Morgunblaðið - 20.05.1984, Side 48

Morgunblaðið - 20.05.1984, Side 48
Opið alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SÍMI 11633. Opiö öll fimmtudags-. föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. AUSTURSTRÆTI22, INNSTRÆTI, SÍMI 11340 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Annir í þingi í gæn Fimm lög afgreidd FIMM frumvörp voru afgreidd sem lög frá neðri deild Alþingis í gær. I'etta voru lög um Járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði, lög um Aburðarverksmiðju ríkisins, breyting á lögum um tekju- og eignaskatt og breyting á lögum um lif- eyrissjóð starfsmanna ríkisins. Frumvarp Ragnhildar Helgadótt- ur menntamálaráðherra um íslenska málnotkun var afgreitt milli deilda og frumvarp um veitingu ríkisborg- araréttar var einnig afgreitt. Síðar í gær hófst fundur í samein- uðu þingi, þar sem voru á dagskrá 34 mál. Meðal þeirra var tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæða- greiðslu um áfengt öl, og í gær var almennt gert ráð fyrir að sú tillaga gengi til atkvæða fyrir þinglausnir, einnig þingsályktunartillaga um framburðarkennslu og málvernd og tillaga Samtaka um kvennalista um rannsókn og meðferð nauðgunar- mála. Flugmannadeilan: Stöðugir fundir hjá sáttasemj- ara í gær DEILUAÐILAR í flugmannadeil- unni komu saman hjá ríkissátta- semjara í gærmorgun, og seinni- partinn í gær var allt eins búist við því að þeir yrðu á fundum alla helgina. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari sagði þó í sam- tali við blm. Mbl. að útilokað væri að segja nokkuð um það fyrr en seint í gærkveldi, hvort ástæða væri til þess að halda fundum áfram yOr helgina, en í gær feng- ust engar upplvsingar um það hvort miðað hefði í samkomulags- átt eða ekki. Allt flug var með eðlilegum hætti hjá Flugleiðum í gær, bæði innanlands og milli landa. { gærmorgun var flogið á áætlun til Glasgow og Kaupmannahafn- ar kl. 7.30 og til Vínar kl. 9. Auk þess var flogið seinni partinn til Luxemborgar og til Bandaríkj- anna. Sögðust talsmenn Flug- leiða gera sér vonir um að flug yrði áfram samkvæmt áætlun í dag, sögðust enda ekki hafa neina ástæðu til þess að ætla annað. Færeyski línuveiðarinn Birita á strandstaö í gær. Á minni myndunum eru skipbrotsmenn af færeyska línuveiðaranum Birita við komuna til MorfiDblaAit/KEE. Reykjavíkur í gær. „Sjór gekk yfir björgunar- bátinn þegar okkur rak upp“ — sagði Andreas Poulsen, einn skipverja á færeyska línuveiðaranum Birita, sem strand- aöi á Skeiðarársandi Mannbjörg varð. „ÉG var sofandi í koju aftur í stýr- ishúsinu þegar strákarnir vöktu mig, því þeir sáu fjallahring. Ég fór þegar fram og sló af hraðanum og hugðist athuga staðsetningu okkar, þegar bátinn tók niðri. Ég tilkynnti strandið þegar til Hornafjarðar- radíós," sagði Bjarni Thomsen, skipstjóri á færeyska línuveiðaran- um Birita frá Þórshöfn, sem strand- aði á Skeiðarársandi laust fyrir klukkan 1 í fyrrinótt, í samtaii við Mbl. Fimm skipverjar komust í björgunarbát og í land og var bjargað af björgunarsveitar- mönnum á Kirkjubæjarklaustri um 3‘A klukkustund síðar. Skip- verjar á Birita auk Bjarni eru, Peter Martin Hansen, Peter Olof Stora, Andreas Poulsen og Sól- bjartur Midjord. Birita er 30 tonna linuveiðari, um 30 ára gamall bátur. Skipverjar voru á leið á ufsaveiðar hér við land. Hornafjarðarradíó barst til- kynning um strandið frá skip- verjum á Birita, en skipverjar vissu ekki