Morgunblaðið - 12.05.1984, Page 48
Opió ötl fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Opið alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
AUSTURSTRÆTI 22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633.
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Flugmannadeil-
an komin í hnút
Þátttakendur í fegurðarsamkeppninni
Kynning á stúlkunum 10, sem næstkomandi föstudag keppa um titilinn ungfrú fsland 1984 fór fram i
veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Þar komu stúlkurnar fram á baðfötum og í kvöldkjólum, „vinsælasta
stúlkan" var valin og „ljósmyndafyrirsæta ársins". Úrslit þess vals lágu ekki fyrir, þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Stúlkurnar á myndinni eru frá vinstri: Berglind Johansen, Elva Ósk Ólafsdóttir, Guðlaug Stella
Brynjólfsdóttir, Guðný Benediktsdóttir, Guðrún Reynisdóttir, Heiðdís Jónsdóttir, Herdís Óskarsdóttir, Jó-
hanna Sveinjónsdóttir, Magðalena Ósk Einarsdóttir og Sólveig Þórisdóttir. Morgunblaai»/RAX.
Flugmenn hefja skæruhernað?
ENGAR bókanir á flutningi á vegum
Randaríkjahers til íslands hafa borist
til Eimskips eða Hafskips frá því yfir-
stjórn sjóflutninga hersins, Military
Sealift Command, gaf Rainbow Navig-
ation-skipafélaginu grænt Ijós til bók-
ana á skip þess, Kainbow Hope, á
fostudag í síðustu viku.
Samkvæmt upplýsingum frá Haf
skip átti Hvítá að sigja frá Norfolk
Samningaviðræður flugmanna
Flugleiða og samninganefndar Flug-
leiða sigldu í strand hjá ríkissátta-
semjara laust fyrir hádegi í gær, er
Flugleiðir tjáðu ríkissáttasemjara að
þeir gætu ekki staðið í samningum
Aldraðs
sjómanns
saknað
l»ór.shöfn, 11. maí.
ALDRAÐS sjómanns héðan frá Þórs-
höfn hefur verið saknaö síðan í gær.
Hann fór út um hádegisbilið einn á
báti til að vitja línu og þegar hann
hafði ekki koraið til lands í morgun var
leit hafin. Bátur hans fannst fljótlega
mannlaus, en seint í kvöld hafði mað-
urinn ekki fundizt.
Það var klukkan rúmlega 9 í
morgun að beiðni kom til björgun-
arsveitarinnar Hafliða hér á Þórs-
höfn um að svipast um eftir opnum
trillubát með einum manni, sem
hafði farið út í línuróður um hádeg-
isbilið í gær og var ekki kominn
fram. Stuttu seinn fann flugvélin
TF-JEG bátinn þar sem hann var á
reki við Grenjanes. Flutningaskipið
Saga var stutt frá og sendi menn um
borð, en báturinn var mannlaus.
Rétt í þann mund, er Saga sendi
mennina um borð, kom mb Sólveig
ÞH á staðinn og tók bátinn i tog til
Þórshafnar.
Strax var hafin skipuleg ieit af
manninum og leituði 6 til 7 bátar á
þeim slóðum, sem maðurinn hafði
lagt línu sína og báturinn fannst. Þá
leituðu 15 til 20 manns fjörur. Leitin
bar ekki árangur og átti að halda
áfram í dag.
