Morgunblaðið - 20.05.1984, Síða 38

Morgunblaðið - 20.05.1984, Síða 38
tftor iav m írir»/.nTTixuTTP htha munntmM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984 Vegir — æðakerfi samfélagsins Forsetar finna að störfum þingnefnda Meiri frandög — minni lán Ríkisstjórnin hefur ákveðið að 50% af skatttekjum af benzíni renni til vegagerðar. Þetta þýðir að vegagerð verður í ríkari mæli fjármögnuð með framlögum úr ríkissjóði og mörkuðum tekjum en í minna mæli með lántökum. Sjá meðfylgjandi súlurit um nýbyggingu vega, brúa og fjallvega. Lántökur námu yfir 70%af fjármögnun vega og brúa 1982 en 35,7% 1984. Hlutfall benzínskatta, sem gengið hafa til vegagerðar, hefur verið mismunandi. Aðeins 36 % benzínskatta gekk til vegagerðar 1981,1982 og 1983, — en nú 50%sem fyrr segir. Fyrsti kafli þingbréfs í dag fjallar um vcgaáætlun, síðan verður lauslega drepið á störf þingnefnda og misvægi atkvæða. • Samkvæmt breytingartillögum fjárveitinganefndar við vegaáætlun verður l.383 m.kr. varið til vegamála 1984. Áætlun liðins árs stóð til 1.049 m.kr. útgjalda. Meðaltalshækkun verðlags milli áranna 1983 til 1984 er talin 22%. • Skipting vegafjár 1984 er þessi: 539 m.kr. til viðhalds þjóðvega, 554 m.kr. til nýrra þjóðvega, 90 m.kr til vega í kaupstöðum og kauptúnum, 70 m.kr. til stjórnunar, tæknilegs undirbúnings o.fl., 64,5 m.kr. til brú- argerða, 37 m.kr. til sýsluvega, 16,7 m.kr. til fjallvega, 7,4 m.kr. til véla- kaupa áhaldahúsa og 4 m.kr. til til- rauna. • Framlög til vegamála eru lækkuð um 20 m.kr. frá fyrri áætlun í tengsl- um við ráðstafanir í ríkisfjármálum. Vegakerfíð þjónar mikilvægu hlutverki Vegakerfið þjónar mikilvægu hlutverki í stóru og strjálbýlu landi. Það er einskonar æðakerfi í atvinnulífi þjóðarinnar, farvegur hráefna til vinnslustaða og vöru frá framleiðslu- eða uppskipunarstöð- um til dreifingaraðila víðsvegar um landið. Það tengir saman lands- hluta og byggðir atvinnulega, fé- lagslega og menningarlega. Þaö er einn af hornsteinum nútíma sam- félags. Vegakerfi er fámennri þjóð í víð- áttumiklu landi, eins og Islandi, þyngra í skauti kostnaðarlega en milljónaþjóð á fáum fermílum, eins og t.d. Dönum. Sama máli gegnir um fleiri þjóðlífsþætti. Nefna má hringtengingu byggðalínukerfis fyrir raforku. Hátt raforkuverð hér á landi byggist að hluta til á dýru flutningakerfi og að hluta til á skattlagningu (verðjöfnunargjald og söluskattur), auk þess sem arð- semi hverrar fjárfestingar hefur sín áhrif. Varanleg vegagerð er talin mjög arðsöm fjárfesting, sem skilar sér undrafljótt aftur í minni benzín- eyðslu, lægri viðhaldskostnaði, lengri endingu ökutækja — og síð- ast enn ekki sízt í minna vegavið- haldi á malarvegum, en vindar og væta flytja gjarnan árlegan ofaní- burð um set. Sumir halda því fram að við ís- lendingar höfum unnið þrekvirki i vegagerð á fáum áratugum. Þeir hafa mikið til síns máls. Aðrir segja að við séum aftar á merinni, í varanlegri vegagerð en nokkur önn- ur V-Evrópuþjóð. Þeir fara heldur ekki með staðlausa stafi. Allt miðar vegakerfið þó í rétta átt. Það er meira að segja farið að bjóða út framkvæmdir í vegagerð, til að landsmenn, þeir er skatta greiða, fái sem mest fyrir sem minnst. 