Morgunblaðið - 25.05.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984
Midar í samkomu-
lagsátt í Ziirich
HELDUR miðaöi í samkomu-
lagsátt á fundi samninganefndar
um stóriðju og fulltrúa Alusuisse
í Ziirich í gær, samkvæmt því
sem dr. Jóhannes Nordal for-
maður íslensku nefndarinnar,
upplýsti blaðamann Morgun-
blaðsins í gær.
„Við höfum átt gagnlegar við-
ræður á fundum okkar í dag og
ég tel að menn hafi heldur færst
saman en hitt,“ sagði dr. Jóhann-
es Nordal í samtali við blm. Mbl.
Jóhannes sagði að einkum hefði
verið rætt um samkeppnisaðst-
öðu álbræðslu hér á landi, við
svipaðar álbræðslur á megin-
landi Evrópu og í Bandaríkjun-
um. Þar hefði einkum verið rætt
um raforkuverð, hráefniskostnað
og flutningskostnað, og minna
bæri í milli eftir daginn í gær, en
áður en fundur hófst.
„Frumkvæðið verður
að koma frá bændum“
- segir Helgi Bergs bankastjóri um framkvæmd þings-
ályktunartillögu um beinar greiðslur til bænda
Mælt með
gaard sem
STJÓRN Norræna hússins í
Reykjavfk gekk á fundi sínum í
Norðurlandahúsinu í Tórshöfn
í Færeyjum í gær, frá tillögu
sinni til ráðherranefndarinnar
um það hver skuli ráðinn næsti
forstjóri Norræna hússins í
Knut Ödegárd
í HEILD er staAa sjávarútvegsins svip-
uð eða heldur skárri en hún virtist í
febrúar, ef til vill sem nemur I—2%af
tekjum, samkvæmt nýjum áætlunum
um afkomu botnsfiskveiða og vinnslu,
sem Þjóðhagsstofnun hefur lagt fyrir
Verðlagsráð sjávarútvegsins. Byggist
áætlunin á aukningu kvota og því að
hann náist allur. Sýnir áætlunin stoð-
una um næstu mánaðamót, að teknu
tilliti til 2% launahækkunar 1. júní, en
að óbreyttu fiskverði, en verðlagsráðið
fjallar nú um ákvörðun fiskverðs frá
þeim degi.
Auk mats á breytingum markaðs-
verðs sjávarafurða og kostnaðar,
hafa aflaforsendur áætlananna verið
færðar til samræmis við þá rýmkun
á aflamarki á botnfiskveiðum, sem
ákveðin hefur verið frá ársbyrjun.
Síðustu ákvarðanir um aflamark
fela í sér, að botnfiskafli verði aðeins
2 til 3% minni en var í fyrra, ef
leyfður afli næst. Þetta má bera
saman við 12—13% samdrátt botn-
fiskaflans 1984, sem fólst í upphaf-
legu aflamarki fyrir árið 1984. Þessi
breyting felur í sér nokkru meiri
aflatekjur á hvert skip og sjómann
en i fyrri átælunum, sem að jafnaði
er metið, sem u.þ.b. 5% tekjuauki að
meðaltali frá febrúaráætlun.
Þá segir í áætluninni að þrátt
fyrir heldur skárri stöðu útvegsins
sé þó enn um verulegt rekstrartap
(4—6% af tekjum) að ræða og
greiðslustaðan sé erfið, nema til
komi skuldbreyting sú, sem nú sé í
undirbúningi.
Afkoma fiskvinnslunnar í heild
virðist að óbreyttu fiskverði svipuð
og var í febrúar eftir fiskverðs-
ákvörðun. Frysting er talin vera með
Knut Öde-
forstjóra
Reykjavík, og gerði stjórnin þá
tillögu að Norðmaðurinn Knut
Ödegaard verði ráðinn.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
laugs Þorvaldssonar, formanns
stjórnar hússins, mun norræna
menntamálaráðherranefndin
taka afstöðu til málsins á fundi
sínum 12. og 13. júní nk. Þrjú
nöfn voru valin úr hópi umsækj-
enda, sem upphaflega voru 70
talsins, en einhverjir þeirra
höfðu, dregið umsóknir sínar til
baka. Eins og áður segir, var gerð
tillaga um að Knut Ödegaard
væri ráðinn í starfið, en í annað
sætið setti stjórnin Njörð P.
Njarðvík og í þriðja sæti Danann
Jörgen Asp Pedersen.
