Morgunblaðið - 18.04.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 18. APRlL 1984
45
M h j í I í I
aw ( ( ;S { í | ') 1í
aMtásmmá
ii u "»9-
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hjálpum
Gudrúnu
J.G. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég las það í
blöðunum um daginn að Guðrún
Á. Símonar væri að missa hús-
næðið sitt og yrði á götunni, eins
og sagt er, frá og með næstu
mánaðamótum.
Ég tel að Guðrún eigi það inni
hjá okkur íslendingum að við
sláum saman og söfnum handa
henni peningum til að hjálpa
henni.
Mér finnst það þjóðarskömm
að vita af þessum listamanni á
götunni árið 1984. Eins finnst
mér leiðinlegt hversu lítið mað-
ur hefur heyrt í Guðrúnu upp á
síðkastið og hversu lítið henni
hefur verið hampað í gegnum ár-
in.
íslenskt efni í
íþróttaþættina
Ljósbrá, 12 ára, hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Mér finnst óeðlilegt að sýna er-
lenda íþróttaþætti í íslensku
íþróttaþáttunum hjá sjónvarp-
inu. Þegar þessir erlendu þættir
eru sýndir eru þeir yfirleitt ekki
þýddir yfir á íslensku og maður
skilur ekki það sem verið er að
segja. Það eru margir krakkar
og einnig gamalt fólk sem horfir
á íþróttaþættina og þeir kunna
ekki næstum því allir ensku,
þannig að þeir skilja ekkert.
Það er nóg af íslensku efni
sem hægt er að sýna í íþrótta-
þáttunum. Það er mikið að ger-
ast í íslensku íþróttalífi, sem
mætti alveg gera betri skil. Og ef
það verður að sýna erlenda
íþróttaviðburði þá er ekki nema
sanngjarnt að þeir séu þýddir
eins og annað erlent efni í sjón-
varpinu.
Svo er ég ekki ánægð með að
Húsið á sléttunni skuli nú vera
sýnt á laugardögum. „Háspennu-
gengið" var mjög skemmtilegur
þáttur og núna eftir að sýning-
um á honum var hætt er ekkert
unglingaefni eftir í sjónvarpinu.
Ég vil að Húsið á sléttunni verði
aftur fært yfir á sunnudaga og í
staðinn komi unglingaefni á laug-
ardagseftirmiðdögum. Annars
er sjónvarpsdagskráin oft ágæt
á laugardagskvöldum.
Missti af „break-
dansinum“ á bfla-
sýningunni
Móðir hringdi fyrir hönd 14
ára sonar síns og hafði eftirfar-
andi að segja: — Um daginn var
auglýst í blöðunum að „Break-
dans“ yrði meðal sýningaratriða
á bílasýningunni Auto ’84. öll
fjölskyldan var búin að sjá sýn-
inguna, en sonur minn, 14 ára,
vildi endilega sjá „Break-dans-
inn“ og hann fór sérstaklega til
að sjá hann. Danssýningin var
auglýst kl. 20.30 og þegar hann
kom rétt fyrir kl. 20.30 var
danssýningin yfirstaðin. Henni
hafði verið flýtt um hálftíma og
breyttur sýningartími ekki aug-
lýstur að mér vitanlega.
Það kostar 130 krónur fyrir 14
ára unglinga að fara inn á sýn-
ínguna og mér finnst ekki vel að
þessu staðið hvað þá varðar.
Ekki hægt að
fylgjast með
morgunleikfimi
Hulda Fjeldsted hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Mér finnst mjög slæmt að í
morgunleikfimi útvarpsins skuli
maður ekki geta fylgst með og
gert æfingarnar. Umsjónarmað-
urinn fer allt of hratt yfir æf-
ingarnar og það er ekki nokkur
leið að fylgjast með. Auk þess
finnst mér tónlistin sem leikin
er ekki nægilega skemmtileg.
Mér finnast lögin bara ákaflega
leiðinleg.
