Morgunblaðið - 18.04.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1984
37
yngri árum, þá lærði hann að gera
tundurdufl óvirk og sinnti því ef
með þurfti fyrir Norðurlandi. Þeg-
ar til Siglufjarðar kom var Jón
strax gripinn í Karlakórinn Vísi
og syngur með honum um margra
ára skeið, bæði sem félagi í kórn-
um og sem einsöngvari. Hann
hafði eins og áður er sagt áberandi
fallega söngrödd, bjartan og háan
tenór, sem entist honum lengi.
Svo vel vill til að við eigum
gamla upptöku sem gerð var í út-
varpshúsinu árið 1944, en hann
var þá við vinnu í Reykjavík vegna
atvinnuleysis á Siglufirði, þetta
eru dýrmætar upptökur fyrir
okkur og niðja hans. Þessi lög eru
perlur og frábærlega vel sungin.
Árið 1952 eru atvinnuhorfur á
Siglufirði slæmar og Jón og María
flytjast til Akraness og hafa búið
þar síðan. Þau byggðu sjálf sitt
hús og unnu bæði að því verki, var
María jafnfræmt útivinnandi
meðan á því stóð. Jón gekk í
Karlakórinn Svani á Akranesi og
söng þar um árabil m.a. sem ein-
söngvari.
Seinustu árin var Jón í Kirkju-
kór Akraness og hélt hann birt-
unni í röddinni alveg ótrúlega
lengi, það var honum dýrmætt að
syngja í kirkjukórnum og hvíla sig
frá amstri dagsins.
Hann var einstaklega músík-
alskur maður og þegar um tónlist
var rætt, þó sérstaklega sönglist-
ina, kom enginn að tómum kofan-
um hjá Jóni, því þekking hans var
mikil. Var hann þó algerlega
sjálfmenntaður í tónlistinni og
var gaman og lærdómsríkt að sitja
og hlusta á hann tala um stærri
verk tónlistarinnar. Ennfremur
var gagnrýni hans á tónlist byggð
á þekkingu og tónlistarnæmi, og
leyfði ég mér ekki að andmæla
honum þegar um þau málefni var
rætt, ekki svo að skilja að hann
þyldi ekki andmæli í skoðunum
langt í frá, heldur vissi ég að það
sem honum fannst rétt og vel gert
t.d. hjá íslenskum söngvurum var
rétt, því hann átti einnig svo gott
með að færa rök fyrir sínum skoð-
unum varðandi söngtækni og feg-
urð. Sjálfum var honum þetta allt
svo auðvelt, ýmis söngtækni sem
tekur margan manninn langan
tíma að læra var eins og meðfætt
hjá Jóni. Tónmyndun og öndun
var honum fullkomlega eðlileg.
Annað áhugamál hans var
veiðiskapur. Hann hafði sem ung-
ur maður vanist ýmiss konar
veiðiskap. Alla ævi meðan hann
hafði þrótt og heilsu reyndi hann
að stunda það tómstundagaman.
Sama kappið og áhuginn voru
við veiðarnar og þau störf sem
hann stundaði sér til framfæris.
Trúlega hafa það verið áhrif frá
unglingsárunum þegar veiðarnar
voru nauðsyn til matfanga.
Natni hans og athygli voru ein-
stök. Þá var sama hvers konar
veiðiskapur var stundaður, lax-
veiði, fuglaveiði eða eggjatínsla.
Að öllu var gengið með sömu alúð
og áhuga sem öðru er hann tók sér
fyrir hendur.
Jón var mjög blíðlyndur maður
og tilfinningaríkur, bar tilfinn-
ingar sínar ekki á torg, hann hafði
etinfremur mikið skap en fór afar
vel með það. Við kynntumst árið
1968 er ég giftist Friðbirni syni
hans og var það mér dýrmætt að
kynnast þeim hjónum. Væntum-
þykja var svo sterkur þáttur í
skapi hans. Kom það svo greini-
lega fram í framkomu hans við
dætur mínar tvær af fyrra hjóna-
bandi. Þær kynntust honum fyrst
þriggja og fimm ára, ást hans á
þeim var svo fölskvalaus og inni-
leg og dáðist ég alltaf af þessum
eiginleika hans.
Hann hefir ævinlega verið þeim
einstakur afi síðan eins og öðrum
barnabörnum sínum. Mér hefir
hann verið góður vinur og tengda-
faðir, alltaf hafði hann áhuga
fyrir hvað við vorum að bralla og
gladdist svo innilega með okkur
þegar vel gekk.
Jón og María eignuðust einn
son, Pétur, trésmíðameistara á
Akranesi. Kona hans er Sigrún
Skarphéðinsdóttir frá Akranesi.
Þau eignuðust 1980 dóttur sem ber
nafn ömmu sinnar Maríu. Sigrún
á tvo drengi frá fyrra hjónabandi
og veit ég að hann tók þá að sér á
alveg sama hátt og mínar dætur.
Þykir þeim afar vænt um Nonna
afa og ömmu og koma þar daglega.
Þegar María litla fæddist kom nýr
sólargeisli inn á heimilið, þetta
var fyrsta barnabarnið sem hann
fékk að fylgjast með strax frá
byrjun og var það honum dýr-
mætt.
Jóni þótti óumræðilega vænt
um þessa litlu telpu, sem leit til
þeirra daglega og hún dáði afa
sinn. Þrátt fyrir skerta heyrn
heyrði hann fótatak litlu mann-
eskjunnar ótrúlega vel þegar hún
trítlaði upp tröppurnar á Stekkj-
arholtinu þegar hún kom að finna
afa.