Knud Ödegaard er þekkt ljóð-
skáld í heimalandi sínu og áður
starfaði hann sem menningar-
málastjóri í Syðri-Þrændalögum.
Hann hefur þýtt talsvert af verk-
um Thor Vilhjálmssonar yfir á
norsku, og Einar Bragi hefur
þýtt hluta ljóða hans yfir á ís-
lensku. Knut Ödegaard er kvænt-
ur Þorgerði Ingólfsdóttur.
rekstrarhagnað, sem nemur 4—6%
af tekjum, en í söltun er talið vera
tap sem nemur um 4—5% af tekjum.
Verð á freðfiski í dollurum hefur
heldur lækkað eða um 1 '/2 % frá í
febrúar. Verð á saltfiski er aftur á
móti 9—10% hærra en þá. Stór hluti
af verðhækkun á saltfiski kemur þó
ekki beint til vinnslunnar heldur
dregur úr greiðslum úr verðjöfnun-
Viðskiptaráðuneytið skrifaði
Seðlabanka íslands bréf fyrir
skömmu þar sem athygli bankans
var vakin á 5 ára gamalli þingsálykt-
un um beinar greiðslur rekstrar- og
afurðalána til bænda o.fl. og var
Seðlabankanum jafnframt falið að
senda ráðuneytinu hið allra fyrsta
tillögur um framkvæmd ályktunar-
innar. Af þessu tilefni sneri blaða-
arsjóði. Afkoman hefur þannig jafn-
ast nokkuð milli greina innan fisk-
vinnslunnar.
Markaðsverð í erlendri mynt hef-
ur þó lítið hækkað, eða ef til vill um
1% frá í febrúar, þegar á heildina er
litið. Þá segir að á Bandaríkjamark-
aði gæti nú án efa harðnandi sam-
keppni frá ríkisstyrktum sjávarút-
vegi, m.a. í Kanada og Noregi.
maður sér til bankamanna til að fá
skýringar á því af hverju þingsálykt-
unartillagan hefði ekki verið fram-
kvæmd og hvenær mætti búast við
að það yrði.
Davíð Ólafsson, Seðlabanka-
stjóri, vísaði á viðskiptabankana,
sagði að það væru þeir sem ættu
að framkvæma þetta þar sem þeir
lánuðu féð að langmestum hluta.
Seðlabankinn endurkeypti einung-
is um % hluta afurðalánanna.
Sagði hann að Seðlabankinn hefði
bent á ákveðnar leiðir í þessu efni
sem hugsanlega væru framkvæm-
anlegar en Seðlabankinn gæti ekki
skipað viðskiptabönkunum fyrir
verkum í þessu efni. Helgi Bergs,
bankastjóri Landsbanka íslands,
sagði að skipuð hefði verið nefnd í
þetta mál á vegum ráðuneytisins
og hefði hún komist að þeirri
niðurstöðu að ekki væri fært að
gera þetta í bili. Sagði hann að
stefnt væri að breytingum sem
enn hefðu ekki komist til fram-
kvæmda.
„Við getum ekki breytt þessu í
bönkunum nema viðskiptamenn-
irnir óski þess. Við erum í sjálfu
sér tilbúnir til þess en frumkvæðið
hlýtur að verða að koma frá bænd-
um,“ sagði Helgi. Aðspurður hvort
hver einstakur bóndi þyrfti þá að
fara fram á breytingu sagði Helgi
að það væri nauðsynlegt. Hver
einstakur bóndi þyrfti að sækja
um lán en þá myndu bankarnir
lenda í nokkrum vanda vegna veð-
setningarinnar. Afurðalánin væru
veitt með sjálfsvörsluveði í birgð-
um og skilyrði væri að lántakandi
hefði birgðirnar undir höndum.
Milton Friedman er heimsfrægur
hagfræðingur og Nóbelsverðlauna-
hafi.
Friedman
til Islands
MILTON Friedman og kona hans
Rose eru væntanleg í heimsókn til
íslands í lok ágúst nk., fyrir for-
göngu frjálshyggj umanna. Fried-
man þarf vart að kynna, hann hlaut
Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið
1976 og hefur um áratugaskeið verið
einn þekktasti málsvari frjáls-
hyggju. Hann hefur skrifað ógrynn-
in öll, bæði um hagfræði og stjórn-
mál, og þess má geta að ein best
þekkta bók hans „Frelsi og framtak"
(Capitalism and Freedom) hefur
verið gefin út á íslensku. Ennfremur
voru fimm af tíu þáttum Friedmans,
sem byggðir voru á bók hans „Free
to choose” sýndir hér á landi.
