Morgunblaðið - 12.05.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
37
Forskoðun fyrir fjórðungsmótin:
Sama lágmarks-
einkunn fyrir stóð-
hesta og hryssur
Eins og kunnugt er af fréttum
verða haldin tvö fjórðungsmót á
komandi sumri, þ.e.a.s. á Vestur- og
Austurlandi. Verða mótin haldin
fyrstu og aðra helgina í júlí og eru
aðeins þrír dagar frá því fyrra mót-
inu lýkur þar til dómstörf hefjast á
því seinna. Mótið fyrir austan, sem
verður haldið að Fornustekkum,
hefst nánar tiltekið þann 27. júní en
lýkur 1. júlí. Mótið á Kaldármelum
hefst 5. júlí og lýkur 8. júlf.
Ákveðið hefur verið á vegum
Búnaðarfélags Islands að forskoð-
un kynbótahrossa fyrir þessi mót
hefjist þann 20. maí með því að
farið verður um Austfirði en for-
skoðun byrji á Vesturlandi þann 4.
júní á Ströndum. Eins og venja er
ti! verða í gildi lágmarkseinkunnir
fyrir kynbótahross til að komast
inn á fjórðungsmót og gildir það
sama fyrir stóðhesta og hryssur.
Hross sem eru sex vetra og eldri
þurfa að ná 7,80 í meðaleinkunn,
fimm vetra þurfa að ná 7,70 og
fjögurra vetra hrossin þurfa að ná
7,60 í einkunn. Sé um að ræða af-
kvæmahross þurfa þau að ná 7,70 í
einkunn fyrir afkvæmi. Lögð er
rík áhersla á að gerð sé vönduð
skráning á sérstök eyðublöð, sem
fást hjá forráðamönnum hesta-
mannafélaga og ráðunauta og for-
svarsmanna félaga, en þeir sem í
dreifbýli búa skila þessum blöðum
við forskoðunina. Forskoðuninni
verður annars háttað sem hér seg-
Forskoöun kynbóta-
hrossa voriö 1984
Austurland
20.-21. maí Um Austfirði til Norðfj.
22. maí Othérað, Borgarfjörður
23.-24. maí Iðavellir, Inn-Hérað
25.-26. maí Fornustekka-völlur
27. maí Suðursveit.
Þeir, sem óska eftir forskoðun
kynbótahrossa á fjörðum í S-Múl.
láti vita sem fyrst, svo hægt sé að
koma við á leiðinni austur.
Sammála
um sjávar-
útveg
Osló, 9. maí. Frá l*er A. Borglund,
frétlaritara Mbl.
NORSKIR þingmenn cru í aöalatrið-
um sammála um stefnuna í sjávar-
útvegi ef marka má umræöur um
máliö á þingi í gær. Eru þaö fyrst og
fremst byggöasjónarmiöin, sem þar
eru í öndvegi.
í máli stjórnarandstæðinga sem
stjórnarsinna kom fram, að stefn-
una í sjávarútvegi skuli miða við
það, að hún treysti undirstöður
byggðarinnar úti um landið og sjái
fólki fyrir atvinnu og líkum tekj-
um og gerist í öðrum atvinnu-
greinum. Ljóst er þó, að áfram
verða að gilda strangar reglur um
veiði ákveðinna fisktegunda næstu
fimm árin eða þar til stofnarnir
hafa rétt úr kútnum.
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Vesturland
4. júní
5. júní
6. júní
7. júní
8. júní
9. júní
12. júní
13. júní
Strandasýsla
Reykhólar, Dalasýsla
Stykkishólmur, Grund-
arfjörður, Ólafsvík
Snæfellsnes, sunnan
fjalla
Reykholtsdalur
Bæjarsveit, Andakíll
Skipanes, Akranes.
Mýrasýsla.
Frá fjóröungsmótinu á Kaldármelum 1980. Stóðhesturinn Ófeigur 818 frá Hvanneyri með afkvæmum.
Lágmúla 7,
Reykjavík — Sími 85333
SJONVARPSBUDIN
VALIÐ ER VANDALAUST
STÍLHREIN STOFUPRÝÐI:
FINLUX 22“ litasjónvarp, þrautreynt
gæöatæki meö hirium víökunna OBC „Hi-
focus, Hi-bright“ myndlampa, 100 rásum,
tölvuminni, sjálfleitara og sjálfvirkri skarp-
leikastillingu. Tækiö hefur úrtak fyrir auka
hátalara og heyrnartól, og tengi fyrir segul-
band eöa magnara. Spennustilling er sjálf-
virk, 187—260 volt og tækið notar aöeins 70
vatta raforku.
Verö aðeins kr. 29.950 stgr.
FISHER P-615 myndsegulbandiö er
fyrirferöarlítiö og létt úrvalstæki, sem hefur
12 sjónvarpsrásir, 9 daga upptökuminni og
klukku meö stillingu fyrir byrjun upptöku.
Spólun til baka að lokinni snældu er sjálfvirk,
kyrrmynd er truflanalaus og myndleitun fram
og til baka er á 5-földum hraöa. Tækinu fylgir
fjarstýring meö þræði.
Verð aðeins kr. 34.900 stgr.
FISHER VFT 480 sjónvarpsskápur:
Glæsilegur skápur á hjólum, meö hillu, sem
lokast meö glerhurö, fyrir myndsegulband og
skúffu fyrir spólur.
Verö aðeins kr. 3.700 stgr.
FRAMTÍÐAREIGN FJÖLSKYLDUNNAR
Hafnargötu 54,
Keflavík, sími 92-3634
SJONVARPSBUDIN