Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
Menntamálaráðherra um tillögur til
sparnaðar á grunnskólastiginu:
„Hagsmunamál
fyrir dreifbýlið
og hagræðingu
„ÞESSI tillaga hefur af mörgum verið talin hagsmunamal
fyrir dreifbýlið, um leið og hún felur í sér hagræðingu,“ sagði
Kagnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, er blm. Mbl.
spurði hana álits á þeim viðbrögðum sem fram hafa komið
frá framsóknarmönnum við tillögum hennar um sparnaö á
grunnskólastiginu.
Menntamálaráðherra sagði að
til þess gæti komið, ef tillaga
hennar yrði samþykkt, að ráða
þyrfti færri kennara, en um leið
drægi þessi tillaga úr þeirri
Tveir seldu
afla erlendis
TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn erlendis í þssari viku. Engey
RE seldi í Þýzkalandi og Dalborg
EA í Englandi. Lágt verð er nú á
fiskmörkuðum í Þýzkalandi en
mun betra í Englandi.
Engey RE seldi á þriðjudag
316,1 lest, mest karfa, í Cux-
haven. Heildarverð var 5.201.600
krónur, meðalverð 16,45. Dalborg
EA seldi 68,2 lestir, blandaðan
afla, í Hull á föstudag. Heildar-
verð var 1.715.900 krónur, meðal-
verð 25,15 krónur. 10 lestir aflans
voru steinbítur og dró það meðal-
verðið nokkuð niður, þar sem að-
eins fengust 10,80 krónur að með-
altali fyrir kílóið af honum. Hins
vegar fengust 37 krónur fyrir
kílóið af stórri ýsu og 30,47 krón-
ur fyrir kílóið af stórum þorski.
Afli Dalborgarinnar fór allur í
fyrsta gæðaflokk.
hættu sem óneitanlega blasti við
mörgum skólum dreifbýlisins, að
verða að senda börnin úr 7. og 8.
bekk yfir í annað byggðarlag, til
þess að sækja skóla.
„Svo einkennilega sem það
kann að hljóma," sagði mennta-
málaráðherra, „er heimild til*
þess samkvæmt lögum að leggja
bekkjardeild niður vegna fá-
mennis, og senda börnin í annan
skóla, en lögin heimila ekki að
tveimur aldursflokkum verði
kennt saman, og þeim þar með
gert kleift að vera áfram í sinni
heimabyggð. Þetta er því bæði
hagsmunamál fyrir grunnskól-
ann í heimahéraði og fyrir börn-
in.“
Menntamálaráðherra sagðist
telja að menn væru að átta sig á
þessum kostum og því sagðist
hún vera bjartsýn á að lausn á
þessu máli væri í sjónmáli.
Ragnhildur sagði að leið sú sem
hún hefði gert tillögu um, væri
sú leið sem flestir fræðslustjórar
á landinu hefðu bent á, sem leið
til hagræðingar og sparnaðar án
þess að hún bitnaði á þjónust-
unni sem skólarnir veita, þannig
að hún sagðist telja að skóla-
menn gætu verið sammála um að
rétt væri að fara þessa leið.
Félagar úr Andvara á færleikum sínum í Austurstræti.
MorpinbladiA/HG.
1 Ik
1 B
*
I söðli í Austurstræti
ÞAÐ ER líklega langt síðan ridið hefur verið í söðli
um Austurstræti og nærliggjandi götur. Það var því
ekki nema von að vegfarendum yrði starsýnt á það er
tveir félagar úr hestamannafélaginu Andvara í Garða-
bæ riðu um borgina búnir eins og hefðarfólk fyrri
tíma og stúlkan í söðli.
Þetta var liður í kynningu félagsmanna í And-
vara á hestadegi, sem haldinn verður í Garðabæ
um næstu helgi, dagana 18. til 20. maí. Þar verða
hestar sýndir og vinna fyrri tíma tengd þeim,
sýndar verða kvikmyndir og hlutir, sem tengjast
hestamennsku, bæði frá okkar tíma og eldri tím-
um.
