Morgunblaðið - 25.05.1984, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.05.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1984 3 Heilög Sesselja eftir Hannes Sig- urðsson í öllu sínu veldi á vegg Út- vegsbankahússins í Austurstræti. Morgunblaöið/EBB Heilög Sesselja hengd upp í gær — Forsala adgöngumiöa á Listahátíð hefst í dag Geröu cjarðinn glæsilegan I Jón Baldvin var skólameistari MÍ frá 1970—1979 að undanskildu skólaárinu 1976—1977 að Bryndís Schram gegndi starfinu. Allan þann tíma var kennt í gamla barnaskólahúsinu við Aðalstræti. Ljósm. úlfar. ísafjörður: Kartöfluverksmiðjan hf. í Þykkvabæ: Tíu ára stúdentar heiðra skólameistara Aldrei önnur eins sala ísafiröi, 21. maí. í VOR eru tíu ár síðan Mennta- skólinn á ísafirði útskrifaði stúd- enta í fyrsta sinn. f tilefni þess var fyrstu rektorum skólans, hjónun- um Bryndísi og Jóni Baldvini Hannibalssyni boðið vestur. Við skólauppsögnina afhentu fyrstu stúdentarnir skólanum að gjöf málverk af þeim hjónum, þar sem þau sitja framan við gamla skóla- húsið í Aðalstræti, en í því var kennt þar til um áramót í vetur. Pétur Guðmundsson, listmálari á fsafirði, málaði myndina. Nú er skólinn loksins kominn í eigið hús- næði á skólalóðinni við Torfnes, unnar og aðra daga til 10 á kvöldin og um margar helgar." — Hvaða kartöflur notið þið? „Bæði innfluttar og smáar ís- lenskar. Því miður erum við að klára þessar íslensku núna og er það í fyrsta skipti sem ekki þarf að henda smáum kartöflum hér í Þykkvabænum. Síðan höfum við fengið kartöflur frá Hollandi, af binté-tegund, sem Grænmetis- verslunin flytur sérstaklega inn fyrir okkur.“ — Þið hafið þá ekki þurft að nota þær finnsku? „Nei, aldrei. Við reyndum það þegar þær komu fyrst til landsins en gátum ekki notað þær. Það var aðallega vegna bragðsins. Við ger- um miklar kröfur og þessar finnsku hentuðu alls ekki í fram- leiðslu á frönskum kartöflum. Þær eru allt of dökkar og bragðvondar. Við reyndum aldrei að sjóða þær, enda áttum við þá nóg af íslensk- um. Sem betur fer fórum við ekki út í að nota þær því seinna kom í ljós að þær voru ekki heilbrigðar og þá hefðu afföllin orðið gífurleg," sagði Friðrik Magnússon. Ari Hálfdánarson í Kartöflu- verksmiðju KSÞ á Svalbarðseyri sagði að salan hjá þeim væri góð, þeir gætu ekki kvartað yfir henni, en hinsvegar væri hún ekkert meiri en venjulega. Baly áfrýjaði: Var settur í farbann JÓN Erlendsson sakadómari úrskuró- aði Miroslav Peter Baly í farbann í gær, eftir aö Baly hafði áfrýjað dómn- um vegna fálkaeggjaþjófnaðarins til Hæstaréttar. Gunnlaugur Briem yfirsakadóm- ari sagði í samtali við blm. Mbl. í gærkveldi að talið hefði verið nauð- synlegt að úrskurða manninn í far- bann, þar til dómur hefði gengið í Hæstarétti í málinu. þar sem heimavist hefur verið starfrækt í mörg ár. Úlfar MJÖG góð sala hefur verið á fram- leiðsluvörum Kartöfluverksmiðjunn- ar hf. í Þykkvabæ undanfarna þrjá mánuði. Söluaukningin er frá 50 og upp í 100% eftir vörutegundum, og hefur aldrei verið önnur eins sala á soðnum kartöflum til heimilisnota eins og nú, að sögn Friðriks Magn- ússonar framkvæmdastjóra Kart- öfluverksmiðjunnar hf. „Salan hefur verið mjög góð í mars, apríl og það sem af er maí,“ sagði Friðrik í samtali við blm. Morgunblaðsins. „Aukningin hefur verið 50 til 60% á sumum tegund- um og allt upp í 100% á parísar- kartöflum og soðnum kartöflum. Flest veitingahús og mötuneyti eru farin að nota þessa vöru, enda er þetta mjög hagkvæmt fyrir þá, all- ar kartöflur í lagi og tilbúnar til notkunar. Þá hefur sala á soðnum kartöflum til heimilisnota aldrei verið jafn mikil og nú frá því við byrjuðum." — Hafið þið getað annað þessari miklu eftirspurn? „Við höfum unnið á tveimur 8 tíma vöktum tvo til þrjá daga vik- HAFI menn ekki vitað að Listahátíð er á næstu grösum voru vegfarendur minntir rækilega á það laust eftir kl. 16 í gær þegar risastór mynd af verndara Listahátíðar 1984, heilagri Sesselju, var strengd á vegg Útvegsbankahúss- ins í Austurstræti. Myndin er eftir ungan listamann, Hannes Sigurðsson, sem er að út- skrifast úr Myndlista- og handíða- skólanum nú í vor en hann heldur síðar í sumar til náms í París. Fullu nafni heitir mynd Hannesar: „Heilög Sesselja stekkur hæð sína í loft upp af ánægju með gróskuna I listalífi á íslandi" en af skiljanlegum ástæðum var nafnið stytt til þæginda. Forsala aðgöngumiða á viðburði Listahátíðar hefst kl. 14 í dag og verður í fyrsta sinn á þremur stöð- um. Auk þess að vera f Gimli eins og áður verða miðar seldir í Vörumark- aðinum á Seltjarnarnesi og í Mikla- garði við Sund á sama tíma og versl- anirnar eru opnar. Nú gefst þér kostur á að gera garðinn þinn glæsilegri en þú hefur nokkurn tíma ímyndað þér! Með U-steinum og Gras-steinum opnast stórkostlegir möguleikar í frágangi garða á íslandi - möguleikar sem þú getur notfært þér á auðveldan hátt. Hvernig skrautsteinar geta gjörbreytt garðinum þínum Við höfum gefið út bækling þar sem við sýnum nokkrar hugmyndir um útfærslur á skrautsteinum - útfærslur sem þú getur auðveldlega aðlagað þínum garði - og að sjálfsögðu komið með eigin hugmyndir! Hringdu í okkur eða skrifaðu og við sendum þér eintak um hæl. Ráðgjöf og upplýsingar Nóatúni 17 105 Reykjavík sími: 91-26266 Við bjóðum að sjálfsögðu hellur í ýmsum stærðum og gerðum, tröppusteina og fylgihluti s.s. garðborð, stóla og útigrill - raunverulega allt sem þú þarft til að gera garðinn þinn glæsilegan! Ráðgjöf landslagsarkitekts og heimsending* - ókeypis! Við bjóðum þér ráðgjöf landslagsarkitekts sem leiðbeinir um notkun og útfærslur á skrautsteinum og hellum - þér að kostnaðarlausu. Hafðu samband við okkur, við munum með ánægju veita þér allar frekari upplýsingar. * Heimsending er ókeypis innan Stór-Reykjavíkursvæðisins. Pantanir Steinaverksmiðja Breiðhöfða 3 110 Reykjavík * sími: 91-85006 Brevtist í við útkomu sim.iskrár S4 ~1T

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.