Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
Verður yfirvinnu-
bann hjá VR í sumar?
SAMKOMULAG þad scm Versl-
unarfclag Rcykjavíkur og kaup-
mcnn gcrðu mcÁ sér um lcngingu
vinnutíma í haust, er verslunum
var í sjálfsvald sett hvort þær
hcféu opið á laugardögum til
klukkan Ifi eöa ckki, rcnnur út 1.
júní na'stkomandi og munu á
næstunni fara fram viðræður milli
VR og kaupmanna um hvcrt fram-
haldið skuli vera. í VR-blaðinu, fc-
lagsblaði VR, er spurt í fyrirsögn,
þar scm sagt er frá þcssum vænt-
anlegu viðræðum, Verður yfir-
vinnubann í sumar?
Er í fréttinni leitt að því get-
um að VR-félagar verði lítt
hrifnir af því í sumar að vinna á
laugardögum, þrátt fyrir að þeir
séu ekki of sælir af launum sín-
um og segir að leiði viðræðurnar
ekki til niðurstöðu hafi yfir-
vinnubann verið einn af þeim
möguleikum sem nefndir hafi
verið. Segir ennfremur að von-
andi þurfi ekki til slíkra aðgerða
að koma til að „samningar náist
um réttlætismál eins og það, að
verslunarfólk eigi sína tveggja
daga helgi í sumar eins og aðrar
starfsstéttir".
Næst samkomulag um fjárlagagatið í dag?
„Ekkert að gera annað en
að hrökkva eða stökkva“
STÓÐUGIR fundir voru í gær hjá
ráðherrum, formanni Sjálfstæðis-
flokksins, Uorsteini Pálssyni, og
embættismönnum um fjárlagagat-
ið margumtalaöa, og eru hliðstæð
fundahöld ráðgerð í dag með það
fyrir augum að geta nú skilaö sam-
eiginlcgum tillögum stjórnarflokk-
anna um hvernig skuli fyllt í þetta
1.800 milljóna gat.
„Við berjum þetta áfram eins
og hægt er, og mín vegna getur
það gerst að við náum saman
um sameiginlegar tillögur á
morgun," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
í samtali við blm. Mbl. í gær.
Forsætisráðherra sagðist telja
að viðræður aðila væru nú það
vel á veg komnar, að úr þessu
væri ekkert annað að gera en að
hrökkva eða stökkva.
Auk forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins,
Þorsteins Pálssonar, tóku þátt í
fundunum þeir Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra,
Agdestein
vann Hort
MADIIK dagsins á alþjóðlega skák-
mótinu í Osló í gær var eini Norðmað-
urinn á mótinu, hinn 16 ára gamli Sim-
en Agdestcin, sem lagði tékkneska
stórmeistarann Vlastimil Hort að velli í
47 leikjum.
Önnur úrslit í gær urðu: Jón L.
Árnason og Húbner gerðu jafntefli í
29 leikjum og sömuleiðis Adorjan og
Karptov í aöeins 11 leikjum. Niek de-
Firmian vann Svíann Wedberg í 36
leikjum, en biðskák varð hjá Miles
og Makarichev. Enski stórmeistar-
inn var sigurviss, þegar skákin fór í
bið. Ef hann vinnur verður hann
einn í efsta sæti. Staðan: 1. Karpov
3'/4 v. 2. Miles 3 v. og biöskák, 3.
deFirmian 3 v., 4. Makarichev 2'h v.
og bið. 5.-7. Jón, Agdestein og Ag-
orjan 2'A v., 8. Húbner 2 v., 9. Hort
1 'h v., 10. Wedberg 1 v.
Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, og embættismennirnir
Jón Sigurðsson, Þórður Frið-
jónsson, Geir Haarde og Sigurð-
ur Þórðarson.
Hátíðirnar ganga nú í garð. Margir hyggja á skíöaferðir og hafa á fimmta þúsund manns pantað far með
Flugleiðum. Mikil örtröð var á afgreiðslu Flugleiða I gær og gekk flug samkvæmt áætlun. MorpinbiaAíA/júifuH.
*
Aætlun Þjóðhagsstofnunar um skattbyrði einstaklinga:
Útsvarsbyrði eykst um 41% milli ára,
en laun hækka um 20% á sama tíma
ÚTSVARSBYRDI á milli áranna
1983 og 1984 eykst um 41% á sama
tíma og laun hækka aðeins um 20%
samkvæmt því sem Boili Bollason
hagfræðingur hjá þjóðhagsstofnun
hefur upplýst Morgunblaðið.