Höfum virkjað um 8 %
virkjanlegs vatnsafls
Virkjanadeilan kom
in til sáttasemjara
og nánast ekkert af virkjanlegu gufuafli
„OKKAR færustu vísindamenn á þessu sviði telja að hægt sé að virkja
hagkvæmt í vatnsafli 30 TWH (Terawattstundir) og 20 TWH í gufuafli. Við
höfum nú virkjað 4.2 TWH í vatnsafli og nánast ekkert í gufuafli, sem þýðir
að við höfum nú virkjað um 8%af virkjanlegu vatnsafli," sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson, formaöur stóriðjunefndar er blm. Mbl. spurði hann hversu
mikið af virkjanlegu vatnsafli hér á landi hefði þegar verið virkjað.
FREMUR rólegt er hjá ríkissátta-
semjara nú, þar sem hlé er nú á
fundum í deilu flugmanna og
Flugleiða hjá embættinu. Þeir
sem voru á fundum hjá sáttasemj-
ara í gær, auk flugmanna, eru
sjúkraþjálfarar hjá lömuðum og
fötluðum, en viðræður þeirra og
viðsemjenda þeirra eru á frum-
stigi og var boðaður nýr fundur
hjá þeim nk. miðvikudag. Þá komu
starfsmenn virkjana til fyrsta
fundar við viðsemjendur sína hjá
ríkissáttasemjara í gær, en fjöl-
margir fundir hafa farið fram í
virkjanadeilunni án milligöngu
sáttasemjara. Var þessi fyrsti
fundur stuttur, en nýr fundur hef-
ur verið boðaður kl. 10 nk. mánu-
dagsmorgun.
Birgir ísleifur sagði jafnframt:
„Stærstu virkjunaráætlanir sem
liggja fyrir núna, en þar á ég við
byggingu Fljótsdalsvirkjunar,
Blönduvirkjunar, stækkun Búr-
fells, Sultartangavirkjun og
Vatnsfellsvirkjun, gefa samtals
um 3.8 TWH, en það verkefni dug-
ar okkur vel til aldamóta. Með
þeim virkjunum yrðum við ein-
ungis búin að virkja um 15% af
okkar nýtanlega vatnsafli."
Er Birgir ísleifur var að þvi
spurður hversu brýn þörfin væri
fyrir Blönduvirkjun sagði hann:
„Raforkumarkaður okkar eykst
talsvert á hverju ári, vegna al-
menns iðnaðar og heimilisnotkun-
ar, eða um 6—7%. Við þurfum að
fá nýja virkjun haustið 1988 til að
lenda ekki í þeirri hættu að hér
verði rafmagnsskortur. Það er því
stefnt að því að Blönduvirkjun
verði tekin í notkun haustið 1988.
Ef engin stóriðja bætist við á
tímabilinu dugar Blönduvirkjun
okkur þar til 1994. Þannig væri
hægt að leggja til hliðar hug-
myndir um aðrar virkjanir. Hins
vegar skiptir það rafmagnskerfið
mjög miklu máli að fá nýjan
stórnotanda um leið og Blöndu-
virkjun kemst í gagnið, til þess að
nýta sem fyrst rafmagnið sem þar
fæst. Ef engin ný stóriðja kemur
verður ákaflega slæm nýting á
orkunni frá virkjuninni fyrstu ár-
in, sem þýðir auðvitað hærra raf-
orkuverð til neytenda.
Akureyri:
Hundur bítur
stúlkubarn
Akureyri, 8. maí.
