Morgunblaðið - 20.05.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984
43
Haukur Sigurbjörns-
son — Kveðjuorð
Fólk var farið að hlakka til jól-
anna. Jólaljósin voru að senda
fyrstu geisla sína yfir land og lýð
þegar harmafregn um andlát
Hauks Sigurbjarnarsonar bægði
skyndilega burtu bæði tilhlökkun
og yl ljósanna. Ungur drengur er
allur. Erfitt er að trúa slíku og
ótal spurningar leita á hugann,
sem á engin svör.
Jólin eru hátíð gleðinnar og
ljóssins. En sjaldan er ljós án
skugga og angar hans byrgðu bæði
birtu og gleði síðustu jóla í hugum
þeirra er þekktu Hauk og unnu
honum. Yfir hvíldi skuggi í stað
ljóss, sorg í stað gleði, söknuður og
tregi í stað vona og drauma.
Fundum okkar Hauks bar fyrst
saman á haustdögum 1981. Vorum
við þá báðir að hefja nám við
Bændaskólann á Hólum, hvor í
sinni deild. Kynni okkar urðu
aldrei náin en þó þykist ég hafa
þekkt hann allvel og fann að hann
var góðum kostum búinn.
Einn þáttur í fari hans var
hreinskilni. Minnist ég þess að eitt
sinn sem oftar var haldinn nem-
endafundur sem varð stormasam-
ur vegna þess að misskilningur
hafði komið upp um ákveðið mál-
efni. Erfitt reyndist að leiðrétta
hann á fundinum en mér er það
minnisstætt að Haukur var einn
fárra fundarmanna sem fjallaði
málefnalega um efnið, sem og af
hreinskilni og víðsýni. Sýndi hann
ró og stillingu en þó festu og
reyndi að sætta fundarmenn.
Honum var mikilvægt að fá að
vita forsendur málsins áður en
hann drægi af því ályktanir eða
felldi dóma. Einhverra hluta
vegna tókst honum ekki að heyra
alla málavexti á fundinum og
sýndi hann þá enn betur hrein-
skilni sína og dómgreind með því
að koma inn á herbergi mitt og
ræða málin betur í ró og næði að
loknum fundi. Mat ég það ævin-
lega við hann síðan. Slíkan þroska
vantar margan unglinginn og sýn-
ir þetta vel hvað í Hauki bjó.
Viljaþrek hafði Haukur og kom
það vel fram í ástundun hans og
dugnaði í íþrótt hans, sem hann
stundaði einn lengi vel, við erfiðar
aðstæður.
Við Haukur áttum það til, þegar
við hittumst á göngum Hólaskóla,
að gera hlé á ferðum okkar og
hefja þess í stað samræður um
heima og geima. Við áttum ein-
hvern veginn einkar auðvelt með
að spjalla saman en gerðum því
miður allt of lítið af því. Þessar
samræður voru e.t.v. ekki merki-
legar í sjálfu sér en eru mér mjög
minnisstæðar vegna þess, að
Haukur var vingjarnlegur og við-
mótsþýður drengur sem mér
fannst vert að kynnast. Hann vildi
gera gott úr þeim ólgusjó sem
sambúð ungs fólks á fámennri
heimavist getur verið. Hann kom
vel fyrir sig orði, orð hans festust
í minni mínu og ég hugleiddi þau
oft.
Hugur Hauks hneigðist til bú-
skapar og honum vildi hann helga
krafta sína. Nú njóta æðri heimar
krafta þessa unga og efnilega
drengs, krafta sem hann átti í rík-
um mæli. Það vita þeir sem hann
þekktu þótt hann bæri það ekki á
torg, það var ekki hans eðli.
Síðustu misseri hafa skilið
okkur bæði haf og lönd en þó
fannst mér Haukur alltaf nálægur
í huganum því það var sem lægi
þráður væntumþykju milli okkar,
þráður sem ég lagði ekki nógu
mikla rækt við. Eftir að leiðir
skildi tognaði á honum en slitnaði
aldrei og ævinlega skulu einhverj-
ir þættir hans tengja okkur, lífs
eða liðna.
Haukur kvaddi þennan heim í
desember síðastliðnum, þá á 19.
aldursári. Höndin hans gjörva og
hugur hafa heilsað nýjum heim-
kynnum en eftir lifir minningin
um dreng sem mikið var í spunnið.