staðsetningu bátsins, aðeins að þeir væru einhvers staðar á suðurströndinni. Björg- unarsveitunum á Kirkjubæjar- klaustri og í Öræfum var gert viðvart, svo og bátum í nágrenn- inu. Bátum tókst að miða út stað- setningu bátsins og fóru björg- unarsveitarmenn niður á sand- ana og björguðu skipverjum, sem voru orðnir kaldir og hraktir þeg- ar hjálp barst. „Ég var niðri í lúkar þegar bát- urinn strandaði, fann höggið, sem kom á bátinn þegar hann tók niðri," sagði Andreas Poulsen, háseti á Birita, í samtali við Mbl. „Mikill sjór gekk yfir bátinn og blotnuðum við allir. Við settum björgunarbátinn út og komumst klakklaust í hann á tæpum þrem- ur mínútum. Við gerðum okkur enga grein fyrir aðstæðum. Sjór gekk yfir björgunarbátinn þegar okkur rak upp í fjöruna, — ég giska á tæplega eitt hundrað metra vegalengd. Það var vissu- lega mikill léttir að komast í land og við skutum upp tveimur neyð- arblysum. Úti fyrir gátum við séð ljós báta, sem sigldu fram og til baka og við rétt grilltum í möstur Birita. Við vissum að okkur yrði bjargað þarna á sandinum, en óneitanlega varð okkur mjög kalt, enda blautir eftir volkið. Það var mikill léttir þegar við greindum ljós björgunarsveitarmanna á leið niður sandinn. Það er ljóst að við vorum mjög heppnir að björg- un tókst svo giftusamlega og í raun var enginn okkar hætt kom- inn, eins og atvik þróuðust," sagði Andreas Poulsen. Við upphaf sáttafundarins hjá ríkissáttasemjara í gærmorgun. Frá vinstri: Björn Guðmundsson, forraaður samninganefndar flugmanna, Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, og Erling Aspelund, formaður samninga- nefndar Flugleiða. Moripinbia»i«/ói.K.M. Stjórnarflokkarnir sammála um landbúnaðarmálin: Vilja endurskoða sölu- niálin og Framsóknarmaðurinn Davíð Aðal- steinsson skrifar undir álit annars minnihluta landbúnaðarnefndar efri deildar Alþingis þar sem segir m.a. að stjórnarflokkarnir séu sammála um „að rækileg endurskoðun fari fram á sölumálum landbúnaðarins þar sem einokun verði aflétt“. Þegar Morgun- blaðið fór í prentun upp úr hádegi í gær stóðu yfir umræður um málið í efri deild. Ljóst virtist þá, að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar samkvæmt samkomulagi stjórnarflokkanna, en mikill ágreiningur hefur verið þar um málið, og stóð Eyjólfur Konráð Jóns- son að flutningi breytingartillögu við amema frumvarpið ásamt stjórnarandstæðing- um. í umræðum um málið í gærmorg- un var deilt hart á einokun Græn- metisverslunarinnar og líkti Eiður Guðnason (A) verslunarháttum hennar við einokunarverslun Dana- konunga hér á landi fyrr á tímum. Hann deildi einnig hart á þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir að láta Framsókn kúga sig í þessu máli og sagði m.a.: „Framsóknarmenn innan Sjálfstæðisflokksins ráða orðið ansi miklu, en völd þeirra fara sem betur fer dvínandi." einokun Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru Eiður Guðnason og Eyjólfur Konráð Jónsson búnir að ganga frá tillögu til þingsályktunar árdegis í gær til framlagningar, ef frumvarpinu yrði vísað til ríkis- stjórnar. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir að fjármálaráðherra láti fara fram opinbera rannsókn á starfsháttumn og viðskiptavenjum Grænmetisverslunar landbúnaðar- ins í ljósi þeirra atburða sem opin- berir hafa orðið á vordögum 1984, eins og segir orðrétt í þingsályktun- artillögunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.