Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.05.1984, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 Pálmi Jónsson, forstjóri Hagkaups, tekur fyrstu skóflustunguna að verzlunarmiðstöóinni í nýja miðbænum. Lengst til vinstri stendur Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri byggingarinnar, þá Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, dóttursonur Pálma. Hægra megin við Pálma á myndinni eru Jón Pálmason, Ingibjörg Pálma- dóttir og Jónína Gísladóttir, eiginkona Pálma. Fyrir aftan hana er Ólafur Hjaltason, starfsmaður Hagkaups, þá Stanley Carter, ráðgjafi fyrirtækisins, og lengst til hægri framkvæmdastjórarnir Magnús Ólafsson og Sigurður Gísli Pálmason. Almennar sýningar á Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar: Hagkaup: Framkvæmdir hafnar við nýja verzlunarmidstöð FYRSTA skóflustungan fyrir versl- unarmiðstöð Hagkaups í nýja miðbænum, austan Kringlumýr- arbrautar í Reykjavík, var tekin laugardaginn 5. maí \ frétt frá Hagkaup segir að tilboð hafi verið opnuð í jarð- vinnu 1. áfanga 6. apríl 1984 og var tekið tilboði ístaks, íslensks Verktaks hf. Verslunarmiðstöðin er byggð á vegum Hagkaups sem mun flytja aðalstarfsemi sína í húsið, en jafnframt munu 45 sérverslanir af ýmsum stærðum vera innan veggja verslunar- miðstöðvarinnar og munu þær flestar vera við yfirbyggða göngugötu. Við verslunarmið- stöðina verður bílageymsla á tveim hæðum með u.þ.b. 1.000 bílastæði og stækkunarmögu- leikum fyrir 500 bílastæði. Stefnt er að því að opna verslunarmið- stöðina í júlí 1987. Arkitektar byggingarinnar eru frá Teikni- stofunni, Laugavegi 96, í sam- vinnu við enskt arkitektafyrir- tæki, Bernard Engle Partner- ship. Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. sér um verk- fræðilega hönnun byggingarinn- ar. Framkvæmdastjóri verksins er Ragnar Atli Guðmundsson, viðskiptafræðingur. Hmfnarhúsið í Reykjavík brennur. Úr Reykjavíkurmynd Lofts Guðmunds- sonar. Almennar trygg- ingar bjóöa í bíó REYKJAVÍKURMYND Lofts Guðmundssonar, sem hann gerði á árunum 1943—44, var frumsýnd í Austurbæjarbíói á miðvikudag. Sýningar fyrir almenning verða í Austurbæjar- bíói á sunnudag kl. 14 og einnig sunnudaginn 20. maí í boði Almennra trygginga, sem greiddu allan kostnað við endur- bætur á myndinni, sem lá undir skemmdum. Morgunblaðið hafði samband við Olaf B. Thors, fram- kvæmdastjóra Almennra trygg- inga- og innti hann nánar eftir þessu. „Það má segja að kveikjan að því að Almennar tryggingar tóku að sér að greiða kostnað við að gera myndina upp, hafi verið viðtal í sjónvarpinu í fyrra við Erlend Sveinsson um gamlar ís- lenskar kvikmyndir," sagði ólafur og hélt áfram: „í máli Erlends kom meðal annars fram að þessi Reykjavíkurmynd lægi undir skemmdum og var því ákveðið að í tilefni 40 ára af- mælis Almennra trygginga skyldi fyrirtækið greiða fyrir varðveislu myndarinnar með þessu móti.“ Vallargirö- ingin lagfærð í sumar TÖLVERÐAR lagfæringar eru nú fyrirhugaðar á girðingunni umhverf- is Kefiavíkurfiugvöll. Ennfremur er fyrirhugað að færa hana til ofan Njarðvíkur. Að sögn Sverris Hauks Gunn- laugssonar, deildarstjóra varnar- máladeildar utanríkisráðuneytis- ins, verður girðingin ofan Njarð- víkur færð innar á tankasvæðið og tveir olíutankanna þar rifnir til að veita bænum meira landrými. Þá sagði hann, að í sumar væru fyrir- hugaðar töluverðar lagfæringar á girðingunni í heild eða nokkru meiri en undanfarin ár. Mynd þessa tók Loftur um það leyti sem Almennar trygg- ingar hófu starfsemi sína eða á árunum 1943—44. Er hann hafði lokið