Ég vil enda þessi síðbúnu og fá-
tæklegu orð á því að votta foreldr-
um hans og öllum aðstandendum
mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Hauks Sig-
urbjarnarsonar.
Bjarni Stefán Konráðsson
Tónlistarkross-
gáta á Rás 2
MIÐVIKUDAGINN 23. maí kl. 15.00
hefur göngu sína á Rás 2 nýr þáttur
sem ber heitið Tónlistarkrossgátan.
Þáttur sem þessi er nýjung hér á landi
en er að sænskri fyrirmynd.
Eins og nafnið bendir til er þátt-
urinn settur saman af krossgátu og
tónlist. Þetta er tónlistargetraun
sem felst í því að 11 til 12 orða
krossgáta er birt í dagblöðum og
fólk hefur hana við höndina, þegar
þátturinn er sendur út. Með hverju
lagi sem leikið er fylgir vísbending,
t.d. 3 lóðrétt, 5 stafa nafnorð í nefni-
falli. Skírnarnafn söngvarans í
næsta lagi, svo dæmi sé gefið. Ekki
verður aðeins spurt um nöfn söngv-
ara, söngkvenna og flytjenda, held-
ur um efni söngtexta, þjóðarheiti,
tungumál og hvað annað sem teng-
ist tónlistinni sem leikin er.
Uppistaðan verða slagarar ár-
anna 1920 til 1980. Þá verða ein til
t
Þakka auðsýnda samúð og vinarkveöjur við andlát og útför
eiginkonu minnar,
BORGHILDAR STRANGE.
Fyrir hönd aöstandenda,
Eiríkur Jónasson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
FINNBOGA HELGA MAGNÚSSONAR,
skipstjóra,
Patreksfirðí.
Dómhildur Eiríksdóttir,
Kristín Finnbogadóttir,
Reynir Finnbogason, Kristín Finnbogadóttir,
Sigurey Fínnbogadóttir, Hafdis Finnbogadóttir,
Hafrún Finnbogadóttir, Steínunn Finnbogadóttir,
Þorvaldur Finnbogason,
tengdabörn og barnabörn.
Svona lítur krossgátan út í fyrsta
þættinum. Lausnir sendist til: Ríkis-
útvarpið Rás 2, Hvassalciti 60.
tvær spurningar um vinsælar óper-
ettur og þegar fram í sækir verður
spurt um íslensk sönglög. Þá verður
lag úr kvikmynd fastur póstur.
I eðli sínu er Tónlistarkrossgátan
þó fyrst og síðast tónlistarþáttur,
sem menn geta notið, hvort sem þeir
leysa gátuna eða ekki. Þeir sem vilja
leysa krossgátuna verða að póst-
leggja hana innan 3 daga til Rásar
2, Hvassaleiti 60, 108 Reykjavík, og
verður dregið úr réttum svörum. Sá
heppni fær svo plötu að eigin vali í
verðlaun.
Umsjónarmaður krossgátunnar,
Jón Gröndal, er kunnur útvarps-
hlustendum fyrir ýmsa þætti sem
hann hefur flutt í útvarpi. Má þar
nefna þáttinn „Danslög í 300 ár“
sem kynnti sögu dansa og danstón-
listar og Töfrandi tónar þar sem
kynntar voru stóru danshljómsveit-
ir áranna 1935 til 1945 og söngvarar
þeirra. Jón var siðast í utvarpinu
veturinn 1982 til 1983 með þætti
sem nefndust I fullu fjöri.
FrétUtilkynninK.
Alberto
Hámæring
Birting afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
Fallegra hár
á 1 mínútu
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og raðgjöf
um gerð og val legsteina.
Ifi S.HELGASON HF
ISTEINSMKUA
I SKSJMUÆGl 48 SiMt 7667?
Tökum að okkur að rétta og
lagfæra legsteina í kirkjugörðum.
S.HELGASON HF
SKENiMUVEQl 48 3MI 70677
CANNON-VÖRURNAR
STUÐLA AÐ VELFERÐ
BARNSINS
Skoðið CANNON-barnavörurnar
í næstu lyfjaverslun.