Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 36

Morgunblaðið - 12.05.1984, Síða 36
Tf. 36 * or» r ^ * MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1984 Minning: Finnbogi Magnús- son Patreksfiröi Fæddur 28. maí 1931 Dáinn 2. maí 1984 Hann Bogi er dáinn. Það kom að vísu ekki óvænt, en fráfall vinar vekur ætíð trega. Hann hefur haldið úr höfn í sína síðustu sjóferð, til þeirrar heimahafnar, sem við öll náum landi í að lokum. Við segjum góða ferð og þökkum þá stuttu sam- fylgd, sem við urðum aðnjótandi. -Við minnumst þess með þakklæti, að ef við leituðum til hans með eitthvað, sem hann gat leyst úr, þá gerði hann það. Elsku Stína amma, Dómhildur og þið öll. Fyrir Boga er stríðinu lokið og hann bíður rólegur sam- fundanna. Hann siglir nú lygnan sjó. Við munum minnast hans eins og hann var: Ötull og óþreytandi, féll aldrei verk úr hendi, hann gafst aldrei upp. Guð blessi minningu hans og létti ykkur sorgina. Svenniog Begga f dag, laugardaginn 12. maí, fer fram útför Finnboga Magnússon- ar skipstjóra og útgerðarmanns, frá Patreksfjarðarkirkju, en hann lést 2. maí. Finnbogi fæddist 28. maí 1931 á Hlaðseyri við Patreksfjörð. For- eldar hans voru Kristín Finnboga- dóttir, sem lifir son sinn, og Magnús Jónsson, sem lést fyrir nokkrum árum. Finnbogi ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt bræðrum á Hlaðseyri, þar til hann fór ungur maður að heiman. Hann valdi sér sjómennsku að starfi. Fljótt varð hann skipstjóri á fiski- skipum og síðar annálaður afla- maður. Þegar ritað er eftir slíkan mann sem Finnboga þá er þörf að koma víða við til að fylla myndina. Það er ekki á færi þess, sem hér er að verki. Finnbogi var myndarlegur maður og svipmikill. Hann var þéttur í lund og hreinn og beinn í framkomu. Hann var góðum gáf- um gæddur í ríkum mæli. Hann hafði næmt auga fyrir umhverfinu og fyrirbærum náttúrunnar og staldraði oft við þar sem aðrir gengu framhjá. Finnbogi gerði miklar kröfur til sjálfs sín og gat verið harður við aðra. Það sem hann tók að sér var í öruggum höndum. Það er sama hvernig á er litið, honum fórst allt vel úr hendi hvort sem það var í leik eða starfi. Finnbogi var mikill veiðimaður Fædd 8. nóvember 1955. Dáin 26. aprfl 1984. Ég fékk hringingu frá Englandi þann 27. apríl síðastliðinn þar sem mér var tilkynnt að hún Þórunn væri dáin. Ég gat ekki trúað því þá því ég hitti hana fríska og ham- ingjusama um páskana og aðeins tveimur dögum eftir heimkomu mína er hún öll. Foreldrar Þór- unnar eru þau Sigríður Er- lendsdóttir og Finnur Eyjólfsson og átti Þórunn sex systkini. Þór- unn lauk 5. og 6. bekk frá Gagn- fræðaskólanum í Keflavík og hóf síðan nám í hjúkrun haustið 1973 við HSÍ og að námi loknu vann hún við hjúkrunarstörf á hand- lækningadeild Landspítalans og síðan á gjörgæsludeild sama stað. Árið 1979 hóf hún nám í svæf- ingarhjúkrun við Nýja hjúkrun- arskólann og lauk því á tveimur árum, jafnframt því stundaði hún nám við öldungadeild Hamra- hlíðarskólans og vantaði aðeins einn vetur uppá stúdentspróf. Sumarið ’82 fórum við til Eng- lands til að læra ensku betur og eins til að fá breska ríkisviður- kenningu á okkar hjúkrunarnámi. og hafði yndi af veiðiskap. Sér- staklega var hann snjall lax- og silungsveiðimaður og búinn hæfi- leikum snillingsins í þeim efnum. Finnbogi var áhugamaður um fiskrækt og fiskeldi og lagði sitt af mörkum á því sviði. Finnbogi sinnti ekki mikið fé- Þetta var erfitt en tókst og hófum við vinnu þar og vann Þórunn á brunadeild og síðar á lýtalækn- ingadeild, og fékk hún svo mikinn áhuga á þessari tegund hjúkrunar að hún sótti um 9 mánaða skóla- vist og var nú nýbúin að fá svar frá tveimur sjúkrahúsum, á öðru lagsstörfum, enda var honum það örðugt starfa sinna vegna. Hann var áhugasamur og ötull félagi í Stangaveiðifélagi Patreksfjarðar og formaður um nokkur ár. Finn- bogi var góður félagi og boðinn og búinn að miðla af reynslu sinni og þekkingu á hinum ýmsu sviðum. Hann var þeim raungóður sem til hans leituðu. Finnbogi kvæntist Dómhildi Eiríksdóttur, ættaðri úr Arnar- firði. Þau eignuðust 7 börn, sem öll eru á lífi, tvo syni og fimm dætur. Það var hlutskipti Dóm- hildar, sem lifir mann sinn, að standa fyrir stóru heimili og sjá fram úr öilum vandamálum þess í löngum fjarverum eiginmannsins. Það gerði hún með prýði. Komið er að kveðjustundu, en þá er oft tregt um orð, svo er einn- ig nú. Fari góður félagi í friði. Móður, eiginkonu, börnum og öðrum ættingjum hins látna er vottuð dýpsta