Um dagskrá heimsóknar Friedmans
mun nánar verða getið síðar.
NT ræðst á bótakerfi
bænda og niðurgreiðslur
„ÚRELT niðurgreiðslu- og útflutn-
ingsbótakerfi setur bændastéttina
í voða,“ segir á forsíðu aukablaðs
NT, stuðningsblaðs Framsóknar-
flokksins, í gær. Hér er um rit-
stjórnargrein NT að ræða og eru í
henni færð rök að því að niður-
greiðslur og útflutningsbætur ís-
lensks landbúnaðar séu hluti af
kerfi sem „ekki beinlínis“ sé lík-
legt „til þess að geta staðist í hag-
kerfi nútímans“, eins og það er
orðað.
NT lagði þannig út af ræðu
Steingríms Hermannssonar,
formanns Framsóknarflokksins,
á miðstjórnarfundi framsóknar
á Akureyri fyrir skömmu, að I
henni hefðu komið fram sjón-
armið meðal annars varðandi
landbúnaðarmál, sem féllu al-
farið að stefnu NT og í ritstjórn-
argreininni í gær segir meðal
annars:
„Fyrir það fyrsta hafa niður-
greiðslur og útflutningsbætur
komið alfarið í veg fyrir að til
gæti orðið einhver hagrænn
grundvöllur undir hefðbundinn
íslenskan landbúnað. í öðru lagi
eru bændur Iöngu sviptir efna-
hagslegu sjálfstæði þar sem
kaup þeirra og kjör eru ákveðin
af hinum aðskiljanlegustu
valdastofnunum fyrir sunnan.
Fyrst og síðast þó Alþingi. Bein
aHeiðing þessa eru ömurleg kjör
bændastéttarinnar. í þriðja lagi
hefur öll umræða um að halda
landinu í byggð snúist um fyrr-
nefnd styrkjakerfi og stjórnlaus
togarakaup. Raunhæf langtíma
atvinnuuppbygging landsbyggð-
arinnar hefur legið í láginni.
Fyrir alla þá sem unna ís-
lenskri menningu og skilja þann
sársauka sem því fylgir að
byggðarlög fari í eyði er mikil-
vægt að landið allt haldist í
byggð. Á hinn bóginn er einhver
búseturöskun alltaf óhjákvæmi-
leg breyttum samfélagshátt-
um ... Til þess að byggð geti
haldist úti á landsbyggðinni þarf
að byggja upp ný atvinnutæki-
færi á sviði iðnaðar og nýrra
búgreina út um allt land. Sú leið
sem hingað til hefur verið farin
er ekki bara gagnslaus heldur
stórhættuleg til langs tíma lit-
ið...“
Ný áætlun Þjóðhagsstofnunar:
Staða sjávarútvegs heldur
skárri en í febrúarmánuði
Ómar á nýrri FRÚ
ÓMAR Þ. Ragnarsson fréttamaöur, skemmtikraftur,
rallökumaður með meiru er kominn á nýja frú, ef svo
má að orði komast. Hefur hann fengið sér nýja flugvél,
sem, eins og þær fyrri, ber einkennisstafina TF-FRÚ.
Flugvél þessi er af gerðinni Cessna Skylane, en fyrri
frúrnar voru af gerðinni Cessna Skyhawk. Flugvélarn-
ar eru fljótt á litið mjög svipaðar, en nýja frúin er
veigameiri en þær fyrri.
Nýja frú Ómars er sú fjórða í röðinni, hin fyrsta var
skráð hér á landi 1965, sú næsta vorið 1979 og sú
þriðja í árslok 1979. Og nýja frúin kom reyndar hingað
til lands vorið 1977, og bar þá einkennisstafina TF-
KOT. Eigandi hennar var Örn heitinn Johnson, for-
stjóri Flugleiða.
Ómar hefur notað flugvélar sínar mjög vegna starfs
síns, en auk frúarinnar á hann tveggja hreyfla flugvél
af gerðinni Piper Apache, sem ber einkennisstafína
TF-HOF. Hefur Ómar að sögn kunnugra líklega lent á
frúm sínum víöar um land en nokkur annar, jafnt í
byggð sem óbyggö.