gerð hennar hélt hann til Bandaríkjanna með filmuna til að fá hana framkallaða og sendi svo eintak af henni til íslands. Ekki gekk þó áfallalaust að koma myndinni til landsins, því tvívegis sukku skip, sem áttu að flytja hana hingað. Að lokum, í þriðju tilraun, komst myndin svo til landsins. — Er ekki dýrt að vinna slíka mynd upp? „Enn sem komið er, hefur dæmið ekki verið gert endanlega upp,“ segir ólafur, „en það er ljóst að kostnaðurinn skiptir hundruðum þúsunda. Eintak af myndinni var sent til Danmerk- ur, þar sem filman var gerð upp og tekið afrit af myndinni. Auk þess hafa millitextar verið settir í myndina.“ Rétthafi myndarinnar er Reykjavíkurborg, en þegar gerð- ur var samningurinn um að Al- mennar tryggingar greiddu kostnað við að gera myndina upp, var ennfremur ákveðið að Almennar tryggingar gætu boð- ið upp á sýningar á myndinni fyrir almenning. Á sýningum myndarinnar núna næstu tvo sunnudaga, verður leikin tónlist með mynd- inni. Píanóleikarinn Jónas Þórir Jónasson sér um að „gamla bíóstemningin" náist en að þess- um sýningum loknum verður myndin afhent Reykjavíkurborg og varðveitt á Kvikmyndasafni íslands. 472 konur vilja 6 mánaöa fæöingarorlof KONUR f Kvennahreyfingunni á Héraði stóðu fyrir undirskriftasöfn- un í vikunni fyrir páska til stuðnings frumvarpi til laga um lengingu fæð- ingarorlofs úr þremur mánuðum { sex mánuði, en fiutningsmaður til- lögunnar er Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir. Á Egilsstöðum og í Fellabæ söfnuðust 472 undirskriftir og í tilkynningu frá Kvennahreyfing- unni á Héraði segir að þær skori á kynsystur ínar að standa fyrir slíkri undirskriftasöfnun meðal landsmanna, frumvarpinu til stuðnings. Tilboð sem verður ekki endurtekið Gildir til 19. maí ’84. 30% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum verzlunarinnar OPIÐ: alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 opiö frá kl. 10—3 e.h. K.M. Húsgögn Langholtsvegur 111 — Símar 3701 0— 37144 — Reykjavík. ATH: Tilboöið verður ekki endurtekið. spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS BYGGINGARMÁL Hér birtast spurn- ingar lesenda um byggingarmál og svör Hákons Ólafssonar yfirverkfræðings og Péturs H. Blöndals framkvæmdastjóra. PÉTUR H. BLÖNDAL A m HÁKON ÓLAFSSON Rósa Ingólfsdóttir spyr: Hvar stendur sá maður fjár- hagslega, sem á um 73 m2 þriggja herbergja skuldlausa íbúð, sem er með nýjum teppum, er nýmáluð og nýuppgerð, ef hann vill kaupa til dæmis Hosby- eða Aneby-einingahús? Hversu mikið fjármagn þarf hann að hafa á milli handanna? Og hvað getur svona íbúð verið stór hluti útborgunar í slíkt hús? Hafsteinn Guðmundsson spyr: Hvaða steypuefni notaði Steypustöðin Verk á árunum 1966—67? Á þeim tíma steypti þessi steypustöð fyrir mig hús og mig langar að vita hvort ég get átt von á alkalískemmdum. Eg hef ekki orðið var við neinar skemmdir ennþá, en get ég átt von á þeim? Magnús Sigurðsson spyr: Hvers vegna er ekki lögð áhersla á málun húsa með al- kalískemmdir? Ég veit að þau hús sem hafa slíkar skemmdir og eru vel máluð, þá meina ég af fagmönnum, eru miklu betur varin gegn alkalískemmdum. í allri umræðunni um alkalí- skemmdir og viðhald húsa. finnst mér allt of lítið tillit vera tekið til utanhússmálunar, því hún er ekki eingöngu fegrun, heldur einnig vörn gegn leka og skemmdum, hvort heldur er á steini eða timbri og/eða járni. Málningin auðveldar ennfremur hreingerningu á húsum og ég vil benda fólki á að láta faglærða húsamálara mála húsin sín, því það margborgar sig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.