Sl. sunnudag gerðist það á Ak-
ureyri, að gestkomandi maður í
bænum, frá Hrísey, var á gangi
með 7 ára gamla dóttur sína I
Norðurbyggð á Akureyri. í garði
einum þar við götuna var stór
Schefer-hundur í bandi og með
honum lítil stúlka, sem oft leikur
sér við hann. Litla aðkomustúlkan
fór inn á lóðina og hugðist klappa
hundinum, en það skipti engum
togum að hann beit hana í hand-
legg svo að hún hlaut af stórt og
ljótt sár. Liggur litla stúlkan enn
á sjúkrahúsi. Málið hefur verið
kært til lögreglunnar.
Ashkenazy kýs Cleveland
frekar en San Francisco
Bern 11. maí. Frá Önnu BjarnadóUur, fréttarilara MorfrunblaAsina.
VLADIMIR Ashkenasy mun verða aðalgestahljómsveitarstjóri sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Cleveland í Bandaríkjunum frá og með starfsárinu
1986—87. Hann ákvað eftir langa umhugsun að taka ekki við starfi hljóm-
sveitarstjóra sinfóníu San Francisco. Hann var einn af þremur heimsfræg-
um tónlistarmönnum, sem komu helzt til greina í þá stöðu, eins og greint
hefur verið frá í Morgunblaðinu. Hinir tveir voru Andre Previn, sem nú
hefur ráðið sig til sinfóníuhljómsveitarinnar í Los Angeles, og Herbcrt
Blomstedt, sem mun taka við hljómsveitarstjórn sinfóníunnar í San Franc-
„Hljómsveitarstjórastarfið í
San Francisco hefði krafizt of
mikils tíma,“ sagði Þórunn Jó-
hannsdóttir, eiginkona Ashken-
asys í samtali við Morgunblaðið á
föstudagsmorgun. „Við hefðum
þurft að vera í San Francisco í 12
til 16 vikur á ári og það er allt of
langur tími. Það hefði alls ekki
komið til greina að við flyttum
þangað þótt San Francisco sé
auðvitað afar falleg borg og ein
hin ákjósanlegasta að því leytinu
til í Bandaríkjunum." Þau hjónin
búa með fjölskyldu sinni í Luzern
í Sviss.
„Sem aðalgestahljómsveitar-
stjóri þarf Vladimir ekki að
starfa með hljómsveitinni nema í
6 til 7 vikur á ári og getur einbeitt
sér að tónlistinni. Hljómsveitar-
stjórastöðu fylgir mikið auka-
starf og stjórnun, sem hann hefur
lítnn áhuga á.“ Hljómsveitin í
Cleveland er yfirleitt talin í hópi
fimm beztu sinfóníuhljómsveita I
heimi. Stjórnandi hennar er
George Szell.
„Vladimir hefur unnið með
Cleveland-sinfóníunni áður og
samstarfið hefur verið mjög
gott,“ sagði Þórunn. „Hann
stjórnaði henni til dæmis í fyrsta
sinn við plötuupptöku í fyrra og
fékk platan „Grand-Prix“ plötu-
verðlaunin í París. Það var Ösku-
buska eftir Prokofiev. í sumar
mun hann taka „Heldenleben"
eftir Richard Strauss upp með
hljómsveitinni svo samstarfið er
þegar komið í gang þótt hann
verði ekki formlega aðalgesta-
stjórnandi hljómsveitarinnar
strax. Hann er enn fyrst og
fremst píanóleikari og mun hafa
betri tíma til að sinna því áfram
heldur en hann hefði haft, ef
hann hefði ákveðið að taka við
stöðunni í San Francisco," sagði
Þórunn.
Ashkenasy mun stjóna Fíl-
harmóníuhljómsveit Lundúna á
Vladimir Ashkenazy
Listahátíð í Reykjavík í sumar og
auk þess leika með henni við
flutning á verki eftir Mozart. Þá
mun sonur hans, Vovka, verða
einleikari með hljómsveitinni í 4.
sinfóníu Thaikovskys á Listahá-
tíð. Munu hjónin og sonur þeirra
aðeins stoppa í tvo sólarhringa á
íalnnHi í hví tilpfni.
GBerg