Hún hefir nú misst sinn fyrsta
vin og líklegast þann bezta. Maríu
tengdamóður minni hefir þessi
síðasti tími verið mjög erfiður,
hún hefir líka mikið að missa nú,
því mikið ástríki var á milli þeirra
hjóna og ævinlega hugsað fyrst og
fremst hvort um annað. Hún er
mjög trúuð kona og verður það
henni styrkur nú.
Börnum sínum var hann sér-
staklega góður uppalandi og hafa
þau átt því láni að fagna að hljóta
í föðurarf margar góðar lyndis-
einkunnir föður síns.
Ég vona að barnabörn hans
verði einnig svo lánsöm að erfa
eitthvað frá þessum sterka stofni
sem þau eru af.
Barnabörnin hans hér í Kópa-
vogi kveðja Nonna afa í dag og
munu minnast hans fyrst og
fremst sem góðs manns.
Við þekktumst aðeins í 17 ár,
það var of stutt en ég er mjög
þakklát fyrir þann tíma og að hafa
kynnst honum.
Ég kom fyrst á heimili hans um
páska og kveð hann nú um páska.
Hann er nú horfinn á vit feðra
sinna.
Guð blessi hann.
Sólveig Hannesdóttir
Hilmar Helgason
Kveöja
Kæddur 14. febrúar 1941
Dáinn 13. mars 1984
Hann var ætið hreinn og djarfur,
hugsun öll á viti byggð,
fáum líkur, flestum þarfur,
fyrirmynd í sannri dyggð.
Fús til góðra fyrirtækja,
frömuður í dáð og snild,
aldrei vinur illra klækja,
en þó voru dómsorð mild. —
Hann var jafnan gömlum góður,
greiddi unglinganna braut,
þrautseigur og þolinmóður,
þjóðar sinnar virðing hlaut.
Ef að þannig allir væru
yrði brúuð for,
hver ef annars byrðar bærú,
birti nú um aldatvor.
., (Halla Eyjólfsdóttir frá Lauga-
bóli. Kvæði I.)
S.S.
+ Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóður og ömmu.
SIGRÍÐAR ODDLEIFSDÓTTUR,
Fellsmúla 5.
Jón Jónsson,
Guöni Jónsson, Þórunn Haraldsdóttir,
Rútur Jónsson, Sólveig Theodórsdóttir,
Heíöa Jónsdóttir, Þorgeir Bergsson
og barnabörn.
RAFMAGNS
OFNAR
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, fööur, tengdafööur, afa og langafa,
GUÐJÓNS M. GUÐMUNDSSONAR,
fyrrv. fiskmatsmanns,
Túngötu 9, Keflavík.
Guðrún Pálsdóttir,
Gunnar Páll Guöjónsson, Þórdís Þorbergsdóttir,
Hrafnhildur Guöjónsdóttlr, Guöjón Þórarinsson,
Inga Áróra Guöjónsdóttir, Vignir Erlendsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar,
fósturfööur, tengdafööur, afa og langafa,
ÞORGEIRS P. EYJÓLFSSONAR,
Lokastíg 24 A.
Guörún Þorgeirsdóttir, Eyjólfur ísf. Eyjólfsson,
Erna Þorgeirsdóttir, Magnús G. Magnússon,
Runólfur Ó. Þorgeirsson,
Ólafur G. Kristjánsson, Guölaug Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö útför stjúpsonar míns og bróöur
okkar,
HÖSKULDAR GUDMUNDSSONAR
frá Streiti, Breiödal.
Guöný Siguröardóttir og systkini hins látna.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda hluttekningu við andlát og jaröarför
MARGRÉTAR ÞORKELSDÓTTUR
frá Akri viö Bræöraborgarstíg.
Kristín Pálsdóttir, Guöfinna Guömundsdóttír,
Steinunn Pálsdóttir, Þorkell Sigurbjörnsson,
Siguröur Pálsson, Jóhanna G. Möller,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug við andlát og útför
BJÖRNS ÓLAFSSONAR,
fyrrv. konsertmeistara,
og virðingu sýnda minningu hans.
Sérstakar þakkir eru færðar stjórn Sinfóníuhljómsveitar isiands og
hljóöfæraleikurum.
Kolbrún Jónasdóttir, Elísabet Thors,
Þorbjörg Björnsdóttir, Pétur Ólafsson,
Katrín Ólafsd. Hjaltested
og barnabörnin.
Líkjast vatnsoín-
um, gefa ekki
þurran hita og
eru sparneytnir.
KJÖLUR SF.
Hverfisgötu 37, 105 Reykjavík.
símar 21490-21846.
Vikurbraut 13, 230 Keflavlk,
sími 92-2121.
onmir
Hvað er það
sem er kolsvart,
með klemmu á öðrum
endanum,
ljósaperu á hinum,
eins og stífur gormur
þar á milli,
gefur frá sór ljós
þegar þvi er stungið í
samband við rafmagn
og kostar
minna en 500 kall
út úr búð?
H
^ Það er ljósormurinn
frá PHiIlps.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
Lokað ^r^i
veröur eftir hádegi í dag, miðvikudaginn 18. apríl, venga útfarar HREFNU ÁRNADÓTTUR. ■Hróóleikur og JL skemmtun
Skrifstofa rannsóknastofnana fyrirháa sem laga!
atvinnuveganna, Nóatúni 17.