1 nefndaráliti fjárveitinganefnd- ar, sem fylgir breytingartillögu hennar við vegaáætlun 1983—1986, segir svo orðrétt: „Nú hefur verið ákveðiö, svo sem kunnugt er, að lækka framlög til vegamála um 20 m.kr. í tengslum við ráðstafanir í ríkisfjármálum." Eftir standa þá 1.383 m.kr. útgjöld. Niðurskurður- inn er því nánast nafnið tómt. Efa- lítið tekst þó einhverjum pólitísk- um slagorðasmiðum að breyta þess- ari mýflugu í þann úlfalda að þrýstihópum renni blóðið til skyld- unnar. Ella væri okkur illa aftur farið. Misgóð vinnubrögð þingnefnda Þegar þessar línur er settar á skerm hafa verið lögð fram 363 þingmál og þingskjölin eru komin á tíunda hundraðið talsins. Ekki liggja fyrir tölur um ræður, en þingmönnum hefur ekki verið orða vant fremur en fyrri daginn. Sumir tala bæði oft og lengi og hafa gjarn- an miklar umbúðir um litið efni. Aðrir eru kjarnyrtir. Málgleði þing- manna er síður en svo mælikvarði á gagnsemi þeirra á löggjafarsam- komunni. Það er að vísu kostur á þingmanni að kunna að koma vel fyrir sig orði. En helztu tungufoss- ar þingsins mættu stundum hafa í huga, að tilveran snýst um fleira en talfæri þeirra. Flest ganga þingmál til nefnda, sem starfa misvel. í sumum nefnd- um safnast saman fjöldi óaf- greiddra mála. Á síðustu vikum þings, þegar vorhugur knýr á um þinglausnir, er oft undir hælinn lagt, hvaða þingmálum þingnefndir skila frá sér til afgreiðslu í þinginu. Ef þingnefnd „leggst á mál“ sofnar það, jafnvel þó það njóti meiri- hlutafylgis hjá þingheimi. Verk- stjórar í þingnefndum, þingnefnd- arformenn, ráða í raun miklu bæði um verklag nefndanna og hvaða mál daga uppi. Sumir mættu að ósekju fara betur með þetta vald. Það er nú einu sinni kjarnaatriði lýðræðis og þingræðis að meirihluti ráði ferð, jafnvel þó að einstakir þingnefndarformenn kunni að telja sig hafa sitthvað til brunns að bera fram yfir hinn venjulega þingmann. Ef það er rétt að persónulegar skoðanir einstakra þingmanna, sem valist hafa til verkstjórnar í þing- nefndum, hafi stöðvað þingmál sem meirihlutafylgis njóta, er þörf á að hrista upp í „kerfinu“. Hvað sem því líður hafa forsetar Alþingis séð ástæðu til að finna að vinnubrögð- um sumra þingnefnda. Þeir hafa hvatt til þess að þær dreifi störfum sínum betur á allan þingtímann, þann veg að mál safnist ekki fyrir óafgreidd, jafnvel tugum saman, í einni og sömu þingnefndinni. Káinn orti eitt sinn: „Af langri reynslu lært ég þetta hef / að láta Drottinn ráða þegar ég sef / en þeg- ar ég vaki þá vil ég sjálfur ráða / og þykizt geta ráðið fyrir báða." Þing- nefndarformenn þykjast e.t.v., sum- ir hverjir, geta ráðið fyrir þing- heim. En þingheimur, sem lætur bjóða sér slíkt, á sitt hvað ólært um það fólk er stokkar upp Alþingi á fjögurra ára fresti. Spor til réttrar áttar Kjördæmaskipan, sem komst á haustið 1959, fól í sér leiðréttingu á pólitísku misrétti. Engu að síður var búsetumisvægi atkvæða eftir breytinguna 1:3,22. Eftir breyting- Sýning Jóhannesar Myndlist Bragi Ásgeirsson. Eftir að Gunnar Örn hefur tekið hinar villtu myndir sínar niður af veggjum Gallerí Vest- urgötu 17 hafa þar verið hengdar upp myndir eftir Jó- hannes Jóhannesson. Varla er hægt að hugsa sér ólíkari málara í höfuðborginni um þessar mundir því að það er einmitt rósemin, sem ein- kennir myndir Jóhannesar öðru fremur. Segja má að þessi vinnubrögð séu sígild í eðli sínu og Jóhannesi virðist ekkert liggja á því að myndir hans geta í fleiri ár verið við- loðandi málaratrönurnar. Á þessari sýningu Jóhann- esar þer mjög mikið á smáum skeifumynduðum formum, sem listamaðurinn dreifir um allan myndflötinn svo sem innblásturinn segir honum hverju sinni. Öguð vinnubrögð hins þroskaða margreynda listamanns gera það að verk- um að myndirnar virka mjög ferskar og lifandi þrátt fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.