Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
Altari og altarismunir
*
Helgi Bragason organisti við nýja pípuorgelið.
Ytri-Njarðvíkurkirkja 5 ára
Vogum.
Sumardaginn fyrsta var þess
minnst í Njarðvíkum, að fimm ar
eru liðin frá því Ytri-Njarðvíkur-
kirkja var vígð, en það var þann
dag árið 1979.
Upphaf kirkjubyggingar í Ytri-
Njarðvík má rekja allt til þess að
sérstök sókn var stofnuð þar árið
1968, eftir að Keflavíkursókn var
skipt. Safnaðarstarf fór fram í fé-
lagsheimilinu Stapa og þjónaði
presturinn í Keflavík söfnuðinum
þar til I. janúar 1976 að Njarðvíkur
urðu sérstakt prestakall.
Fljótlega eftir að söfnuðurinn
var stofnaður var farið að huga
að kirkjubyggingu, en segja má
að upphafið hafi verið þegar
Þórlaug Magnúsdóttir stofnaði
sjóð til minningar um börn sín og
notaður yrði til kirkjubyggingar.
Teikningar lágu síðan fyrir árið
1969, gerðar af arkitektunum
Ormari Þór og Örnólfi Hall.
Fyrsta skóflustungan tekin 13.
september 1970, en aðalþunginn í
framkvæmdunum var árið 1976,
og kirkjan gerð fokheld árið 1977.
Lokaátakið hófst síðan í ársbyrj-
un 1979 og kirkjan vígð á sumar-
daginn fyrsta, þann 19. apríl.
Kirkjunni hafa borist margar
merkar og góðar gjafir á undan-
förnum árum. Systrafélagið hef-
ur gefið kirkjunni sjö steinda
glugga fyrir ofan altari. Þeir eru
teiknaðir af Leifi Breiðfjörð, en
unnir í Þýskalandi, tákna þeir
sköpun heimsins. Þá gáfu þær
systur 25 veggljós, og handrið á
stiga í kjallara. Kvenfélagið hef-
ur gefið kirkjunni pípuorgel 31/2
rödd og verður það vígt á sumar-
Sóknarnefnd, ásamt sóknarpresti og organista.
daginn fyrsta. Ingvi Þorgeirsson
og Guðbjörg Böðvarsdóttir og
börn gáfu skírnarfont, sem er úr
grágrýti og í stíl við atlari og
altarismuni.
Þá hefur kirkjunni borist pen-
ingagjafir t.d. frá Keflavíkur-
verktökum kr.300.000, íslenskum
aðalverktökum kr.100.000, Spari-
sjóðurinn kr.25.000.
Kirkjunni hafa borist gjafir
frá mörgum öðrum aðilum sem
ekki verða taldar hér. Sóknar-
nefnd færir öllum sem hafa stutt
kirkjuna á einn eða annan hátt
sínar bestu þakkir.
Sóknarnefnd hefur keypt 180
nýja stóla í kirkjuskip. Eru þeir
framleiddir í Danmörku og verða
vígðir á sumardaginn fyrsta. Þá
hafa verið keypt altari og altar-
ismunir úr grágrýti, unnið hjá
Steinsmiðju Sigurðar Helgason-
ar. Einnig keyptar grágrýtisflís-
ar a gólf fyrir framan altari og í
kringum það. Leifur Breiðfjörð
listamaður teiknaði altarismuni
og gaf hann vinnu sína.
í sumar eru ráðgerðar miklar
framkvæmdir við kirkjuna. Lok-
ið verði viðgerðum á þaki, gengið
verði frá uppsteypu á stétt og
frágangi, og kirkjan máluð að
utan ef veður leyfir.
í Njarðvíkurkirkju er einnig
safnaðarheimili. Þar fer fram
fjölþætt starfsemi flesta daga
vikunnar. Þar heldur systrafé-
lagið fundi sína, kórar halda æf-
ingar, föndur fyrir aldraða,
fermingarfræðsla og fleira.
Hljómburður er mjög góður í
kirkjunni, og tónlistarviðburðir
aigengir. 1 vetur hafa verið viku-
lega bænakvöld á fimmtudögum,
með tónlistaratriði, þar sem
fram hafa komið tónlistarfólk af
Suðurnesjum. Á fimmtudag í síð-
astliðinni viku komu svo fram
ailir listamennirnir sem höfðu
komið fram á bænakvöldum í
vetur. Á föstudaginn langa kom
Gunnar Kvaran sellóleikari fram
við guðsþjónustu.
Sóknarprestur í Njarðvík er
séra Þorvaldur Karl Helgason,
Árni Júlíusson formaður sóknar-
nefndar og Helgi Bragason
organisti.
E.G.
35 ár frá því að loft-
brúnni til Berlínar lauk
Berlínarbúar fylgjast með bandarískri birgðaflutningavél sem kemur inn til lendingar á Tempelhoff-flugvelli, hlaðin
vistum.