— Þorkell
við flugmenn á þeim forsendum sem
uppi voru á fundinum í gærmorgun.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hófst sáttafundur hjá rík-
issáttasemjara í gærmorgun á því
að flugmenn lýstu því yfir að þeir
hefðu ekki fallið frá einni einustu
af kjarakröfum sínum. Auk þess
greindu þeir frá því að þeir gætu
ekki fallist á breyttar áhafnaskrár
vegna sameiningar á flugi til New
York og Chicago. Áhafnaskrá er
tilkynning til flugmanna um
vinnutíma og frídaga og hefur það
tíðkast að Flugleiðir gætu flutt
flugmenn á milli fluga, ef það hefur
ekki að öðru leyti raskað vinnutíma
þeirra, í því tilfelli að flugi hafi
verið breytt, eða fellt niður. Nú
gerðist það í gærmorgun að flug-
menn greindu frá því að þeir
myndu ekki leyfa að flugmenn á
leiðinni til Chicago væru fluttir
yfír á New York-flugið, þar sem
það hefði í för með sér röskun á
vinnutíma þeirra. Hefði viðkom-
andi lagt af stað klukkustund síðar
en hann hefði gert á leiðinni til
Chicago og komið til baka degi
fyrr. Líta Flugleiðamenn í samn-
inganefndinni á þessar aðgerðir
flugmanna sem skæruhernað og
segja hann vaida félaginu ómældu
tjóni, þar sem kalla þurfi út vara-
menn í svona tilvikum, og segjast
þeir ekki geta staðið í samninga-
viðræðum undir svona kringum-
stæðum. Var fundi því slitið, um
hádegi, án þess að nokkuð hefði
þokast í samkomulagsátt. Nýr
fundur hefur ekki verið boðaður, og
það stendur því enn að flugmenn
Flugleiða hafa boðað verkfall á
föstudag, Iaugardag og sunnudag í
næstu viku. Það skal tekið fram að
það eru einungis flugmenn Flug-
leiða, sem boðað hafa verkfall. Flug
verður með eðlilegum hætti hjá
Arnarflugi og öðrum flugfélögum
um næstu helgi.
Alvarlegt dráttarvél-
arslys í Álftafirði
Djúpavogi, 11. maí.
SÍÐDEGIS í gær varð það slys í Álfta-
firði, að dráttarvél valt út af þjóðvegin-
um þar. Ökumaður dráttarvélarinnar
slasaðist nokkuö og var fluttur með
sjúkraflugvél til Reykjavíkur um mið-
nættið.
Ekki er ljóst með hvaða hætti
slysið varð, en vélin fór út af vegin-
um milli Geithellna og Blábjarga.
ökumaður dráttarvélarinnar, maður
um tvítugt, fór úr liði um hné og
skrámaðist talsvert. Líðan hans mun
vera eftir atvikum.
Ingimar.
Flutningar íslensku skipanna fyrir varnarliðið:
í gærkvöld áleiðis til Islands. 1 far-
minum voru m.a. 23 gámar með vör-
um til varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Flutningur fyrir gámana
hafði verið pantaður fyrir síðustu
helgi og var ekki afturkallaður.
Bakkafoss, skip Eimskipafélagsins,
siglir heimleiðis á föstudag. Enginn
varningur til varnarliðsins verður í
þeirri ferð.
Samkvæmt heimildum Mbl. eru
líkur taldar á, að Rainbow Hope láti
ekki úr höfn þann 16. eins og áætlað
var, heldur doki við I nokkra daga til
þess að fá aukinn farm. Magnús
Ármann, framkvæmdastjóri Skip-
amiðlunar Gunnars Guðjónssonar
sf., umboðsfyrirtækis Rainbow Na-
vigation hérlendis, sagðist í samtali
við Mbl. í gær hins vegar ekki vita til
þess að brottfaradegi skipsins hefði
verið breytt.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um munu skip Rainbow Navigation
aðeins hafa viðkomu í Norfolk, en
skip Hafskips og Eimskips hafa
einnig haft viðkomu í New York til
þess að bæta þjónustuna. New York
er talin mjög dýr höfn, hvað hafnar-
gjöld snertir. Hyggst Rainbow-
skipafélagið flytja vörur sínar til og
frá Norfolk landleiðina með bifreið-
um. Ekki er Mbl. kunnugt um, hver
greiðir þann flutningskostnað.
