Morgunblaðið - 18.04.1984, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRlL 1984
Joshua Nkomo í London:
Frelsið í Zimbabwe
er að engu
London, 17. apríl. AP.
JOSHUA Nkomo leiðtogi stjórnar-
andstóðunnar í Zimbabwe sagði í
London í g«r að það frelsi undan
minnihlutastjórn hvítra manna sem
hann hefði barist fyrir alla ævi væri
að engu orðið þrátt fyrir að svartir
menn færu nú með stjórn í landinu.
„Hryggilegasta uppgötvun lífs
míns var sú að þó fólk sé laust úr
fjötrum nýlenduherra getur það
enn búið við ófrelsi," sagði hinn 66
orðið
ára gamli Nkomo, sem er fyrrum
skæruliðaforingi, á blaðamanna-
fundi í London.
Um síðustu helgi greindu blöð í
London frá því að menn úr stjórn-
arhernum í Zimbabwe, sem lúta
stjórn Robert Mugabes forsætisráð-
herra, hefðu að undanförnu unnið
hryðjuverk á fólki af ættflokki
Nkomos, Ndebele-flokknum, sem er
minnihlutahópur í landinu.
Thailendingar elta uppi
hersveitir frá Víetnam
Mark Clarke hershöfðingi t.h. ásamt breska hershöfðingjanum Gerald
Templer í Salerno á Ítalíu í síðari heimsstyrjöldinni.
Mark Clarke hershöfðingi látinn:
Bangkok, 17. apríl. AP.
ÞOTUR úr flugher Thailands gerðu í
dag árás á hæð nokkra í Surin-héraði
á landamærum Thailands og
Kambódíu, en talið var að innrásar-
sveitir frá Víetnam leyndust þar.
Thailensk herþota af gerðinni L-
19 var skotin niður á þessum slóð-
um sl. sunnudag og er talið að Ví-
etnamar hafi verið þar að verki.
Að sögn hernaðaryfirvalda í
Thailandi voru sveitir úr landhern-
um sendar á vettvang eftir loftárás-
ina, en frekari fregnir hefur ekki
verið að fá.
Seint í síðasta mánuði sökuðu
stjórnvöld í Thailandi Víetnama
um að hafa farið með hersveit inn í
Si Sa Ket-hérað, fyrir austan Surin,
er þeir voru að elta uppi skæruliða
frá Kambódíu.
Hrakti Þjóðverja frá
Ítalíu í síðara stríðinu
('harleston, Suður-Karólínu. 17. aprfl. AP.
MARK CLARKE, fjögurra stjörnu hershöfðingi í Bandaríkjaher, lést í dag,
87 ára að aldri. Hann var heilsuveill mjög síðustu æviárin og hjartveikur 20
síðustu æviárin. Banameinið var hjartaslag og krabbamein.
Heræfingar Sovét-
manna í Víetnam
Clarke kom víða við í herferli ið. Hann var í fararbroddi er
Washington, 17. aprfl. AP.
SOVÉTMENN HAFA gengist fyrir
heræfingum meðfram strönd Norður-
Víetnam að undanfórnu, skammt fyrir
sunnan llaiphong. Er það í fyrsta
skipti sem þeir gera svo og bendir til
vaxandi umsvifa þeirra og áhrifa í
Suðaustur-Asíu.
Æfingarnar sem slíkar eru ekki
ýkja stórar í sniðum, þær eru fólgn-
ar í því, að milli 400 og 500 land-
gönguliðar sovéska flotans hafa æft
landtöku. Átta sovésk herskip hafa
tekið þátt í æfingunum, þar á meðal
flugmóðurskipið Kiev.
Það var ónafngreindur talsmaður
bandarísku leyniþjónustunnar sem
greindi frá þessu í dag, hann sagði
einnig að Sovétmenn vildu með
þessu sýna að þeir hefðu örugga
fótfestu í Víetnam, þar sem Banda-
ríkjamenn börðust í 12 ár gegn
kommúnistum. Sovétmenn nota í
dag mikil sjóhernaðarmannvirki
sem Bandaríkjamenn reistu fyrir
hundruð milljóna dollara í Cam
Rahn-flóa meðan á Víetnam-stríð-
inu stóð.
sínum, tók þátt í þremur ófriðum,
báðum heimsstyrjöldunum og
Kóreustríðinu. í fyrri heimsstyrj-
öldinni var hann undirforingi og
særðist í Vosges-fjöllum. Samt tók
hann þátt í orrustunum við St. Mi-
hiel og Meuse Argonne. f síðari
heimsstyrjöldinni var hann yfir-
maður 5. deildar bandaríska hers-
ins, þeirrar sem hrakti Þjóðverja
frá Ítalíu m.a. eftir óskaplega
bardaga við Monte Casino klaustr-
bandamenn frelsuðu Rómarborg
og tók við 230.000 þýskum her-
mönnum sem gáfust upp er Ítalíu-
stríðinu var lokið.
Hann var síðan yfirmaður her-
afla Sameinuðu þjóðanna í Suð-
austur-Asíu og starfaði sem slíkur
í Kóreu-stríðinu. Hann undirritaði
vopnahléð fyrir hönd Sameinuðu
þjóðanna á sjötta áratugnum, er
Kóreu-ófriðnum lauk.
Mannfall Víetnama
á landamærum Kína
Ceking, 17. aprn. AP.
KÍNVERJAR SÖGÐUST í dag hafa
drepið 22 víetnamska hermenn í
landamæraskærum landanna síð-
ustu dagana. Það var kínverska
fréttastofan Xinhua sem greindi frá
þessu og hún minntist ekki einu orði
á mannfall hjá Kínverjum. Erfitt er
að henda reiður á sannleiksgildi
frétta af þessum slóðum, erlendum
fréttamönnum er bannað að fara þar
um og stríðsaðilar guma báðir af
glæstri frammistöðu.
