Morgunblaðið - 25.05.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAl 1984
7
Guðmundur G. Þórarinsson:
Mútur frá Alusuisse
og ábyrgð blaðamanna
■ (.udmunduf G. ►ooiw.mi*.
NT tekiö til bæna
Guömundur G. Þórarinsson, fyrrverandi þingmaöur Fram-
sóknarflokks í Reykjavík, sem veriö hefur framvöröur flokks síns
í orku- og orkuiönaöarmálum, tekur NT til bæna vegna óvand-
aörar blaðamennsku. Staksteinar tylla tám á nokkra kafla úr
grein Guömundar í dag.
„Hverft við
erég
fletti NT“
(luðmundur G. Þórar-
insson, fyrrv. alþingismað-
ur Framsóknarflokks, seg-
ir m.a. í grein í NT:
„Ég verð að játa, að mér
varð hverft við er ég fletti
NT á mánudaginn. Við
mér blasti fyrirsögnin:
„Mútur frá Alusuisse?" á
fjórðu síðu og mynd af dr.
Jóhannesi Nordal. I>að eru
líklega engin takmörk fyrir
því, hvað menn geta látið
sér detta í hug.
Kg hef um árahil orðið
vitni að svæsnum árásum á
dr. Jóhannes Nordal í
hlööum, aðallega auðvitað í
1‘jóöviljanum, og oft hafa
mér þá komið í hug vísuorð
Bjarna:
Ekki er holll tA hafa ból
hefóar uppi á jökultindi,
af þ»í þar er ekkert ukjól
uppi fyrir frosti, anjó né vindi.
Kn einhvern veginn varð
mér meira um að sjá að-
dróttanir sem þessa í
„mínu blaði".
Ég hefi nú í um það bil
ár starfað með Jóhannesi
að samningum við Alti.su
Lsse og reyndar fleiri aðila
og í tilefni þessara skrifa f
„mínu blaði“ þykir mér
rétt að einhver sem til
þekkir opni munninn. Ég
held að ég þekki þarna
betur til cn sumir aðrir.
Samningarnir
við Alusuisse
Síðan f júní 1983 hefur
Jóhanncs stýrt samningum
við Alusuisse af íslcndinga
hálfu. Arangur hefur orðið
verulegur. Kaforkuverðið
til ÍSAL hækkaði um nær
20% 1. júlí 1983 eða rétt
við byrjun viðræðna og sfð-
an um 50% í september
1983.
Þessi hækkun færir
Landsvirkjun um 10 millj-
ónir króna á mánuði síðan
og veldur stórbættum hag
fyrírtækisins.
Jafnframt var undirritað
samkomulag um að ræða
frekari hækkun orkuverðs-
ins. I>ær viðræður standa
nú yfir og vonandi íæra
þær okkur enn frekari
hækkun.
Hhitur Jóhannesar Nor-
dal er stór f þessum við-
ræðum og þessum árangri.
I>ar kemur margt til. Jó-
hannes býr yfir óvenjulega
yfirgripsmikilli þekkingu á
sviði alþjóðlegra efna-
hagsmála og orkumála.
Vald hans á viðfangsefninu
vekur virðingu þeirra sem
við er rætt Hann er ákaf-
lega fljótur að átta sig á
óvæntum málsatvikum og
hefur mikla hæfileika til að
greina aöalatriðin í þung-
um málaflækjum, að
greina kjarnann frá hism-
inu. Hann er varfærinn,
vandvirkur og vandaður og
vekur því traust viðsemj-
enda.
í viðræðunum teflir Alu-
sulsse fram hæfustu
mönnum, sem eru doktor-
ar í lögfræði og verkfræði
og hafa auk þess helgað líf
sitt áratugum saman ál-
framleiðslu, sölu- og mark-
aösmálum.
Þrátt fyrir það hefur Jó-
hannes haldið þannig á
málstað íslendinga að
utanaðkomandi mönnum,
sem áheyrendur væru að
viðræðunum gæti virst eins
Ijóst að hann hefði aldrei
gert annað á starfsamri
ævi en að fást við hinar
ýmsu hliðar álviöskipt-
anna.
