Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 19

Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 19
MORGPNBLAÐIO.-MIÐVntUÐAQUR 18. APRÍL 1984 19 Samgöngu- ráðuneytið í Hafnarhúsið Samgönguráduneytiö hefur í bígerð að flytja skrifstofur sínar í Hafnarhúsið á næstu mánuðum skv. hcimildum Morgunblaðsirts. Rafmagnsveita Reykjavíkur flutti skrifstofur sínar úr Hafnar- húsinu í nýtt húsnæði við Suður- landsbraut um helgina. Ráðuneyt- ið mun þó ekki nota allt húsnæðið, sem Rafmagnsveitan hafði, aðeins hluta þess. Bygging frystigeymslu á vegum Eimskips: Engin ákvörð- un tekin enn ENN hefur ekki verið tekin endan- leg ákvörðun af hálfu Eimskipafé- lagsins hvort byggð verður frysti- geymsla á vegum fyrirtækisins við Sundahöfn. Að sögn l'órðar Sverr- issonar, fulltrúa framkvæmdastjóra, verður ákvörðun ekki tekin fyrr en á næstu vikum. Verði af byggingu gcymslunnar verður hún inni í Sundaskála I. Á aðalfundi félagsins, sem hald- inn var fyrir skemmstu, var sam- þykkt að beina því til stjórnar fé- lagsins að hún kannaði möguleika á aðild Eimskipafélagsins að lax- eldisstöð. Þórður tjáði Mbl., að stjórnin hefði það hann best vissi enn ekki fjallað um þetta mál, en það kæmi vafalítið til hennar kasta á fyrsta formlega fundi hennar síðar í þessum mánuði. Dagvistargjöld í Reykjavík: 5% hækkun frá 1. maí DAGVISTARGJÖLD í Reykjavík hækka um 5% frá og með I. maí nk. Ilækkunin hefur þegar verið sam- þykkt í félagsmálaráði, en borgar- stjórn á eftir að fjalla um hana. Gjöld á dagvistarstofnunum hækkuðu síðast 1. september, að sögn Bergs Felixsonar, fram- kvæmdastjóra Dagvistarheimila Reykjavíkurborgar. Flestar dag- vistarstofnanir utan Reykjavíkur hækkuðu gjöld sín um 5% í októ- ber. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Hafsldphf. styðuraukíð 'átaktfl útflutníngs islensKiar iðnaðarvöru Vegna aukins átaks í sölu á ísienskum iðnaðarvörum erlendis og í tilefni 25 ára afmælis Hafskips bjóðum við útflytjendum eftirfarandi aðstoð: 1. 2. i. 4. Aukin umsvif Hafskips erlendis skapa okkar mönnum þekkingu á erlendum stað- háttum, einkum á sviði flutninga, viðskipta og markaðsmála. Þessi þekking stendurtil þoða, m.a. með ráðgjöf og milligöngu. Fimm svæðisskrifstofur Hafskips erlendis; í Kaupmannahöfn, Hamborg, Rotterdam, Ipswich og New York og eigið flutningafyrirtæki, COSMOS Shipping Co. með skrif- stofur sínar í fimm borgum Bandaríkjanna, eru tilbúnar að veita enn frekari þjónustu. T.d. við ýmiskonar upplýsingaöflun, leit að viðskiptasamböndum, lækkun erlends milliliðakostnaðar,tilboðaleit í flutninga milli svæða erlendis, aðstoð við hráefnisöfl- un og útboð. Skipaður hefur verið sérstakur milligöngumaður á aðalskrifstofu Hafskips í Reykjavík, Þorsteinn Máni Árnason, til að sinna þessum verkefnum auk framangreindra aðila. Leitið til hans með frekari fyrirspurnir. Auk annarrar þjónustu sem að gagni gæti komið nefnum við síðast en ekki síst hvetjandi flutningsskilmála á iðnaðarhráefnum til landsins og fullunninni iðnaðar- vöru héðan. Aukið átak í útflutningi er íslensku þjóðinni lífsnauðsyn. Hafskip hf. gengur heilshugar til leiks. Okkar menn-þínir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.