Samkvæmt frásögnum Xinhua
af mannvígunum, hafa þau spann-
að nokkra daga og jafnan byrjað
þannig að Víetnamar hafa laum-
ast yfir landamærin til njósna eða
til að skjóta saklausa hrísgrjóna-
bændur við vinnu sína. í einu til-
viki eiga fjórir Víetnamar að hafa
skotist yfir landamærin til njósna
í skjóli þoku, en skyndilega létti
henni og „voru flugumennirnir þá
auðveldlega drepnir", eins og
Xinhua lýsir því.
Víetnamar hafa ekki lýst á
hendur sér mannvígum síðustu
sólarhringana, en á hinn bóginn
látið í veðri vaka að þeir séu reiðu-
búnir að láta af hernaði. Þetta eru
alvarlegustu átök landanna síðan
árið 1979, er þau börðust á landa-
mærunum í heilan mánuð.
Ný lög í Bandaríkjunum:
Hækka má verð vöru
ef notað er krítarkort
Kaupmenn virðast ekki treysta sér til að nota heimildina
Bandaríkjamenn eru orðnir háðir
krítarkortum, en vandinn sem þeir
standa frammi fyrir er sá hver eigi
að bera kostnaðinn af því hagræði
sem skapast af 600 milljónum krít-
arkorta í landi þar sem búa um 230
milljónir manna.
Þannig er komist að orði í upp-
hafi greinar um krítarkort í
Bandaríkjunum í nýjasta hefti
breska vikuritsins The Economist,
og er eftirfarandi samantekt á
henni byggð.
Fram að 27. febrúar sl. var
verslunareigendum bannað að
leggja aukagjald á varning sem
keyptur var með krítarkorti, en
slík viðskipti nema nú um 15%
allra vöruviðskipta. Aftur á móti
var heimilt að veita þeim við-
skiptavinum sem staðgreiddu vör-
ur afslátt, en í reynd er þetta
sami hluturinn. Að bensínsölum
undanskildum hafa fáir notfært
sér þessa afsláttarheimild. Árið
1980 setti stjórn Carters notkun
krítarkorta takmörk í þeirri von
að það gæti haldið aftur af verð-
bólgu, en þær reglur voru fljót-
lega numdar úr gildi og útistand-
andi krítarkortaskuldir nema nú
um 75 milljörðum dollara.
Fyrirhugað var að bannið við
því að láta krítarkorthafa greiða
hærra vöruverð yrði afnumið 27.
febrúar sl. Snemma I febrúar
hvatti Seðlabankinn til þess að
bannið yrði enn í gildi, en sér-
fræðingar hans höfðu þá kannað
gildi þess að hvetja menn til að
greiða vörur í reiðufé eða með
ávísunum. Talsmenn bankans
segja að kostnaður kaupmanna af
krítarkortaviðskiptum sé 2—3%
meiri en þegar greitt er f reiðufé.
Krítarkortafyrirtækin fá 2—5%
af heildarviðskiptum í sinn hlut,
og kaupmaðurinn bætir missi
sinn upp með því að hækka hverja
vöru um eitt prósent.
I síðasta mánuði samþykkti
öldungadeild Bandaríkjaþings
með 66 atkvæðum gegn 22 að af-
nema bannið, en féllst hins vegar
á að sú breyting tæki ekki gildi
fyrr en 15. maí nk. Þingmenn full-
trúadeildarinnar eru á annarri
skoðun og 3. apríl sl. samþykktu
þeir að framlengja bannið til miðs
næsta árs.
ósamkomulag þingdeildanna
veldur því að bannið er þegar fall-
ið úr gildi, en þrátt fyrir það hef-
ur þess lítt orðið vart að kaup-
menn kjósi að leggja aukagjald á
vörur sem keyptar eru með krít-
arkortum. Talið er að kaupmenn
óttist að styggja þá viðskiptavini
sína sem eru í góðum efnum og
missa þá yfir til keppinauta. Af
þessum sökum virðast þau 70%
bandarískra neytenda sem nota
krítarkort ekki þurfa að óttast
verðhækkun á næstunni.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ........... 30/4
Jan ......... 14/5
Jan ........... 28/5
ROTTERDAM:
Jan ............ 1/5
Jan ........... 15/5
Jan ........... 29/5
ANTWERPEN:
Jan ........... 19/4
Jan ............ 2/5
Jan ........... 16/5
Jan ........... 30/5
HAMBORG:
Jan ........... 21/4
Jan ............ 4/5
Jan............ 18/5
Jan ............ 1/6
HELSINKI/TURKU:
Hvassafell .... 28/4
Hvassafell .... 23/5
LARVIK:
Francop ....... 23/4
Francop ........ 7/5
Francop ....... 21/5
Francop ........ 4/6
GAUTABORG:
Francop ....... 24/4
Francop ........ 8/5
Francop ....... 22/5
Francop ........ 5/6
KAUPMANNAHÖFN:
Francop ....... 25/4
Francop ........ 9/5
Francop ...... 23/5
Francop ........ 6/6
SVENDBORG:
Francop ....... 26/4
Francop ....... 10/5
Francop ....... 24/5
Francop ........ 7/6
ÁRHUS:
Francop ..... 27/4
Francop ....... 11/5
Francop ....... 25/5
Francop ........ 8/6
FALKENBERG:
Mælifell ....... 2/5
Helgafell ..... 11/5
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell .... 24/4
Skaftafell .... 24/5
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ........... 26/4
Skaftafell ........... 25/5
ia
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
JL
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!