Óneitanlega er fslend-
ingum óskaplegur styrkur
að eiga slíkan málsvara f
viðskiptum við erlenda að-
ila.
Ég sé í fljótu bragði eng-
an sem skilaðí þessu hlut-
verki betur.
Það er engin tilviljun að
dr. Jóhannes Nordal er
þekktur víða um heim og
fyrir honum borin virðing.
I>að er auðvitað ekkert
nýtt að fslendingar reyni
að gera lítið úr sínum bestu
mönnum.
Alþýðubandalagið og
Þjóðviljinn hafa þá bar-
áttuaðferð að búa til óvini
handa fólkinu til þess að
beina athyglinni frá sjálf-
um sér. Þegar fer að nálg-
ast kosningar ráðast þessir
aðilar á kaupmenn og
hcildsala og ýmsa slíka og
allur vandi þjóðarbúsins
stafar þá frá þeim. I*egar
mest liggur við er ráöist á
Seðlahankann og Jóhann-
es.
Ég hafði gert mér vonir
um að þjóðin væri farin að
sjá í gegnum þetta, enda
þessi baráttuaðferð þekkt f
gegnum söguna. Kn þegar
„mitt blað“ sveigir inn á
sömu línu verður mér
hverft við.
*
Abyrgd
blaðamanna
Til þess að sclja dag-
blöðin í harðri samkeppni
grípa menn til óyndis-
úrræða. Gamalt máltæki
segir: „Kyrun fýsir allt að
heyra.“
Slegið er fram ótrúleg-
ustu hhitum um nafn-
greinda einstaklinga, fyrir-
sögn höfð stór með mynd
af manninum. í greininni
sjálfri er síðan sagt að höf-
undur taki enga ábyrgð á
því sem sagt sé, hann hafl
þetta eftir einhverjum öðr-
um eða almannarómi. Gkki
sé lagöur dómur á sann-
leiksgildi fregnarinnar, en
hins vegar sé hér um mjög
alvarlegt mál að ræða.
Gr unnt að ra'gja menn
og ófrægja á öllu lipurlegri
og óábyrgari hátt?
Síöan er allt kórónaö
með því að höfundur ritar
undir dulnefni. Því auðvit-
að vill hann sjálfur ekki
vera bendlaður við málið.
Það er mikið rætt um
ábyrgð stjórnmálamanna
og embættLsmanna. Gn
hver er ábyrgð blaða-
manna? Hvflir engin
ábyrgð á þeim gagnvart
lesendum eða þeim sem
þeir skrifa um?
Gr ábyrgð blaðamanns
engin þegar hann flytur,
rangtúlkar, ýjar að eða gef-
ur í skyn?
„Ég gæti sagt með sama
rétti og þessi greinarhöf-
undur eitthvað á þessa leið:
Þrálátur orðrómur er
uppi um allt land um að í
blaðamannastétt hafl safn-
ast hópur menntamanna,
sem hvergi fá vinnu, ekk-
ert geta gert, eru til einskis
hæflr og enginn vill hafa f
vinnu. Þessir menn hafa
hins vegar gerst blaóa-
menn vegna þess að til
þess þarf enga menntun.
engin skilyrði að uppfylla
og þar bera menn enga
ábyrgð á ncinu, sem þeir
gera, en geta fullnægt
lægstu hvötum sínum, með
þvf að leggja nafntogaða
einstaklinga og marga
bestu syni landsins í einelti
með upplognum kjaftasög-
um.
Auðvitað tek ég fram að
ég legg ekki dóm á sann-
lciksgildi þessa orðröms,
en játa hins vegar að hér er
um svo alvarlegt mál aó
ræða að blaðamannastéttin
hlýtur að gera hreint fyrir
sínum dyrum.“
Vegna fjölda áskorana framlengjum við
tilboðinu til laugardagsins 26. maí nk.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verslunarinnar
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 26.5. frá kl. 10—3 e.h.
ath : K.M. Húsgögn
Tilboöiö veröur ekki endurtekiö Langholtsvegur 111 — Símar 37010 — 37144 — Reykjavík.
Áskriftcirsíminn er 83033