Morgunblaðið - 18.04.1984, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
17
Erla Þórarinsdóttir við vinnu á eldfjallinu sínu.
Akranes:
Flotbryggja úr trefja-
steypu fyrir smábátana
Akranesi, 16. apríl.
Aðalsteinn: Já, ég held það megi
segja það. Norðmenn hafa áhuga á
íslenskri myndlist og Finnar hafa
oft látið í ljós við mig áhuga á að
fá fleiri sýningar frá Islandi. Dan-
ir hafa minni áhuga, virðast ekki
eins opnir, af hverju sem það svo
stafar.
Gunnar Örn: Þeir eru lokaðri al-
mennt fyrir því sem er að gerast,
ekki bara á Islandi, heldur einnig
hinum Norðurlöndunum. Þó getur
verið að fortíðin skipti máli varð-
andi afstöðuna til íslands.
Auk þeirra er áður eru nefndir
sýnir Vignir Jóhannsson verk sín í
Lundi.
Meira málverk
í Malmö
Konsthallen þar er öll undirlögð
íslenskum málverkum en salurinn
í Malmö, sem er stærsti sýn-
ingarsalur þeirrar borgar, hefur
aðra sýningu á boðstólum við hlið-
ina á þeirri íslensku. Þar voru
viðstaddir opnunina Ingólfur Arn-
arsson og einn þeirra sem á verk á
sýningunni, Steingrímur E.
Kristmundsson. Fréttamaður fékk
sér kaffisopa með þeim félögum á
kaffistofu inn af sýningarsalnum
og spjallaði við þá um sýninguna
og ýmislegt varðandi íslenska
myndlist í dag.
Ingólfur: Það er mikill vandi að
velja í svona sýningu, það er svo
mikið til. Ég reyndi að gera mér
þetta svolítið léttara með því að
velja fjóra listamenn og bauð
hverjum þeirra svo að tilnefna
einn i viðbót. Okkur datt svo í hug
að bjóða Stefáni og Eggert sem
gestum — fannst það skemmtileg-
ur leikur.
Kréttamaður: Þeir virðast við
fyrstu sýn ekki mjög ólíkir ýmsu
því sem þið yngri mennirnir eruð
að gera?
Ingólfur: Nei, það er einmitt það
sem okkur finnst spennandi. Það
sem er olíkt með þeim og flestum
öðrum naívistum er að þeir eru
ekki nostrarar, þetta er ekki fín-
gerð vinna hjá þeim. Þeir nota
djarfa liti og gróf pensilför og
stinga ekki neitt óskaplega í stúf
við hitt sem er á sýningunni.
Steingrímur: Hugmyndafræðin á
bak við þetta hjá þeim er þó allt
annars eðlis.
Fréttamaður: Hvað segið þið við
því þegar menn eru að leita að
Islandi í myndunum? Á sýning-
unni í Lundi voru margir sem
söknuðu þjóðlegra mótíva.
Ingólfur: Þetta er öðruvísi nú en
áður, þegar tsland var að berjast
fyrir sjálfstæði sínu. Þjóðrækn-
isstefnan í listum var að reyna að
gefa okkur ákveðinn þjóðarkar-
akter. Þetta er auðvitað mikið
hlutverk og tekur sinn tíma, en
málverkið núna er orðið það al-
þjóðlegt að það er ekki hægt að
heimta þetta af okkur.
Steingrímur: Það eru auk þess
aðrar greinar sem sjá um þetta
núna, t.d. tímarit.
Ingólfur: Það er í sjálfu sér ekk-
ert að því að mála íslensk mótíf og
það er e.t.v. aðeins tilviljun að við
höfum ekki gert meira af því.
Fréttamaður: Það er þá ekki
pressa á ykkur að fara í fótspor
Kjarvals?
Steingrímur: Já, hann er einmitt
dæmi um listamann sem eiginlega
býr til „Island", ímyndina ísland,
og gerir það mjög smekklega.
Fréttamaður: Er það einfaldara
mál að vera nýbylgjumálari á ís-
landi en annarstaðar, þar sem við
höfum nánast enga hefð í málara-
list? Er eitthvert samband milli
þessa og þeirrar miklu grósku sem
nú virðist vera meðal yngstu lista-
manna á íslandi?
Ingólfur: Það er mjög mikið til í
þessu. Við fórum til Hollands með
svipaða sýningu, og þeim fannst
einmitt athyglisvert hvað okkar
listamenn eru harðir í að brjótast
út úr hefðinni. Hollendingar hafa
sjálfir geysilega sterka hefð. Þeir
geta ekki gert hvað sem er, og
verða alltaf að horfa til baka til
þess að sjá hvar þeir eru staddir.
— En ég veit svei mér ekki. Það
var svissneskur listamaður á ís-
landi um daginn, og honum fannst
íslendingar hafa miklu sterkari
myndlistarhefð en Svisslendingar.