„Við fylgjumst alltaf með
skattbyrðinni í heild og þar á með-
al náttúrlega með útsvari," sagði
Bolli Bollason í samtali við blm.
Mbl. í gær um þetta mál, „og ef við
lítum sérstaklega á útsvör þá voru
heildarútsvör sveitarfélaga í fyrra
2.133 milljónir, en samsvarandi
tala í ár er 3.000 milljónir, þannig
að á milli ára hækkar útsvar um
41%.“
Bolli sagði að ef útsvarstalan
væri borin saman við hækkun
beinna skatta kæmi í ljós að þeir
hækkuðu um rúm 20%. Því væri
hægt að álykta sem svo að skatt-
byrði útsvars hækkaði um 41% á
sama tíma og laun hækkuðu um
20%. Bolli sagði jafnframt að
skattbyrði ríkisskattanna í ár yrði
sú sama og í fyrra, en útsvars-
AÆTLIIN IIM SKATTBYRDI EINSTAKLINUA 1974—1984
1975 1976 MILUÓNIR KRÓNA 1977 1978 1979 1980 Bráðab. 1981 1982 M.v. br. M.v. óbr. álagn. í Áætlun álagn.í samr. v. 1983 skv. frv. tekjubr.
1. Skattar t. sveitarf. 1) 88,1 115,4 155,4 233,4 380,8 618,2 959,0 1,526 2,443 3.450® 3,450®
2. Skattar til ríkisins 2) 47,1 85,0 95,1 221,3 350,3 524,5 795,5 1,363 2,025 2,390 2.4604
3. Alagdir skattar alls 135,2 200,4 250,5 454,7 731,1 1142,7 1754,5 2,889 4,468 5,840 5,910
4. Heildart. einstakl. 1161,0 1562,0 2320,0 3680,0 5592,0 8867,0 14210,0 22,480 35,790 43,170 43,170
5. Álagðir skattar sveitarfélaKa í hlutfalli við: a) Tekj. fyrra árs, % 10,1 9,9 9,9 10,1 10,4 11.1 10,8 10,7 10,9 9,6 9,6
b) Tekj. Kr.árs, % 7,6 7,4 6,7 6,3 6,8 7,0 6,8 6,8 6,8 8,0 8,0
6. Álagðir skattar ríkisins í hlutfalli a) Tekj. fyrra árs, % 5,4 við: 7,3 6,1 9,5 9,5 9,4 9,0 9,6 9,0 6,7 6,9
b) Tekj. gr.árs, % 4,1 5,4 4,1 6,0 6,3 5,9 5,6 6,1 5,7 5,5 5,7
7. Álagðir skattar alls í hlutfalli viö:
a) Tekj. fyrra árs, % 15,5 17,2 16,0 19,6 19,9 20,4 19,8 20,3 19,9 16,3 16,5
b) Tekjur Kr.árs, % 11,7 12,8 10,8 12,4 13,1 12,9 12,4 12,9 12,5 13,5 13,7
1) Útsvar ofí fasteignaskattar. 2) Tekju- ok eignarskattar, sjúkratryKKÍnKajcjald, Kjald í Frkv.sj. aldraðra. 3) í áætlun fyrir 1984 er gert ráð fyrir að álajjninK skatta sveitarfélaga hækki ekki að fullu með breytinfcuni tekna oj?
fasteÍKnamats milli áranna 1982 og 1983; þanniner miðaA við, að álaRninttarhlutfall útsvars, brúttð, lækki um sem næst
1 prósentustit! á árinu. Sðmuleiðis er reiknað með heldur meiri afslætti við álattninttu fasteignaKjalda, þannif; að
hækkunin verði minni en sem nemur hækkun fasteÍRnamats.
41 Hér er ekki reiknað með sérstakri skattalækkun/lvilnun vegna aukinna barnabótattreiðslna til einstæðra foreldra, sem
nemur um 130-135 m.kr.
byrðin ykist aftur til muna.
í áætlun Þjóðhagsstofnunar um
skattbyrði einstaklinga á þessu
ári er gert ráð fyrir að álagn-
ingarhlutfall útsvars, brúttó,
lækki um sem næst eitt prósent.
Heildarskattbyrði einstaklings er
talin verða um 13,7% miðað við
tekjur þessa árs, og þar af vegna
skatta sveitarfélaga, útsvars og
fasteignaskatta um 8%. Á síðast-
liðnu ári nam skattbyrðin 12,5%,
en þá voru skattar sveitarfélaga af
heildartekjum 6,8%. Bæði árin eru
skattar ríkisins taldir nema um
5,7% af heildartekjum einstakl-
inga.