Umsjónarmaður morgunleik-
fiminnar ætti að huga svolítið að
þeim sem eru komnir um og yfir
miðjan aldur, því eins og þetta
,er núna er það bara unga fólkið
sem getur fylgst með. Það væri
nær að miða svolítið við þá sem
eru eldri og komast jafnvel lítið
eða ekkert út úr húsi.
Þunnt jógúrt
Kona hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mér finnst jóg-
úrtið hér á landi allt of þunnt og
ég las það í blöðunum fyrir
nokkru að nú væri væntanlegt á
markaðinn þykkara jógúrt og ég
vona að það verði fljótlega.
Ég var í Danmörku fyrir
tveimur árum og þar var jógúrt-
ið þykkt og mjög gott og auk
þess miklu ódýrara en hér.
Snorri Sturlu-
son verði end-
ursýndur
Kristján Ágúst hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Ég vil
beina þeim tilmælum til út-
varpsráðs að endursýnd verði
myndin um Snorra Sturluson.
Ég er á lang-
ferð um lífs-
ins haf
Gréta Böðvarsdóttir hringdi og
óskaði eftir aðstoð við að rifja
upp sálm. Fyrsta erindi hans
hljóðar þannig:
Ég er á langferð um lífsins haf
og löngum breytinga kenni.
Mér stefnu frelsarinn góður gaf,
ég glaður fer eftir henni.
Mig ber að dýrlegum ljóssins löndum
þar lifsins tré gróa á fögrum ströndum
við sumaryl og sólardýrð.
Gréta biður þá sem kunna
framhaldið af sálminum að láta
Velvakanda vita og einnig ef þeir
vita hver höfundur er og hvar
hægt er að finna sálminn í heild
sinni. Hún sagðist halda að þetta
væri gamall sálmur og minnist
þess að prestur hafi sagt henni
að hann væri ortur í tengslum
við skipskaða.
Hugleiðing um frið-
inn í dymbilviku
Friðsamur“ skrifar-
,Friðsamur“ skrifar
„Á tónleikum í Háteigskirkju
sunnudaginn 8. apríl flutti kór
Tónlistarskólans í Reykjavík
ásamt kór Dómkirkjunnar meðal
annars verk J. Brahms, „Fest-und
Gedenkspruche" opus 109.
Það var mikil sálubót og hug-
svölun að sitja þarna í kirkjunni
og njóta tónlistarinnar í svo fág-
uðum flutningi. í söngskránni
fylgdi texti til skýringar á fyrr-
greindu verki Brahms:
„Þér treystu feður vorir, treystu
þér og þú hjálpaðir þeim, til þín
hrópuðu þeir, og þeim var bjargað,
þér treystu þeir og urðu ekki til
skammar. — Drottinn blessar lýð
sinn með friði.“
„Þegar sterkur maður, alvopnað-
ur, varðveitir hús sitt, er allt í friði
sem hann á ..
Hugur minn dvaldi við þessi orð
meðan ég naut tónaflóðsins og upp
laukst fyrir mér að þau eru sígild
og eiga erindi út fyrir kirkjuvegg-
ina og inn í þá friðarumræðu sem
nú upptekur hugi margra. Þetta
eru orð Jesú í Lúk. 11,12. Ég ætla
ekki að leggja út af þessum orðum,
en bið menn að hugleiða þau í ljósi
þess sem Vesturlönd hafa verið að
gera í 35 ár til að leitast við að
tryggja að hjá þeim sé allt í friði.
Góðra og friðsamra páska óska
ég öllum mönnurn."
Engin mús
inn í mitt hús
„HÁTÍÐNI HÖGNI"
Ver hús þitt fyrir musum,
rottum og öðrum meindýrum með
hátiðnihljóði (22 kH2 - 65 kH2).
Tæki þetta er algjörlega skaðlaust
mönnum og húsdýrum.
Tilvalið fyrir:
| fyrirtæki i • *umarbÚ8ta«i
matvælaiðnaöi 0 fiskvinnslur
0 bændur 0 heimili
) verslanir
Tækin notist mnandyra og eru fyrir 220 v
Þau eru til i 4 stærðum.
Postsendum
Upplýsingar i sima 12114 til kl. 20
.H. Guðjónsso
Vörumarkaðurinn hf.