Morgunblaðið - 20.05.1984, Blaðsíða 44
MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 20. MAÍ 1984
Sumarið er komið og framundan eru ferðalög og útilegur.
En hvert sem leið þín liggur, skaltu hafa með þér góða
bók og birtugjafa af bestu gerð; litla ijósálfinn
Þegar aðrir tjaldbúar eru komnir í fastasvefn, þá skalt þú
festa litla Ijósálfinn á bókina og lesa síðan í ró og næði,
án þess að trufla svefnfriðinn.
Einn stærsti kostur litla Ijósálfsins er að hann getur notast
við rafhlöður og þannig lýst þér við lesturinn, f bílnum,
bátnum, flugvélinni, tjaldútilegunni, sumarbústaðnum, -
hvar sem er!
Borgartúni 22, sími 24590, Reykjavík
Fæst einnig í bóka- og gjafavöruverslunum
Starfsstúlkur hjá Hjúp hf. vinna við
framleiðslu einangrunarhólka.
Hjúp hf, Flúðum:
Framleiðir
nýja gerð
einangrun-
arhólka
þessi
auglýsiHf.
er bara fyrir
stráka
eru sér stráka-
flokkar á þriðjudögum og
föstudögum.
Byrjendur — framhalds-
flokkar.
Allir
aldursflokkar
Kennari Guöbergur
Garðarsson.
Innritun er haffin —
hringið strax í dag milli
kl. 5—7, sími 40957.
Syðra-Langholti, 15. maí.
Á FLÚÐUM býr ungur athafnamaður,
Úlfar Harðarson, og er hann frá
Reykjadal hér í sveit. Hann er vélvirki
að mennt og starfaði við vélvirkjun og
bifvélavirkjun um tíma. Árið 1976
gerðist hann verktaki, hann annast
margskonar jarðvegsvinnu og m.a.
leggur hann vatnsleiðslur bæði fyrir
heitt og kalt vatn. Hann hefur fengið
mikla reynslu við lagningu á heita-
vatnsleiðslum hér í uppsveitum Ár-
ncssýslu og víðar.
Á sl. ári stofnaði Úlfar fyrirtækið
Hjúp hf. ásamt fleirum, en það
fyrirtæki sérhæfir sig í að framleiða
einangrunarhólka fyrir heitavatns-
leiðslur. Er þessi einangrun nokkru
öðruvísi en áður hefur þekkst hér á
landi. Þessir einangrunarhólkar eru
þannig gerðir að næst rörinu er
plastfilma úr polyproppelín en ytra-
byrðið er vindpappi og er sprautað
póýlúreþan á milli, en það er al-
gengt einangrunarefni sem kunnugt
er. Hver einangrunarhólkur er
vatnsþéttur út af fyrir sig. Á verk-
stæði Úlfars hafa verið smíðuð sér-
stök mót þar sem hólkarnir eru
steyptir, en úreþanið er blandað á
staðnum í sérstakri vél.
Á sl. ári voru lagðir 12—13 km af
heitavatnslögnum með þessari ein-
angrunaraðferð, m.a. hitaveita
frambæja í Gnúpverjahreppi sem er
um 8 km og hefur einangrunargildi
þeirrar hitaveitu komið vel út.
Nú í sumar er ákveðið að leggja
heitavatnsleiðslur með þessari að-
ferð svo tugum km skiptir, m.a.
verður lagt heitt vatn á 24 bæi og 25
sumarbústaði í Gnúpverjahreppi frá
borholu við Þjórsárholt. Þessi að-
ferð við heitavatnslagnir er mun
ódýrari en aðrar að því er Úlfar tel-
ur. Undanfarna mánuði hefur verið
unnið á vöktum við að framleiða
svona einangrunarhólka hjá Hjúp
hf. Alls eru starfsmenn hjá vinnu-
vélum Úlfars Harðarsonar og Hjúp
hf. 12 til 14 og því munar mikið um
þessa vinnu í ekki stærra byggðar-
lagi en er hér í Hrunamannahreppi.
FrétUriUri
Úlfar Harðarson
Ljým. Stg.Sipn.