Sú spurning hefur komið upp
hvort íslensku skipafélögin gætu
ekki mætt vandamálinu með því að
leigja skip, sem sigldi undir bandar-
ískum fána. Jón Hákon Magnússon,
framkvæmdastjóri markaðssviðs
Hafskips, svaraði því til, að slíkt
væri ekki mögulegt og tilgreindi eft-
irfarandi ástæður:
• í fyrsta lagi nytu bandarískir sjó-
menn öflugrar verndunar stéttarfé-
laga og engu erlendum vinnuafli
væri hleypt í raðir þeirra. Fyrir vik-
ið fengju þeir mun hærri laun en i
sambærilegum störfum í öðrum
löndum.
• í öðru lagi væri með því verið að
flytja vinnuafl frá Islandi. Slíkt
samrýmdist ekki stefnu Islensku
skipafélaganna, sem tækju skip með
erlendum áhöfnun á leigu til eins
skamms tíma og mögulegt væri.
Fluttur með-
vitundarlaus
í slysadeild
ROSKINN ökumaður var fluttur með-
vitundarlaus í slysadeild Borgarspítal-
ans í gær um klukkan 18.25, eftir að
bifreið hans valt við Straumsvík. Talið
er aö orsök slyssins hafi verið að mað-
urinn hafi fengið aðsvif.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar, skemmdist bifreið mannsins
mjög mikið við veltuna, en bifreiðin
var af Suzuki-gerð.
Hagkaup hefur innflutn
ing á enskum kartöflum
HAGKAUP hafa nú látið skipa út
fyrir sig um 20 lestum af nýjum
enskum kartöflum í Englandi. Eru
þær væntanlegar í verzlanir Hag-
kaupa um miðja næstu viku og að
sögn fulltrúa framkvæmdastjóra,
Gísla Blöndal, er áætlað að verð
kartaflnanna verði undir 20 krónum
hvert kfló. Kflóverð af kartöflum nú
er 18,40 krónur.
Gísli Blöndal sagði í samtali við
Morgunblaðið, að í ljósi þeirrar yf-
irlýsingar, sem fram hefði komið í
ríkisútvarpinu á fimmtudags-
kvöldið, þar sem sagt var að for-
sætisráðherra væri fylgjandi
frjálsum innflutningi á kartöflum,
hefði fyrirtækið látið skipa út í
Englandi á föstudag um 20 lestum
af fyrsta flokks enskum kartöfl-
um.
„Það hefur verið í gangi hjá
okkur undirskriftasöfnun frá þvi
klukkan 11 á föstudagsmorgun,
þar sem skorað er á stjórnvöld að
gefa innflutning á kartöflum og
nýju grænmeti frjálsan á þeim
tíma, sem innlend gæðafram-
leiðsla annar ekki eftirspurn. Um
kvöldið voru þegar komnir hátt á
annað þúsund manns á þessa und-
irskriftalista og sú staðreynd seg-
ir í raun og veru allar staðreyndir
í þessu hörmungarmáli. Ég hef
aldrei orðið vitni að slíku áður og
auk þess hafa viðskiptavinir okkar
verið ósparir á stuðningsyfirlýs-
ingar í þessu máli. Við teljum að
Grænmetisverzlun rikisins hafi í
raun sjálf svipt sig einkaleyfinu
til innflutnings með ítrekuðum
brotum á þeirri reglugerð, sem
henni ber að starfa eftir. Við erum
ánægðir með undirtektir almenn-
ings og ráðamanna í þessu máli og
trúum því, að atburðir sem þessir
þurfi ekki að endurtaka sig, það er
að bjóða landsmönnum upp á óæt-
ar kartöflur," sagði Gísli Blöndal.
Viðskiptavinir í Hagkaupum skrá sig á undirskriftalistana, en í gærkvöldi
höfðu á annað þúsund manns skráð nafn sitt á þá. Morgunblaóið/KEE.
Engar farmpantanir
frá því á mánudag