Kannski var það af kurteisi sem
hann sagði þetta.
Steingrímur: Það er erfitt að
setja þetta í ákveðnar kategoríur,
sérstaklega þegar hlutirnir eru að
gerast. Það er einnig búið að
brjóta niður mörkin milli list-
greinanna og sumir okkar fást við
fleiri tjáningarform.
Ég spurði listfræðinginn sem
starfar við Konsthallen í Malmö,
og aðstoðaði þá félaga við upp-
setningu sýningarinnar, hvað
hann segði um þessa íslensku list,
sem nú væri til sýnis í svo stórum
stíl á Skáni.
„Jú þetta er í rauninni stór-
kostlegt," sagði hann. Maður sér
hér sömu strauma og í nýju þýsku
og spönsku málverki. Það er þessi
ákafi og átök sem er nýtt og einnig
kímnigáfan sem vekur með manni
ákveðna gleðitilfinningu."
Það er einmitt þetta sem við
þurfum hér á Skáni svona rétt áð-
ur en vorið kemur. Ekki er til flat-
ara landslag en hér, og á þessum
árstíma gleður útsýnið tæplega:
litlaust akurlendi með nöktum
pílviðartrjám hér og þar. Mér
kemur í hug heiðarleg tilraun
Gunnars Arnar til að útskýra
fyrir mér nýbylgjulistina.
Gunnar sagði: „Nauðsynlegt er
að hrista svolítið upp í sjálfum sér
og öðrum með því að hafa hlutina
á skjön, jafnvel allt að því vafa-
sarna."
Þar með hafa þessar tvær ís-
lensku sýningar hitt í mark, fyrir
mér að minnsta kosti. Veruleikinn
getur stundum verið svo leiðinleg-
ur að maður nennir ekki að horfa
á hann. Ef Skánn væri eilítið á
skjön, væri hann miklu skemmti-
legri.
Að undanrórnu hafa staöiö yfir á
Akranesi tilraunir meö flotkassa
steypta úr trefjasteypu, sem ætlaöir
eru sem flotbryggja fyrir smábáta.
Einn slíkur kassi hefur nú verið
reyndur um nokkurt skeið í Akra-
neshöfn og hafa þessar tilraunir lof-
aö góöu.
Að sögn Benedikts Jónmunds-
sonar, formanns hafnarnefndar,
hefur í framhaldi af þessum til-
raunum verið gerður samningur
um gerð flotbryggju fyrir Akra-
nesshöfn. Samstarfshópur þriggja
aðila á Akranesi, Hafnarsjóðs,
Sementsverksmiðjunnar og Verk-
fræði- og teiknistofunnar, stóð að
tilraununum.
Þessi væntanlega flotbryggja er
gerð úr 9 flotkössum úr trefja-
steypu, sem hver um sig er 3,85 m
á lengd, 2,58 m á breidd og 1,07 m
á hæð. Utan um þessa steypukassa
er síðan trégrind. Flotkössunum
er þannig upp raðað að þeir
mynda 15 metra langa einingu, en
alls verður flotbryggjan 45 metrar
að lengd. Samkvæmt smíðasamn-
Hafnarfjöröur:
Lóðum
úthlutað í
Setbergi
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hef
ur ákveðið aö gefa eftirtöldum ein-
staklingum kost á einbýlishúsalóö-
um í Setbergi:
1. Auður Arnadóttir,
Álfaskeiði 117.
2. Auður Traustadóttir,
Hjallabraut 5.
3. Bragi Helgason,
Suðurvangi 6.
4. Finnbogi A. Alexandersson,
Fífuseli 34, Rvík.
5. Grétar Kjartansson,
Kjarrhólma 36, Kópavogi.
6. Guðni Ingvarsson,
Holtsgötu 10.
7. Gunnar Ingibergsson,
Álfaskeiði 55.
8. Halla Snorradóttir,
Breiðvangi 13.
9. Hilmar Kristensson,
Nönnustíg 6.
10. Hörður Ingi Torfason,
Bröttukinn 4.
11. Jóhann Petersen,
Breiðvangi 18.
12. Jón Karl Einarsson,
Brekkubraut 16, Akranesi.
13. Jón Berg Halldórsson,
Ölduslóð 11.
14. Jón Þór Hjaltason,
Víðigrund 1, Kópavogi.
15. Jón Ingi Sigursteinsson,
Öldugötu 4.
16. Júlíus Bess,
Nönnustíg 10.
17. Kristín L. Hafsteinsdóttir og
Hörður Oddgeirsson,
Teigaseli 3, Rvík.
18. Kristján Ólafsson,
Hjallabraut 35.
19. Ljótur Ingason,
Lyngmóum 9, Gb.
20. Ólafía Lára Ágústsdóttir og
Hringur Sigurðsson,
Hjallabraut 2.