samúð. Fyrir hönd Stangaveiðifé- lags Patreksfjarðar, Úlfar B. Thoroddsen átti námið að hefjast í ág- úst á þessu ári en á hinu í apríl ’85. Var hún mjög hamingjusöm yfir þessu því hún var jú útlendingur og margir sem sóttu um. Þetta sýnir best hve vel henni gekk. En svo er allt búið og svo snöggt að maður skilur þetta ekki, en henni hlýtur að vera ætlað eitthvað ann- að og meira á öðrum stöðum. Haustið ’82 veiktist Þórunn og var innlögð mjög veik á sjúkrahús. Eftir þá legu kom í ljós að blóð- sykur hennar hafði verið í algjöru lágmarki. Hún hresstist og hóf vinnu á ný. Var Þórunn ein á göngu er hún fannst látin og við rannsókn kom í ljós að blóðsykur var í lágmarki og um mikla hjartabilun var að ræða. Ég spyr sjálfa mig, hefði þetta skeð ef ein- hver hefði verið með henni í gönguferðinni eða var hennar tími kominn? Ég kveð ástkæra vinkonu sem reyndist mér svo vel og ég þakka henni allt og allt. Ég bið góðan Guð um að styrkja foreldra, systkini og aðra vandamenn í þeirra þungu sorg. Steinunn Krossar á leiöi Framleidi krossa á leiöi. Mismunandi geröir. Uppl. í síma 73513. Bróöir okkar, t ÁRNI KÁRASON, Melgerði 26, Kópavogi, lést 10. maí. Kristjana Káradóttir, Sfefón Kárason. t Maöurinn minn og faðir okkar. SIGURGEIR GUÐMUNDSSON, fyrrverandi skólastjóri, Sunnuvegi 4, er látinn. Kristín Magnúsdóttir og börn. t Eiginkona mín, ÁSGERÐUR S. SÓFUSDÓTTIR, Reynimel 92, lést í Landakotsspítala 8. maí. Fyrir hönd vandamanna, Guðjón Pélsson. Minning: Þórunn Finnsdóttir hjúkrunarfrœðingur t Móöir okkar, RAKEL VETURLIÐADÓTTIR, Álftamýri 6, Reykjavík, andaöist í Borgarspitalanum hinn 10. maí. Börnin. t Jarðarför eiginmanns míns, SIGURÐAR MAGNÚSSONAR, fyrrum hreppstjóra, sem lóst 7. þessa mánaöar fer fram frá Stykkishólmskirkju mánu- daginn 14. maí kl. 14.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuö en þeir sem vilja minnast hans láti sjúkrahúsiö í Stykkishólmi njóta þess. Ingibjörg Daöadóttir og vandamenn. t Innilegustu þakkir færum viö öllum þeim sem á margan hátt heiör- uðu minningu frænda okkar, HALLDÓRS GÍSLA GUNNLAUGSSONAR, Kiójabergi, sem andaðist 24. apríl sl. Blessuö veri minning hans. Guö blessi ykkur öll. Systkinabörnin. Minigolf á Akureyri: Bæjarstjórn tvístígandi um hverj- um á að veita heimild til rekstrar Akureyri, 9. maí. ÞAU GETA verið erfið úrlausnar stóru málin sem bæjarfulltrúar á Akureyri þurfa að ráða fram úr. Eitt slíkt er nú til umfjöllunar í bæjarstjórn og hefur því máli tví- vegis verið vísað aftur til bæjar- ráðs til frekari athugunar á hvort leyfa eigi einstaklingi að reka um eins árs skeið minigolf á lóð Sundlaugar Akureyrar við Þing- vallastræti. Eins og sagt var frá í Mbl. fyrir tveimur vikum kom til af- greiðslu í bæjarstjórn bókun íþróttaráðs, þar sem það fyrir sitt leyti heimilaði Hreiðari Jónssyni að setja upp, tíma- bundið, minigolf við sundlaug- ina. Bæjarstjórn treysti sér ekki til að taka ákvörðun í málinu þá og vísaði því til bæjarráðs, sem síðan samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 26. apríl, að umrætt leyfi yrði veitt. Nú kom málið aftur til afgreiðslu bæjarstjórnar í gær og þá gerðist það að Jón Sigurð- arson (F) gerði að tillögu sinni, að málinu yrði enn á ný vísað tií bæjarráðs, þar sem sundlaugar- stjóri hefði lýst áhuga sínum á að sundlaugin sjálf setti upp slík tæki á umráðasvæði sínu. Eftir smáhnútukast bæjarfulltrúa m.a. um opinberan rekstur og einkarekstur, samþykktu full- trúar einróma að vísa málinu enn á ný til bæjarráðs, einnig þeir fimm fulltrúar í bæjar- stjórn, sem eiga sæti í bæjar- ráði. GBerg. Þroskaþjálfaskóli ís- lands fær nýtt húsnæði NYTT húsnæði Þroskaþjálfaskóla íslands að Skipholti 31, Reykjavík, verður vígt næstkomandi fímmtu- dag og hefst athöfnin kl. 15. Um leið og hið nýja húsnæði verður vígt, verða 24 þroska- þjálfarar brautskráðir frá skól- anum. í frétt frá skólanum segir m.a. að námstími við skólann sé þrjú ár og skiptist hvert námsár í bóklega og verklega önn. Kenn- arar og gestafyrirlesarar eru um 40 talsins og í vetur stunduðu 67 nemendur nám við skólann. Nýútskrifaðir nemendur fara ár hvert í námsför erlendis og eru ferðirnar skipulagðar af hálfu skólans. Að þessu sinni fara nemendur til Boston og skoða stofnanir fyrir þroska- hefta þar. Þroskaþjálfaskóli íslands lýt- ur yfirstjórn Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis. Skólastjóri er Bryndís Víg- lundsdóttir, en yfirkennari er Þórey Kolbeins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.