennta-
kerfinu, heldur öllu þjóðfélags-
kerfinu.
Maðurinn hefur
möguleika
Maðurinn er ekki hlutur eða
framleiðslutæki, heldur lífvera
með ótal vaxtarmöguleika. Mögu-
leika sem geta leitt til aukinnar
sköpunar, meira lýðræðis, raun-
verulegs lýðræðis og óþrjótandi
lærdómsþorsta.
ManngildiÖ nr. 1
Þetta ómennskulega kerfi hefur
áhrif á okkur öll. Það heftir tján-
ingu okkar. Við verðum að sam-
einast um leiðir til breytinga. Með
það fyrir augum verður haldin
ráðstefna í Félagsstofnun stúd-
enta þann 14. apríl kl. 13.00. Þeir
sem hafa lifandi áhuga á því að
manngildissjónarmiðið ráði í
menntun, eru hvattir til að íhuga
nú þegar hvað gæti virkað sem
raunveruleg lausn, koma á ráð-
stefnuna og taka þátt í almennum
umræðum og leggja sínar lausnir
fram.
Sranhildur Óskarsdóttir er fóstra.
f
FLUGLEIÐIR
AUGLÝSA
FLUG OG HÚSBÍLL
SPM RAE )UI ÍÓTELKOSn NAÐINN OG LEIGÐU
Flugleiöir gera þér fært aö komast í ódýrt en þægilegt
sumarleyfi. Leigðu húsbíl og aktu landa á milli. Þaö fer
vel um alla fjölskylduna. Húsbíllinn er rúmgóður: góö
svefnaöstaða, eldhús og snyrting.
Flug og húsbfll miöast við þrjá viðkomustaði Flugleiða
í Evrópu: Luxemborg, Frankfurt og Kaupmanna-
höfn.
Flug og húsbill er ódýr ferðakostur!
Dæmi:
4ra manna fjölskylda (hjón og 2 börn á aldrinum 2-11
ára) flýgur til Luxemborgar með Flugleiðum og leigir
þar húsbil (Hymercar Ford Transit) í 2 vikur. Verðdæmi
þessarar 4ra manna fjölskyldu litur þannig út:
kr. 16.386 x 4 = kr 65.544 - kr. 9.400 (afsláttur
v/þarna) = 56.144,-
Innifalið: Flug + húsbill + km-gjald + söluskattur +
kaskótrygging.
Ekkl innifalið: Bensín + flugvallarskattur.
í húsbílnum er gott svefnrými fyrir alla meðlimi fjöl-
skyldunnar (1-5 manns), einnig fyrirtaks eldunarað-
staöa og snyrting. Húsbíllinn lækkar ferðakostnað
fjölskyldunnar: Enginn hótelkostnaður og lægri matar-
kostnaður1
Farðu með alla fjölskylduna í sumarleyftsferð um
Evröpu í rúmgóðum og þægilegum húsbíl!
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Dæmi um verö fyrir 4ra m.fjölskyldu:
FLU(j OG HÚSBILL
frakr.56.144-
i
0