21. Sigurður Ólafsson,
Laufvangi 18.
22. Sigurjón Sigurðsson,
Breiðvangi 3.
23. Sigmundur H. Friðþjófsson,
Marklandi 8, Rvik.
24. Smári Aðalsteinsson,
Mjósundi 16.
25. Stefán Ómar Jakobsson,
Miðvangi 35.
26. Sverrir Sighvatsson,
Kelduhvammi 6.
ingi á flotbryggjan að vera tilbúin
sex vikum frá undirritun samn-
ings. Flotkassarnir verða steyptir
í Steypustöð Þorgeirs og Helga hf.
á Akranesi og annast það verk
starfsmenn steypustöðvarinnar og
Akranesshafnar. Þeir síðarnefndu
steyptu tilraunakassana.
Af öðrum framkvæmdum við
Akranesshöfn þessa dagana má
nefna að unnið hefur verið að því
að koma fyrir nýjum löndunar-
„SAMKVÆMT þeim reglum sem
gefnar eru út þá er hægt aö stofna
ný innlánsform, en þaö er ekki hægt
aö breyta þeim innlánsformum sem
fyrir eru,“ sagði dr. Jóhannes Nor-
dal seölabankastjóri er blm. Mbl.
spuröi hann í gær hvort verið væri aö
hefta frjálsa samkeppni bankanna
meö þeim reglum sem Seðlabankinn
kynnti bönkunum fyrir helgi í tilefni
þess að Útvegsbankinn ætlaði aö
leyfa viöskiptavinum sínum aö færa
fé af gömlum innlánsreikningum yf-
ir á þá nýju sem gefa betri ávöxtun,
en Seðlabankinn greinir frá því í
fréttatilkynningu sinni aö þaö sé
óheimilt að losa bindiskyldu fyrir
tímann.
Aðspurður um hvers vegna það
væri ekki leyfilegt, svaraði seðla-
bankastjóri að reglurnar væru
svohljóðandi að það væri ekki
leyfilegt, en svo virtist sem ein-
hverjir hefðu ekki skilið reglurnar
rétt, og því hefði Seðlabankanum
þótt rétt að árétta þetta atriði.
„Við teljum þegar svona lagað fer
af stað,“ sagði seðlabankastjóri,
„að þá sé það mjög óvarlegt fyrir
bankana að opna fyrir það að allar
Stundakennarar við Háskóla Is-
lands lögðu niður vinnu á mánu-
daginn til að leggja áherslu á
kröfur sínar í viðræðum við ríkis-
krana fyrir smábáta og er aðeins
eftir að vinna við raftengingu og
vökvabúnað. Vonast er til að kran-
inn komist í notkun að fáum dög-
um liðnum. Með þessum fram-
kvæmdum vænkast hagur smá-
bátaeigenda á Akranesi mikið,
sérstaklega hvað varðar flot-
bryggjuna, en bryggjupláss fyrir
þá hefur verið mjög takmarkað á
Akranesi.
innstæður verði fluttar inn á
þessa nýju innlánsreikninga."
Morgunblaðið sneri sér til ólafs
Helgasonar aðstoðarbankastjóra
Utvegsbankans í gær og spurði
hann hvort ákvörðun Útvegsbank-
ans hefði eitthvað breyst í ljósi
þessarar tilkynningar Seðlabank-
ans og sagði ólafur þá: „Þessi
staðhæfing Seðlabankans er alveg
rétt, því við höfum ekki heimild til
þess að gera þetta. Ef við ætlum
að heimila það að peningar verði
fluttir af innlánsreikningum með
bindiskyldu yfir á nýju reikn-
ingana, þá verðum við að tilkynna
það til Bankaeftirlitsins, auk þess
sem við yrðum að sækja um und-
anþágu til Seðlabankans. Það hef-
ur því einhver misskilningur átt
sér stað þegar greint var frá þvi
að við hygðumst gera þetta. Það
hefur aldrei komið til greina af
hálfu Útvegsbankans að gefa út
einhliða yfirlýsingar um að losa
einhverjar bindingar sem eru í
þeim skilmálum sem Seðlabank-
inn setur á vexti. Við yrðum að
tilkynna allar slíkar breytingar
fyrirfram og fá til þess heimild
hjá Seðlabanka."
valdið. I stað kennslu funduðu þeir
um sín mál og var myndin tekin á
slíkurn fundi um miðjan dag í Fé-
lagsstofnun stúdenta.
*
Olafur Helgason aðstoðar-
bankastjóri Útvegsbankans:
„Þurfum heimild
Seðlabankans“
*
og segir Utvegsbankann ekki breyta skilmál-
um um bindingar án heimildar Seðlabankans
Morgunbladid/Júlíua.
Háskóli íslands:
Stundakennarar
sinntu ekki kennslu