Fyrstu prestvígðu
hjón í kirkjusögunni
SIGURÐUR Árni l»órðarson, guð-
fræðingur, verður vígður til prest-
þjónustu í Ásaprcstakalli í Skaftár-
tungum á skírdag. Athöfnin hefst kl.
11.00 í Dómkirkjunni. Biskup fs-
lands, l’étur Sigurgeirsson, vígir, en
vígsluvottar eru sr. Fjalarr Sigur-
jónsson, prófastur, dr. Einar Sigur-
björnsson, prófessor, sr. Þórir Step-
hcnscn, dómkirkjuprestur, og sr.
Hanna María l'étursdóttir sem lýsir
vígslu, segir í frétt frá Kiskupsstofu.
Sigurður Árni er eini umsækj-
andinn um Ásaprestakall, en hef-
ur verið settur til þess að þjóna
því frá 1. apríl sl., þar sem beiðni
kom frá heimamönnum þess efnis
að kosningu yrði frestað fram yfir
sauðburð. Fyrrverandi sóknar-
prestur, sr. Hanna María Péturs-
dóttir, hafði fengið lausn frá sama
tíma.
Sigurður Árni Þórðarson er
Reykvíkingur, þrítugur að aldri,
sonur Þórðar Kristjánssonar og
Svanfríðar Kristjánsdóttur. Hann
lauk kandidatsprófi frá guðfræði-
deild Háskóla Íslands vorið 1979
og hefur síðan verið við fram-
haldsnám við Vanderbilt-háskól-
ann í Nashville í Tennessee-ríki í
Bandaríkjunum og er hann nú að
skrifa doktorsritgerð sína. Fjallar
hún um íslenska trúarhefð á 19. og
20. öld.
Kona hans er séra Hanna María
Pétursdóttir, sem þjónað hefur
Ásaprestakalli til þessa. Verða
þau fyrstu hjónin í íslenskri
kirkjusögu sem bæði eru prest-
vígð.
Geta má þess að tvenn önnur
hjón eru bæði guðfræðikandidat-
ar, þau séra Gunnþór Ingason og
Þórhildur Ólafs cand. theol, og
ennfremur séra Dalla Þórðardótt-
ir og Agnar H. Gunnarsson cand.
theol.
£5
INNLENT
Kirkjukvöld Bræðrafélags Dóm-
kirkjunnar á skírdagskvöld
Páskablað
PÁSKABLAÐ Morgunblaðsins,
sem kemur út á morgun, skírdag,
verður samtals 112 síður í þremur
blöðum. Blaöi II er til hægrtar-
auka dreift með Morgunblartinu i
dag.
Efni páskablaðsins að þessu
sinni er valið úr gömlum páska-
blöðum og Lesbók og verður
gerð nánari grein fyrir því og
höfundum þess í Morgunblað-
inu á morgun, skírdag. Valið er
gert með þeim hætti að efnið sé
í senn sem fjölbreyttast og sýni
að af miklu er að taka þegar
litið er á gamlar Lesbækur og
Morgunblöð. Hér verður ekki
um neitt úrval að ræða, heldur
þverskurð af efni blaðsins.
BRÆDRAFÉLAG Dómkirkjunnar
efnir til kirkjukvölds á morgun, skír-
dag, og hefst þart klukkan 20.30.
Séra Ágúst K. Eyjólfsson, dóm-
kirkjuprestur í kirkju Krists kon-
ungs, og séra Þórir Stephensen,
dómkirkjuprestur, ræða um altaris-
sakramentið hvor frá sínu sjónar-
horni. Marteinn H. Friðriksson,
dómorganisti, leikur á orgel og séra
Hjalti Guðmundsson, dómkirkju-
prestur, flytur ávarp.
Séra Ágúst Eyjólfsson annast
altarissakramentið og félagar úr
Hornaflokki Kópavogs leika fjögur
gömul passíusálmalög í útsetningu
Björns Guðjónssonar. Flytjendur
eru Magnús Jóhannsson, Ragnheið-
ur Steinsen, Ingi Bragason, Þor-
steinn Sæberg Sigurðsson, Brynjar
Konráðsson, Elín Einarsdóttir,
Pálmi Einarsson, Konráð Konráðs-
son, Eggert Björgvinsson og Össur
Geirsson.
Þá annast séra Þórir Stephensen,
dómkirkjuprestur, altarissakra-
mentið og dómkórinn syngur sálma
viðð undirleik Marteins H. Friðriks-
sonar. Að lokum flytur séra Hjalti
Guðmundsson, dómkirkjuprestur,
bæn og sunginn verður sálmurinn
Son Guðs ertu með sanni.