FRÁ OG með deginum í dag, eru 35
ár liðin frá því að „loftbrúnni"
frægu lauk formlega í Berlín.
Loftbrúin var eitt af fyrstu af-
sprengjum kalda stríðsins sem gaus
upp í lok síðari heimsstyrjaldarinnar
og hefur staðið með hléum æ síðan.
Umrædd loftbrú verður geymd í sög-
unni sem eitthvert mesta afrek
flugsögunnar, auk þess sem talið er
að afleiðingar hennar hafi haft veru-
lega þýðingu, þ.e.a.s. Vestur Þýska-
land í dag væri ekki hið sama.
Það er alkunna, að þegar Þýska-
land var sigrað, var Berlín, höfu-
borginni, fljótlega skipt í fjögur
hernámssvæði, svæði Sovétmanna
í austri, en í vestri svæði Banda-
ríkjamanna, Breta og Frakka. Svo
er enn í dag. En hernámssvæði
vesturveldanna eru nú kennd við
NATO sem Vestur Þjóðverjar eru
aðilar að af fúsum og frjálsum
vilja. Nú er kominn Berlínarmúr,
sem reistur var af Austur Þjóð-
verjum árið 1969 til að stemma
stigu við miklum straumi Þjóð-
verja vestur, og, það er táknrænt,
að það voru Áustur Þjóðverjar
sem reistu múrinn því fáir er
bjuggu fyrir vestan óskuðu að
flytjast austur fyrir.
En loftbrúin er það sem fjalla
skal um. Það var í júní 1948, að
Sovétmenn rufu allar samgöngur
til vesturhluta borgarinnar og
vildu þannig neyða vesturveldin
sem þar sátu á sínum hluta kök-
unnar, til þess að skila honum.
Sovétmenn hlóðu undir uppbygg-
ingu í austurhlutanum á kostnað
vesturhlutans áður en þeir af-
hentu vesturveldunum þann hlut
af borginni sem þeim bar sam-
kvæmt Yalta og Potzdam sam-
komulaginu sem gert var 1944. Er
borgin komst undir stjórn banda-
manna, kom í ljós að fátt var hægt
að gera vegna ólíkra sjónarmiða
og áætlanna. í júní 1948 leysti yf-
irmaður sovéska heraflans upp
sameiginlega stjórn bandamanna
og í borgarstjórnarkosningum,
kusu borgarhlutarnir hvor sinn
borgarstjóra. Skiptingin var kom-
in á fulla ferð og er Sovétmenn
einangruðu í kjölfarið vesturhlut-
ann, varð ekki aftur snúið.
Sem fyrr segir vildu Sovétmenn
með þessu móti þvinga Vestur-
löndin til að afsala sér völdum sín-
um í vesturhlutanum. Þau voru
ekki aldeilis á því, aðgerðir Sov-
étmanna vöktu tortryggni þeirra
um hvað kynni að standa að baki.
Vesturlöndin hófu því að koma
vistum og nauðsynjum til íbúa
vesturhluta Berlínar með hinni
frægu loftbrú.
Með loftbrúnni tókst að halda
lífinu í Berlínarbúum í 11 mánuði
og þrátt fyrir þrengingar var lítið
um að Sovétmönnum tækist að
lokka til sín vestur-Berlínarbúa
með fögrum fyrirheitum um
drýgri matarskammta heldur en
loftbrú Vesturlanda gæti séð þeim
fyrir. Á þessum 11 mánuðum
fluttu bandarískar og breskar
flugvélar 2,3 milljónir tonna af
matvælum og öðrum nauðsynjum
til vestur Berlínar og notuðu til
þess þrjá vestur þýska flugvelli.
Flognar voru 277.000 ferðir.
Flugvélarnar komu með vistir, en
flugu burt með þýskar útflutn-
ingsvörur, þannig hófst strax dá-
lítill útflutningur og peningar
byrjuðu að seytla inn.
Sem fyrr segir, var endir bund-
inn á loftbrúnna formlega 12. mai
fyrjr 35 árum. Að vísu hélt hún
áfram fram í september, en í
miklu smærri stíl en verið hafði.
Loftbrúin kostaði bandamenn
170.000.000 dollara. Eftir að ein-
angruninni var lokið og loftbrúin
hafði verið lögð niður, var komið
að vestur Berlín að taka stökk
fram á við. Árið 1949 var iðnaðar-
framleiðsla aðeins 19 prósent af
því sem hún hafði verið undir það
síðasta áður en heimsstyrjöldin
skall á. En árið 1954 kvað við ann-
an tón, þá hafði framleiðslan náð
70 prósent af fyrra hámarki og ár-
ið 1959 132 prósent. Á níu árum,
frá 1950 til 1959, fór atvinnuleysi í
borginni úr 300.000 í 36.000 þrátt
fyrir stöðugan straum flótta-
manna frá „frelsinu" í austur
Berlín. Sóknin var hafin.
(Bygíft * Britanniru, Al* og flciru, — gg.)