Morgunblaðið - 20.05.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ1984
45
Ferðaskrifstof-
an Terra opnuð
Ætlunin að kynna
íslendingum nýja
ferðamöguleika og
auka ferðamanna-
straum til landsins
NÝ FERÐASKRIFSTOFA, sem hlot
iö hefur nafnið Terra, tók til starfa í
gær. Terra er til húsa aö Laugavegi
28 og aö sögn forráöamanna skrif-
stofunnar veröur stefnt aö því að
auka feröamannastraum til íslands,
auk þess aö bjóða sumarleyfisferöir
til staöa sem lítið sem ekkert hafa
veriö sóttir af íslendingum hingað
til. l»ar á meöal til Rhodos, Túnis og
Garda.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til vegna opnunar ferða-
skrifstofunnar var meðal annars
sagt frá því að nú þegar hefði
skrifstofan umboðsmenn í Eng-
landi og Kaupmannahöfn, sem
kæmu til með að aðstoða þá ferða-
menn á þessum slóðum, sem
óskuðu eftir því. Þá kom fram að
skrifstofan er í tengslum við ýms-
ar erlendar ferðaskrifstofur og
yrði í framtíðinni stefnt að því að
auka ferðamannastraum til ís-
lands í samvinnu við erlendu
skrifstofurnar. Nú þegar hafi
Terra fengið óskir frá Svíþjóð um
að taka á móti hóp sænskra ferða-
manna til landsins sumarið ’85.
Einnig er gert ráð fyrir því að tek-
ið verði á móti einstökum erlend-
um ferðamönnum sem hingað
koma í sumar, séð um að útvega
þeim gististaði og panta sæti fyrir
þá í ýmsar skoðunarferðir um
landið. Ef um hópa erlendra
ferðamanna er að ræða kemur
skrifstofan til með að skipuieggja
eigin ferðir til markverðra staða á
landinu.
Um nafn ferðaskrifstofunnar,
Terra, höfðu forráðamenn hennar
það að segja að latneska orðið
terra, sem þýðir jörð eða heimur,
væri táknrænt fyrir tilgang
skrifstofunnar; að stuðla að ferð-
um manna um jörðina. Ákaflega
margir fallegir staðir jarðarinnar
væru enn ónýttir af íslenskum
ferðamönnum og skrifstofan hefði
áhuga á að kynna mönnum nýja
staði til sumarleyfisdvalar. í
sumar verður boðið upp á sérstak-
ar ferðir til Túnis, Rhodos, Garda
og Ítalíu, en auk þess annast Terra
alla almenna ferðaþjónustu innan
lands og utan.
Hin nýja ferðaskrifstofa býður
upp á síðsumarsferð til Ítalíu.
Ferðin hefst með vikudvöl í Róm
og síðan verður dvalist í tvær vik-
ur á sólarströnd sem staðsett er
um 100 km. sunnan við Róm. Dval-
ist verður i íbúðum og fylgir bíla-
leigubíll hverri íbúð þann tíma
sem dvalist er í henni.
Framkvæmdastjóri Terru er
Sigríður Magnúsdóttir.
Eigendur og stjórnarmeðlimir
hinnar nýju ferðaskrifstofu i hús-
næöi hennar aö Laugavegi 28. Á
myndinni eru talið frá vinstri: Torfi
Ásgeirsson, Steinþór Ingvarsson,
Sveinn Kjartansson, Björn Zoph-
aníasson og fyrir framan þá situr
Sigríöur Magnúsdóttir fram-
kvæmdastjóri.
Pennavinir
Dömudeild
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist:
Masumi Uchiyama,
c/o Keiji Sawagashira,
159 Iwakura, Hanazon-cho,
Sakyo-ku,
Kyoto,
606 Japan.
Fjórtán ára sænsk stúlka með
áhuga á hestum, íþróttum, frí-
merkjum o.fl.:
Justina Nordgren,
Snickargárden,
290 34 Fjálkinge',
Sweden.
Fjórtán ára japönsk stúlka með
mörg áhugamál:
Satsuki Funada,
2-3 Matsuodai 3 chome,
Inagawa-cho,
Hyogo,
666-02 Japan.
Frá Ítalíu skrifar 23 ára karlmað
ur með margvísleg áhugamál:
Marco Siviero,
Via A.AIbertini 4,
20 154 Milano,
Italy.
Sextán ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist og fróðleikslestri:
Ashimi Syugyo,
2141 Kirishima-Chio,
Aira-gun,
Kagoshima,
899-42 Japan.
Þrítugur brezkur kennari með
mikinn ferðaáhuga auk þess sem
hann safnar póstkortum:
David Grace,
49 Eardley Road,
Streatham,
London S.W. 16,
England.
AUSTURSTRÆTI ÍO SIMI 27211
Meira en venjuleg verslun!